Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Page 3
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000
21
Sport
Keflavíkurstúlkur fögnuöu vel
tíunda bikarmeistaratitlinum í sögu
félagsins sem kom í hús um
helgina. Talið frá vinstri: Theódóra
Káradóttir, Alda Leif Jónsdóttir,
grillir í Erlu Porsteinsdóttur fyrir
aftan, Birna Valgarösdóttir, Kristín
Blöndal, Birna Guömundsdóttir,
Kristín Þórarinsdóttir, Marín Rós
Karlsdóttir, Svava Stefánsdóttir og
Bára Lúövíksdóttir.
DV-myndir Hilmar Pór
Bikarpunktar
Keflavík vann sinn tíunda sigur í
tólf bikarúrslitaleikjum en þetta var
enn fremur fimtugasti bikarsigur
Keflavíkur í 58 bikarleikjum liösins
frá upphafl og er Keflavík meö 86%
sigurhlutfall i bikarkeppninni i
kvennaflokki.
Keflavík hefur aöeins tvisvar
áður unnið bikarinn á lægra skori en
liöiö vann á 56 stigum 1994 og 58 stig-
um 1993.
Bœöi ÍS og Keflavík jöfnuðu met
KR-kvenna frá 1999 meö því að leika
tólfta bikarúrslitaleik sinn en Kefla-
vík sem hefur nú unnið þremur fleiri
bikarmeistaratitla en KR sem hefur
unniö næstflesta eöa sjö.
ÍS varö aftur á móti fyrsta félag-
iö í sögu íslenska körfuboltans til að
tapa þremur bikarúrslitaleikjum i
röö en IS og ÍR hafa nú tapað flestum
úrslitaleikjum í bikarkeppni kvenna
eöa 7.
Alda Leif Jónsdóttir fullkomnaö-
ir þrennuna í flölskyldu sinni um
helgina þegar hún varö bikarmeistari
með Keflavík því foreldrar hennar,
Jón Guöni Óskarsson og Kolbrún
Leifsdóttir uröu bæöi bikarmeistar-
ar meö ÍS, Jón 1978 og Kolbrún 1978,
1981, 1985 og 1991. Er þetta eina slíka
þrennan í sögu körfuboltans á Is-
landi.
Anna María Sveinsdóttir vann
bikarinn i tiunda sinn, Erla Þor-
steinsdóttir i 6. sinn, Kristín Blön-
dal i 5. sinn, Kristín Þórarinsdóttir
í 4. sinn, Marín Rós Karlsdóttir í 3.
sinn, Birna Guömundsdóttir og
Birna Valgarösdóttir í 2. sinn en
aðrar leikmenn Keflavíkurliðsins
voru að fagna fyrsta bikarsigri
sínum. -ÓÖJ
á tólf árum fór til Keflavíkur um helgina, eftir 59-48 sigur á ÍS
Erla Porsteinsdóttir
faðmar Önnu Maríu
Sveinsdóttur í leiks-
iok. Erla var aö
vinna bikarinn í raun
í sjötta sinn í röö því
hún lék ekki meö í
fyrra er Keflavík
missti af bikarnum í
eina skiptið frá1993.
Kristinn Einarsson,
þjálfari Keflavíkur,
óskar Öldu Leif Jóns-
dóttur til hamingju
með aö hafa loksins
unnið bikarinn hér að
neðan. Öldu tókst
það loks í þriðju til-
raun en hún hafði
tapað bikarúrslita-
leiknum með ÍS síð-
ustu tvö árin.
Sigurvilji, barátta og margra ára reynsla var
helsta vopn Keflavíkur gegn ÍS í bikarúrslitum
kvenna í körfuknattleik á laugardag. Keflvíkingar
komu mjög ákveðnir til leiks, byrjuðu leikinn á
hápressu og það var meira en taugaveiklað lið ÍS
réð við, svona í byrjun. Þegar fyrri hálfleikur var
hálfnaður hafði
Keflavík skorað 23 stig
gegn 2 stigum stúdína
og var þessi 21 stigs
munur meira en svo að
ÍS ætti nokkra
möguleika það sem eftir
lifði leiks. En tauga-
veiklunin rann smátt og
smátt af ÍS-liðinu á
sama tíma
og
einbeitingin
minnkaði
hjá Keflavík
og í leikhléi
var staðan
2CF-39.
Keflavik
ætlaði sér
ekkert
annað en að
gera
endanlega út
um leikinn
strax í
byrjun
seinni
hálfleiks, 1—I
skoraði fyrstu átta stig hálfleiksins og hafði 27
stiga forystu, 20-47. Þá var eins og það kviknaði á
stúdínum, þær skoruðu 23 stig á móti tveimur og
skyndilega munaði
aðeins sex stigum, 43-49.
En lið Keflavikur býr
yfir mikilli reynslu,
Tolurnar tala
komst aftur inn í leikinn
og sigraði með 11 stiga
mun, 48-59.
„Við virtumst ekki vera
tilbúnar í byrjun leiks og
vorum alveg úti á þekju á
meðan allt gekk upp hjá
þeim. Þar var munurinn.
Við þjöppuðum okkur
saman í seinni hálfleik og
tókst loks að spila eins og
við höfum verið að gera í
allan vetur. En það var
einhver hræðsla í liðinu í
byrjun,“ sagði hin 35 ára
gamla Hafdís Helgadóttir,
sem var langleikreyndasti
leikmaður ÍS. En var þetta
síðasti bikarúrslitaleikur
hennar?
„Nei, nei, langt frá þvi,
ég er rétt að byrja,“ sagði
Hafdís Helgadóttir.
