Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2000, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2000, Page 8
26 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2000 Sport i>v Hafliöi Halidórsson er kominn aftur í Víöidalinn. Hér stendur hann viö hliöina á hinum fræga Valíant. DV-mynd PÖK Undirbúningur fyrir landsmót kominn á fullt skrið: - Hafliði Halldórsson mætir til leiks með Nælu og Valíant Will Covert heimsmeistari í slaktaumatölti og unnusta hans Ásta Dögg Bjarnadóttir taka þátt í sterku hestamóti í Arizona í Bandaríkunum um miðjan mars og verða þau m.a. með Blœ frá Sigluvík og Dyn frá Ytra-Skörðugili sem Will varð heimsmeistari á í Rieden í Þýskalandi á síðasta ári. Mörg önnur hestakyn verða á þessu móti og verða því keppnisgreinarnar nokkuð mismunandi eftir hestakynj- um. Meðal dómara frá íslandi verður Hörður Hákonarson en hann mun eingöngu dæma íslenskar keppnisgreinar. Quarter-hestar eða kúreka- hestar eru sjálfsagt vinsælasta hestakynið í Bandarikjunum og er meðal annars keppt á þeim í snörun kálfa. Það er tímalengdin sem ræður úrslit- um frá því að kálfinum er sleppt í gerði, hann snaraður og bundinn á öllum löppum. Jííhaa!!!!!! Will Covert segir að íslenski hesturinn veki ávallt mikla hrifningu á slíkum mótum og fyrirspurnum rigni yfir hann og móður hans en þau hafa verið ötul við að kynna hestinn í Kaliforníu og fleiri ríkjum Bandaríkjanna. Atli Guðmundsson hefur verið á ferð og flugi að undan- fornu. Þó ekki á hestbaki eins og hann er þekktastur fyrir heldur við námskeiðahald m.a. í New York fylki þar sem ört vaxandi áhugi er fyrir íslenska hestinum. Nokkuð góðar líkur eru fyrir því að Óður frá Brún verði af- kvæmasýndur á Landsmótinu í Reykjavík. Auðunn Kristjáns- son, heimsmeistari í fimm- gangi, mun sjá um þjálfun klársins í vetur. Sagt er að Óður sé i feiknaformi. Eina vandamálið er að hann nuddaði nánast allt fax af sér í haganum svo prúðleiki til makkans er ekki mikill. Trausti Þór Guðmundsson, sem dvalið hefur undanfarin ár í Þýskalandi við tamningar og þjálfun hrossa, er kominn heim og hefur fest sér jörðina Kirkjuferjuhjáleigu í Ölfusi. •Þar hefur hann innréttað hest- hús og meðal hesta þar er hinn margrómaði stóðhestur Svartur frá Unalæk. Safir ffá Viövik sem er í eigu Ásgeirs Svans Herbertssonar verður þjálfaður upp í vetur með keppni í huga hvað svo sem síðar verður. Tölthryssan Orða frá Sveinatungu undan Orra er komin í eign Ásgeirs og er sterkur kandídat ásamt fimmgangshryssunni Brá frá Undirbúningur hestamanna fyrir komandi stórmót keppnistímabilsins er kominn á fullt skrið. Smærri mót hjá hinum ýmsu félögum eru þegar hafin og segja má að hver helgi sé setin af hesta- mannamótum fram í september. Það er ljóst að mikið verður um nýja efnisgripi sem koma fram og menn eru famir að spá um hvaða hestar standi efstir á komandi landsmóti sem er há- punktur keppnistímabilsins. Leitað var hófanna hjá nokkmm þekktum knöpum sem stunda þjálfun á hestum sínum á mótssvæði Fáks þar sem landsmótið fer fram, 4.-9. júlí. Hafliði Halldórsson er aftur kominn á fyrri slóðir eftir að hafa hætt sem skólastjóri reiðskólans á Ingólfshvoli sem frægt er orðið. Hafliði er kominn með hina þekktu tölthryssu Nælu en þau vom sigursæl fyrir nokkrum árum. Öömm töltsnillingi ætlar Hafliði að tefla fram en það er Valíant, marg- reyndur klár sem hefur ekki sýnt sitt allra besta að undardornu en verður ör- ugglega framarlega í klárhestaflokkn- um. Von frá Bakkakoti, undan Ófeigi frá Flugumýri, sem varð efst í 4. vetra flokki á siðasta landsmðti, ætlar Hafliði að beita í A-flokknum og í kynbótadóm. Þrjár Sæludætur mun hann einnig reyna með í kynbótadóm en þær þykja bera sterkt svipmót móðurinnar. Síðan ber að nefna efnilegan stóðhest sem varð efstur í 5 vetra flokki stóðhesta á síðasta fjórðungsmóti á Egilsstöðum en það er Frakkur frá Mýnesi, undan Gusti frá Hóli. Sigurður Matthíasson, sem telst til hinna ungu knapa þrátt fyrir mikla reynslu á keppnisvellinum og að vera fyrrverandi heimsmeistari, er með margt spennandi hrossa. Þar ber kannski hæst Tífar frá