Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Side 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá T síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Flugskólinn Loft:
Aðeins 18
prósenta fall
„Hér hafa menn
unnið heimavinn-
una sína, bæði
nemendur og
kennarar," sagði
Ögmundur Gísla-
son, skólastjóri í
Flugskólanum
Loft en þar þreyttu
11 nemendur
Ögmundur einkaflugmanns-
Gíslason. próf á dögunum.
Aðeins 18 prósent
nemenda féllu en til samanburðar má
geta þess að á einkaflugmannsprófi hjá
Flugskóla íslands var fallið 76 prósent.
„Við erum í sjöunda himni og fljúgandi
glaðir,“ sagði Ögmundur Gíslason sem
þakkár góðan árangur þvi að hjá sér sé
nemendum haldið við námið og grannt
■ fvkst með framvindu allri. -EIR
Taliö er líklegt aö salmonella sé (
nautgripunum á Ármóti, aö sögn
yfirdýralæknis. DV-mynd GVA
Ármót:
Salmonella
líklega í
nautgripum
Talið er líklegt að salmonefla sé í
nautgripum að Ármóti í Rangár-
ivallasýslu, að sögn Hafldórs Run-
ólfssonar yfirdýralæknis í gær-
kvöld. Sýni sem tekin voru úr naut-
gripunum hafa verið til rannsóknar
að undanfornu. Fyrstu niðurstöður
benda til sýkingar, en endanleg
staðfesting fæst eftir helgi.
Sýni voru einnig tekin úr hross-
um á Ármóti en niðurstöður liggja
enn ekki fyrir. Folald sem fannst
dautt i haga þar á aðfangadag
reyndist vera sýkt af salmonellu.
Flutningsbann er nú í gildi á hross-
um frá Ármóti, Vetleifsholti og Rifs-
halakoti. Ástæðan er sú að jákvæð
sýni hafa ræktast úr hrossum af
þessum bæjum. Salmonellusýking-
um hefur fjölgað í hrossum í Rang-
jjtórvallasýslu að undanfórnu. -JSS
Sjá fréttaljós bls. 8
Sínum augum lítur hver tilveruna. Tveir vinir horfa fram á veginn á hjólreiöastíg í mildu janúarlofti í Reykjavík. DV-mynd ÞOK
EM í handbolta:
Stór ósigur
gegn Svíum
í slökum leik
DV, Króatíu:
íslendingar töp-
uðu fyrsta leik sín-
um gegn Svíum á
Evrópumóti lands-
liða í handknatt-
leik í Króatíu í
gær.
Lokatölur urðu
23-31 en Svíar höfðu náð öruggu for-
skoti í leikhléi, 10-18.
Leikur íslenska liðsins olli miklum
vonbrigðum og ljóst að liðið verður að
gera mun betur í næstu leikjum ef
möguleiki á að vera á stigum í riðlin-
um. Það versta við leik íslenska liðsins
var að baráttuleysi leikmanna var al-
gjört og það er alvarlegt mál þegar
leikmenn leggja sig ekki afla fram 1
landsleikjum á stórmóti.
Lengi vel leit út fyrir að íslenska lið-
ið hefði burði til að hanga í Svíunum
en hreint hörmulegur leikkafli í fyrri
hálfleik gerði þær vonir að engu. Svíar
hrósuðu sigri og Evrópu- og heims-
meistaramir eru til afls líklegir á mót-
inu. Sjá nánar á bls. 27. -JKS
Alþýðusamband ísland gengur í norrænu „kratasamtökiní£ SAMAK:
ASI i somu sæng
og Samfylkingin
- þvert á stefnu verkalýðshreyfingarinnar, segir Magnús L. Sveinsson
Alþýðusamband ís-
lands hefur gengið í
norrænu samtökin
SAMAK. Þetta var
samþykkt á ársfundi
samtakanna sem
haldinn var í Gauta-
borg í síðustu viku.
SAMAK eru samtök
sósíaldemókratiskra flokka og verka-
lýðsfélaga á Norðurlöndum. Aðild að
samtökunum eiga Alþýðuflokkurinn
og þingflokkur Samfylkingar. Á árs-
fundinum, sem haldinn var í Stokk-
hólmi í síðustu viku, voru Ari Skúla-
son og Grétar Þorsteinsson af hálfu Al-
þýðusambands íslands og Sighvatur
Björgvinsson af hálfu Alþýðuflokksins.
Það er Poul Nyrup Rasmussen, for-
maður danskra sósíaldemókrata, sem
er í forsæti samtak-
anna en Sighvatur sit-
ur í stjóm þeirra auk
Grétars Þorsteinsson-
ar. Innan Alþýðusam-
bandsins var einhug-
ur um að ganga í sam-
tökin.
Innan Samfylking-
ar er litið svo á að innganga ASf í hin
norsku kratasamtök þýði að verið sé
að skipa samtökunum þétt upp við hlið
' Samfylkingar. Samfylkingarmenn
vildu ekki tjá sig um málið vegna þess
að það kynni að vera viðkvæmt gagn-
vart verkalýðshreyfingunni en einn
þeirra orðaði það sem svo að þetta
væm „gríðarleg tíðindi".
Hervar Gunnarsson, varaforseti
ASf, sagði engar athugasemdir hafa
komið fram innan
ASÍ þegar tillaga var
borin upp um að
ganga í SAMAK.
„Þetta var sam-
þykkt á síðasta ári án
athugasemda. Alþýðu-
sambandið var starf-
andi innan þessarra
samtaka áður en aðildina dagaði uppi.
Við höfum þama aðgang að sameigin-
legum vettvangi með öðrum kollegum
af Norðurlöndum," segir Hervar.
Spurður hvort ekki fælist í aðildinni
pólítisk yfirlýsing um samleið með
Samfylkingunni ítrekaði hann að ASÍ
væri fyrst og fremst að slægjast eftir
samráði við kollega. Hann staðfesti þó
að eitthvert samráð yrði við hin
pólítísku öfl innan samtakanna og
Magnus L.
Ari Skúlason.
Sighvatur.
Veöriö á sunnudag
og mánudag:
Dálítil súld
með köflum
Spáð er vestlægri átt, 5-10 m/s.
Dálítil súld verður með köflum
vestanlands en annars bjart
veður. Hiti 1 til 6 stig.
Veðrið í dag er á bls. 57.
snertiflötur væri við
Samfylkinguna.
Sighvatur Björg-
vinsson vildi ekkert
um málið segja en vís-
aði alfarið á forystu-
menn ASf.
Magnús L. Sveins-
son, formaður Verzf-
unarmannafélags Reykjavíkur, sagðist
vera að heyra þetta í fýrsta sinn þegar
DV spurði hann álits á inngöngu ASÍ í
SAMAK.
„Ég vara mjög við því ef ASÍ ætlar
að fara að vinna flokkspólitískt og
verkalýðshreyfingin fími sig við ein-
hvem stjórmálaflokk. Það er þvert á
þá stefnu sem verið hefur í hreyfing-
unni undanfarin ár,“ segir Magnús L.
Sveinsson. -rt
bíother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Bafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport______