Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Síða 22
í f ó k u s Beindu sjónunum að leiðinlegu fólki og upp- götvaðu nýjar hliðar á mannkyninu. Leiðin- legt fólk leynir nefnilega stórkarlalega á sér * og hægt að hafa stórgaman af því. Jafnvel meira gaman en af einhverju fólki sem kepp- ist við að vera skemmtilegt og almennilegt allan daginn. Leiðinlegt fólk nöldrar yfir und- arlegustu hlutum og forvitnilegt að vita hversu smávægilegum atriðum er hægt að nöldra yfir. Auk þess er leiðinlegt fólk ekki gefið fyrir brandara og þess vegna er svaka stuð að gubþa út úr sér endalausum brönd- urunum, bara til að ergja það. Leiðinlegt fólk hefur líka þann eiginleika að vera blátt áfram í leiðindaheitunum og haga sér hrein- lega eins og það kemur af kúnni. Passaðu aðeins að gleyma þér ekki í of mikilli gleði því þá er hætt við að leiðinlega fólkinu finn- ist þú bæði tilgerðarleg(ur) og leiðinleg(ur). ú r f ó k u s ISLENSKA ALFRÆÐI ORÐABOKIN 37 0IX> upt>C«U«?ð f sudriiuM. 4500 IjAsmjnd.^ utttmngar, kwlog loflui Oan oc 1} ttuvaiR Það er úr Fókus að vera vitlaus. Við lifum á upplýsingaöid með aðgang að ólíklegustu og fáránlegustu upplýsingum svo það er um að gera að sanka sem flestum stað- reyndum að sér og hafa þær á takteinun- um. Alveg sama hvernig staðreyndir - það er barasta algjört möst að vita eitthvað. Hér ertil dæmis skyndifróðleiksmoli handa þeim sem vilja hlíta þessu ráði: Söngtifur eða Cicadidae er ætt skordýra af ættbálki skortítna; með um 1500 tegundir, flestar í hitabeltinu; nærast á plöntusafa. Önnur ^ staðreynd: Snjólaug Bragadóttir er íslensk- ur rithöfundur sem hefur samið fjölda vin- sælla afþreyingarsagna, m.a. Holdið er tor- velt að temja og Dægurlagasöngkonan dregur sig í hlé. Síðan er bara að hefja leik- inn, hætta að vera vitlaus og safna trilljón svona staðreyndum. LífitJ eftir vmnu Það verður gæðarokk með hljómsveitinni Glasabórnin á Gauknum. Þetta er vel hristur kokkteill með Skímó, 8-Villt, Riff Redd Head og öðru sunnlensku góðgæti. í beinni á www.xnet.is Café Romance státar af breska píanóleikaran- um Bubby Wann sem fer löðurmannlegum fingrum um nótnaborðið. •Klassík Salurinn býður upp á Ijóðatónleika kl. 20.30 og það kostar 1500 eða 800 krónur inn. Marta Guðrún Halldórsdóttir, Einar Jóhannes- son og Örn Magnússon flytja Ijóðasöngva e'ftir Mozart og Schubert. ®Leikhús Rússneksa leikritið Stjórnur á morgunhlmni, á fjölunum í Iðnó er ein umtalaösta og best sótta sýning borgarinnar um þessar mundir. Aðsóknin er eindæma góð og því hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu í kvöld klukkan 20. Örfá sæti voru ennþá laus á föstudag. Nánari upplýsingar fást í síma 5303030. Frumsýning á leikritinu Pan- ódíl fyrir tvo (Play it again Sam) eftir Woody Allen í Loftkastalan- um klukkan 20.: sæla umræðuefni íslendinga, ramhjáhald, og því kemur engum á óvart aö aðalpersónur verksins skuli vera tvenn hjón. Eins og Woody einum sæmir, er verkið bráðfyndið, og margar stórkostlegar