Kjartansstöðum sem fer í kynbótadóm og e.t.v. í gæð- ingakeppni. Tvær gríðarlega efnilegar Kveiksdætur, en móðir þeirra er hin landsfræga hryssa Venus frá Skarði. Sigurður er með systur Glampa frá Vatnsleysu en hún er 4 vetra, undan Albinu og Jarli frá Búðardal og er hún með svipaðan fótaburð og bróðirinn. Sveinn Ragnarsson hefur veriðsigur- sæll á undanfómum ámm en það sem skilur hann frá þeim knöpum sem að framan er getið og vel flestum öðrum sem eru í fremstu röð er að hann er ekki atvinnuknapi. Sveinn nefnir Reykjvíkurmeistarann frá 1998 í fimmgangi, Brynjar frá Árgerði. Hann segir klárinn í mjög góðu standi og nú sé hægt að gera meiri kröfur til hans en Brynjar er 9 vetra. Hringur frá Húsey, sem komst í úrslit í tölti á íslandsmót- inu í fyrra, er hestur sem gæti komið á óvart. Sveinn segir hestinn vera mun öflugri nú en þá þar sem hann hafi al- gerlega verið óreyndur. Sveinn segist leggja mesta áherslu á A-flokkinn og skeiðið fyrir komandi tímabil og nefnir í framhaldi af því skeiðhryssuna Fram- tíð en hún hefur farið 250 m skeið á 22,2 sek. Kóngarnir tveir og „öldungarnir", þeir Sigurbjöm Bárðarson og Gunnar Amarson, era að vanda með mikið af efnishrossum sem þeir ætla með inn á landsmót eins og undanfarin ár og má segja að þeir séu orðnir fastir liðir sem allir vænti mikils af enda góðir knapar. Þó að hér sé stiklað á stóru um þann Qölda knapa sem ætlar sér annað eins og að ofan er talið er það alveg ljóst að komandi Landsmót í Reykjavík verður gífurlega öflugt. Á næstu vikum mun- um við forvitnast um hestakost þekktra knapa á öðrum hesthúsavæðum á land- inu. -HÓ Valur 24 (11) - Víkingur 14 (10) 1-0, 1-2, 2-3, 4-3, 5-4, 6-5, 6-6, 8-6, 8-7, 9-7, 9-8, 11-8, (11-10), 14-10, 14-11, 15-12, 17-12, 17-13, 21-13, 21-14, 24-14. Markús Máni Michaelsson 8/1 (12 skot, 4 stoðsendingar), Daníel Ragnarsson 6 (9 skot), Ingvar Sverrisson 4, Geir Sveinsson 2 (2 skot, 2 fiskuð víti, 6 varin skot), Einar Öm Jónsson 2, Bjarki Sigurðsson 1, Kári Guðmundsson 1 (4 stoðsendingar).Varin skot: Axel Stefánsson 15/3 (af 29/4, 52%), Stefán Hannesson 1 (af 1, 100%). Brottvisanir: 10 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 1 af 2. Áhorfendur: 300 Gœöi leiks (1-10): 5. Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (8). Þröstur Helgason 9 (22 skot, 7 mörk í fyrri hálfleik), Hjalti Gylfason 3, Ingimundur Helgason 1/1 (10/3 skot), Hjörtur Amarson 1. Varin skot: Hlynur Morthens 10 (af 31/1, 32%), Amar Freyr Reynisson l(af4, 25%). Brottvisanir: 4 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 1 af 6. Maður leiksins: Axel Stefánsson, Val. Valsmenn unnu sinn frnimta heimaleik í röö á föstudagskvöldið: Endurbyggt á Hlíðarenda - aðeins 4 mörk Vikinga i seinni hálfleik og 28% skotnýting í leiknum Valsvömin lamaði Vík- ingssóknina svo um munaði á fóstudagskvöld og lagði grunninn að fimmta heima- sigri liðsins í röð ásamt Axel Stefánssyni markverði. Víkingar gerðu aðeins íjögur mörk í seinni hálfleik og nýttu þá aðeins 14 af 50 skotum sínum í leiknum sem gerir skelfilega 28% skotnýt- ingu hjá liðinu í leiknum en hún var grátbrosleg, 17 %, í seinni hálfleik (4 af 24). Falldraugurinn er farinn að sníkja sér far í Víkings- rútunni og var þegar farinn að láta til sin taka í þessum leik því heil átta skot Vík- inga lentu á tréverkinu i leiknum. Valsvörnin með Geir Sveinsson tók líka önnur tíu en Geir sá um sex sjálfur og gaf tóninn með því að verja tvö skot á fyrstu minútu leiksins. Valsmenn voru í byrjun nóvember aðeins búnir að vinna einn af síðustu 11 deildarleikjum sínum á Hlíð- arenda en Valsmenn hafa nú endurbyggt vigið og skilað fimm heimasigrum í röð og liðið hefur náð í 10 af síðustu 14 stigum í deildinni. Axel Stefánsson lék mjög vel í Valsmarkinu og eins voru ungu skytturnar, Mark- ús og Daníel, sterkir og gerðu samtals 14 mörk úr 21 skoti þar af sjö fyrir utan. Hjá Víkingum var Þröstur Helgason allt i öllu og gerði 9 af 14 mörkum liðsins en allir leikmenn liðsins þurfa að gleyma seinni hálfleiknum sem allra fyrst ef ekki á illa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.