Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Blaðsíða 12
+
Ert þú einn af þeim sem hefur átt í ástarsambandi við sama aðilann í mörg ár og það eina sem þér og þinni elsku dettur í hug, ykkur til
skemmtunar, er að ríða í stellingu númer 69 inni í lokuðu svefnherbergi? Þetta er vitanlega alveg glatað og þú veist það. Fókus veit hins vegar
hvernig leysa má þetta mál og deilir hér út nokkrum hugmyndum að skemmtilegum stöðum til að eðlast á. Kíktu á þær og þegar það er búið
þá er ekki eftir neinu að bíða. Just go for it! Fókus fríar sig þó af allri ábyrgð ef upp um þig og þína elsku kemst. Góða skemmtun.
I.com
Lögreglustöðin við Hlemm
Segjum sem svo að illa færi í þessum prófunum sem
hér hafa verið nefndar og þú og elskan yröuð tekin
föst af löggunni (því vitanlega er jú bannaö að ríða á
almannafæri) og færð í yfirheyrslu. Þá getur þú annaö
hvort borið fyrir þig stundargreddu eða viðurkennt allt
sem er vitanlega algjört
rugl. Þegar búið er hins
vegar að sleppa ykkur úr
haldi er ekki úr vegi að
klára leikinn með því að
laumast inn á klósett lög-
reglustöðvarinnar og Ijúka
leiknum þar, annað kallar
bara á blauta drauma og
tóma vitleysu!
Klósett Skuggabarsins
Salerni skemmtistaða hafa löngum verið vinsæl-
ir af drukknu fólki sem verður að losa um
ákveöna greddu á augabragði. Það eru þó marg-
ir betri staðir til en nauðsynlegt er þó að nefna
þennan stað sökum vinsældar hans. Þessi stað-
ur er kannski sérstaklega góður tyrir þekkta fólk-
ið sem vill að það sé pottþétt að nafn þess
gleymist ekki í hinu daglega slúðri. Fókus mælir
sérstaklega með kvennaklósettinu á Skugga-
barnum. Fyrst er nefnilega hægt að hita upp í
hinum mörgu skuggahornum staðarins og færa
sig svo inn á svartmálað klósettið til að klára
leikinn.
Svalir Alþingishússins
Aiþingishúsiö er virðulegur staður og ein af
gersemum Islands. Djöfulsins kjaftæði. Það
eina sem er merkilegt við þennan stað er að
hann státar af innisvölum sem eru alveg til-
valdartil aö stunda sitt kynlíf á. Pældu aðeins
í þessu... Þú aö riöa á svölunum og fýrir neö-
an þig eru yfir 60 sveittir þingmenn. Æðisleg
tilhugsun. Sniðugt er að stefna að þvi að fá
það um leið og forseti Alþingis lemur hamrinum
þrisvar sinnum í bjölluna. Það er kúl. Voff!
Hallgrímskirkjuturn
Hallgrimskirkja er ansi stór bygging. Og efst í
þessari byggingu er hægt að komast með lyftu á
útsýnispall. Ef þetta er
ekki geggjaður staður þá
er hann ekki til. Þegar
leikurinn er búinn er svo
margt vitlausara en að
+ nota gamla og hrörlega
lyftuna til að hefja TÖKU
2. Ef á að gera það í lyftu
er samt eitt sem þarf að
hafa í huga: Ef illa gengur
að fá það þá er alltaf
Strætó nr. 9
Eftir að veggir strætóskýla uröu gegnsæir er ekki sjéns aö njótast i þeim, nema vitanlega
fyrir þá allra djörfustu. Þetta eru hugmyndir fyrir byrjendur og þvi mælum við ekki með
strætóskýlum. Hins vegar eru strætóarnir eitthvað sem gæti kitlað pinnann. Það vita allir
hvernig þessir strætóbílstjórir eru: heyrnarlausir á hægra og blindir á vinstra! Þeir eru því
engin fyrirstaða. Aðrir farþegar gætu þó orðiö fyrirstaða en þar sem bullandi góðæri er á Is-
landi hefur Fókus traustar heimildir fyrir því að strætófarþegum hafi fækkað mikið undan-
fariö. Þess vegna er ekki úr vegi að prófa eitthvað rómó á aftasta bekk strætó þegar eng-
inn er í honum, nema bílstjórinn. Fókus mælir sérstaklega með leið nr. 9 þar sem hún er
svo fámenn. Einnig er fint að gera þaö I harmonikkusrætó nr. 111 sem brunar upp í Breiö-
holt með fáum stoppum. I þessum löngu strætóum er maður llka svo langt frá bílstjóran-
um að hann tekur pottþétt ekki eftir neinu. Það er þó mjög gáfulegt að þekkja leiöina vel til
þess að vita hve langt er á milli stoppistöðva. Það verður nefnilega að gera ráð fyrir því að
einhver farþegi komi inn á næstu stöö. Notaðu skynsemina!
