Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Qupperneq 10
10 enmng LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 JO"V Menn i ngarvita rnir loga ekki - Djöflarnir renna í Borgarleikhúsinu Pétur Einarsson og Margrét Helga Jóhannsdóttir takast á við Djöfiana eftir Dostojevskí í Borgarleikhúsinu. Eg myndi ekki þekkja Dostojev- skí þótt hann kæmi til mín og biti í löppina á mér. Það gerir Fjodor heitinn auðvitað ekki því hann dó 1881. Meðan hann lifði austur á steppum Rússlands skrifaði hann langar skáldsögur sem allir meðvit- aðir menningarvitar hafa lesið eða segjast a.m.k. hafa lesið. Þetta eru bækur eins og Glæpur og refsing, Fávitinn, Djöflarnir og Karamazov- bræðurnir. Fjodor er sagður hafa kafað dýpra í mannssálina en aðrir höfundar. Hann átti erfítt með að vera stuttorður og virðist einkum hafa verið að svamla á rúmlega þús- und blaðsíðna dýpi. Bók sem gerist á tveimur dögum er tvö bindi. Þessi andúð á knappri frásögn var út- breidd á meðal rússneskra rithöf- unda og er mæld í hillumetrum og nægir að eiga kappa eins og Dostojevskí, Tolstoj og Turgenev til að vera löggiltur spekingur á þessu sviði. Maður missir niður tjöru Ég held að það hafi verið Halldór Laxness sem líkti Dostojevskí og sögum hans við mann sem hefði misst niður einhver lifandis ósköp af tjöru sem síðan flæddi stjómlaust yfir allt eftir lögmáli þyngd- araflsins. Innbyggð í þessa samlík- ingu skáldsins er sú skoðun að tjaran taki einhvern veginn völdin af þeim sem missir hana úr ílátinu. I gærkvöld var frumsýnt í Borg- arleikhúsinu leikrit, byggt á sögu Fjodors, Djöflarnir. Þetta er leik- gerð rússnesks leikstjóra, Alexei Borodíns og félaga hans, Stanislavs Benediktov. í miðri viku fyrir frumsýningu er haft opið rennsli þangað sem blaða- mönnum, ljósmyndurum og velunn- urum leikhússins er boðið. Síðan er leikritinu rennt, sem kallað er, það þýðir að ljós, hljóð, leikmynd, bún- ingar og allt sem gerir leiksýningu að leiksýningu er á sínum stað og leikararnir eiga að kunna textann sinn. Það voru um það bil 20 manns sem voru mættir í Borgarleikhús á þriðjudagskvöldi, kl. 20, til að sjá Djöflana. Sumir voru larfalegir blaðamenn, sumir starfsmenn leik- hússins en stór hluti hópsins voru þátttakendur á námskeiði á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla íslands þar sem menn sökkva sér ofan í Dostojevskí. Þetta sýndust einkum vera settlegar miðaldra konur, fróðleiksfúsar konur sem við þetta tækifæri höfðu drifið eigin- manninn í leikhúsjakkann og dreg- ið hann með sér. Fall er fararheill Það ríkti alveg sérstaklega yfir- veguð og menningarleg þögn í saln- um þangað til frú Þórhildur Þor- leifsdóttir leikhússtjóri gekk fram á sviðið og niður tröppurnar í salinn. Hún taldi tröppurnar vitlaust og féll kylliflöt í gólfið og næstum því ofan á Einar Ólason, ljósmyndara DV. Fall er fararheill sagði einhver. Það er margt gott við að fara í leikhúsið við þessar aðstæður. Mað- ur getur farið úr skónum og stungið löppunum fram í næsta bekk. Mað- ur getur verið eins og lúði til fara, rekið við og skrafað við sessunaut sinn allan tímann. Síðast en ekki síst kemur leiklistarráðunautur leikhússins, Guðrún Vilmundar- dóttir, og færir manni á sjö vélrituð- um blöðum allt sem mann langaði til að vita um Dostojevskí og hvað verk hans eiginlega þýða. Þetta er ágætt. Og Djöflarnir renna Svo byrja leikarar og tæknifólk að renna Djöflunum. Sviðið er risa- stórt og lítur að sumu leyti út eins og járnbrautarstöð og leikaramir eru stöðugt að ganga fram og til baka homanna á milli á því. Það glymur í lakkskóm rússneskra herramanna í dauðaþögn leikhúss- ins. Konurnar eru allar í óskapleg- um pífukjólum sem ýta brjóstunum á þeim upp undir hökuna og rasspúðamir eiga sinn þátt í að þær líta svolítið út eins og frjósemis- styttur sem hafa verið grafnar upp austur í Kasakstan eða Langt- burtistan. Karlamir eru allir í hæl- síðum frökkum og sjakket eða kjól- fótum eins og mörgæsir i nokkrum litum. Frásögn verksins vellur áfram eftir lögmálum sem stundum eru augljós en stundum ekki. Á rennslum er ekki hlé heldur hálftíma matarhlé fyrir leikara. Áhorfendur tínast fram og vafra í litlum klösum um tómlegt anddyri Borgarleikhússins. Þeir standa og tala saman um veðrið og heilsufar einhverrar frænku. Enginn minnist á Fjodor eða það sem fram fer á leiksviðinu. Menningarvitarnir loga ekki Það er sennilega vegna þess að við þessar aðstæður loga menning- arvitar ekki. Menningarvitar loga nefnilega ekki fyrir sjálfa sig heldur fyrir aðra. Þeir lýsa okkur hinum gegnum skerjagarð og brimrót vís- ana og táknmáls og segja okkur hvað okkur finnst. Einir með sjálf- um sér eða makanum í yflrgefnu anddyri leikhúss á þriðjudagskvöldi eru þeir ónógir sjálfum sér og það er slökkt á þeim. Svo situr maður bara einn á grænum hörðum stól og verður þess áskynja að þótt það sé auðvitað næstum því að fara i leikhús að fara á svona rennsli þá er það samt ekki leikhús. Leikhús er nefnilega fólk, skvaldur, samræður og lifandi und- irtektir. Ekki bara textinn allur og ljósin inn á réttum stað. Ef marka má þá gesti sem biðu meðan leikararnir bruddu kvöld- matinn þá er dæmigerð Dostojevskí- týpa miðaldra vel klædd kona eða maður, fróðleiksfús, víðsýn og telur ekki eftir sér að grafa djúpt í rúss- neskan menningararf eftir skiln- ingi. Svo tínast gestirnir inn aftur til að týnast í Fjodori og saddir leikar- ar halda áfram þar sem frá var horf- iö. Sýningin varir til hálftólf sem þýðir að sjálft leikritið er þrír tímar að lengd án hlés. Nokkrar persónur lifa ekki sýninguna af en loksins kemst Fjodor að niðurstöðu um það hvort Guð sé dauður eða ekki og hvort við þurfum á honum að halda á nýjum tímum. Eigum við að klappa? Ljósin kvikna og leikarar horfa óræðum svip fram í salinn. Leik- húsgestir kíkja ögn vandræðalegir hver á annan og eru að bíða eftir að einhver taki af skarið og byiji að klappa. Kannski á ekki að klappa á rennslum. Kannski er það brot á einhverri leikhúshefð. Eftir stutt samráð með augnagotum komast menn að því að best sé að klappa ekki og troðast þegjandi í úlpumar og luntast út eins og rússneskir smábændur á leið heim af akrinum. Úti bíður íslenskur sumarhiti um hávetur og fátt sem minnir á Síber- íu eða túndrur Rússlands. Hvernig var? Það var langt. -PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.