Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Blaðsíða 5
MIÐVKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
19
Wt
etrarsport
Hilmar Björnsson, framkvæmda-
stjóri Skautahallarinnar í Reykjavík.
Skautahöllin:
Fjölskyldupakki
á 1500 krónur
- skautar innifaldir
Mikill fjöldi fólks er farinn að
sækja Skautahöllina í Laugar-
dalnum. Um helgar er ekki óal-
gengt að 2000 manns komi á
svellið, bæði böm og fullorðnir.
Almennt verð fyrir barn er 250
kr., en það kostar 350 kr. fyrir
fullorðna. Þá er hægt að kaupa
fjölskyldupakka sem eru vinsæl-
ir og kostar þá 1500 krónur að
koma með fjölskylduna og inni í
því er leiga á skautum.
Loks komin góð skautaaðstaða:
Erum að stíga
fyrstu skrefin
— segir Hilmar Björnsson, framkvæmdastjóri
Skautahallarinnar í Reykjavík, en þar verður
heimsmeistaramót íshokkí í D-riðli haldið í apríl
Hilmar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Skautahallarinnar i
Reykjavík, segir geysimikla aö-
sókn vera að skautasvellinu í
Laugardalnum. Þar verður haldið
9 liða keppni i D-riðli heimsmeist-
aramótsins í apríl og listskauta-
sýning með breskum dönsurum í
mars.
„Við erum auðvitað að stíga
fyrstu skrefin í skautaíþróttum i
alþjóðasamanburði. Greinin er þó
mjög vaxandi og mikil þátttaka í
yngri flokkum og varla hægt að
anna því. Hér verður listskauta-
sýning með breskum dönsurum í
mars. Það er í tengslum við menn-
ingahátíðina. Þann 10. apríl hefst
svo keppni í D-riðli heimsmeist-
aramótsins í íshokkí og hingað
koma lið frá 8 þjóðum auk okkar
liðs og keppt verður í þrem riðl-
um.
á morgnanna, en opið er allt til
miðnættis.
-HKr.
Við tókum í fyrsta skiptið þátt í
heimsmeistaramótinu í fýrra og
þá í S-Afríku. Okkur skortir
reynslu og skiptingin er þannig að
við eigum ekki marga eldri spilara
enda hefur ekki verið aðstaða til
að æfa þetta fyrr en nú. Það eru
rúmlega tvö og hálft ár síðan við
vorum komnir undir þak hér í
Reykjavík og Akureyringar eru
núna að byrja að æfa undir þaki
líka. Veturinn í fyrra er fyrsti
heili veturinn sem íshokkí er æft,
svo heitið geti.
Ungt keppnislið
Það var lið héðan úti í Mexikó
að keppa á heimsmeistaramóti
yngri en 20 ára. Stór hluti af okk-
ar liði var mjög ungt, 16-17 ára
strákar, og því varö samanburður-
inn óhagstæður. Hins vegar má
gera ráð fyrir betri árangri þegar
keppt verður í Búlgaríu í aldurs-
flokki undir 18 ára aldri. Ætli það
séu ekki 70% af skautaiðkendun-
um hér innan við 12 ára aldur.
Við líðum líka fyrir það að hér
eru ekki nema þrjú félög að keppa,
Bjöminn, Skautafélag Reykjavík-
ur og Skautafélag Akureyrar og
því vantar keppnisþáttinn inn í
þetta. Það tefur dálítið fyrir þróun-
inni. Hins vegar er staðið vel að
uppbyggingunni í dag. Það er því
að koma góður stíll á skautafólkið
okkar sem er mjög áhugasamur
hópur og hefur farið mikið fram“,
segir Hilmar. Hann hefur í nógu
að snúast við að sinna skautaiðk-
endum sem byrja sumir klukkan 6
ALLT AÐ
SEGLAGERÐIN