Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Side 8
I 42
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 DV
*
Mercedes Benz ML 270 CDI:
Kerfisfræðingurinn frá Benz
- kraftmikill - þýður - öruggur
Sætiö er í þægi-
legri hæö fyrir
meöalmann að
setjast beint
upp í og gott
rými frammi í.
Dugmikil dísilvél
Hönnuðir Mercedes hafa bætt í M-
línuna nýrri disilvél með einbunu-inn-
spýtingu. Nýja vélin er öflug, 163 hest-
lega hljóðlát og ekkert dísilhljóð í
henni nema ef vera skyldi fyrst á
morgnana þegar bíllinn er ræstur
kaldur. Með fimm þrepa valskipting-
unni virkar hún vel og upptakið við
framúrakstur mjög
gott. Valskiptingin
er einnig þægileg í
notkun en hún virk-
ar þannig að öku-
maðurinn þarf að-
eins að ýta gírstöng-
inni til hægri eða
vinstri tii að skipta
upp eða niður. Eins
og áður sagði er bíll-
inn búinn torfærugír
en hægt er að skipta
í hann meðan bfllinn
er í hlutlausum og
lækka þá hlutföllin
úr 1:1 í 2,64:1. Vélin
nýtir þá betur togið
við minni hraða og
hentaði þessi gír
honum vel í léttari
torfærum. Annars
hefur M-bíllinn
nokkra góða torfæru-
eiginleika, eins og
Vel sést á alla mæla og þá sérstaklega á upplýsta,
stafræna stafina. Stafurinn viö hliöina á klukkunni
sýnir þann gír sem ekiö er í.
Spól- og skriövörnin gerir bílinn einstaklega rásfastan, sérstaklega viö erf-
iöar aöstæöur eins og sjá má á myndinni og þar sem hraðinn er meiri en að-
stæður gefa tilefni til. DV-mynd TP
fyrir undir honum 32 tommu dekkjum.
Sú staðreynd að vélin er aðeins 2,7
lítra kemur sér líka vel þegar verðið er
skoðað því að hann lendir ekki í efsta
tollflokki, til dæmis er beinskipti bíll-
inn á 3.990.000 krónur.
Fjölbreytilegt innanrými
Plássið í Benzanum er gott, sérstak-
lega frammi í þar sem jafhvel breið-
ustu menn geta látið fara vel um sig. í
honum eru fjórir líknarbelgir fyrir
framsætisfarþega
og hægt að fá
aukapúða fyrir
aftursætið. Hægt
er að færa til aft-
ursæti sem eru á
sérstökum sleða
þannig að ailtaf
er nægilegt fóta-
rými fyrir far-
þega. Boðið er
upp á þriðju
sætaröðina sem
aukabúnað
þannig að bfllinn
er þá orðinn sjö
maima og eru
þau sæti jafngóð
og önnur i hon-
um. Pláss fyrir
farangur er gott
aftur í honum, og
þá sérstaklega
þegar búið er að
leggja niður far-
þegasæti. Það er
viss ókostur að
afturhleri opnist
upp en þó þarf
ekki að beygja sig
þegar staðið er
undir honum
opnum. Hægra
megin í farang-
ursrýminu er
stórt hólf sem
geymir verkfæri og fleira dót og þar er
dráttarkrók komið fyrir þegar ekki er
verið að nota hann. Varahjól er undir
bilnum sem er óþægilegt þegar komast
þarf að því en það kemur þó ekki nið-
ur á aðfallshomi hans að aftanverðu.
Við prófún kom það fyrir að innri
dyraopnari í farþegasæti framrni í
losnaði þannig að ekki var lengur
hægt að opna innan frá og í frostinu
sem var frusu rafdrifnar rúður fastar.
í nýjum bíl í þessum verðflokki er
þetta auðvitað nokkuð sem á ekki að
gerast en eflaust má skýra þetta sem
„mánudagsmistök" hjá einhverjum
starfsmanni verksmiðjunnar. Þetta
var reyndar það eina sem flnna mátti
honum til foráttu viö rúmlega 300 kíló-
metra reynsluakstur þannig að segja
má að M-dísil hafi komið mjög vel út
úr prófuninni. -NG
Plúsar:
Vélarafl
ESP-kerfi
Sjálfskipting
Mínusar:
Kraftlitlar rúðuvindur
M-lína Mercedes Benz hefur verið
seld hér á landi í ein fjögur ár og er nú
i boði með nýrri 5 strokka dísilvél. Út-
lit hans minnir bæði á fólksbfl og
jeppa en í bflnum er útbúnaður sem
ökumenn þeirra eiga ekki að venjast
að öllu jöfnu. Þótt M-bfllinn sé ekki
jeppi samkvæmt skilgreiningu hins
dæmigerða íslenska jeppamanns er
margt í bilnum sem gerir hann
skemmtilegan í akstri og í sumum at-
riðum stendur hann jafnvel bestu jepp-
um framar. Við prófun á M-bfl með
dísflvél á dögunum var athyglinni sér-
staklega beint að þessum þáttum auk
nýju vélarinnar.
