Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000 DV nn Ummæli Hókus pók- us þjóðarsátt „Þegar allt um þrýtur, stöð- ugleikinn riðar og verðbólgan ! fer af stað ganga , hinir vísu lands- , feður fram fyrir . þegna sína og mæla íram \ sín- ! um dýpsta og landsföðurleg- asta rómi: „hók- us pókus þjóðarsátt". Og sjá, að slíkri sátt fenginni eflist góðærið..." Sigríður Jóhannesdóttir al- þingismaður, í Morgunblað- inu. Baráttuaðferð S amfylkingarinnar „Baráttuaðferð Samfýlking- arinnar nú er nákvæmlega sú sama og fyrir kosningar, sem sagt leggjum hugsjónimar til hliðar til þess að við getum orðið stórir. Þegar við erum orðnir stórir þá mun hugsjón- in mikla, vonin um völd, bit- linga og embætti, duga til að halda okkur saman svo við get- um áfram verið stórir.“ Ragnar Stefánsson jarð- skjálftafræðingur, í Morgun- blaðinu. Forsetinn „Ég er á því að sá stóri hluti þjóðarinnar sem kaus Ólaf Ragnar Grímsson forseta íslands hafí kosið hann vegna þess sem hann sagði en ekki , bara vegna þess að hann hafði mál. Þeir sem kusu hann ekki verða því að sætta sig við það.“ Sigtryggur Magnason blaða- maður, í DV. Forsætisráðherra og stjómarskráin „Forsætisráðherra segir í einu orðinu að ekki verði hlaup- ið i að breyta stjórnarskránni í einni svipan en í því næsta læt- ur hann liggja að því að ef dóm- stólar vogi sér að gagnrýna brot á stjómarskránni beri þeir ábyrgð á hrani efnahags og þjóðlífs á íslandi." Pétur Bjarnason varaþingmaö- ur, í Morgunblaðinu. Þjóðkirkjan „Þjóðkirkjan er stórfyrirtæki sem hefur fólk í , vinnu og aflar fjár með veraldar- vafstri. Og á ekk- ert skylt við krist- indóm, frekar en , Eimskipafélagið eða LÍÚ.“ Úlfar Þormóðsson rithöfundur, í Degi. Dr. Hu Minghai nálastungulæknir: Tllraun með nálastungur sem verkjameðferð DV, Hveragerði: Náttúrulækningafélag Islands efnir til málþings um nálastungur í lækn- ingaskyni þann 18. janúar nk. Einn af frammælendum verður Dr. Hu Ming- hai, nálastungulæknir með „fúll rétt- indi“ (að vestrænum hætti) frá Tianj- in College of Traditional Chinese Medicine, einum virtasta skóla sinn- ar tegundar í Kína. Dr. Hu Minghai kom hingað til lands í framhaldi af ákvörðun um eflingu samstarfs Kína og íslands á sviði heilbrigðismála. Hann var fenginn til Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði til eins árs starfs- dvalar með það _ að aðalmark- miði að vera aðili að til- - ins og í þriðja lagi er hún notuð sem verkjastillandi eða deyfandi meðferð. Dr. Hu segist annast sjúklinga með ýmiss konar sjúkdóma eða verki. „Til dæmis kom einn til mín sem hafði verið með flensu í um fjóra mánuði en hann náði sér alveg eftir meðferð hjá mér.“ Ekki sagðist Dr. Hu hafa fengist við nálastunguaðferð til að hjálpa fólki að hætta reykja né aö leggja af, hvorki hér né í Kína. Hann sagði þó að oft gæti annað hvort gerst sem aukaverkun af annarri meðferð. Fremur erfltt var að fá Dr. Hu til Maður dagsins raunum með nálastimgur sem verkja- meðferð. Dr. Hu, eins og hann er jafnan kall- aður í Heilsustofnun, er 37 ára gamall og hefur að undanfomu starfað nær eingöngu við kennslu í nálastungum við Tianjin-læknaskólann. „í lækna- skólanum í Tinjan era yfír fjórtán hundrað sjúkrarúm og margs kyns sjúkdómar sem þarf að vinna með. Þannig er best að læra og kenna.“ Aðspurður kveðst Dr. Hu ekki telja líklegt, þótt hann vildi, að íslensk stjórnvöld mundu samþykkja hann sem kennara á háskólastigi hér. „Á íslandi er ágreiningur um hvort nála- stunguaðferð eigi rétt á sér og yfir- völd klofin i þeim skoðunum. Heima í Kína hefur þessi meðferð verið við- urkennd sem lækningaaðferð í aldaraðir. Nálastungumeðferð þjón- ar aðallega þrennum tilgangi. í fýrsta lagi er hún notuð til þess að koma jafnvægi á innri starf- semi líkamans (Yin og Yang), í öðru lagi er henni ætlað að auka starfsemi ónæmiskerfis- þess að ræða um sína per- sónulegu hagi og sneri hann iðulega sam- talinu að lækningum. „Hér á Heilsu- stofnun er starfsandinn góður og samstarfs- menn mínir þægi- leg- ; ir. Maturinn er ágætur á sinn hátt en ég er ungur maður og þarf að fá kjöt. Eins finnst mér vanta krydd eins og ég