uppákomur milli hjónanna. Þýð- andi verksins, grínistinn Jón Gnarr fer með Woody-lega aðalhlutverkið, en aðrir leikarar í sýningunni eru Ingibjörg Stefánsdóttir, Þor- steinn Guðmundsson, Katla Þorgeirsdóttir og Jón Atli Jónasson. Leikstjóri er Hallur Helga- sonar. Gamanleikritið Sex í sveit eftir Marc Camoletti ætlar að verða langlíft í Borgarleikhúsinu. Það er ekki of seint að panta miða í kvöld klukk- an 20. •Fundir Nám í Bandaríkjunum og tengsl þess við at- vinnulifið er yfirskrift ráðstefnu sem haldin veröur á vegum Íslensk-ameríska félagsins, Al- þjóðaskrifstofu háskólastigsins og Fulbright- stofnunarinnar. Meðal þeirra spurninga sem veröur fjallaö um á ráðstefnunni er hvaða aug- um atvinnulífið lítur nám í Bandaríkjunum, hvernig það nýtist, hvernig er að hefja nám í Bandaríkjunum, hvað þarf að hafa í huga við ákvarðanatöku og hvar hægt er að leita upp- lýsinga. Ráðstefnan verður haldin í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla íslands, kl. 16.00-18.30. Hún er öllum opin en er einkum ætluð stúdentum á háskólastigi sem hyggja á framhaldsnám í Bandaríkjunum. Nemar úr framhaldsskólum sem áhuga hafa á háskóla- námi utan Islands eru einnig velkomnir. ©Krár l/ Funkveisla á Café Ozio og freyðandi funk- g I e ð i . Funkmaster 2000 funkar að vanda. hverjir voru hvar Það er fátt betra en að byrja helgina á léttri dag- drykkju síðdegis á föstudegi. Þessu eru félag- arnir og bókmenntaspekúlantarnir Rassi senior og Hlynur P. (hershöfðingi bókmenntafræöi- nema) alveg sammála og sáust þeir því við dag- drykkju á Sirkusi á föstudag. Þar var einnig fleiri háskólanema að finna, eins og stjórnmál- t fræðinemann Kari og vinkonu hennar, Jónínu. Einnig sat Heiða í Unun úti í horni og skeggræddi við Kristínu Spúnkara. Dj. Kári var einnig á vappi um staðinn að undirbúa mellow steady flow reggae-kvöldsins. Á föstudaginn var haldið upp á útgáfu nýja blaðs- ins sem kom út í síð- ustu viku, Adrenalín. Þar var mikið um gleði og hamingju og lét mannskapurinn sig ekki vanta. Rúnar í Týnda hlekknum og Sveinn F. Sveinsson, ritstjórar blaðsins, voru í góðum gir með kærustunum sínum, þeim Heiðu og Ásu Sóleyju. Dofri Hermannsson, leikari og auglýs- ingastjóri Adrenalíns, brosti sínu blíðasta fram- an í Bjössa í Vektor og allt hans klifurgengi. Þá var umsjónarmaður Nugget TV Skjás eins í húsinu með myndavélina á lofti. Hilmar og Jón Heiðar klifurmenn, sem eyddu lunganum af vetrinum í fjöllum Nepal, létu lítið fyrir sér fara á meðan Jón T. og Siggi Shorty snjóbretta- kappar létu gamminn geisa inni í lókalhorninu með alræmdustu skötum borgarinnar, Hadda Gunna og Krissa, sem eru einmitt að klára að gera nýja skeitparkið úti á Granda klárt. Ónefndur aðili var ofurölvi, braut nokkur borð og gleypti tíkalla og vakti það mikla furðu graffitilistamannanna í Cots-genginu, þeirra Starz, Barok og Brons. Þeir veðjuðu við graffk- listamanninn og þassaleikara Die Garfúnkel, Sírni H. Einarsson, að ónefndi aðilinn myndi lenda í steininum. Þar