Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Blaðsíða 15
Blaðamaður Fókuss bankaði upp á í stelpupartíi og spjallaði við þrjár þeirra um nýyrðið hösl - djamm, daður, einnar nætur gaman og framhjáhald. Viðmælendurnir voru á aldrinum frá tvítugu til þrítugs og stunda Skuggabarinn þegar þær bregða sér af bæ. Konur skoða á djamminu Fariö þió oft á djammið? Jóhanna: „Svona aðra hverja helgi.“ Feröu oftar út ef þú ert ekki í sam- bandi? Jóhanna: „Já, væntanlega. Ef það væri einhver mjúkur heima þá myndi maður frekar kúra hjá hon- um.“ Eru fýsilegir kostir úti á galeið- unni? Allar samtaka: NEI!!! Jóhanna: „Aila vega mjög fáir. Enda verða þeir svo afmyndaðir undir áhrifum áfengis að það er erfítt að skera úr um hvort það sé eitthvert vit í þeim. Og maður er ekki alltaf tilbúinn að taka þá áhættu.“ Eru þetta soldiö sömu gömlu útbrenndu brýnin sem eru á höslinu? Jóhanna: „Já, mér finn- ast þeir vera sotlir ell- ismellir." Menn sem hafa orö á sér fyrir aö hafa sofiö hjá öll- um stelpunum á barnum? Jóhanna: „Já, við þekkjum það.“ Ákveðnir taktar í höslinu Hvaóa skoöun hafiö þið á einnar nœtur gamni? Þóra: „Það er stórhættulegt. Við verðum að horfast í augu við þá stað- reynd að það eru ekki hara hommar sem fá eyðni. Fólk verður að hugsa sinn gang áður en það sefur hjá ókunnugri manneskju." Þiö sem eigiö kœrasta, kynntust þiö þeim í gegnum einnar nœtur gaman? Allar í kór: „Nei.“ Jóhanna: „Ef maður ætlar að fmna félaga til að eyða einhverjum árum með þá byrjar maður ekki á skemmti- stöðunum." Er mikiö af gœjum á höslinu aö skima eftir góöri bráö til aö kjöt- skrokka? Jóhanna: „Já, og maður sér alveg taktíkina hjá þeim og líka hjá stelp- unum. Það er náttúrlega fullt af stelp- um sem gera þetta líka. Það eru ákveðnir taktar í höslinu." Fariö þiö ekkert út sjálfar til aö hösla? Elín: „Konur fara auðvitað á djammið til að skoða markaðinn og hvað er í boði án þess að þær ætli að gripa mennina glóðvolga og giftast þeim.“ Þóra: „Ja, ég held að konur fari út á djammið með öðru hugarfari en karlmenn. Hugmyndin er: Kannski sé ég einhvem sem mér líst vel á og langar að halda áfram að hitta. En ég þarf ekki að sofa hjá honum til að vita hvort mig langar að hitta hann oftar." Jóhanna: „Nei, ekki til að hösla. Maður vill þá frekar eiga einhvem að sem maður getur leitað til þegar þörf- in er sem mest.“ Húsið hristist af hlátri. Þóra: „Ég er ekki búin að finna þennan ennþá. Mér finnst þetta samt frábær leið.“ Daður er hollt Jóhanna: „Ég segi fyrir mig að ég verð að dressa mig upp öðra hverju. Vera sæt og fín, fara út og fá athygli. Daðra aðeins við strákana, ég daðra sko daginn inn og daginn út. Það er hreinlega mitt eðli, því miður, og ég hef komið mér í þvíiík vandræði út af því. En mér þykir það ofboðslega gaman - að daðra. Ég fæ athygli... þetta er ekkert neikvætt, bara svona... þú segir eitt og þá færðu svar. Síðan fer maður heim og þá - eins og Heiðar snyrtir sagði - þegar konur koma heim eftir ball, sama hvað þær era á háum hælum, eiga þær aldrei að sparka af sér skónum heldur fara pent úr þeim og hugsa: „0, það var svo gaman.“ Þá era þær búnar að daðra nóg. Ég tékka einmitt á því þegar ég kem heim hvort ég hendi öllu af mér eða hátta í róleg- heitunum." Daðrið þið allar? Þær jánka og virðast mjög hiynnt- ar daðri. Jafnvel þær sem era í sam- böndum telja daðrið sambandsvænt ef eitthvað er. Að þeirra mati er mað- ur ekki daðurdauður þrátt fyrir gott samband og stelpumar telja daður beinlínis hollt. Þær benda einnig á að flestir daðri á einhvern hátt. Þaö Elínu og Jónínu fannst margt athugavert vlð hösliö. Jóhanna Bóel: „Þaö eru ákveönir taktar í höslinu. Kolbrún Osp Sigurðardóttir, Elín Björg Guömundsdóttir, Jónína Osk Lárusardóttir, Þóra Birgisdóttir, Helena Pétursdóttir, ísey Þorgrímsdóttir og Jóhanna Bóel. haldi hreinlega lífi í einstaklingum að mega daðra án þess að gera neitt af sér. Jóhanna: „Málið er bara að það er svo auðvelt að misskilja daðrið. Sum- ir vilja ganga miklu lengra og þá verður hæfdeikinn að vera til staðar að labba í burtu án þess aö særa. Auðvitað er mismunandi hvernig það tekst.