Laugardalsvöllurinn
Hver man ekki eftir gæjanum sem hljóp
nakinn inn á Laugardalsvöilinn þegar Is-
lendingar voru aö spila fótbolta við Sov-
étrikin hérna um árið? Allir. Það voru 22
leikmenn inni á vellinum og þrir dómarar
og svo var völlurinn fullur af löggum en
samt tók eitthvað á fimmtu mlnútu að
ná alsbera gæjanum og fjarlægja hann.
Ef þú og þinn elskhugi farið á Laugar-
dalsvöilinn þegar enginn ieikur er I gangi
gætuð þið sennilega athafnað ykkur al-
veg geðveikt lengi án þess að nokkur
yrði þess var. Eini gallinn við að nota
Laugardalsvöllinn er sá að annað par
gæti hafa fengið sömu hugmynd og þið.
En vertu ekkert að láta það á þig fá, þið
veljið bara sinn hvorn markteiginn og þá
eru allir ánægöir.
Ráðlegging: Á Laugardalsvellinum er ráð-
legt aö leika af varfærni og þreifa vel á
andstæðingnum, koma svo með hraða
sókn eftir svona hálftimaleik og skora
þegar hann á þess slst von. Eftir leikinn
skulið þið skiptast á treyjum, það er kúl.
Sundhöll Reykjavíkur
Sundlaugar, sem eru úti um allt á þessu
blessaða landi, eru alveg tilvaldar til að njót-
ast I. Sundhöll Reykjavlkur er t.d. alveg pott-
þétt á morgnana þvl þá eru bara gamal-
menni I sundi og hvað geta þau svo sem
gert ef þau koma að ykkur I „action"? Sund-
höllin er líka alltaf heit og góð, sama
hverslags veður er úti. Fyrir þau pör sem
þora ekki að riða I sundi er vitanlega alltaf
hægt að nota baðkarið heima. En af hverju
að nota það næstbesta ef þú getur notað
það besta?
Skriftaklefinn í Landakotskirkju
Toppurinn á tilverunni er skriftaklefinn I hinni kaþólsku
Landakotskirkju. Að visu er dálítiö þröngt aö athafna sig
þar en fullkomlega kikksins viröi. Lykt af reykelsi og
brenndum kertum getur verið virkilega æsandi og leikur-
inn verður enn öflugri ef orgelleikarinn er á staðnum að
æfa sig. Það er tilvalið aö hefja forleikinn með þvi aö
skrifta af fullri hreinskilni hvort fyrir öðru og leyfa klúryrö-
unum að taka smám saman völdin.
Dvalarheimilið Grund
Áttu gamla frænku sem komin er á elliheim-
ili? Ef svarið er já er um að gera að kíkja I
heimsókn og kynna hana, I orðsins fyllstu
merkingu, fyrir elskunni þinni. Þegar þið, ást-
fangið parið, sitjið I sófanum andspænis
frænkunni er ekki úr vegi að taka einn stutt-
an. Frænka mun ekki taka eftir neinu þar
sem hún er farin að missa sjón. Það eina
sem gæti gerst er að hún myndi slá blindra-
stafnum I rassinn á þér... en það er bara
gott! Muniö bara að halda stununum I lág-
marki ef það er bara sjónin en ekki heyrnin
sem frænka þln er farin að missa.