höfðu þeir rétt fyrir sér. Á laugardagskvöldið var röðin endalaus á Ozio. Ástæöan var sú að Jóhannes úr morgun- þætti Mono hélt upp á afmæli sitt á staðnum og voru margir sem vildi samgleðjast kappan- um. Má þar nefna: jvar Guð- mundsson, Ásgeir Kolbeins, Dodda og Ingó auglýsinga- klippara, allt starfsmenn íslenska útvarpsfélags- ins. Simml, einnig af sama vinnustað, var mættur ásamt kærustunni Bryndísi, sem ber enn titil- inn ungfrú Reykjavík. Kalli í Pelsinum var mættur með synina Stymma og Arnon. íris Reynisdóttir, starfs- maður Islenska útvarpsfé lagsins, var mætt ásamt Ásdísi Tal-vinkoni sinni. Sautján-gengið eins og það lagði sig var mætt á staðinn meö þeim Óla Stef og Helga Geir! farar- þroddi. Ama fyrirsæta var sæt að vanda þar sem Leikur ctð líken^e „Mannslíkaminn býöur upp á endalausa möguleika,“ segir grafikneminn Olga Pálsdóttir sem opnar sýningu í galleríi „Nema hvað“ í dag, föstudag, kl. 18. Mannslikaminn er einmitt meginþema sýningarinnar sem samanstendur af myndum unn- um í poliesterlotografiu. „Með þessari sýningu vil ég benda á að manneskjan er skyld náttúr- unni,“ segir Olga og bætir við að það sé hægt að sjá ýmsar aðr- ar lífverur út úr mannslíkama- myndum hennar. Olga er fædd og uppalin í Rússlandi, nánar tiltekið í Múrmansk, en hefur búið á Islandi síðustu 11 ár. Áður en leið hennar lá í Lista- háskólann hafði hún verið í hönnun í Iðnskólanum og lært myndlist í FB. „Poliesterli- tografia er nútímaaðferð sem býður upp á ótal möguleika í tengslum við tölvugrafík,“ út- skýrir Olga og vonast til þess að sem flestir kíki á þennan leik hennar að manneskjunni. Sýn- ingin stendur til 30. janúar. Breski píanóleikarinn Bubby Wann fer löður- mannlegum planófingrum um nótnaboröið á Café Romance. Sportkaffiö er staðurinn fyrir sportistana. Kl. 15.50 er bein útsending frá EM í handbolta, Island mætir Slóveníu. Stórtónleikar með supergrúpunni Sóldögg á Gauknum •Leikhús I Borgarleikhúsinu (þessu sem er við hliðina á Kringlunni) er ennþá verið að sýna Litlu hryll- ingsbúöina. Enginn, sem á annað borð hefur gaman af léttgeggjuðum söngleikjum, með dillandi tónlist, söng og fyndinni sögu, ætti að láta hana fara fram hjá sér. Munið að Bubbi hefur aldrei veriö betri en I hlutverki plöntunn- ar. Sýningin í kvöld hefst klukkan 20, takið eftir því. Frankie og Johnny, sem Al Pacino og Michelle Pfeif- fer léku svo eftirminnilega I samnefndri mynd hér um árið, er sýnt á fjölum lönó. I þessar uppfærslu eru það Islensku stórleikararnir Halldóra Björnsdóttir og Kjartan Guöjónsson sem fara á kostum og gefa Pfeiffer og Pacion ekkert eftir. Sýningin hefst kl. 20.30, síminn I miða- sölunni er 530 3030. IKabarett Bingógleði að vanda I Ásgarði, Glæsibæ. Bingóið hefst klukkan 19.15. •Fundir I dag verður haldinn alþjóöadagur viö Háskóla íslands I ODDA fyrir Islenska stúdenta sem áhuga hafa á námi erlendis eða taka þátt I stúdentaskiptaáætlunum eins og ERASMUS, NORDPLUS og ISEP. Dagskráin byggist á þátt- töku