Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Síða 11
MÁNUDAGUR 6. MARS 2000
29 *
I>V
Sport
Hestamolar
Athygli vakti á vetrarleikum
Fáks um síðustu helgi að íjögur
hross af fimm sem komust í úr-
slit í kvennaflokknum voru
undan Orra frú Þúfu en af-
kvæmi hans hafa ekki gert sig
gildandi í íþrótta- og gæðinga-
keppni hingað til.
Sú sem varð í fyrsta sæti á
vetrarleikum Fáks er hin snjalla
reiðkona Lena Zelinski á Orra-
dótturinni Fljóð frá
Auðholtshjáleigu. En hún hefur
unnið við tamningar hjá ræktun-
armönnum ársins 1999, þeim
Gunnari Arnarsyni og Krist-
björgu Eyvindsdóttur í tvö ár
við góðan orðstír. En þau hafa
ræktað hross á Auðholtshjáleigu
í Ölfusi um nokkurra ára skeið.
Sá sem varð hlutskarpastur í
karlaflokki á sama móti var
Ragnar Ómarsson á Dögg frá
Reykjavík. Ragnar er 61 árs og
kemur sterkur inn í hesta-
mennskuna eftir stutt hlé og er
sprækur eins og ungfoli!
Atli Guðmundsson sést hér á myndinni að ofan ásamt konu sinni, Evu Mandal, viö einn hinna fallegu hesta sem þau hjónin hafa tamið. DV-mynd Sveinn
Hiö geysivinsœla ístöltmót
Töltheima, áður Reiðsports,
verður í Skautahöllinni i Laug-
ardal 1. apríl næstkomandi.
Mótshaldarar velja keppnis-
hrossin eins og áður og má því
búast við rjómanum af bestu
tölthestum landsins á þetta vin-
sæla mót. Forsala verður í hesta-
vöruversluninni Töltheimum.
Hestamannafélagiö Gustur í
Kópavogi er með mikið og blóm-
legt félagsstarf um þessar mund-
ir enda hefur aukning á
nýjum félögum aldrei verið
meiri en á síðustu tveimur
árum.
Eins og flestir hafa tekið eftir
er hesthúsahverfi Gusts umlukið
nýjum verslunarmiðstöðvum og s
íbúðarbyggingum sem hefur
valdið áhyggjum þeirra sem ekki
eiga hesthús í hverfínu. Hinir
sem eiga hagsmuna að gæta eru
bjartsýnir og stefna að enn frek-
ari reiðleiðagerð og framsækn-
um rekstri félagsins á allan hátt
enda félagið rekið með hagnaði á
síðasta ári.
-HÓ
Stjörnuhestar
Hinn margreyndi keppnis- og
tamningamaður Atli Guðmundsson
er kominn á fullt skrið ásamt konu
sinni Evu Mandal við tamningu
hrossa fyrir komandi stórmót.
Umsjón
Hinrik Ólafsson
Atli hefur verið sigursæll á
stórmótum til fjölda ára og vinsæll
til sýninga á kynbótahrossum enda
einn af okkar fremstu knöpum í dag
og einn vinsælasti reiðkennari hér
sem erlendis.
Með 31 hross á húsi
Atli og Eva eru með 31 hross á
húsi í Dallandi í Mosfellsbæ og
hafa sér við hlið tvo aðstoðarmenn
til að komast yfir þjálfun hestanna.
Á hestamiðstöðinni í Dallandi hafa
þau hjón verið undanfarin ár og séð
um rekstur hennar í samráði við
eigandann, Gunnar Dungal. Gunnar
hefur verið stórtækur í ræktun
hrossa ásamt þeim hjónum og náð
athyglisverðum árangri á
skömmum tíma.
Atli segist eiga erfitt með að
draga eitt hross fram yfir annað
sem hann er að þjálfa en kemst ekki
hjá því að nefna stjörnuhestinn,
Orm frá Dallandi sem varð Islands-
og Hvítasunnumeistari í fimmgangi
á síðasta ári.
Undan gullhesti
Ormur, sem er á 8. vetri og fékk
einkuninna 9.19 fyrir hæfileika, er
undan gullhestinum Orra frá Þúfu
og Lýsu frá Efri-Rótum en hún er
ættmóðir vel flestra hrossanna hjá
þeim í Dallandi. Sammæðra Ormi
er athyglisverður stóðhestur á 4.
vetri en hann er undan Andvara frá
Ey og nefnist Ljósfari.
Hross frá öðrum ræktunarbúum
hefur Atli einnig undir sinni
umsjón og þar ber hæst að nefna
stóðhesta frá Miðsitju en það eru
frændumir Spuni sem er undan
Otri og Kröflu frá Sauðárkróki og
Ófeigssonurinn Smiður en móðir
hans er Katla sem er dóttir Kröflu.
Atli segir að stundum geti verið
erfltt að uppfylla þær væntingar
sem gerðar eru til afkvæma þeirra
hesta sem eiga foreldra með
glæstan feril að baki. Slíkt er hægt
að heimfæra upp á stóðhestsefni
sem Atli er með undir höndum en
það er Kyndill frá Kirkjubæ.
Hann er 5 vetra og er undan 1.
verðlauna-stóðhestinum Trostan frá
Kjartansstöðum og hæst dæmda
hrossi fyrr og síðar en það er
Rauðhetta frá Kirkjubæ sem er
sannkölluð drottning
Atli Guðmundsson og Eva Mandal
meö sænskri aöstoöarkonu sem
hefur veriö þeim hjálpleg viö
vinnustörf og hestatamningarnar.
DV-mynd Sveinn £
kynbótahryssna.
Það er alltaf spennandi að fylgjast
með framgangi svo vel ættaðra
hrossa og sjá hvað verða vill.
Piltsonurinn Erill
frá Kópavogi
hefur undanfarin
keppnistímabil ekki
getað beitt sér að
fullu vegna meiðsla
en hefur ávallt vakið
athygli fyrir glæstar
hreyfingar en hann
er kominn í umsjón
Atla og segir hann
hestinn vera í góðu
formi og til í
klárhestaflokkinn.
Klárhryssan
Snegla sem er 10
vetra og fékk 8,40
fyrir hæfileilka á
fjórðungsmóti fyrir
fimm árum verður
dregin fyrir dóm á
komandi vori. Að
lokum nefnir Atli
stóðhestsefni á 6.
vetri en það er
Breki frá Hjalla sem fékk 7,98 í
aðaleinkunn í 4 vetra flokki á
siðasta landsmóti. Hann er undan
Gusti frá Grund og segist Atli binda
miklar vonir við þennan hest.
Úr miklu að moða
Það er greinilegt að hér er úr miklu
að moða en að sama skapi erfitt
verkefni því gífurlegar kröfur eru
gerðar til knapa sem
hafa hesta í þeim
gæðaflokki sem þau Atli og Eva hafa
yfir að ráða. Árangur þeirra hjóna á
hinum ýmsu stórmótum á
undanfórnum árum segir að þau eru
vandanum vaxin. -HÓ
- Atla Guðmundssonar sigursælir á stórmótum síðustu ára