Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Qupperneq 8
22 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 V Vetrarsport Veturinn: Tími vélsleða- manna Öfugt við skógarbirnina sera leggjast í híði yfir harðasta veturinn færist líf 1 vélsleðamenn landsins. Vélsleöar hafa sína kosti og einnig ýmsa galla. Þvi er þó ekki að leyna að þessi tæki gefa mönnum kost á að kynnast landinu á annan hátt og ferðast um slóðir sem annars væri illmögulegt aö komast á. Sleða- sportið kostar vissulega mikla pen- inga en alltaf eru einhverjir sem eiga nóg af seðlum eða fóma frekar einhverju öðru til að geta sinnt þessu skemmtilega sporti. Tímabil vélsleðamanna hefst venjulega í desember og stendur yfir á meðan einhvern snjó er að fmna. Á sumrin er þó ekkert útilokað aö fara í vélsleðaferðir og vinsælt er t.d. að fara á Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu. Óbyggðaferðir á vélsleðum, eins og í eyðibyggðir Homstranda, er einnig vinsæl iðja síðla vetrar og á vorin. -HKr. Mikið að gerast hjá vélsleðamöninuim: Heims- meistara- mót í Ólafsfirði - búist við 500 erlendum og þúsund- . um innlendra gesta Undirbúningur fyrir heimsmeist- aramót í snjókrossi, sem fram fer hér á landi næsta vor, er kominn í fullan gang. Sjö manna undirbún- ingsnefnd hefur þegar tekið til starfa og er Marinó Sveinsson hjá Sportferðum á Akureyri formaður hennar. Gera menn sér vonir um allt að 500 erlenda gesti, bæði kepp- endur og áhorfendur. Mikill áhugi er erlendis fyrir mót- inu í Ólafsfirði, en Marinó og helstu forsprakkar mótshaldsins hér heima hafa að undanfórnu verið í Banda- ríkjunum. Kveikjan að þessu móts- haldi mun vera fyrirspum frá Alex- ander Kárasyni á Akureyri til WSA (World Snowmobile Association). Eftir heimsókn fulltrúa WSA hingað til lands var ákveðið að mótið færi íram í miðbæ Ólafsfjarðar í stað Hlíðarfjalls þar sem fulltrúum WSA þótti kjöraðstaða til mótshalds 1 Ólafsfirði, heimamenn með reynslu í brautargerð og snjór tryggari að vorlagi. Reiknað er méð 16 keppendum frá BauJaríkjunum og sama fjölda frá Norðurlöndum. Hverjum keppanda fylgja síðan 2-3 aðstoðarmenn þannig að fjöldi í erlendum keppn- isliðum gæti orðið hátt 1100. Forsprakkar mótsins telja ekki ómögulegt að erlendir gestir geti orðiö um 500 talsins og að á mótið komi allt að 3000 manns. Að undir- búningi mótsins standa Vélsleða- klúbbur Ólafafiarðar, Kappaksturs- klúbbur Akunyrar, WSA og Sport- ferðir á Akuréyá. -HKr Vélsleðar seljast eins og heitar lummur: Sumir ná yfir 200 - eru með yfir 170 hestafla vélar og kosta vel á aðra milljón króna Vélsleðasport er orðið mjög öflugt hér á landi og fer vaxandi. Gott dæmi um gengi þessarar greinar er heimsmeistaramót sem verður hald- iö hér á landi í fyrsta skiptið í vor, þar sem þeir allra bestu frá Banda- ríkjunum og Evrópu etja saman beltafákum sínum. Mest áberandi tegundirnar á markaðnum hér eru Yamaha frá Japan, Artic Cat frá Bandaríkjun- um, Ski-doo frá Kanada, Polaris frá Bandaríkjunum og Lynx frá Finn- landi. Lynx er reyndar alfarið kom- ið í eigu kanadíska fyrirtækisins Bombardier sem framleiðir Ski-doo- sleðana. Báðar tegundirnar eru með Rotax-mótora sem framleiddir eru í austurrískri verskmiðju Bombardi- er. Sleðamir eru af ýmsum stærðum og gerðum og kosta á bilinu 500-1700 þúsund með tollum og gjöldum sem eru hér 70%. Með- alsleði til ferðalaga kostar í kring- um eina milljón króna og er þá venjulega með 600 rúmsentímetra vél. Aflið getur líka verið mun meira og þeir hraðskreiðustu, með 172 hestafla, 1000 rúmsentímetra og þriggja strokka vél, geta auðveld- lega