f
\
Fallhlífaklúbbur Reykjavíkur
Fallhlífarstökk er náttúrlega miklu betri kostur en
flugvél. Þaö sjá það allir. Ef þú hefur prófað að
gera það I fallhlíf verður ekki erfitt að stinga upp
I vininn sem er alltaf að monta sig á þvl að hann
sé I „Tiu þúsund feta klúbbnum" því þú ert I hon-
um og þú ert líka I níu, átta, sjö, sex, fimm þús-
und (o.s.frv.) feta klúbbunum. Þaö gætu samt
oröið einhver vandkvæði á að koma sér I réttar
stellingar... sérstaklega ef þú hefur aldrei prófað
fallhllfarstökk áður. Skráðu þig I Fallhllfaklúbb
Reykjavlkur eða Fallhllfastökkskóla íslands og
æfingin skapar meistarann.
Kirkjugarðurinn
við Suðurgötu
Kirkjugarðar eru dimmir og drungalegir og al-
gjört taboo. Ef þú vilt riöa úti undir beru lofti
gæti þetta verið staður sem heillar. Sumum
finnst þetta samt óhugnanlegur og ógeðsleg-
ur staöur til aö stunda kynmök á og langt frá
þvl að vera æsandi. Ef svo er þá er ekkert
hægt að gera við þvl annað en að finna ann-
að afdrep fyrir sína ástarleiki. Ef þetta truflar
þig ekki og æsir þig upp úr öllu valdi þá er
um að gera að prófa og kirkjugarðurinn við
Suðurgötu er alveg tilvalinn staður svona á
leiðinni heim af djamminu. En vertu samt
ekki I nánd við leiði látins ættingja. Þú veist
aldrei hver er aö horfa. Eða viltu kannski að
Eggert frændi, sem dó fyrir 10 árum, sitji I
stúku á fremsta bekk og horfi á þig og þína
elsku? Þú kannski fílar það. Ef svo er þá
skaltu lesa meira á slðunni.
Þjóðarbókhlaða
Þjóðarbókhlaðan eralvegtilvalinn staður
fyrir þig ef þú ert nemandi. Segðu við
mömmu og pabba að þú ætlir að fara að
læra með elskunni uppi á Hlöðu en
innst inni veistu betur. Þú ferð upp á 4.
hæð, þvl þar er minnst af fólki, og finn-
ur gott afdrep rétt hjá rekka mannfræð-
innar. Það er alveg ótrúlegt hvað þessar
bækur geta gert fyrir gredduna. Og ef þú
vissir það ekki þá er Þjóðarbókhlaðan
opin nemendum, og öðrum, til klukkan
tlu mánudaga til flmmtudaga en til
klukkan sjö á föstudögum.
Nauðsynlegt
er að taka
fram að þetta
er ekki auglýs-
ing frá Þjóöar-
bókhlöðunni!
Klaustrið í Hafnarfirði -
Klaustrið I Hafnafirði er algjör draumastaöur þvi það
hlýtur að vera mikiö „turn on“ aö hugsa til allra
nunnanna sem þar búa, enda flestar þeirra hreinar
meyjar. Ef þið ákveöið að prófa þennan stað veröur
samt aö segjast alveg eins og er að þaö eru sára-
litlar líkur á þvl að þú og þln elska veröið gómuö I
hita leiksins og til ykkar verði sagt. Af hverju? Jú,
heyrst hefur að stór hluti nunnanna I Hafnafirði séu
bundnar þagnareiði og mega varla tala, hvaö þá
kjafta frá einhverjum leyndarmálum. Og þó þær
gætu talað og mættu segja frá gætu þær það ekki
heldur því nunnur vita ekkert hvað kynlíf er. Þær
þekkja kerti en ekki kynlíf.
Líkhús Borgarspítalans
Líkhús er staður þar sem sumum finnst æsandi
að riða. Þetta er vitanlega algjört bannsvæði og
virkilega óhugnanlegt. Um þennan stað er I sjálfu
sér ekki mikið að segja en þó er vert að koma
með tvær ráðleggingar:
1) Taktu myndina Nattevagten áður en þú kýlir á
þetta. Hún sýnir þér hvernig likhús eru I raun og
veru. Kannski vilt þú hætta við að gera það I lík-
húsi eftir að hafa séð myndina eða kannski verö-
ur þú þeim mun ákveðnari I að gera þaö I líkhúsi
eftir að hafa séö myndina. Hvur veit?
