Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 2
32
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 JU>’\|r
Þægindi og fágaður frágangur einkenna Rover 75 að innan.
Á myndinni má sjá nýkjörinn formann MSÍ,
Pál Á. Jónsson, lengst til vinstri.
Um síðustu helgi hélt hið
nýstofnaða mótorsportsam-
band sýningu á keppnistækj-
um sínum í salarkynnum
B&L. MSl er keppnissamband
fyrir vélsleða, mótorhjól og
körtur og var úrval margra
öflugustu tækja þeirra til sýn-
is. Þar bar hæst hversu marg-
ir sérsmíðaðir keppnissleðar
hafa verið fluttir inn aö und-
anfómu og greinilegt að
margir ætla sér að gera það
gott í því sporti. Einnig sýndu Kawa-
saki- og KTM-umboðin hjól sín, auk
hjóla er afhent hafa verið liðsmönn-
um keppnisliða þeirra. Greinilegt vár
líka að mikiii áhugi er á körtuakstri
og mátti meðal annars sjá körtur út-
búnar til aksturs á ís, eins og reyndar
mörg torfæruhjólin. -NG
2,5 V6-vélin er snyrtilega innpökkuð í vélarrúminu.
Reynsluakstur Rover 75 2,5 Connisseur:
Þægilegur lúxusbíll
Klassískar línur og „british look“
eru það sem gerir Rover 75 öðru-
vísi en keppinautana. En virðuleik-
inn leynir á sér: það er enginn
vandi að koma þessum bíl úr spor-
unum!
Myndir DV-bílar Hilmar Pór
Rover 75 er fyrsti fólksbíllinn sem
kemur fram nýhannaður frá grunni
eftir að BMW keypti Rover. Mörgum
þótti djarft telft að ætla Rover 75 að
endurreisa hag Rover því bílar f þess-
um stærðar-, lúxus- og verðflokki
verða sjaldnast magnsölubílar. Nýj-
ustu fréttir virðast staðfesta þessar efa-
semdir.
En Rover 75 er lúxusbíll, það verður
ekki af honum skafið. DV-bílar áttu
þess kost að kynnast honum í sól og
blíðu suður á Spáni fyrir réttu ári eða
svo (sbr. DV-bíla 6. mars 1999), en síð-
an við vetraraðstæður heima á íslandi
núna fyrir skemmstu.
Rover 75 stóðst íslandsprófið með
prýði. Rafeindastýrð skrik- og spól-
vömin (ASC) gerði það sem hún átti að
gera og þessi þungi bíll stóð sig með
ágætum í snjó og slabbi og læsivarðar
bremsumar gerðu allt eins og þær áttu
að gera.
Vélin er 177 hestöfl og dugar ágæt-
lega fyrir þennan mikla bíl. Viðbragð-
ið er dágott og síður en svo hægt að
cnrrír, o t\
þessi bíll
verði sér til
skammar í
umferðinni.
heldur ekki nema í lúxusbílum sem
maður getur stiilt miðstöðina á ákveð-
inn hita sem hún heldur sjálfvirkt - og
er sín stillingin hvorum megin, bfl-
stjóramegin og farþegamegin. Sérstak-
ur miðstöðvarblásari er fyrir aftursæt-
isfarþegana.
Það er sama hvar á er litið, þessi bill
er prýðilega búinn í hvívetna. Öryggis-
búnaður er eins og krafist er um þess-
ar mundir og gott betur: líknarbelgim-
ir em t.a.m. fjórir. Þess vegna skýtur
nokkuð skökku við hvað útispeglamir
em litlir og tíkarlegir því þeir em ör-
yggisbúnaður ekkert síður en ýmislegt
aimað. Það er heldur ekki gott hve illa
sést aftur úr bílnum til að bakka hon-
um af nákvæmni og þá kemur sér vel
að hafa bakkvara - þyrfti helst að vera
afturhomavari líka.
í fyrmefridri umsögn af fyrri kynn-
um af Rover 75 sagði m.a. þetta um bíl-
inn:
„Rover 75 er sérlega stöðugur í
akstri og þarf að taka ffuntalega á hon-
um til þess að væli í dekkjum. Þrátt
Almennt séð
sýnir hann ágæta takta þegar eftir
þeim er leitað þó hann sigli sinn sjó
með virðulegum þunga þar sem það á
við. Sá bíll sem hér var prófaður var
sjálfskiptur svo sem hæfir bíl i þessum
flokki en af reynslunni frá í fýrra má
fullyrða að bíllinn er ekki síður
skemmtilegur með 5 gíra handskipt-
ingu.
Vinnslan er massíf og traust og það
fer ekki milli mála að maður er í þægi-
legum lúxusbíl. Það fmnst m.a. á inn-
anrými sem er með ágætum, hvort
heldur er frammi í eða aftur í. Það er
Farangursrýmið er allvel aðgengi-
legt en fremur lítið fyrir bíl í þessum
stærðarflokki: aðeins 430 lítrar.
Allar dyr opnast vel með auðvelt inn- og útstig.
fyrir framdrifið leggur hann prýðilega
á og það tekur ekki merkjanlega í stýr-
ið þó lagt sé á og geflð í samtímis, eins
og stundum vill verða í framdrifsbil-
um. Rover 75 er þýður þó hann sé
stinnur og fjaðrabúnaður aftan og
framan er á sérstökum örmum sem
einangra hann frá mjög stífri yfirbygg-
ingunni, án þess að leiða mikið hljóð
upp í hana. Vindhljóð er lítið - nema ef
menn freistast eins og við til að aka
með sóllúguna opna.“ - Við þetta er
engu að bæta eftir endumýjuð kynni á
íslandi.
Rover 75 er nú kominn í sölu á Is-
landi og nokkrir bíiar þegar seldir.
Verðið er líkt og vænta má fyrir þetta
stóran og vel búinn lúxusbíl og þó nýt-
ur hann þess að vera ekki með stærri
vél að rúmtaki en raun ber vitni og
lendir fyrir bragðið ekki í versta vöru-
gjaldsflokki. Grunnverðið er 3.748.000,
200 þúsund krónum hærra fyrir sjálf-
skiptinguna. -SHH
Kostir:
Vel búinn, hljóölátur, rúmgóður.
Ókostír:
Litlir útispeglar
Mótorsportsýning MSÍ
Gaman að hafa fengið krómið aftur
- um tíma þótti það ekki nógu fínt.
Vél: V6, 2497 cc, 177 hö. v. 6500
sn. mín., 240 Nm v. 4000 sn. mín.
Sjsk.: Viðbragð 0-100 9,5 sek., há-
markshraði 215 km. klst. Eyðsla 8,6-
16,9-11,6 I á 100 km m.v. lang-
keyrslu-borgarakstur-meðaleyðslu,
Handsk.: Viðbragð 0-100 8,8
sek., hámarkshraði 220 km. klst.
Eyðsla: 7,2-14-9,7 I á 100 km m.v.
langkeyrslu-borgarakstur-meðal-
eyðslu.
Gír: Val um handskiptingu eða
sjálfskiptingu, hvorar tveggja 5 gíra.
Læsivarðar diskabremsur aftan og
framan.
Fjöðrun: MacPherson framan,
gormar aftan, jafnvægisstengur
framan og aftan, dýfuvörn.
Lengd-breidd-hæð: 4745-1970-
1427 mm, hjólahaf 2745 mm.
Rúmtak farangursrýmis: 432 I.
Eigin þyngd: frá 1445 kg.
Hjólastærö: 205/65R15.
Verð: frá kr. 3.748.000.
Urnboð: B&L