Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Page 16
+
16
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
MIÐVTKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
17
Sport
Sport
Bland í noka
Sigrún Óttarsdóttir, fyrirliði meist-
araflokks kvenna í knattspymu, var val-
in íþróttakona Kópavogs fyrir áriö 1999.
Þetta var tilkynnt í hófi sem íþrótta- og
tómstundaráð Kópavogs stóð fyrir á
sunnudaginn. Rúnar Alexandersson,
fimleikamaður úr Gerplu, var valinn
íþróttamaður Kópavogs.
George Weah hefur verið lánaður til
Chelsea til ioka þessarar leiktíðar. Áður
haiði hann sjálfur sagst vera á leiðinni
til Marseiile en það átti ekki við rök að
styðjast.
ítalski markvörðurinn Massimo Taibi,
sem er samningsbundinn Manchester
United, hefur verið lánaður til Reggiana
á Ítalíu út þetta tímabil. í sumar heldur
hann á ný til Manchester og freistar
þess aö endumýja sæti sitt í markinu.
Grant HiU, leikmaður Detroit Pistons,
var valinn leikmaður síðustu viku í
NBA-deildinni. Hill skoraði að meðaltali
38,8 stig í Qómm leikjum með liði sínu.
Hann tók að meðaltali 5,3 iráköst og átti
7,5 stoðsendingar.
ítalska liðid Piacenza rak í gær þjálfar-
ann sinn, Luigi Simoni. Þessi ákvörðun
var tekin eftir stórtap gegn Cagliari um
siðustu helgi. Maurizio Braghin tekur
við starfmu tímabundið.
Chicago Bulls hefúr gert skammtíma-
samning við Chris Carr og mun hann
leysa B.J. Armstrong af hólmi en hann
á í meiðslum. Carr, sem er 25 ára, hefur
leikið með fimm liðum í NBA.
Daniel Stephan, sem leikur með
Lemgo, var í gær kjörinn handknatt-
leiksmaður ársins í Þýskalandi í þriðja
sinn. Hann hlaut yfirbuðakosningu en
annar I kjörinu varð Stefan
Kretzschmar hjá Magdeburg og Magn-
us Wislander, Kiel, varð í þriðja sæti.
Engin breyting varð á stöðu þriggja
efstu liða á evrópska styrkleikalistanum
i knattspymu sem birtur var í gær.
Lazio er í efsta sæti og síðan koma
Bayem Múnchen og Manchester United.
Mestu breytingamar urðu þær að
Barcelona fór úr 19. sætinu í það 11.
Á sama lista kemur fram að Slavia
Prag hefur leikið 16 leiki í röð án þess að
bíða ósigur. Markahæstu leikmenn í
Evrópu um þessar mundir em Mario
Jardel, Porto, og Ruud Van Nistelrooy,
PSV, en þeir hafa skorað 22 mörk í
deildakeppnum sinna landa.
Slóvenar, sem eru með íslandi i riðli í
Evrópukeppni landsliða í handbolta,
unnu 26-30 sigur á Þjóðveijum á æfinga-
móti. Þjóðveijar töpuðu einnig fyrir
Spáni á þessu móti, 27-29, og þar em
menn famir að hafa áhyggjur af lands-
liði sínu enda stutt í Evrópukeppnina.
B-deildarliðið Gillingham sló í gær
úrvalsdeildarlið Bradford City út úr
ensku bikarkeppninni. Giilingham vann
leikinn, 3-1, og er þetta aðeins í annað
sinn í meira en 100 ára bikarsögu
félagsins sem liðið kemst í 5. umferð.
í ensku deildarbikarkeppninni vann
Aston Villa West Ham, 3-1, í gær eftir
framlengdan leik en leikinn varð að
endurtaka því að West Ham notaði
ólöglegan leikmann í sigri sínum í
upphaflega leiknum. Frank Lampard
kom West Ham yfir í upphafi seinni
háifleiks en Ian Taylor tryggði Aston
Viila framlengingu, þar sem Julian
Joachim og Taylor skomðu tvö mörk.
