Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
23
», fíiiÝ
'etrarsport
E
V
kílómetra hraða
Thundercat er sá öflugasti frá Arctic
Cat, 172 hestöfl, 1000 cc og þriggja
cyl. Bifreiðar & Landbúnaðarvélar
flytja þá inn. Stuttur Thundercat kostar
kr. 1.435.000 og langur (MC) kostar
1.476.000. Reyndar flytja B&L inn önn-
ur tryllitæki í tengslum við fyrirhugað
heimsmeistaramót. Það eru sérsmíð-
aðir 600 cc keppnissleðar sem heita
Black Magic.
Þessi mynd er tekin á Reykjavíkur-
tjörn á sjöunda áratug tuttugustu
aldarinnar. Einhver örlftill munur
virðist vera á þessum vélsleða og
tryllitækjum nútímans sem ná tvö
hundruð kfiómetra hraða á ör-
skotsstundu.
Ski-doo er fluttur inn af Gísla Jónssyni ehf. og boðið er
upp á 32 útfærslur af vélsleðum. Einn vinsælasti Ski-
doo-sleðinn heitir Grand Touring 600 en 2000-árg. kost-
ar 1.119.000 kr. Þetta er lúxusferðasleði með rafstarti,
bakkgír og tveggja manna sæti með stiilanlegu baki.
Plastskíði eru staðalbúnaður. Vélin er aflmikil, 600 cc,
108 hestafla og umboðið nefnir sem dæmi að slíkir sleð-
ar hafi hafi aðeins eytt 33 lítrum af bensíni á leiðinni Mý-
vatn - Hveravellir.
Ski-Doo MXZ 700
er svo annar vin-
sæll sleði, 126
hestöfl og byggð-
ur á sleðanum
sem vann X
games í USA í
fyrra. Hann kpstar
1.119.000.
Grand Touring SE Millenum er einn sá allra flottasti frá Ski-Doo. Hann er
með loftpúðafjöðrun, þjófavörn, leiðréttingakerfi v/hæð og hitastig, raf-
magnsbakkgír o.fi. í honum er þriggja strokka 800 cc, 134 hestafla vél.
Verðið á 2000-árgerðinni er 1.489.000 kr.
Finnsku Lynx-sleð-
arnir eru fluttir inn af
Bflaþjónustunni á
Akureyri. Boðið er
upp á breiða línu
vélsleða en þeir vin-
sælastu eru sport-
sleðar. Lynx G-To-
uring 700 kostar t.d.
1.155.000 kr. Lynx
leggur mikið upp úr
fjöðruninni en hönn-
unin er f höndum
Finna.
Öflugasti Lynx-sleðinn er Rave Special og í þessari viku kemur einn slíkur sérsmíðaður
keppnissleði til landsins. Hann er 160 hestöfl og rétt um 200 kg að þyngd og kostar
1.120.000 kr. Hann fer í hendur Alexanders Kárasonar sem myndar sérstakt keppnislið
ásamt Stefáni Bjarnasyni, Árna Grant og Gunnari Hákonarsyni sem er liðsstjóri.
Hestöflunum
hefur fjölgað
Vélsleöar hafa þróast hratt á
síðustu árum. í gamla daga, þegar
gott þótti að hafa örfá hestöfl und-
ir húddinu á Johnson-vélsleðun-
um og hvað þeir nú hétu, hefði
mönnum ekki órað fyrir að
nokkru sinni ættu eftir að sjást
sleðar með hátt í 200 hestafla mót-
orum. í dag þykir enginn maður
með mönnum í ærlega spyrnu
nema að vera með minnst 100
hestöfl til umráða. -HKr.
Vélsleðamót á
Norðurlandi:
Heimsvið-
burður í maí
Vélsleðamenn hafa í nógu að snú-
ast þennan veturinn, ekki síst á
Norðurlandi. Þar veröur m.a. heims-
viöburður í greininni er haldið
verður heimsmeistaramót í Ólafs-
firði í maí.
Eftirfarandi mót eru á dagskrá á
Norðurlandi:
19.-20. febrúar: Bikarmót í snjó-
krossi á Dalvík.
4.-5. mars: Evrópumeistaramót í
snjókrossi í Svíþjóð. Þar verða 4 ís-
lendingar í farabroddi.
8.-19. mars: Mývatnsmótið. Þar
verður keppt í snjókrossi, spymu,
braut og GPS-fjallaralli.
25.-26. mars: Islandsmeistaramót í
snjókrossi á Akureyri.
1.-2. apríl: íslandsmeistaramót í
snjókrossi á Mývatni.
15.-16. apríl: íslandsmeistaramót í
snjókrossi í Ólafsfirði.
22. aprfl: Akureyrarmót í snjó-
krossi.
6.-7. mai: Heimsmeistaramót í
snjókrossi í Ólafsflröi. Allir bestu
ökumenn í snjókrossi koma hingað
til lands til keppni, t.d. 16 bestu at-
vinnumennirnir frá USA og allir
bestu ökumenn frá Svíþjóð, Finn-
landi, og Rússlandi, að ógleymdum
íslenskum keppnismönnum og
keppendum frá öömm löndum.