Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2000, Blaðsíða 10
28
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2000
Sport unglinga
DV
Islandsmót innanhúss í 2. flokki kvenna:
Blika sneri 0-2 stöðu í úrslitaleiknum í sigur annað árið í röð
2. flokkur Breiðabliks vann Islandsbikarinn í
innanhússknattspymu annað árið i röð á dög-
unum er liðið lagði Stjörnuna að velli, 4-3, í
bráðskemmtilegum og æsispennandi úrslitaleik
þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í framleng-
ingu. Blikar sýndu mikinn karakter i þessum
leik, líkt og árið áður, en í báðum úrslitaleikj-
um hefur liðið verið 0-2 undir en komið aftur
og tryggt sér sigur.
Blikastúlkur hafa
verið sigursælar í 2. >V * . . *
tlokki kvenna á ís-
landsmótinu í inn-
anhússknatt-
Erna Björk Sig-
urðardóttir (til
vinstri) og Bjarn-
veig Birgisdóttir
skoruðu báðar
tvö mörk í 4-3
sigri Blika í úr-
slitaleik ís-
landsmóts 2.
flokks kvenna í
innanhúss-
knattspyrnu
dögun-
um.
■
/
spyrnu og eru nú að elta met sitt frá 1994 er þær
unnu þennan titil flmmta árið í röð en bikarinn
hefur komist í hendur Blikastúlkum i sjö skipti
frá árinu 1990.
Stjarnan var sterkari framan af úrslitaleikn-
um og kom það nokkuð á óvart þar sem Breiða-
blik vann leik liðanna í riðlinum, 5-0. Sigrún
Anna Snorradóttir skoraði tvö mörk fyrir
Stjörnuna á fyrstu 4 mínútum leiksins, það
seinna eftir frábæra sendingu Elfu Erlingsdótt-
ir, besta leikmanns vallarins. Stjarnan leiddi
síðan allt þar til fjórar og
hálf mínúta voru eftir
er Erna Björk Sig-
urðardóttir
minnkaði muninn
eftir góðan undir-
búning Helgu Vigfúsdóttur og aðeins 17 sekúnd-
um fyrir leikslok jafnaði Bjarnveig Birgisdóttir
með skoti beint úr aukspymu og því varð að
framlengja. Elfa Erlingsdóttir einlék í gegnum
Blikavörnina og kom Stjömunni aftur yflr en
innan 40 sekúndna var Bjarnveig búin að jafna
aftur er hún stal boltanum og skoraði.
Sigurmarkið kom síðan 11 sekúndum fyrir
lok framlengingar er Erna Björk stakk sér í
gegnum Stjörnuvömina og tryggði titilinn í
Kópavog með sínu öðru marki í leiknum. Erna
Björk hefur reynst afar vel í þessum tveimur
úrslitaleikjum liðsins því í fyrra gerði hún tvö
mörk í 3-2 sigri á Val.
Þær Ema og Bjarnveig, sem skiptu mörkun-
um fjórum á milli sín, vom kátar í leikslok.
„Við vorum kannski orðnar þreyttar eftir
marga leiki og byrjuðum illa en við náðum að
snúa þessu viö. Það var erfitt en gaman, ég var
orðin mjög þreytt í lokin en varð bara að gera
eitthvað, við ætluðum að vinna þennan leik,“
sagði Ema sem fann í pokahominu aukakraft
til að stinga sér í gegnum Stjörnuvömina og
skora sigurmarkið.
Blikastelpumar unnu ekki leik á fyrsta inn-
anhússmótinu í vetur (Jólamóti Kópavogs) en
tóku sig síðan heldur betur á og unnu alla
leikina fjóra með markatölunni 20-5.
Bjamveig á möguleika á að vinna bikarinn
þriðja árið í röð á næsta ári og hún átti erfitt
með að leyna tilfmningum sínum þegar sigur-
hm var i höfn. „Þetta er það besta en við eram
ekki hættar og ætlum að vinna tvöfalt í sum-
ar,“ sagði Bjamveig að lokum. -ÓÓJ
Sigrun Oiof
Ingólfsdóttir,
fyrirliði 2. flokks
Breiðabliks,
lyftir hér tii
hægri íslands-
bikarnum hátt á
loft.