Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Síða 11
Nýlega kom út plata Dr. Dre, Chronic 2001. Þar heldur hann áfram gæfulegu
samstarfi við hina ýmsu rappara, þó aðallega Eminem og Snoop Doggy Dogg.
Hún hefur gengið mjög vel og þykir Dre vera sjálfum sér líkur. Meira er í
bígerð á vesturströndinni þar sem ný plata NWA er einnig á leiðinni.
Dr. Dre gaf nýlega út sína fyrstu
plötu í nokkur ár, Chronic 2001.
Þessi plata er eins konar framhald
hinnar klassísku rappplötu, Chron-
ic, sem Dre gaf út árið 1992. Á nýju .
plötunni kennir ýmissa grasa og
stendur þar kannski helst upp úr
samstarflð við Eminem. Eminem
hefur nokkum veginn tekið við
hlutverki Snoop Doggy Dogg sem
rappaði ótt og títt með Dre á fyrri
Chronic-plötunni. Að sjálfsögðu
teygir hann líka raddböndin á plöt-
unni en þó ekki eins mikið.
Grammy-tilnefningar
Platan hefur gengið vel ytra og
undirstrikar gott gengi þeirra félaga,
Dre og Eminem. Hún náði platínu-
sölu á einungis þremur vikum og
selst eins og heitar lummur. Þetta er
búið að vera gott ár hjá Dre. Flestir
ættu nú að kannast við plötu
að óvörum er Snoop Doggy
Dogg nýjasti meðlimur NWA.
Eminem, The Slim Shady
LP, sem kom út á síðasta
ári, en Dr. Dre var þar aðal-
maðurinn bak við tjöldin.
Nýlega voru tilnefningar til
Grammy-verðlaunanna
kynntar og er Eminem þar
fremstur í rappflokknum
með plötuna sína. Þá kemur
lagið My Name Is einnig til
greina sem besta rapplag.
Eminem var einnig til-
nefndur með Dr. Dre fyrir
besta tvíeyki í hinu frábæra
lagi, Guilty Conscience. Dr.
Dre er með aðra tilnefningu
í þeim flokki, eða hann og Snoop rétt-
ara sagt. Það er fyrsta smáskífan af
Chronic 2001, Still D.R.E., sem gerir
það gott þar. Hins vegar var platan
sjálf gefm út of seint til að ná því að
vera tilnefnd. Grammy-verðlaunin
verða afhent með pompi og prakt 23.
febrúar.
Snoop í NWA
En það er meira að frétta af þess-
um vesturstrandarfélögum. Þessa
dagana er ný plata frá einni af
áhrifamestu rappsveitum hingað til,
NWA (Niggaz with Attitude), í bi-
gerð. Sveitin sprakk undir lok ní-
unda áratugarins þegar meðlimir
hennar lentu í miklu ósætti. En nú
eru öll leiðindi geymd og grafm og
þeir hafa tekið höndum saman enn á
ný. Á plötunni verða m.a. Ice Cube
og MC Ren. Það sem er hins vegar
merkilegast er staðgengill hins látna
Eazy E sem dó úr alnæmi fyrir
nokknun árum. í stað hans kemur
hinn geltandi Snoop Doggy Dogg.
Þetta er kannski ekki það sem spek-
ingar í rappheimum bjuggust við og
á eflaust eftir að virka sem mikil
vítamínsprauta fyrir hljómsveitina.
Þó svo að ferill Snoop hafi verið á
Eminem er nýjasta afurö Dr. Dre og hefur samstarfiö gengiö vonum framar.
niðurleið upp á síðkastið efast fáir
um hæfileika hans. Þar spilar
inn í að hann verður undir
stjóm Dr. Dre í hljóðver-
inu og ef einhver kann
að fara rétt með hæfi-
leika Snoop er það Dre.
Upptökur á plötunni eru
hafnar og ætti hún að
koma út seinna á árinu.
En Snoop hefur meira í
pokahominu. Hann er nýbúinn að
gefa út ævisögu sína og kenn-
ir þar ýmissa grasa, enda
hefur hann lent í mörgu,
þó svo að hann sé ungur
að ánun. Það er nú samt
staðreynd að ekki á að
gefa út ævisögu sína
áður en slær grátt í vang-
ann - sjáið bara Bubba og
Bryndísi Schram. -hvs
Fyrir tæpum tveimur árum kom hingað til lands ein af stærri rappsveitum
Bandaríkjanna, The Gravediggaz. Þeir héldu tónleika í Fylkishöllinni í Árbæ við
mikinn fögnuð þeirra sem mættu. Nú hefur einn af meðlimum hljómsveitarinnar,
Poetic, stofnað Life Goes On samtökin, til hjálpar listamönnum sem eiga við
veikindi að stríða en Poetic berst einmitt sjálfur við krabbamein.
Rappari hjálpar
sjúkum listamönnui
íslandsfararnir í Gravediggaz ganga
í gegnum harmleik þessa dagana.
Einn meðlimur sveitarinnar, Poetic,
berst við þann foma fjanda mann-
kyns, krabbamein, nánar tiltekið
ristilkrabbamein. Nýlega héldu þeir
Gravediggaz-menn tónleika í
Brownies-næturklúbhnum i New York
honum til styrktar og stuðnings. Þetta
voru eins konar stofntónleikar Life
Goes On samtakanna, sem era til
styrktar listamönnum.
Fruitkwan í miklum ham.