Paolo Di Canio lét David James,
markvörð Aston Villa, veija frá sér víti
í framlengingunni.
Fyrsta stórmót ársins í tennis karla fer
fram í næstu viku, opna ástralska
mótið. Ef Pete Sampras sigrar á mótinu
verður hann fyrsti maðurinn sem nær
að innbyrða 13 sigra á stórmótum.
-JKS/-SK/-ÓÓJ
$
NBA-DEIIDIN
Úrslit í nótt:
Washington-Toront.........117-89
Williams 17, Strickland 15 -
Carter 19, McGrady 16.
New York-Chicago..........95-88
Johnson 19, Houston 15 -
Artest 24, Brand 22.
Minnesota-Miami ........106-116
Garnett 35, Peeler 16 -
Majerle 33, Lenard 18.
Seattle-Phoenix .........101-88
Payton 23, Barry 21 -
Robinson 17, Chapman 13.
Golden State-Dallas .... 102-109
Jamison 28, Marshali 21 -
Cebellos 29, Finley 21.
Sacramento-Houston .... 110-93
Webber 26, Martin 17 -
Franciss 16, Mobley 14.
Arni varði tvo viti
Árni Gautur Arason varði tvær vítaspyrnur í vítakeppni er Rosenborg
sigraði þýska liðið Duisburg á æfingamóti á Spáni í gærkvöld, 4-2.
Árni Gautur lék í marki Rosenborg allan leiktímann og tryggði liði sínu
sigurinn. í næstu umferð æfingamótsins mætir Rosenborg liði Króatíu
Zagreb eða PSV Eindhoven. -SK
Colin McCormick, hinn nýi leíkmaður Þróttar með
Þróttartrefilinn hátt á lofti í gær. DV-mynd Pjetur
8-liða úrslit bikarkeppni körfuboltans:
Grindavík í
undanúrslit
- eftir góða sigurferð á Krókinn í gær
Grindvíkingar gerðu góða ferð á
Krókinn í gærkvöld eftir að þurfa
að fresta för sinni þangað tvívegis
vegna veðurs. Suðurnesjamenn
mættu grimmir og ákveðnir til
leiks og náðu að innbyrða mikinn
baráttusigur, 73-64, í leik sem var
hnífjafn fram á síðustu mínútu.
Geysisterk vörn gestanna
Það var geysisterkur
varnarleikur „Grindjánanna“ sem
sló heimamenn i Tindastóli út af
laginu og þar með út úr
bikarkeppninni þetta árið.
Gestirnir byrjuð betur og leiddu
allan fyrri hálfleikinn. Munurinn
var þó aldrei mikill og í leikhléi
var þriggja stiga munur, 31-34.
Grindvíkingar byrjuðu seinni
hálfleikinn með því að skora tvær
þriggja stiga körfur, en Stólunum
tókst að svara og baráttan var
mikil. Það var ekki fyrr en um
miöjan seinni hálfleik sem
heimamönnum tókst loks að
komast yflr í leiknum, í stöðunni
51-60, en gestimir náöu að svara
og tókst síðan að gera út um
leikinn með góðum lokakafla.
Brenton Birmingham átti mjög
góðan leik i liði Grindvíkinga og
þeir Pétur Guömundsson og
Sævar Garðarsson börðust mjög
vel. Hjá Tindastóli var Shawn
Mayers bestur og Sverrir Þór
Sverrisson drjúgur, en í heild var
liðið ekki að leika eins vel og
jafnan í vetur.
Stig Tindastóls: Shawn Mayers 20,
Svavar Birgisson 12, Sune Hendriksen
12, Kristinn Friöriksson 11, Helgi
Margeirsson 6 og Friörik Hreinsson 3.