“ Fjölskyldufólk fer út að hösla Þóra: „Það kemur mér rosalega á óvart hvað mikið er af fólki sem er í samböndum og er samt að hösla. Konur og menn sem eru i hjóna- bandi - fjölskylduleik - tólf til tólf alla daga og fer svo bara út að hösla. Menn hika til dæmis ekki við að ganga ansi langt áður en þeir segja: „Ég er ekkert að fara frá konunni minni.“.“ Lendir þú oft í svoleiöis liöi? Þóra: „Já.“ Jóhanna: „Og ótrúlegt hvað þeir þijóskast við. Eins og með karlmenn þegar þeir eru komnir á eitthvað ákveðið stig í drykkjunni, þá halda þeim engin bönd. Samt fmnst mér það hafa minnkað frá því ég byijaði að fara á skemmtistaðina en þá voru íslenskir karlmenn með gripið í lagi. Það hefur breyst. Þeir eru ekki eins mikið að rifa í mann. Þeir era miklu dannaðri. Eða þá að ég er orð- in eldri og þá er önnur framkoma.“ Eru þeir þá meira í smástelpunum? Jóhanna: „Það er kannski málið.“ Þóra: „Ég verð brjáluð ef einhver snertir mig.“ Missiö þiö sjálfar trú á samböndum þegar þiö veróiö vitni aö þessu? Samróma: „Já.“ Elín: „Maður stoppar og spyr sjálf- an sig hvort maðurinn manns geri þetta líka. Það er nefnilega ekki spes þjóðflokkur eða ákveðnar týpur sem eru að halda fram hjá, þið vitið." Jóhanna: „Maður horíir á þessa lof- uðu menn haga sér svona og spyr sjálfa sig: „Kemur einhver sem ég get treyst og hvenær er ég tilbúin að taka áhættuna?" Elín: „Þegar maður gengur í sam- band ákveður maður um leið að treysta aðilanum. Það er svakalega erfltt að vera í sambandi og spá sífellt í það hvort hann sé að halda fram hjá.“ Jóhanna: „Málið er að maður hefur tekið sín tímabil og vorkennt sér að eiga ekki karl en nú er ég orðin til- tölulega sátt við það að vera ein.“ Þóra: „Ég vorkenni mér ekki að eiga ekki karl.“ -AJ Þóra situr lengst til vinstri og horfir hugsandi á Helenu og ísey. Þessi ráð eru fyrir harðsvíraða höslara sem hösla af lífi og sál en verða stundum uppiskroppa með hugmyndir. Bráðin bíður hins vegar á barnum og það má engan tíma missa. 10 skotheld höslráð Segðu bráðinni aö þú sért hösl- ari að atvinnu og takir eitt til tvö glös í laun fyrir drjúgan drátt. Ef viökomandi er tilkippi- legur fyrir þessu gjafaboði græðir bæði pýngjan og þú. það væri iokaö en spyrð hvort næturfélaganum þyki ekki róm- antískt að eyða nóttinni á Hjálp- ræðishernum. Ef hún/hann felst á það lýgurðu í lobbiinu að þið séuð tveir liúsnæðislausir Rússar á vergangi. Það blífur á hernum. Taktu út allt spariféð þitt frá fermingu og veifaðu því óspart á pöbbunum. Fáðu þér vindil líka og keyptu kampavíns- flösku. Passaðu bara að vera ekki rænd(ur). Þetta gildir að visu aðeins fyrir þá sem eiga eitthvert sparifé. Littu á þig sem listamann og nálgastu viöfangsefnið meö opn- um hug, innri spennu og sannri gleði. Talaöu fullum hálsi um óendanlega. lífshættulega og dramatíska ást. Farðu að gráta. Fórnarlambið leiðir þig kjaft- stopp heim og heldur sig ást lífs þíns fram á rauðan morgun. Þá afsakarðu l>ig og bablar eitthvað um duttlungafullar kenndir listamannsins og ófyrirsjáanleg- ar hugarfarsbreytingar. Borgaðu Fjölni Þorgeirssyni og Marinu Möndu fyrir aö hanga meö þér eitt kvöld á Astró eða Kaíl'ibarnum. Taktu fatlaðan frænda þinn með á djammið og vertu svakalega góðleg(ur) á svipinn. Leiktu þig ofurölvi og fáðu aðsvif við barinn. Fljótlega kem- ur meðvirkt barn alkóhólista og hjálpar þér heim í rúmið. Betlaöu auðmjúklega símanúm- eriö hjá kræsilegasta skotmark- inu á barnum, taktu síðan upp farsímann og hringdu í mann- eskjuna eftir tvær mínútur. Notfærðu þér flissið þegar hún svarar og segöu eitthvað voða fyndið. Þegar þú sérð höslbráð- ina emja af hlátri nýtiröu færið og býður henni upp á campari. Glasið verðu enn hálffullt með- an þið dansið hnykkdans til tunglsins og aftur til baka. Spurðu einfalcUega: „Má bjóða yður að ríöa oss?" Bjóddu skotmarki kvöldsins á Hótel Borg, svona rúmlega þrjú. Viðkomandi uppveðrast ailur af tilhugsuniiini um mini-bar. fjölvarp og lierbergisþjónustu. Þegar þangað kemur afsakarðu liig. segist ekki hafa vitað aö Ljúgðu að þú sért cult-kvik- myndageröarmaöur i Barcelona. 21. janúar 2000 f ÓkUS 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.