2) Ef þú og þinn partner hömpiö I líkhúsi þá skaltu
ekki vera aö monta þig af þvi við vinina. Af hverju?
Ástæðan er mjög einföld; 95% mun finnast þetta
algjör viöbjóður og þú færð stimpilinn pervert.
Elskhugi þinn mun llka fá stimpilinn pervert.
Fókus mælir samt með þessum stað og þá sér-
staklega líkhúsi Borgarspítalans.
Umferðareyjan
hjá Kringlunni
Ef þú vilt að það sé alveg 100% að
einhver sjái til þin þegar þú og þinn
elskhugi stundið mök ykkar á fram-
andi stað er ekki úr vegi að prófa
umferðareyju. Vertu samt ekkert
að eyða tímanum I vitleysu þegar
leikurinn hefur hafist, einhver
hringir nefnilega örugglega á lögg-
una. Og þvl er um að gera að riða
hratt og örugglega. Það er stórt og
gott pláss á umferðareyjunni á
Miklubrautinni gegnt Kringlunni.
-tgv
„Þetta er leikrit sem Woody Allen
skrifaði árið 1969 og síðan var gerð
mynd eftir því árið 1972. Panodil fyr-
ir tvo er eiginlega skrifað upp úr
bæði leikritinu og myndinni. Ég
svona eiginlega valdi það besta úr og
lagðist i þýðingar í lok síðasta árs,“
segir Jón Gnarr þar sem hann situr á
Hótel Borg ásamt leikkonunni Kötlu
Þorgeirsdóttur. Þau tvö hafa samið
við blaðamann Fókuss um að ræða
um leikritið og ekki síst framhjáhald.
Fólk sem vill halda fram
hjá á að gera það
í Panodil, sem hægt er að flokka
sem rómantískan gamanleik, leikur
Jón Gnarr taugaveiklaðan marrn sem
heldur við konu besta vinar síns.
Katla leikur viðhaldið.
Katla: „Þetta eru svona týpur sem
maður hefði haldið að myndu ekki
halda fram hjá en það sem þetta sýn-
ir manni er að allir geta haldið frarn
hjá. Ég persónulega hef horft upp á
allar týpur halda fram hjá. Það er
ekki hægt að tileinka einhverjum sér-
stökum hópi framhjáhald."
Jón Gnarr: „ Sko, hvað er að halda
fram hjá? Við þurfum eiginlega að
skilgreina það.“
Já, gerum þaö. Er koss til dœmis
framhjáhald?
Jón Gnarr: „Ef maður gimist aðra
konu í huganum þá er maður búinn
að halda fram hjá því að þá er maður
búinn að drýgja synd.“
Katla: „Þetta er svolítið spurning
um hvar maður setur mörkin. Ég
held að allir girnist annað fólk. Það
er samt ekki þar með sagt að þó að
einhver maður girnist konu þurfi
hann að sofa hjá henni. Það þarf að
setja ákveðin rnörk."
Jón Gnarr: „Sko, málið er bara að
ef þú býrð með einhverri konu í 5 ár
og færð aldrei að ríða henni og þú ert
bara að verða geðveikur því hún sit-
ur bara allan daginn og skýtur teygj-
um i andlitið á þér þá er líklegt að þú
viljir kíkja á aðrar konur. Svo hittir
þú einhverja konu og ert eitthvað að
sofa hjá henni og svona. Ég meina, er
það framhjáhald?"
Þetta er erfiö spurning!
Jón Gnarr, hlæjandi: „Þetta flokk-
ast varla undir framhjáhald. .Ég held
samt að það fari eftir aðstæðum
hverju sinni hvað flokkast undir
framhjáhald. Samt er ég ekkert að
segja hvað sé framhjáhald er og hvað
ekki. Ég er bara að benda á þetta.