Stig Grindvíkinga: Brenton
Birmingham 25, Pétur Guðmundsson
10, Sævar Garöarsson 8, Alexander
Ermolinski 8, Eyjólfur Guðlaugsson 7,
Bjami Magnússon 6, Dagur Þórisson 6
og Bergur Hinriksson 3 -ÞÁ
Liöstyrkur til Þróttara
Þróttarar hafa fengið góðan liðstyrk i 1. deildarkeppninni í knattspyrnu
því Charlie McCormick, 18 ára írskur unglingalandsliðsmaður, sem kem-
ur frá Peterborough United, hefur gert þriggja ára samning við Þrótt.
McCormick er sóknarmaður og þykir mjög efnilegur.
Ungur Þróttari gæti þó verið á förum frá liðinu því Liverpool vill fá Sig-
mund Kristjánsson (son Kristjáns Sigmundssonar, fyrrverandi landslið-
markvarðar í handbolta) til sín. Sigmundur fer út 4. febrúar og dvelur í
Bítlaborginni í tíu daga en hann fór í byrjun desember og vakti þá mikla
aðdáun og forsvarsmenn Liverpool vilja ólmir fá hann aftur. -ÓÓJ
Þreyttar
KR-konur
KR-konur komust á topp 1. deildar kvenna í körfubolta í gær með því að
leggja aö velli ÍS, 60-46, í baráttuleik. Stúdínur komu ákveðnar til leiks og
héldu í við KR-liðið lengst af
leiknum en KR-liðið var þreytúlegt
eftir tveggja daga hrakningaferð til
Sauðárkróks þar sem ófært var til
baka skömmu eftir að þær lentu.
Þetta var 24. heimasigur KR í röð í
deildinni og tíundi sigurinn í röö í
deild og bikar í vetur.
Kristjana í stuði
Stúdínur gerðu marga góða hluti í
þessum leik og einkum má geta
Kristjönu Magnúsdóttur sem átti
stórleik, skoraði 18 stig, stal 9
boltum og hitti úr 7 af 11 skotum
sínum.
Hjá KR var Guðbjörg Norðfjörö
mjög traust að vanda, Kristín B.
Jónsdóttir kom mjög sterk inn af
bekknum en annars var það
liðsheildin sem skapaði sigurinn.
Þaö er þó ekki oft sem þetta KR-lið
tapar 27 boltum í leik sem er það
mesta hjá þeim í vetur.
Stig KR: Guöbjörg Norðfjörð 16, Kristín
B. Jónsdóttir 10, Hanna B. Kjartansdóttir 8
(6 fráköst, 4 stoðsendingar), Emilie
Ramberg 7, Sigrún Skarphéðinsdóttir 7,
Linda Stefánsdóttir 5 (4 stolnir), Gréta
María Grétarsdóttir 5, Guörún Arna
Sigurðardóttir 2, Hildur Siguröardóttir 2.
Stig ÍS: Kristjana Magnúsdóttir 18, Hafdís
Helgadóttir 13 (10 fráköst), Stefla Rún
Kristjánsdóttir 4, Jófríður Hafldórsdóttir 3
(4 stoðsendingar), Svana Bjamadóttir 3 (8
fráköst), Georgia Kristiansen 3, Júlía
Jörgensen 2. -ÓÓJ
Sigfús hættur í Val
- segja Valsmenn og segja ákvörðunina Sigfúsar. „Er í Val í dag,“ segir Sigfús og veit ekki betur
Línumaðurinn sterki, Sig-
fús Sigurðsson, leikur ekki
meira með liði Vals í
Nissandeildinni í handknatt-
leik í vetur. Geir Sveinsson,
þjálfari Vals, tilkynnti leik-
mönnum Vals þetta á æfingu í
gærkvöld.
Sigfús hefur ekki mætt á
æfingu lengi hjá Val og nánast
ekkert látið sjá sig á æfingum
svo vikum skiptir. Þolinmæði
Valsmanna brast í gær og líta
Valsmenn þannig á málið að
með framferði sínu hafi Sigfús
í raun sjálfur ákveðið að
hætta að leika með liðinu.
Sigfús er hættur
„Það er rétt að Sigfús er
hættur að leika. með okkur.