„Við mættum tilbún-ar,
en það er erfitt að halda úti
20 stiga forskoti allan
leikinn og við hleyptum
þeim alltof mikið inn í
leikinn. En við héldum
haus,“ sagði Anna María
Sveinsdóttir sem var
óumdeilanlega besti leik-
maður vallarins og hefur
enn eitt árið verið jafnbesti
leikmaður 1. deildar
kvenna.
Stúdínur misnotuöu níu
fyrstu tveggja stiga skot
sín í leiknum. Fyrsta 2
stiga karfa þeirra utan af
velli kom ekki fyrr en 3
mínútur og 50 sekúndur
voru eftir af fyrri hálfleik
og staðan orðin 12-34.
Nú náðu stúdínur að minnka muninn í 5 stig í
seinni hálfleiknum og lyftu honum upp, að
minnsta kosti fyrir áhorfendur en kannski ekki
fyrir ykkur?
„Já, það er eini ljósi punkturinn
hvað þetta gerði mikið fyrir
áhorfendur. En við náðum upp
góðri stemningu og lékum frábæra
vörn og það gerði útslagið," sagði
Skotnýting Keflavikur-
stúlkna fyrstu 12 mínút-
ur leiksins kom þeim í
9-28 en það sem eftir var
leiksins hitti Keflavikur-
liðiö aðeins úr 16% skota
sinna (5 af 32.)
23-2
Stúdínur komu sér
aftur inn i leikinn með
því að skora 23 stig
gegn 2 á 12 mínútum og
minnka muninn í 43-49
á sama tíma og
Keflavík misnotaði 15
skot í röð.
Alda Leif Jónsdóttir varöi 5
af tíu skotum Keflavíkur-
stúlkna í leiknum og setti þar
með nýtt met i bikarúrslita-
leik kvenna en Erla Þor-
steinsdóttir varði 3 og jafnaði
gamia metið.
Anna Maria Sveinsdóttir
skoraði 17 stig i ellefta
bikarúrslitaleik sínum og
hefur því gert 181 stig í
bikarúrslitaleikjum frá
upphafi jafnmörg og
Teitur Örlygsson sem er
efstur hjá körlunum.
ÍS (20) 48 - Keflavík (39) 59
0-9, 2-9, 2-23, 8-23, 8-28,10-30,11-34,16-34,16-37, 20-37 (20-39), 20-47, 33-47, 33-49,
43-49, 43-52, 47-52, 47-56, 48-58, 48-59.
Stella Kristjánsdóttir 13
Hafdís Helgadóttir 10
Jóffíður Haildórsdóttir 8
(8 ffáköst, 3 stolnir boltar)
Kristjana Magnúsdóttir 8
Georgia Kristiansen 5
Svana Bjamadóttir 2
(8 fráköst á 20 mínútum)
Júlía Jörgensen 2
Fráköst: ÍS 40 (12-28),
Keflavík 41 (13-28).
3ja stiga: ÍS 21/2, Keflavík
12/1.
Dómarar (1-10): Einar
Einarsson og Rögnvaldur
Hreiðarsson (9).
Gceði leiks (1-10): 7.
Víti: ÍS 25/16 (64%),
Keflavík 23/18 (78%).
Áhorfendur: 250.
Anna Maria Sveinsdóttir 17
(9 ffáköst, 4 stolnir boltar)
Bima Valgarðsdóttir 16
Kristín Þórarinsdóttir 7
(2/2 í skotum, 3/3 í vítum)
Kristín Blöndal 7
Erla Þorsteinsdóttir 7
Alda Leif Jónsdóttir 3
(4 stoðsendingar, 5 varin)
Bára E. Lúðvíksdóttir 2
Maður leiksins: Anna María Sveinsdóttir, Keflavík.
Anna María Sveinsdóttir.
Sannir meistarar
Anna María var, eins og áður er
lýst, maður þessa leiks. Þegar hún er
inni á vellinum verður allur leikur
Keflavíkurliðsins agaðri, skipulagðari
og betri. Hún er sá leikmaður sem
önnur lið þurfa helst að hafa gætur á
og það gefur öðrum sóknarmönnum
Keflavíkur færi á að sýna sínar betri
hliðar í sókninni. Það gerði t.d. Birna
Valgarðsdóttir í byrjun fyrri hálfleiks
þar sem hún fór alveg á kostum en
náði sér ekki á strik i seinni
hálfleiknum. Aðrir leikmenn Kefla-
víkur áttu einnig góðan dag enda hafa
þeir flestir leikið saman í mörg ár og
gjörþekkja hver annan. Frábært lið og
sannir bikarmeistarar.
Stúdínur sáu vart til sólar i þessum
leik og að vera 21 stigi undir um
miðjan fyrri hálfleik væri nóg til að
brjóta hvert meðallið. En það má segja
að stúdínur hafi bognað en þær
brotnuðu alls ekki, það sýndu þær og
sönnuðu í seinni hálfleik og þær sýndu
mikinn styrk að koma til baka líkt og
þær gerðu í seinni hálfleiknum og eiga
hrós skilið fyrir það. Hafdís
Helgadóttir er heilinn í leik þeirra og
hún gegnir sama hlutverki og Anna
María í liði Keflavíkur, að aga leik
liðsins og blása því baráttuanda í
brjóst. Stella Rún Kristjánsdóttir lék
mjög vel í seinni hálfleiknum en aðrir
leikmenn náðu ekki sínum besta leik
að þessu sinni. -ih
ÞIN FRISTUND
-OKKAR FAG
VINTER
SPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is