Samt er mér eiginlega bara alveg
drullusama um framhjáhald. Mér
finnst að allir eigi bara að halda fram
hjá sem vilja það. Svona virðist þetta
vera, sumu fólki flnnst bara alveg
rosalega gaman að halda fram hjá.“
Katla: „Já, það er allt of mikið um
þetta.“
Jón Gnarr: „Samt fmnst mér ekk-
ert hægt að segja hvort það sé rétt eða
rangt að halda fram hjá. Mér finnst
hins vegar rangt að vera óheiðarleg-
ur. Að vera lyginn og óheiðarlegur er
miklu verra mál í rauninni heldur en
sjálft framhjáhaldið.. Ef maður held-
ur framhjáhaldinu leyndu, það er að
segja lýgur til um það. Það er ljótt að
fara á bak við einhvem og ef maður
gerir það þá fær maður bara svartan
blett á sálina og fer til helvítis.“
Katla: „Ég er sammála þessu svona
að vissu leyti. Það er samt alveg hægt
að rétflæta framhjáhald ef til dæmis
einhver á í alveg ömurlegu sambandi
sem á sér kannski lifla framtíð. Þegar
svo er þá er oft eins og fólk fari þessa
leið og ég get í sjálfu sér alveg skilið
það.“
„Alltaf þegar karlmaöur
lítur á konu þá lítur hann
fyrst á brjóstin og svo and-
litið. Ef kona er í opnum
kjól þá er alveg pottþétt að
allir karlmenn kíkja og
reyna að sjá sem mest.“
- Jón Gnarr
Menn eru með konum til
þess að sofa hjá þeim
/ staö þess að halda fram hjá
maka sínum er þá ekki betra aö
segja honum frekar upp?
Jón Gnarr: „Það er erfitt að full-
yrða eitthvað um þetta. Það er oft
sögð saga um mann sem fann snák
sem var frosinn í snjónum og fór
með hann heim til sín. Maðurinn
setti snákinn fyrir framan arininn
og fór svo að klappa honum. Þegar
snákurinn rankaði við sér beit
hann manninn og lét sig svo
hverfa. Þessi saga segir okkur að ef
þú klappar snák þá ertu hálfviti og
átt skilið að verða bitinn í puttann.
Með þessa sögu í huga held ég að
maður hljóti að velja sér það fólk
sem maður umgengst í lífinu af
einhverju innsæi. En svo hefur
maður séð það gerast hjá pari þar
sem allt hefur veriö i góðu að ann-
að hvort heldur fram hjá og segh
hinu ekki frá því. Þetta er ljótt og
fólk sem svona gerir fer til helvít-
is.“
Framhjáhaldiö í Panodil er mjög
alvarlegt þar sem maöurinn er aö
halda fram hjá meö konu besta vin-
ar síris:
Jón Gnarr: „Það er rétt. Þetta er
náttúrlega minni úr bókmennta-
sögunni, að svíkja besta vin sinn.
Þetta er mjög flott og mögnuð efn-
istök i þessu verki.“
Woody Allen fjallar oft um þetta í
verkum sínum...
Jón Gnarr: „ Hann er svolítið
mikið fyrir framhjáhald og svik.
Hann er giftur dóttur sinni og ...
maðurinn er bara pervert."
Katla: „Hann er svolítið sérstak-
ur.“
Jón Gnarr: „Kannski er svolítið
gróft að segja að hann sé pervert.
Ég held nefnilega að allh menn séu
pervertar, ég fer ekki ofan af því.
Það hefur sýnt sig að þegar menn
komast i þær aðstæður þá alveg
blossar upp í þeim pervertinn. Það
er bara 1 af hverjum 100 sem er al-
veg hreinn. Ég er samt kannski að
tala aðallega um karlmenn, allir
menn eru pervertar. Þú veist að
karlmenn hugsa um kynlíf 12 sinn-
um á mínútu."
Katla: „Heldur þú vhkilega að
það sé eitthvað til í því? Ég er oft
búin að pæla í þessu og finnst þetta
mjög sérkennilegt ef rétt er.“
Jón Gnarr: „Alltaf þegar karl-
maður lítur á konu þá lítur hann
fyrst á brjóstin og svo andlitið. Ef
kona er i opnum kjól þá er alveg
pottþétt að allir karlmenn kíkja og
reyna að sjá sem mest.“
Katla: „Þetta er rosalegt."
Jón Gnarr, kíminn: „Menn eru
meö konum til að ríða þeim.“
Katla: „Ég vildi óska að ég hefði
svona flotta og hreina upplifun af
þessu. Ég veit ekki hvort þetta er
rétt.Ég verð bara að trúa þínum
orðum en hvað þá fullyrðingu
varðar að menn hugsi allt aö 12
sinnum um kynlíf á mínútu þá
gæti ég alveg trúað að þaö sé rétt
þótt mér finnist það ótrúlegt.“
Jón Gnarr: „Þetta gerist bara
ósjálfrátt hjá manni og þeh menn
sem reyna að þræta fyrh þetta eru
bara ... það er bara rugl. Ég spurði
til dæmis um daginn mann sem er
búinn að vera með konunni sinni í
7 ár hvort hann væri með henni ef
hann fengi ekki að ríða henni.
Hann sagði: „Já, hugsanlega.“ Djöf-
ulsins, helvítis kjaftæði. Það myndi
enginn maður vera með einhverri
konu í 7 ár ef hann fengi ekki að
riða henni. Hvað ætti maðurinn að
gera þessi 7 ár? Halda bara um
tippið á sér? Vitiði það að maður í
svona stöðu myndi pottþétt halda
fram hjá eða bara hætta með kon-
unni. Þess vegna eru menn fyrst og
fremst með konum til þess að ríða
þeim. Þetta er hara staðreynd."
Karlmenn eru meö konum til aö
ríða þeim. Hvers vegna eru þá kon-
ur meö karlmönnum?
Katla, brosandi: „Ég veit það
ekki. Til að láta ríða sér, kannski!
Er það ekki bara? Þarf ekki einhver
að ríða þeim?“
Höfum ekki rétt til að
dæma fólk
Allir vita um einhvern sem hefur
haldiö fram hjá því á þessu landi
þekkja allir alla og því eru hlutirnir
fljótir aö spyrjast út. Þegar fólk held-
ur fram hjá, aö hverju er það þá aö
leita?
Jón Gnarr: „Það hlýtur að vera
eitthvað sem klikkar ekki rétt hjá
fólki sem heldur fram hjá. Þessu fólki
hlýtur að líða alveg rosalega illa. Ég
trúi ekki öðru. Þetta getur ekki bara
verið einhver gredda."
Katla: „Þetta hlýtur líka að vera
einhvers konar spennufíkn, spennan
rekur fólk áfram. Þetta er bara sorg-
legt.“
Er stigsmunur á framhjáhöldum?
Kafla: „Það er ekki spuming. Einn- *
ar nætur gaman mætti fyrirgefa,
fóstu framhjásambandi væri öllu
verra að gleyma."
Jón Gnarr: „Ég tek undir þetta.
Samt held ég að ef einhver heldur
fram hjá í svona langan tíma með
sömu manneskjunni þá hljóta bara að
vera komnir brestir í sambandið sem
hann er í.“
Kafla: „Svo er til siðblint fólk sem
finnst ekkert að þessu.“
Jón Gnarr: „Maður veit aldrei og
ég get til dæmis alveg sagt frá því að
ég á þrjú börn og ég hef alltaf látið
konuna mína sanna það að ég eigi
þessi böm. Ég er með vottorð upp á
það að ég eigi þau. Alltaf þegar hún
hefur sagt: „Ég er ólétt“ þá hef ég -
sagt: „Sannaðu að ég eigi barnið.“
Úr einu í annaö: Hvernig er þetta
aö veröa á íslandi, eru allir ríöandi
öllum?
Bæði:“Já“
Jón Gnarr: „Fólk á íslandi er ríð-
andi út um allt. Mér finnst fólk bara
veltast um í holdlegum fýsnum, það
iðar hér um götumar í fýsnum holds-
ins sem er ekkert annað en bein leið
til helvítis. En menn uppskera vitan-
lega bara eins og þeir sá og það verð-
ur bara að vera þannig."
Katla: „Framhjáhald er bara sjálf-
skaparvíti." V
Jón Gnarr: „Djöfull væri dæmigert
að við Katla kæmum einhvem tím-
ann í Séð og heyrt sem heitasta
parið.“
Kafla: „Úff...“
Jón Gnarr: „Þetta væri vitanlega
alveg rosalega góð kynning fyrir leik-
ritið.“ -tgv
f Ó k U S 21. janúar 2000
21. janúar 2000 f ÓkUS
+