Hann hefur mætt á þrjár æf-
ingar frá síðasta leik og lítið
látið heyra í sér og því var það
í raun hans ákvörðun að
hætta. Það var þetta sem Geir
tilkynnti okkur leikmönnum,"
sagði Júlíus Jónasson, fyrir-
liði Vals, í samtali við DV í
gærkvöld.
„Það er rétt að ég hef litið
látið sjá mig að Hlíðarenda
undanfarið," sagði Sigfús Sig-
urðsson í samtali við DV í
gærkvöld. Hann var þá stadd-
ur á kaffihúsi og hafði ekki
fengið vitneskju um tilkynn-
ingu Geirs þjálfara á æfing-
unni í gærkvöld.
„Það er óráðið hvað ég geri
í framtíðinni en eins og stað-
an er í dag þá er ég í Val. Ég
er alls ekki óánægður með
Val. Félagið hefur gert mjög
mikið fyrir mig,“ sagði Sigfús.
- Af hverju hefur þú ekki
mœtt á œfingar hjá Val?
„Það er af persónulegum
ástæðum sem ég get ekki rætt
nánar. Það hefur margt gerst í
mínu lífi undanfarið
ár,“ sagði Sigfús.
Karl Jónsson, for-
maður handknatt-
leiksdeildar Vals
hafði eftirfarandi að
segja þegar DV ræddi
við hann í gærkvöld.
„Það má vel vera að
Sigfús sé ekki lengur í
16-18 manna æfingahópi Vals.
Það kemur mér verulega á
óvart ef þjálfarinn hefur til-
kynnt að hann leiki ekki
meira með liöinu í vetur. Ég
sé ekki tilganginn með því.
Það hefur engum samningum
verið sagt upp varðandi Sigfús
Sigurðsson."
-SK
Bland í noka
Það varð að aflýsa leik Stoke á móti
Oldham i bikarkeppni neðri deflda I
Englandi i gær, þvi á 57. minútu fór
rafmagn af næsta nágrenni valiarins
og varð þar með alveg myrkt á
veflinum i Oldham. Stoke hafði þá haft
0-1 forustu í fimm mínútur en ekki er
víst hvenær áfram verður haldið.
Manchester United vann sinn fyrsta
sigur í heimsmeistarakeppni félagsliða
i knattspymu í gær er liðið lagði South
Melbourne af velli, 2-6. Fortune
Quinton skoraði bæði mörk United á
fyrstu 20 mínútum leiksins.
Romario tryggði Vasco de Gama sæti
í úrslitaleik sömu keppni er hann
skoraði sigurmarkið gegn mexíkóska
liðinu Necaxa. Necaxa komst yfir i
ieiknum strax á fimrntu mínútu með
marki Alex Aguinaga en Odvan
jafnaði áður en Romario skoraði sitt
þriðja mark í keppninni.
Úrslitaleikur keppninnar fer fram á
iostudag og þar mætast tvö brasilísk
lið, Vasco de Gama og Corinthians, en
Real Madrid og Necaxa leika um þriðja
sætið. -ÓÓJ
Norðurlandamótið í knattspyrnu:
Hópur tilkynntur
í lok vikunnar
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari i
knattspymu, er að gera sér vonir um að
geta tilkynnt landsliðshópinn sem heldur
á Norðurlandamótið á La Manga á Spáni
í lok mánaðarins undir lok þessara viku.
íslendingar leika þrjá leiki í þessari lotu,
við Norðmenn, Finna og Færeyinga.
„Við höfum að undanfórnu verið að
kanna stöðuna hjá leikmönnum sem
leika erlendis og vonandi fæ ég endanleg-
ar staðfestingar þar að lútandi síðari
hluta vikunnar. Það er orðið ljóst að við
leikum án Eyjólfs Sverrissonar en þýska
deildin hefst óvenju snemma núna eftir
vetrarfríið. Það verður ennfremur erfitt
að fá leikmenn frá Bretlandseyjum allan
timann en vonandi þó í einhverja leiki,"
sagði Atli Eðvaldsson.