Fallegur framendinn minnir meira á fólksbíl en jeppa.
Rásfastur með eindæmum
ML 270 CDI-bíllinn sem prófaður
var er búinn bæði 4-ETS-kerfi og ESP-
kerfi sem í stuttu máli má kalla spól-
og skriðvöm. Spólvömin er tengd við
öll drifhjól en sí-
virkt sídrif er á öll-
um hjólum. Ef eitt
hjólanna fer að
spóla er því hemlað
á broti úr sekúndu
þangað til það nær
hámarksgripi aftur.
Um leið er bætt við
afli til hinna hjól-
anna. Búnaður þessi
kemur svo gott sem
í staðinn fyrir læs-
ingar og hentar sér-
staklega vel þeim
ökumönnum sem
ekki era vanir tor-
færaakstri. EPS-
kerfið fylgist svo
með stöðu bflsins í
akstri og sendir við-
eigandi skilaboð tfl
hemlakerfis og vél-
ar. En hvaða gagn
gerir allur þessi flókni búnaður? Fyrst
og ffemst eykur hann öryggi við akst-
ur í hálku og hefur undirritaður sjald-
an eða aldrei keyrt eins rásfastan bfl
við þess háttar aðstæður. Við akstur á
miklum hraða á hálum malarvegi,
með sköflum öðra hverju, hreyfði bfll-
inn sig ekki frá fyrir ffarn ákveðinni
aksturslinu svo að aðdáunarvert var.
Þegar slökkt var á kerfinu fannst mun-
urinn greinilega og því má segja að ör-
yggi í akstri við erfiðar aðstæður eykst
tfl muna. Auk þess er hann búinn
hemlalæsivöm með innbyggðu EBV-
kerfi sem eykur afl til hemlanna þegar
bíllinn er í torfæragír, við hraða upp
að 30 kílómetrum, til að auka öryggi í
miklum halla. Einnig er í hemlakerf-
inu svokallað BAS-kerfi sem fylgist
með hvort verið sé að nauðhemla með
því að bera saman hraða og stöðu
bremsufetilsins og stýrir það kerfi há-
marki neyðarhemlunar.
ur, verkfærasett og dráttarkrókurinn sem safnar þá
ekki á sig skít og drullu á meðan.
öfl, og einbunuhönnunin kemur þeim
vel til skila þannig að maður fær það á
tflfmninguna að verið sé að keyra öfl-
ugan bensínbfl. Einnig er hún einstak-
það hversu litil skögunin er og án þess
að breyta bílnum nokkuð má koma
Öflug dísilvélin er ein sú skemmtilegasta sem undirritaður hefur prófað.
Plássið aftur í er nokkuð gott. Hægt er að fella niður aft-
ursæti eða jafnvel bæta við þriðju sætaröðinni.
M-Benzinn er nokkuð seigur utan
vega og kostur að það er nokkuð
hátt undir hann miðað við aðra bíla
í þessum flokki. DV mynd TÞ
Vél: Dísil, með einbunu- (Common
rail) innspýtingu
Strokkafjöldi: 5
Rúmtak: 2688 rúmsentímetrar
Hestöfl: 163/4200 sn.
Snúningsvægi:
370Nm./1800-2600 sn.
Viðbragö 0-100: 11,7 sekúndur
Eyðsla í blönduðum akstri:
9,4 lítrar
Gír: 5 þrepa sjálfskipting með val-
skiptingu
Drif: Sídrif með hátt og lágt drif
Hemlar: Læsivarðar diskabremsur
meö EBV- og BAS-kerfi
Lengd: 4587 mm
Breidd: 1833 mm
Hæð: 1820 mm
Hjólahaf: 2820 mm
Veghæð: 204 mm
Beygjuradíus: 11,9 metrar
Eigin þyngd: 2115 kíló
Hjólastærð: 255/65 16
Verð: 4.235.500
Umboö: Ræsir hf.