er vanur heima." í fristundum sín- um stundar Dr. Hu líkamsrækt, aðal- lega í tækjasal Heilsustofnunar nú, þegar veður leyflr varla göngur, hvað þá hlaup. Aðspurður hvemig jól og áramót hefðu verið hjá honum svar- aði hann því að sér hefði verið boðið í mat til „the Manager, Mr. Gunnars- son“ á jólunum. Áramótunum varði hann í Reykjavík, heima hjá öðrum kínverskum nálastungulækni, Jia, og sagðist hafa horft hugfanginn á flugeldahafið úr Hallgríms- kirkjutumi á miðnætti. Hjá Jia fékk hann ekta kin- verskan mat en hann kvaðst hafa heyrt að kín- verskir matsölustaðir hérlendis væru meira eins og blanda af vestur- landa- og kínverskum mat. Heima í Kína er nokkuð löng bið eftir honum hjá eiginkonu hans, Zhao Ruyi lyflafræðingi og 9 ára gömlum syni þeirra, Hu Guangze. -eh V \ Særún Stefánsdóttir sýnir í Gallerí Hlemmi. Hér Særún Stefánsdóttir mynd- listarkona hefur opnað nýja gall- hún hefur unnið að á síðast- liðnu ári. Þetta er fyrsta einka- sýning Særúnar síðan hún lauk mastersnámi frá Giasgow School of Art. Sýningin stendur til 30. syningu í __________ ______ erí@hlemmur.is, Þver- SÝllÍllSðr janúar. holti 5, Reykjavík. Á * * ° Galleri@hlemmur.is er sýningunni, sem bc ' nafnið opið alla daga nema mánudaga Hér, sýnir Særún vcrk sem frá klukkan 14 til 18. Vafamál Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn. Stjarn- an og Víking- ur léku saman um síð- ustu helgi og var leikur- inn í járnum allan tímann Fimm leikir í kvenna- handboltanum Mikil spenna hefur myndast í Úrvalsdeild kvenna í handboltan- um og lítill stigamunur á milli sex efstu liða. Það er stutt á milli um- ferða í deildinni og eftir stutta hvíld verða leiknir flmm leikir i kvöld og má búast við mikilli spennu i mörgum leikjanna. í Austurbergi tekur ÍR á móti Stjömunni sem sigraði Víking um síðustu helgi í miklum baráttu- leik. Á Akureyri leika KA og Grótta KR og verða gestimir að teljast sigurstranglegri, í Vals- heimilinu leika ~ " Valur og FH og IþrÓttir það verður ör-_____________ ugglega spennandi leikur enda lið- in á svipuðu róli í deildinni. í Vestmannaeyjum leika ÍBV-stúlk- ur gegn Haukum og í Víkinni tek- ur Víkingur á móti Fram og verða Víkingsstúlkur örugglega grimm- ar þar sem þær töpuðu sínum fyrsta leik í deildinni um síðustu helgi. Allir leikimir heflast kl. 20. Ekkert leikið í körfuboltanum i kvöld en annað kvöld verður leik- ið í Úrvalsdeild karla. Bridge Tekist hefur að framleiða verulega sterkar skáktölvur en ekki hefur gengið eins vel að búa til bridgetölv- ur af sama styrkleika. Bridgetölvan GIB, sem hönnuð var af Matt Gins- berg, prófessor við Háskólann í Or- egon, þykir gefa góðar vonir um framhaldið. Bretinn David Bird spil- aði nýlega við tölvuna og hreifst af kunnáttu hennar. Bird sat í sæti vest- urs en GIB stjómaði öflum hinum höndunum. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og AV á hættu: * 1043 KD43 * 872 * 1094 * Á9 * G987 -♦ G64 * Á876 * K8765 102 •f D1095 * K2 * DG2 Á65 * ÁK3 * DG53 Vestur norður austur suður Pass pass pass 1 grand Pass 2 * pass 2 ♦ Pass 2 grönd pass 3 grönd P/h Grandopnunin var 15-17 punktar og sumir myndu ef til vill segja beint þrjú grönd á norðurhöndina eftir neitun suðurs á hálit. Bird er hins vegar hrifinn af varkárni tölvunnar, hönd norðurs er ekki góð ef suður á lágmarkshönd. Bird var ekki svo heppinn að hitta á spaðaútspflið og lagði niður lauftíuna í upphafi. Austur fékk fýrsta slaginn á kónginn og spilaði lágum spaða til baka. Suður fékk slaginn á drottninguna heima, lagði niður tígulásinn og spilaði siðan lágu hjarta að blind- um. Bird setti drottninguna og hélt áfram spaðasókninni. GIB var langt frá því að leggja árar í bát. Hún tók næst 3 slagi á lauf og austur henti hjarta og tigli. Síðan var hjartaásinn lagður niður. Austur átti eftir K87 i spaða og D10 í tígli. Tígli mátti aug- ljóslega ekki henda og því fékk einn spaðinn að flúka í glatkistuna. GIB spilaði þá spaðagosanum, austur tók tvo slagi á þann lit en varð síðan að spila frá tiglinum. Góðar tölvur era færar um endaspilun af þessu tagi í dag! ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.