Hann sagðist ætla með 18 manna hóp á
mótið og síðan myndu kannski 4-6 leik-
menn koma til Spánar og leika jafnvel
einn leik af þessum þremur leikjum.
Þetta ætti þó allt eftir að skýrast þegar
liði á vikuna.
„Norðmenn standa frammi fyrir sama
vandamáli og við að stór hluti leikmanna
er að leika með liðum í Bretlandi og víð-
ar. Ég held að lið þeirra verði að mestu
skipað leikmönnum frá Rosenborg. Þetta
verður örugglega um fram allt gott og
skemmtilegt mót og verðugt verkefni fyr-
ir okkar landslið," sagði Atli. Liðið held-
ur til Noregs 28. janúar og heldur síðan
til La Manga daginn eftir. -JKS
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handbolta:
Svíarnir sterkastir í riðlinum
- undirbúningi landsliðsins miðar vel áfram
íslenska landsliðið í handknattleik mætir
annað kvöld svonefndu Hafnarfjarðarúrvali í
Kaplakrika en leikurinn er liður í undirbún-
ingi landsliðsins fyrir Evrópumótið í Króatíu.
Þetta verður fyrsti leikurinn af þremur á
næstum dögum. Á föstudag verður leikið gegn
úrvalsliði útlendinga sem leika hér á landi og
á sunnudag leikur landsliðið gegn KA norður
á Akureyri.
Allt í góðum gír
Þorbjörn Jensson landsliðsþjáifari sagði í
gær undirbúninginn allan vera í góðum gír.
Eftir helgina ætlar Þorbjöm að tilkynna þann
16 manna hóp sem hann ætlar með til Króatíu.
„Frakklandsferðin skilaði sínu og var hin
besta í alla staöi. Frakkamir eru í ákveðnu
uppbyggingarstarfi en þeir hafa þegar tryggt sér sæti á HM
2001 sem gestgjafar. Engu að síður hafa þeir sterku liði á
að skipa,“ sagði Þorbjöm.
Þorbjörn Jensson, iandsliðs-
þjáffari íslands í handbolta
Hann var inntur eftir því hvemig gengi
að afla upplýsinga um andstæðingana í
riðlinum í Króatíu.
„Ég hef verið að reyna að verða mér úti
um upplýsingar. Ég veit t.d. lítið um Sló-
venana en við mætum þeim í síðasta
leiknum svo ég hef kannski ekki miklar
áhyggjur af því. Ráðstafanir hef ég gert
til að fá myndbandsspólu af Portúgölun-
um. Um Danina er það að segja að þeir
eru sterkir. Ég hef undir höndum góðar
upplýsingar um þá en stór hluti liðs-
manna þeirra leikur í Þýskalandi.
Svíamir eru með sterkasta liðið í riðlin-
um að mínu mati. Þeir standa sig alltaf
vel af gömlum vana eins og berlega hefur
komið í ljós á siðustu árum. Rússamir
eru óskrifað blað en þeir koma eflaust mjög sterkir til
leiks,“ sagði Þorbjörn Jensson.
-JKS
Heimasigur í Hólminum
„Okkar nýi leikmaður gerir
liðið að meiri heild og spilar
aðra leikmenn vel inn í leikinn
og karfa hans undir lok leiks-
ins var vendipunktur þegar
Hamarsmenn voru við það að
ná okkur,“ sagði Bárður Ey-
þórsson, liðstjóri Snæfells, eft-
ir að Hólmarar höfðu lagt
Hamarsmenn með 17 stiga
mun, 89-72, í gærkvöld.
Heimamenn sýndu Hamars-
mönnum enga gestrisni og
náðu Hamarsmenn ekki að
skora fyrr en eftir tæplega 5
mínútna leik og þá úr víti.
Hinn nýi leikmaður Snæfells,
Adonis Pamponis, sem er leik-
stjórnandi, spilaði mjög vel
bæði í vörn og sókn og einnig
var Kim Lewis feiknasterkur
að vanda.
