Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Síða 4
18
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
'etrarsport
Skíði nútímans:
Upprunnin
á Þelamörk
á 18. öld
— bakgrunnurinn er
rakinn til Asíu fyrir
8ooo árum
Skíði og skíðaíþróttir eiga
sér langa sögu. Talið er að
skíðin séu upprunnin í Asíu
fyrir a.m.k. 8000 árum. Fundist
hafa 4500 ára gömul skíði í Sví-
þjóð en nútímaskíði eiga upp-
runa sinn að rekja til Þela-
merkur í Noregi á 18. öld.
Segja má með nokkrum
sanni að í upphafi hafi skíðin
verið hálfgerðir tunnustafir úr
tré sem síðan hafi þróast upp í
hátæknivöru úr plastefnum og
öörum gerviefnum.
Skíðaíþróttir skiptast I nor-
rænar greinar (skíöagöngu,
skíðastökk og skiðaskotfimi)
og alpagreinar (svig, stórsvig
og brun). Fyrsta skíöakeppnin
sem vitaö er um fór fram í Nor-
egi 1767, en þar hafa verið
haldin Ólympíumót nokkrum
sinnum síðan 1924. Til íslands
barst skíðaíþróttin með Norð-
mönnum sem störfuðu við
norskar hvalstöðvar um og eft-
ir aldamótin 1900. Líklegt er að
fyrst hafi verið keppt á skíðum
hér á landi í önundarfirði að
frumkvæði Norðmanns sem
þar bjó. Fyrsta Skíðamót ís-
lands var hins vegar haldiö
1937.
Nýjasti anginn í skíöaíþrótt-
inni er snjóbrettaiðkun. Þar
fóru menn óheföbundnar slóð-
ir og eru hugmyndimar að
þeirri iðkun trúlega sóttar í
sjóbrettaíþróttina.
Skautafélag Reykjavíkur stofnaði938:
Þúsundir manna á tjörninni
— þá kostaði 25 aura á svellið
Skautafélag Reykjavíkur var stofn-
að á fundi í Iðnó 31. október 1938. Á
fundinum lagði forseti ÍSÍ, Benedikt
G. Waage, fram lista með árituðum
nöfnum 30 stofnenda, en flestir voru
mættir á fundinum, auk margra ann-
arra.
Fyrsti formaður Skautafélags
Reykjavíkur var Kristján Einarsson
framkvæmdastjóri, aðrir í stjórn
voru Júlíana Isebarn, Eyþór Ólafs-
son, Björn Þórðarson og Katrín Við-
ar. Tilgangur félagsins er að vekja og
glæða áhuga manna á skautaíþrótt-
inni með því að stuðla að iðkun
skautafara, stofna tO skautamóta og
námskeiða og á annan hátt efla
skautaíþróttina.
Um 25 árum áður var starfandi öfl-
ugt skautafélag sem einnig hét
Skautafélag Reykjavíkur. Formaður
þess var Ólafur Björnsson ritstjóri og
síðar Ingibjörg Brands leikfimikenn-
ari. Við fráfall hennar féll starfsemi
félagsins niður.
Á fyrstu starfsárum nýja félagsins
fékk það leyfi bæjarsijómar Reykja-
víkur og lögreglustjóra til að hafa
skautasvell á litlu tjörninni. Var
þetta svell mjög vel sótt af yngri og
eldri. Horfið var þó frá því seinna aö
hafa svellið þar vegna gróðursetning-
ar trjáa i Hljómskálagarðinum þar
sem ekki reyndist hægt að verja þau
skemmdum vegna umferðarinnar.
Skautafélagið flutti þá bækistöð
sina af litlu tjöminni á stóru tjörn-
ina og var síðan í mörg ár starfrækt
skautasvell þegar tækifæri gafst með
tjarnarbakkanum fyrir framan
brunastöðina gömlu. Þar fékk félagið
leyfi bæjarráðs til að leggja sérstaka
vatnsleiðslu fyrir skautasvellið,
sömuleiðis var komið þar upp ljós-
kösturum. Auk þess kom Skautafé-
lagið upp litlum skúr, sem stóð á
vetrum við Tjörnina. Þar hafði félag-
ið skó- og verkfærageymslu, einnig
dálitla sælgætissölu til tekjuöflunar,
því allt þetta kostaði mikið fé, en fé-
lagið hafði ekki mikla tekjuöflunar-
möguleika. Var fengið leyfi til að
selja inn á svellið og kostaði 25 aura
á mann. Voru oft um þrjú þúsund
manns auk barna á svellinu.
Skautafélagið fór margar skauta-
ferðir út úr bænum á vetuma, á
Þingvallavatn, Elliðavatn og Rauða-
vatn. Einnig voru hér haldin lands-
mót og Reykjavíkurmót. Fóru
skautamenn úr Reykjavík norður til
Akueyrar og kepptu þar og öfugt.
Fyrsti íslandsmeistarinn í hrað-
hlaupi á skautum var Ólafur Jóhann-
esson frá Skautafélagi Reykjavíkur.
-HKr.
(Heimild: Afmœlisrit Skautafé-
lagsins)
Þúsundir manna sóttu skautasvellið á Reykjavíkurtjörn á góðviðrisdögum.
Þessi mynd úr safni DV sýnir káta krakka á svellinu í nóvember 1965.
A-C ZR 580 EFI '97 ek. 2800 mtl.,
20 mm beltí, gasd./plastsk.
V. 690.000
A-C ZR 600 '98, ek. 1750 míl., 22
mm neglt belti, gasd., plastsk.
V. 830.000
Lynx Enduro 500 special ‘99,
ek.1300 km, 25 mm belti, Race gasd.
V. 950.000
Ventura 600 '99, 3 cyl., ek.
2800 km, 28 mm nelgt belti,
rafst/bakkgír, yfirbr., o.fl.
V. 950.000 stgr.
Polaris 500 EFI Classic '94,
ek. 3650 míl„ org.belti, rafst/bakkgír,
grind/kassi. V. 470.000
Skidoo Formula 500 SLS '96,
ek.5600 km„ 19 mm belti, grind.
V. 430.000
Lynx 670 Bigpipe '98,
ek. 500 km, 20 mm belti,
V. 900.000
Polaris XLT 580 special '94 3 cyl„
ek. 7700 míl„ uppt. vél, nýtt 24 mm
belti, gasd. o.fl. V. 460.000
Yamaha VMAX 600 ST ‘96,
ek.4000 km, 28 mm belti,
rafst/bakkgír, grind/kassi.
V. 650.000
Skidoo MXZ 600 '99, ek.2150 km,
25 mm belti, gasd., plastsk.
V. 950.000
Yamaha SX 700 '97 3 cyl„ ek. 5000
km, 32 mm belti, Öhlins gasd.,
plastsk. o.fl. V. 750.000
LANDSINS MESTA URVAL AF GOÐUM
VÉLSLEÐUM SKRÁ OG Á STAÐNUM
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
OPH) VIRKA DAGA FRA KL.10-12 OG 13-18
LAOGARDAGA FRÁ KL.13-1G.
. . (aiíASAUmj
Höldur ehf.
BÍLASALA
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020-461 3019