erlendra skiptistúdenta sem kynna tilhög- un náms I eigin landi og sitja fyrir svörum. ís- lenskir stúdentar sem þegar hafa tekið þátt I stúdentaskiptum halda stutt erindi I Lögbergi, stofu 101, kl. 12-13, oglOdda, stofu 201, frá kl. 16-17. Alþjóðadeginum lýkur með skemmt- un fyrir stúdenta í Stúdentakjallaranum. eSport ísland og Slóvenía keppa á EMI handbolta en leikurinn fer fram I höfðuborg Króatlu, Zagreb og hefst klukkan 16. [mexr-a. á|* lA/WW VÍtÍH' in hún var umvafin einhverjum vinkonum sinum. Valla sport og Sigga Hlö sást bregða fýrir og tískulöggan Svavar Örn var mættur á svæðið. Sveinn Snorri, sem sér um laugardagskvöldin á Bylgjunni, kíkti einnig inn, sem og Hallur og fé- lagar frá auglýsingastofunni Deluxe. JoeJoe Danzer, betur þekktur sem Jói Bjalla á Stöð 2, var ekki á staðnum en bætir það upp með af- mælisveislu á Ozio á morgun, laugardagskvöld. Nú, svo fóru Andrés plötusnúður og Helgi úr Funkmaster á kostum hvað tónlistina varðar. Á nektarstaðnum Venusi á Akureyri var margt um manninn á laugardagskvöldið. Þar mátti m.a. sjá framhaldsskólanemann Helga Túliní- usarson sem hélt upp á 20 ára afmæli sitt ásamt fjölda félaga sinna á sama aldri. Þeirra á meðal voru þeir Danni, Heiddi Hauks, Sævar, Kjarri og Bjössi. Sem og dekkjaverkstæða- starfsmaðurinn og hokkístjarnan Birgir Öm Sveinsson. Sama kvöld spilaði dj. Árnl Elllot fyrir villtum dansi á klúbbnum Madhouse I göngugötunni á Akureyri. Á dansgólfinu máttj sjá mikið af VMA- ingum, m.a. Ninnu, Bryndisi, Lúlla, Vidda og Helgu, dóttur Odds Halldórs. Binna fóstra og ein- stæða móðirin Karollne voru einnig á svæðinu. Á föstudagskvöldið mátti sjá á Rex Magnús Ár- mann meö sinni spúsu, Möggu. Heimsferða- Andri var einnig á svæöinu.sem og Ásdis Hösk- ulds á Stöð 2, Árni úr Kókó og Sara Lind, mark- aðsstjóri sparisjóðanna. Á Spotlight er heitasta dans- gólfi Reykjavlkur um þessar mundir og þar mátti sjá söng- konuna Margréti Eir, leikar- ann Felix Bergsson og Haf- stein úr röddum Evrópu. Guðni „E hulio" Sesar, dyra- bangsi staðarins, var I fríi en mætti samt á vinnustaðinn og það sama gerðu Sigga Bein- teins og Bergþór Pálsson- Hannes, markaðsmaður Kaffi- leikhússins og hönn- uöur, kíkti inn, sem og Halli „Big Mac“. Glasapíum staðarins, þeim Steinunni og Gerði, leiddist ekki I vinnunni og spruttu út á dansgólfið og sýndu nýjustu diskósporin, þó ekki með glösin I hendinni. Skjöldur og annað staff á skemmti- staðnum 22 labbaði niður Laugaveginn eftir lokun hjá sér og kikti inn á klúbbnum. Á laugardagkvöldið hittust í Skátaheimilinu á Selfossi nokkrir skátar og spiluðu Actionary fram eftir nóttu. Meðal þeirra voru: Auður, Lena, Magnús Ámi, Völundur, Birkir, Sævar Öfjörð og Sævar Ingþórs, 2 Hvergerðingar og Ármann „Gamli“. =Fókus mælir með J =Athyglisvert Góða skemmtun Stendur þú fyrir einhverju? Sendu u|]|)lýsjmjar i e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020 22 f Ó k U S 21. janúar 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.