Leikmenn Hamars virtust
ekki vaknaðir í byrjun og þeg-
ar leið á fór mótlætið að fara í
taugamar á þeim og þeir fengu
2 tæknivillur, þar af þjálfarinn
Pétur Ingvarsson eina en hann
hafði lítið sést í leiknum.
í seinni hálfleik var allt ann-
að að sjá til liðs Hamars og
það náði að minnka muninn í
3 stig. Þegar Hamarsmenn
virtust vera að gera sig lík-
lega til að ná Snæfelli skoraði
hinn griski leikmaður Snæ-
fells glæsilega körfu, fékk víti
að auki og kom leikmönnum
Snæfells aftur á beinu braut-
ina.
í liði Snæfells spilaði Kim
Lewis vel að vanda, Adonis
Pomponis var góður og einnig
spilaði Pálmi Freyr feikivel
og m.a. endaði hann seinni
hálfleikinn eins og þann fyrri
með glæsilegri 3 stiga körfu
um leið og leiktíminn rann út.
Jón Þór átti einnig góðan dag
en hjá Hamri var Brandon
Titus yfirburðamaður og fór á
kostum í seinni hálfleik þar
sem hann skoraði 25 stig.
Skarphéðinn Ingason spilaði
einnig feikivel og Hjalti Páls-
son átti góðan dag, þá sérstak-
lega í vöminni. -KS
Stúdínan Jófríður Halldórsdóttir sést hér með boltann 4
harðri baráttu við Kristínu B. Jónsdóttur, KR. Jófríður
þurfti að fara út af í upphafi seinni hálfleiks eftir að hún
fékk högg aftan á hálsinn. DV-mynd Hilmar Þór
Snæfeli (45) 89 - Hamar (31) 72
11-0, 15-2, 21-8, 31-19, (45-31), 52-39, 5545, 63-57, 68-65, 75-65, 81-67, 89-72.
Kim Lewis 29
(12 fráköst, 10
stoðsendingar, 5 stolnir)
Pálmi Sigurgeirsson 18
Jón Þór Eyþórsson 16
Adonis Pomponis 12
David Colbatt 9
Ágúst Jensson 5
Fráköst: Snæfell (9 í
sókn-19) 28 Hamar (21 í
sókn -18) 39.
3ja stiga: Snæfell 19/10
Hamar 20/7.
Dómarar (1-10): Rögn-
valdur Hreiðarsson og
Eggert Þór Aðalsteinsson
(5). Gœði leiks (1-10): 6.
Titus Brandon 35
Skarphéðinn Ingason 11
Pétur Ingvarsson 11
Hjalti Pálsson 6
Ómar Sigmarsson 5
Óli Barödal 4
Víti: Snæfell 21/15 Hamar
11/7. Áhorfendur: 250.
Maður leiksins: Kim Lewis, Snæfell.
8-liða úrslit bikarkeppninnar í körfubolta:
Öruggt hjá Njarðvík á ísafirði
+
Loksins fór leikur KFÍ og
Njarðvík í átta liða úrslitum
bikarkeppni KKl fram í gær.
Leikurinn, sem hafði verið tví-
frestað vegna veðurs, var frekar
slakur og leiðinlegur á að horfa,
lítil barrátta og getan bara til
staðar öðrum megin og Njarðvík
vann öruggan 21 stigs sigur,
67-88.
Jafnt var með liðunum fyrstu
mínútur leiksins og það leit út
fyrir að næstneðsta liðið í Ep-
son-deildinni ætlaði að velgja
efsta liðinu undir uggum. Það
varð þó aldrei, Njarvíkingar
náðu á stuttum tíma tuttugu
stiga fomystu og var þá allt púð-
ur horfið úr ísfirðingum. Njar-
vík leiddi í hálfleik, 30-52.
Njarðvíkingar héldu upptekn-
um hætti í síðari hálfleik, með
þá Örlyg Sturluson og Teit Ör-
lygsson í fararbroddi, þeir röð-
uðu niður 3ja stiga körfunum á
meðan KFÍ gerði lítið til að
stöðva þá enda næsta ómögulegt
þegar þeir eru heitir. Öruggur
sigur Njarvikinga í frekar slök-
um leik þar sem hvorugt liðið
svitnaði við leik sinn, KFÍ af því
það nennti því ekki og Njarðvík
af það þurfti þess ekki.
