Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Page 21
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
25
Myndasögur
Fréttir
Sólinni fagnaö með
pönsum og súkkulaði
Paö var allt uppdúkaö og fínt þegar gestir komu frá Eskifiröi
til Bjarkar og Ragnars. Ragnar er hægra megin, svo Hrafn-
hildur heimasæta, þá Björk húsfreyja. Vinstra megin eru
tveir vinir frá Eskifiröi, Jóhanna Sölvadóttir og Davíö Val-
geirsson. DV-myndir Reynir Neil
Sólskinið
er farið að
gægjast yfir
fjallatinda
víða um land
um miðjan
þorra. Því
fylgir gömul
venja, sólar-
kaffi. Á Mýr-
argötu 31 í
Neskaupstað
var efnt til
sólarkaffis á
dögunum.
Þann dag
sást sólin
gægjast yfir
Hellisfjarðar-
nes í suðaustri. „Það er gleðiatburð-
ur á hverju ári þegar við sjáum til
sólar,“ sagði Björk Rögnvaldsdóttir,
húsmóðirin þar á bæ.
Sólarkaffið í húsi þeirra hjóna er
haldið fyrr en í húsunum neðar í
bænum, þar nýtur sólar nokkrum
dögum síðar. Þegar fréttamaður DV
kom til þeirra Bjarkar og Ragnars
Jónssonar, manns hennar, voru þar
fyrir góðir gestir frá Eskifiröi til að
fagna sólarkomunni. -RN
hjá fjölmiðlafyrirtæki
Viltu starfa í spennandi og
síbreytilegu nútímamnhverfi?
Um er að ræða bæði fullt starf og hlutastarf á
auglýsingadeild, vaktavinna.
Umsækjendur þurfa að hafa til að bera gott vald á
íslensku, einhveija tölvukvmnáttu og góða þjónustulund.
Áhugasamir sendi umsóknir ásamt mynd til DV,
merkt „Auglýsingar", fyrir 3. mars.
Sendlar óskast
á afgreiðslu DV
Vinnutími eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 550 5777.
15595 Hclené R. Benjamínsdóttir
16285 Sverrir Eðvald Jónsson
12892 Gísli Rúnar Einarsson
13849 Stefanía Fanndís Björgvinsd.
13849 Karolina Kristín Hilmarsd.
14745 Daði Mánason
15511 Björgvin Kristjánsson
11245 Eydís Elmarsdóttir
Sólheimum, 801 Grímsnesi
Krókamýri 24, 210 Garðabæ
Stekkjarholti 6, 300 Akranesi
Eyrarbraut 18, 825 Stokkseyri
Laufengi 92, 112 Reykjavík
Vesturgötu 33, 101 Reykjavík
Suðurgötu 40, 230 Keflavík
Vesturási 38, 110 Reykjavík