Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Side 31
Jj V LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
39
símtöl til útlanda
Við erum alvörusímafyrirtæki;
við notum alvörusímstöðvar -
ekki Intemet - sem þýðir að við
keyrum á fastlínukerfmu," segir
Páll Jónsson, forsvarsmaður hins
nýja símafyrirtækis, Frjáls fjar-
skipti, en þar er nú verið að bjóða
upp á mun ódýrari símtöl til út-
landa en áður hefur þekkst hér á
landi.
„Lykillinn er þetta frelsi sem er
komið á með lagasetningu, bæði
hér og í ESB, sem í grunninn fjall-
ar um það að símanetin, sem
menn kalla gjarnan grunnnet, eru
ætluð sem leikvöllur fyrir sam-
keppni, þ.e. að mörg fjarskiptafyr-
irtæki geti keppt á sama grunn-
netinu.“
Hvað áttu við?
„Það er best að lýsa þessu með
gatnakerfinu og bílamarkaðnum.
Þar selja menn bíla til að nota
sama gatnakerfið en era ekki að
byggja ný Hvalfjarðargöng fyrir
sína viðskiptavini.“
Frjáls fjarskipti hafa verið
mörg ár í undirbúningi, að sögn
Páls. Fyrstu frumkvöðlarnir voru
þau Lárus Jónsson og Fanney
Gísladóttir sem hafa verið við
uppsetningu og ráðgjöf á fjar-
skiptasviði úti í Evrópu síðastlið-
in átta ár.
„Þau hófu formlegan undirbún-
ing hér heima fyrir ári,“ segir
Páll, „og síðan bættumst við Hall-
ur Hallsson í hópinn um mitt ár í
fyrra.“
Allir verða að semja við
okkur
Hvenær takið þið til starfa?
„Fyrirtækið hefur þegar haflð
störf. Línurnar út úr landinu eru
komnar í gang og þetta er símstöð
frá Ericsson, uppsett af þeim,
þannig að fyrsta varan, að selja
símtöl til útlanda, er komin í
gang.
Síðan erum við að semja við
Páll Jónsson hjá Frjáls-
um fjarskiptum segir
þetta nýja fjarskiptafyr-
irtæki geta boðið lægra
verð vegna þess að þar
sé enginn þróunar- og
yfirbyggingarkostnaður
og að fljótlega muni fyr-
irtækið bjóða ódýrari
innanlandssímtöl
Landssímann og væntanlega
lina.net um notkun á grunnkerf-
um þeirra og það verða allir að
semja við okkur á raunhæfu
verði.“
Hvers vegna?
„Það stendur í lögunum."
Hvað ætlið þið að bjóða upp á
sem aðrir háfa ekki?
„Núna bjóðum við upp á það að
hægt sé að hringja til útlanda á
margfalt lægra verði en hingað til
án þess að þurfa að breyta neinu
í símanum hjá sér.“
Val um þjónustu
Hvernig má það vera?
„Við erum með pínulítið tæki
sem sett er í samband við rafmagn
og tengt við símann þinn. Fimm
minútum síðar getur maður farið
að hringja til útlanda. Lykillinn er
fólki að kostnaðarlausu, það er
enginn stofnkostnaður og það er
enginn margra mánaða áskriftar-
samningur. Þú getur byrjað í dag
og hætt á morgun. Þetta er sama
tækni og er hjá þeim símafyrir-
tækjum sem vaxa nú hraðast
beggja vegna Atlantshafsins.
Málið er nefnOega það að þegar
fólk er komið með símlykil frá
okkur og komið í viðskipti við
okkur getum við stýrt því hvaða
þjónustu það vill nota hverju
sinni. Með öðrum orðum, fólk get-
ur valið þjónustu frá öðrum en
okkur. í framtíðinni munu mögu-
leikar í símaþjónustu stóraukast
og líklegt að ekkert eitt fyrirtæki
bjóði alla þjónustu. Með þessu
tæki og samskiptum við okkur get-
um við valið fyrir fólk við hvern
það verslar."
Útskýrðu þetta betur.
„í dag getur fólk til að mynda
komið í viðskipti við okkur í utan-
landssímtölum en ef það vill af
einhverjum ástæðum versla áfram
við Landssímann með símtöl til
Danmerkur þá er það ekkert mál.“
Hvað um gæðin?
„Við bjóðum upp á nákvæmlega
sömu gæði og Landssíminn býð-
ur.“
Þetta hljómar of vel til að geta
staðist. Hvar er hængurinn á mál-
inu?
„Þaö er enginn hængur. Við
sníðum alla sölutregðu af og allan
þann aukakostnað sem gæti komið
eftir á. Það eina sem við viljum er
að fólk sem er með símalykil noti
hann, annars viljum við fá hann
til baka fyrir aðra viðskiptavini."
Ódýrari innanlandssím-
töl fljótlega
Ætlið þið ekki inn á innanlands-
markað?
„Jú, það ætlum við okkur innan
fárra mánaða og þar ætlum við
líka að vera með lægra verð.“
Frjáls fjarskipti hafa veriö mörg ár í undirbúningi, að sögn Páls. Fyrstu frumkvöðlarnir voru þau Lárus Jónsson og
Fanney Gísladóttir sem hafa verið við uppsetningu og ráðgjöf á fjarskiptasviði úti í Evrópu síðastliðin átta ár.
Hvernig farið þið að þessu?
„Svarið er mjög einfalt. Stofn- og
þróunarkostnaður er í lágmarki.
Við fjárfestum ekki í grunnnetum
heldur leigjum þau og spörum
þannig hundruð milljóna, ef ekki
milljarð. Það er nefnilega svo að
fjarskipti íjalla ekki um tæki og
eignir. Þetta er eins og hugbúnað-
arfyrirtæki og viðskiptasambönd.
Auðvitað þurfa hugbúnaðarfyrir-
tæki að hafa einhverjar tölvur og
slíkt til að vinna á en það er
einskis virði miðað við fólkið sem
á þeim vinnur.
Allt okkar grunnkerfi er líka
byggt upp samkvæmt nýjustu
stöðlum. Við getum með öðrum
orðum runnið inn í Intemetið og
keyrt upp wapp-gáttum.
Það sem gerir líka fyrirtækið
geysilega spennandi er að þessi
takmarkaða fjárfesting og yfir-
bygging gerir það að verkum að
við getum alltaf skipt yfir í nýj-
ustu tækni með engum fyrirvara
og án þess að burðast með óaf-
skrifaðar fjárfestingar á bakinu."
-sús
INNANHÚSS- 111
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskríftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list. Þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,
veggklæðningar, vefnaðarvara. Þar tilheyrir gólfteppi,
húsgagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
Ég óska, án skuldbindingar, að fá sendan bækling yðar
um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn..............................
Heimilisfang....................
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 ■ Postboks 234
2000 Frederiksberg ■ Kobenhavn • Danmark
KALDIR
AEG
0 inDesu
Tilboð
frá 21
® Husqvarna
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is