Bestu menn Njarðvíkur voru
þeir Teitur og Örlygur ásamt
Keith Veney sem er nýr leik-
maður þeirra Njarðvíkinga, en
hann sýndi oft góð tilþrif og er
ljóst að þar er á ferðinni góður
leikmaður sem á eftir að styrkja
Njarðvik mikið í vetur. Hjá KFÍ
var Baldur Jónasson sprækast-
ur ásamt Clifton Buch sem þó
hefur oft sýnt betri leik.
Stig KFÍ: Vinko 16, Clifton Buch 14,
Baidur Jónasson 10, Tómas Hermanns-
son 9, Halldór Kristmannsson 7, Pétur
Sigurðsson 5, Tom Hufl 2, Guðmundur
Guðmannsson 2, Þórður Jensson 2.
Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygsson
20, Keith M. Veney 19, Örlygur
Sturluson 18, Hermann Hauksson 14,
Friðrik Stefánsson 8, Friðrik
Ragnarsson 5, Páll Kristinnsson 2,
Gunnar Örlygsson 2 -AGA
Hnefaleikar:
Mike Tyson er
enn umdeildur
- fær ekki að stíga fæti á breska grund
Óvíst er hvort vandræðageml-
ingurinn Mike Tyson fær að berj-
ast gegn ungum breskum hnefa-
leikakappa, Julius Francis, í
þungavigt í Manchester þann 29.
janúar.
Mike Tyson er auðvitað marg-
dæmdur maður i Bandaríkjunum
og nú eru taldar litlar líkur á því
að hann fái dvalarleyfi i Bretlandi
og því verði ekkert af bardagan-
um.
Bresk lög eru skýr þegar af-
brotamenn erlendir hyggjast stíga
fæti á breska grund. Hafi þeir hlot-
ið dóma í heimalandi sínu og sams
konar afbrot kalla á 12 mánaða
fangelsisdóm í Bretlandi fær við-
komandi ekki dvalarleyfi í Bret-
landi.
Tyson var árið 1992 dæmdur í
sex ára fangelsi vegna nauðgunar
og aftur komst hann í kast við
bandarísk lög í fyrra er hann fékk
12 mánaða dóm fyrir líkamsárás.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Mike Tyson er í fréttum. Frægt
varð er hann át eyrun af Evander
Holyfield og lamdi andstæðing
sinn fyrir skemmstu eftir að bjall-
an glumdi. Ferill hans er orðinn
skrautlegur en þrátt fyrir þunga
dóma eins og í nauðgunarmálinu
þá hefur hann oft sloppið með að
sitja í skamman tíma innan riml-
anna. Árið 1992 sat hann inni
helming refsitímans og aðeins í
fjóra mánuði af tólf í fyrra.
Ráöherrann einn getur
bjargað Tyson
Einn maður hefur völd til að
veita Mike Tyson undanþágu og
þar með dvalarleyfi, innanríkis-
ráðherrann Jack Straw. Víst er að
mikið álag verður á Straw því
gríðarlegur áhugi er fyrir bardag-
anum og 22 þúsund manns hafa
þegar keypt miða á bardagann.
Þjálfari Julius Francis segist
ekki trúa því að ekkert verði af
bardaganum. Hann segir að bar-
daginn gegn Tyson sé tækifæri
lífsins hjá Francis og hann trúi
því ekki að bresk yfirvöld muni
eyðileggja þetta einstaka tækifæri
Bretans.
Þá hefur þingmaðurinn Glenda
Jackson, sem boðið hefur sig fram
í borgarstjóraslagnum í London
sem framundan er, lýst því yfir að
hún muni gera allt vitlaust ef
Tyson verði leyft að koma til
Bretlands.
Niðurstaða í málinu ætti að
liggja fyrir fljótlega því Tyson
ætlar að koma til Manchester i
næstu viku. -SK