Stórstirnin mæta
Þeir tónleikar vora óneitanlega bet-
ur heppnaðir en Árbæjarsýningin sem
Gravediggaz héldu hér um árið og var
margt um manninn til að blæða úr
pyngju sinni. Mikið var um stórstjöm-
ur úr rappheimum sem og minni
stimi. Þar vora til dæmis fyrrum með-
limur Gravediggaz, RZA, ásamt Poor
Righteous Teachers, Heltah Skeltah,
The Deadly Venoms, Non-Phixion og
nýjasta vopn Wu-Tang gengisins, R&B
söngkonan Tekitha.
„Við komum öll héma saman í
kvöld til að gera hvað sem við getum
til að hjálpa Poetic til að byggja sig
upp, bæði andlega og líkamlega,"
sagði félagi hans úr Gravediggaz,
Fraitkwan.
Tilfinningaflóð Poetic
Viðstaddir sögðu þó að uppákomur
allra þessa skemmtikrafta hefðu ekki
komist í hálfkvisti við tilfinningaflóð-
ið sem Poetic, einnig þekktur sem
Anthony Berkeley, sýndi er hann steig
á sviðið til að þakka fyrir sig. Það er
betra að eiga góða að og það sannaðist
svo sannarlega fyrir Poetic það kvöld-
ið. „Eg vil að fólk viti að þessi stuðn-
ingur er metinn rnikils," sagði hann
yfir lýðinn. „Nú mun ég reyna að
koma mér í aðstöðu þar sem ég get
unnið og endurgoldið samfélaginu
með tónlist."
Poetic byrjar í geislameðferð í
næsta mánuði og hefur þurft að
horfast í augu við reikninga sem
hljóða upp á 4000$ á mánuði en eins og
flestir listamenn í Bandaríkjunum er
hann ekki með tryggða heilsugæslu. I
tilefni af þessu stofnaði hann Life
Goes On samtökin til hjálpar þeim
listamönnum sem eiga í erfíðleikum
með að borga sjúkrahúsreikningana.
En við íslendingar þurfum ekki að
hafa áhyggjur af svoleiðis leiðindum
því þó svo að heilbrigðiskerfið hér hjá
okkur sé gallað þá kemur það meira
til móts við okkur heldur en Kanamir
við sína heimamenn. -hvs
Bellatrixá
tónleika-
ferðalagi
Þeir sem misstu af Bellatrixtón-
leikunum í Iðnó í síðustu viku
geta glaðst yfir því að sveitin túr-
ar nú villt og galið um Evrópu
þannig að það er góður sjens á að
ná henni sé maður staddur á ein-
hverjum af eftirtöldum stöðum eft-
irtalda daga. Þetta er aðeins brot
af þeim heilmörgu stöðum sem
sveitin spilar á komandi mánuði:
Bretland
23 janúar: Southampton Joiners
3. febrúar: Bradford University
5. febrúar: Edinburgh Gas Rock
10. febrúar: London Brixton Mass
16. febrúar: Manchester Music Box
19. febrúar: Newcastle Arts Centre
Noregur
23. febrúar Landbúnaftarháskólinn á Ási
24. febrúar: Tansberg Student Venue
25. febrúar: Hulen I Bergen
27. febrúar: Klúbburinn So What í Osló
Danmörk
2. mars: Félagsheimili stúdenta í Álaborg
3. mars: Kaupmannahöfn, Copenhagen Loppen
4. mars: Vox Hall I Árósum
Noel í leit
ðo Zön
Meö þann metnað í huga að sanna að hann
sé vel samstilltur gaur hefur hugsuðurinn í
Oasis, Noel Gallagher, ákveðið
að skreyta sveitasetur sitt í
Englandi með litlu búddahofi
og fullkomnum bar með
opnanlegu þaki. Rnu ná-
grannarnir hans í Bucking-
hamshire eru hins vegar ekki
ánægðir með þessa ákvörðun
popparans enda orönir þreyttir á
stöðugu veseni í kringum hann og hafa því
skilað inn mótmælum til yfirvaldanna í hérað-
inu. Þeireru greinilega ekki hrifnir aftilhugsun-
inni að heyra Nam Myo Renghe Kyo kyrjað á
daginn og Gimme another pint, ye bastard á
kvöldin. Snobbliðið ætti nú að hætta þessu
væli og mæta frekar í heimsókn á þarinn.
Ffona skýrir
titilinn
Titillinn á nýju plötu Ronu Apple, sem kom út í
nóvemberbyrjun, er vægast sagt skrýtinn. Fullt
nafn plötunnar er When the Pawn Hits the Con-
flicts He Thinks Like a King, What He Knows
Throws the Blows, When He Goes to the Rght
and He'll Win the Whole Thing 'Fore He Enters
the Ring, There's No Body to Batter When Your
Mind Is Your Might, So When You Go Solo, You
Hold Your Own Hand and Remember That Depth
Is the Greatest of Heights and If You Know
Where You Stand, Then You Know Where to
Land and If You Fall It Won't Matter, Cuz You'll
Know That You're Right. Fyrir þá sem týndust á
miðri leið eru þetta hvorki meira né minna en
90 orð. Apple segir að titillinn sé Ijóð sem hún
skrifaði þegar hún var í hljómleikaferðinni! kjöl-
farið á fyrri plötu sinni. „Þetta var Ijóö sem ég
varð að skrifa fyrir sjálfa mig. Ég vildi ekki nota
það! lag en ég varð að skrifa eitthvað fyrir sjálfa
mig til að minna mig á það að þeir sem voru aö
gera grin að mér höfðu ekki rétt fýrir sér. Ljóðiö
segir mér að allir eru vondir við mig en ég á ekki
að taka það trúanlegt," útskýrir fröken Apple.
Væri ekki bara betra að kaila plötuna When?
21. janúar 2000 f Ókus
11