náð 200 km hraða á örskots- stundu og eru sannarlega engin bamaleikföng. Betri ending Tröllasögur um óheyrilegan við- haldskostnað vélsleða og lélega end- ingu mótora heyra sögunni til ef marka má orð innflytjenda hinna ýmsu tegunda. Þeir em sammála um að allur búnaður í dag sé orðinn betri og vandaðri en áður var en ending vélanna ráðist mest af með- ferð og viðhaldi. Sögur um að vél- amar endist ekki nema 5-10 þúsund kílómetra segja menn tóma vitleysu ef á annað borð er rétt farið með búnaðinn. Þetta geti átt við gamlar gerðir en nýrri vélar endist mun meira. Bensineyðsla er afstætt hugtak í huga vélsleðamanna, enda fer hún mikið eftir aksturslagi og þeirri færð sem ekið er í. Annars eru vél- ar sleðanna yfirleitt tvígengisvélar og brenna blöndu af bensíni og tví- gengisolíu. Frekar er talað um hvað sé hægt að aka lengi á tanknum en vegalengdir í sambandi við elds- neytiseyðslu. Snjór í bensíntanki og ónýtir stimplar Vélamar í sleðunum eru ýmist loft- eða vatnskældar. I stæmi vél- unum, sem eru yflr 65 hestöfl, er undantekningalaust um vatnskæl- ingu að ræða. Ástæðu þess að stimplar brenna í vélunum segja fagmenn ekki bara vera vegna ónógrar kælingar kælikerfisins, heldur kannski mun frekar vegna ónógs flæðis og óhreins eldsneytis. Ef snjór kemst í eldsneytistank vélsleða er fjandinn laus og vegna vatns í bensíni geta ventlar brunnið upp á örskotstíma eins og pappír. Leggja menn ríka áherslu á að kom- ið sé í veg fyrir að vatn og önnur óhreinindi komist í eldsneytið og umfram allt að nota ísvara. Það á aldrei að nota skítuga og lélega bensínbrúsa. Halldór Jóhannesson hjá Polaris-umboðinu segir að allar kreddusögur um að ísvari þurrki upp sílindra og annað séu tilkomn- ar vegna vankunnáttu. Enda taka framleiðendur oft fram að það eigi að nota ísvara í bensínið. Þá er það talin góð og skilyrðislaus regla að að hreinsa eldsneytistank og blönd- ung minnst einu sinni á ári. Keppnissleðar á heimsmeistara- mót Vegna fyrirhugaðs heimsmeist- aramóts í Ólafsfirði í vor er talsvert flutt inn af sérútbúnum keppniss- leðum. Er mun meira flutt inn af slikum sleðum en áður hefur þekkst og líklegt að margir hyggi á keppni í vor. Þessir sleðar eru lausir við allt „óþarfa prjál“ en því meiri áhersla lögð á fjöðrun og aðra þætti sem skipta miklu máli i keppni. HKr. Merkúr er með breiða Ifnu öflugra vélsleða frá Yamaha. Vinsælasti sleðinn frá Yamaha er hins vegar Venture 700 sem hentar vel til ferðalaga og kostar 1.145.000 kr. Hann hefur notið gríðar- legra vinsælda hér á landi og er með raf- starti og bakkgír. Ódýrasti sleðinn, Yamaha Phazer 500, kostar 749.000 kr. og sá dýrasti, Yamaha NM 700, með þriggja strokka vél, er á 1.165.000 kr. Yamaha býður sérsmfðaða keppnissleða eins og aðrir framleiðendur. Öflugasti Polaris-sleðinn : , heitir Polaris Indy 800 XCR. Hann er með jjjpgy þriggja strokka 160 hest- afla vél. Hann kostar w 1.261.000 kr. SRX 700 er aflmesti sleðinn frá Yamaha. Hann er 145 hestöfl og kostar 1.145.000 krónur. Umboðsmaður Polaris á íslandi er Tómas Eirfksson sem er jafnframt eigandi Polaris ehf. Fyrirtækið er með aðsetur á Akureyri og einnig með verslun og þjónustu á Smiðju- vegi 4a f Kópavogi. Vinsælasti Pol- aris-vélsleðinn heitir RMK og er mikill alhliða sleði og klifurköttur á grófum beltum. RMK-sleðarnir eru fáanlegir með mismunandi vélum, 500-800 cc og sá aflmesti, RMK 800-sleðinn, er með 135 hestöfl undir húddinu og kostar 1.163.000. Polaris RMK 500 kosta hins vegar 891.700 kr. Polaris er líka með sérbyggða keppnissleða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.