Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Síða 3
g f n i i íslensku tónlistar- verðlaunin veitt í sjöunda sinn. Kvöld Sigur Rósar í gærkvöldi voru íslensku tón- listarverðlaunin afhent í sjöunda skipti. Veislan fór fram á Grand Rokk og voru flestir popparar landsins mættir á þessa árlegu uppskeru- hátíð. Hljómsveitin Sigur Rós stóð í ströngu því auk þess að spila á samkomunni þurftu Jónsi og fé- lagar að fara all oft upp á svið til að sækja verðlaunakuðunga. Jónsi og félagar geta hlustað á haflð í víðóma í kuðungunum sínum. Ekki svo slæm byrjun Strákamir í Sigur Rós vom til- nefndir til átta verðlauna en fengu fhnm. Platan þeirra, „Ágætis byrjun", sem kom út í júní sl„ var kosin hljómplata ársins og kom það fáum á óvart. Platan fékk æpandi góða dóma gagnrýnanda þegar hún kom út. Almenningur var í þetta skiptið sammála gagnrýn- inni og gaf plötunni fullt hús stiga með buddunni sinni. Platan hefur þegar selst í 7000 eintökum og er enn að. Sigur Rós var einnig kos- in hljómsveit ársins og hljóm- sveitin þótti hafa skarað fram úr í lagasmíðum og var því kosin laga- höfundur ársins í heild sinni. Karlinn í Sigur Rósar brúnni, hann Jónsi, var svo verðlaunaður fyrir frammistöðuna og tók heim kuðung fyrir söng og gítarleik. Þetta var í fyrsta skipti sem Sig- ur Rós fær tónlistarverðlaun og framtíðin er björt. Nýlega kom lagið „Ný batterí“ út á smáskífu hjá Fat Cat merkinu í London og hafa viðbrögðin verið frábær. Á Englandi hefur ekki verið annað eins „böss“ í kringum íslenska hljómsveit siðan Sykurmolamir voru að stíga sín fyrstu spor, svo það má fastlega búast við miklu fjölmiðlafári þegar Fat Cat gefur út „Ágætis byrjun" í byrjun sum- ars. Sigur Rós er nú á leið á tón- leikaferð með kanadíska bandinu God Speed You Black Emperor! og verður spilað í Bretlandi. Túrinn endar á festivalinu All Tomor- row’s Parties, sem fer fram 7.-9. apríl. Framundan er svo spilirí m.a. á Hróarskelduhátíðinni og á Expo 2000. Hin séríslenska tónlist sem Sigur Rós flytur verður þar glimrandi góður fulltrúi okkar. Þrír með tvo kuðunga hvor Alls voru veitt verðlaun í átján flokkum. Þrir aðilar mættu tvisvar hvor upp á svið til að sækja kuð- unga. í fyrra rankaði Sálin hans Jóns míns við sér og gaf út tvö ný lög á tónleikaplötu. Annað þeirra, „Okkar nótt“, var kosið lag ársins og þá þóttu tónleikarnir sjálfir í Loftkastalanum vera tónlistarvið- burður ársins. Strákarnir í Maus gerðu fina plötu I fyrra og voru tilnefndir i sex flokkum. Þeir uppskáru tvö verð- laun; Danlel trommari var kosinn trommari ársins og Birgir öm þótti skara fram úr öðrum í texta- gerð. Pælingar hans eru oft djúpar og heimspekilegar, og oftar en ekki litaðar dapurleika. í „Dramafikli" söng hann t.d., „Ef stafróið væri lengra, myndi meining orðanna dýpka? Þú laugst aldrei að henni, þú sagðir bara ósatt." Eyþór Gunnarsson var sigur- sæll og fékk tvö verðlaun, var kos- inn hljómborðs- og djassleikari árs- ins. Ef svona heldur áfram hlýtur hann að þurfa sérherbergi fyrir verðlaunin sín þvi hljómborðsverð- laun hafði hann fengið ljórum sinn- um áður og djassleikaraverðlaunin þrisvar sinnum. Bubbi heiðraður Sjö aðilar fengu einn kuðung hvor. Síðasta Eurovision-keppni hefur geymst vel í minni þjóðar- innar og því var Selma Björns- dóttir kosin flytjandi ársins fyrir afrek sitt. Emilíana Torrini var hins vegar kosin söngkona ársins í þriðja sinn. Aðeins hún og Björk hafa fengið þessi verðlaun. Emilíana fékk kuðung fyrir gey- sigóðan flutning á sólóplötunni „Love in the Time of Science". Bassaleikarinn Guðni Finns- son halaði inn kuðung fyrir fingrafimi og þétta spilamennsku. Hann var ekki sérlega áberandi í fyrra en mun láta ljós sitt skína í ár með Ensími sem hann er ný- genginn til liðs við. Básúnaleikarinn Samúel J. Samúelsson fékk blásturskuðing- inn í ár, enda búinn að vera áber- andi síðstu árin, fyrst með Casino, en með Jagúar á síðasta ári. Samúel blæs einnig með Funkmaster 2000 og hefur sýnt faglega takta sem strengja- og blásturhljóðfæraútsetjari. Múm rétt marði aðrar sveitir og var kosin bjartasta vonin. Hljómsveitin gaf út hina frábæru plötu „Yesterday was Dramatic, Today is OK“ og á eflaust eftir að blómstra á þessú ári, enda grass- erar frjó leikgleði innan bandsins. íslensku tónlistarverðlaunin eru fyrst og fremst popphátíð, en Verðlaun eru einnig veitt fyrir klassíska plötu. Sinfónían hlaut þau verðlaun í ár fyrir upptökur af þrem verkum Sibelíusar sem Petri Sakari stjórnaði öruggum höndum. Á plötunni lék Sinfóni- an „Finlandia", frægasta verk Sibelíusar, og tvær svítur. Hið al- þjóðlega merki Naxos gaf plötuna út, en fyrirtækið sérhæfir sig í út- gáfu á ódýrum klassískum disk- um. Árlega hafa heiðursverðlaun verið veitt og nú var röðin komin að kónginum sjálfum, Bubba Morthens. Hann bætist í hóp heiðursverðlaunahafa sem flestir eru enn í jafn fullu fjöri og Bubbi. Úrslit íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2000 Hljómsveit: Sigur Rós . Hljómplata: Ágætis byrjun (Sigur Rós) Flytjandi: Selma Björnsdóttir Lag: Okkar nótt (Sálin hans Jóns míns) Söngvari: Jón Þór Birgisson Söngkona: Emilíana Torrini Hljómborösleikari: Eyþór Gunnarsson Bassalelkari: Guöni Finnsson Trommuleikari: Daníel Þorsteinsson Gftarleikari: Jón Þór Birgisson Blásturshljóöfæraleikari: Samúel J. Samúelsson Lagahöfundur: Sigur Rós Textahöfundur: Birgir Örn Steinarsson Bjartasta vonin: Múm Klassísk hljómplata: Rnlandia meó Sinfóníuhljómsveit íslands Djassleikari: Eyþór Gunnarsson Tónlistarviöburöur: Sálin hans Jóns míns á tónleikum í Loftkastalanum Heiöursverölaun: Bubbi Morthens íslenskur áhættuleikari: a Stökk í sjóinn fyrir H Fíaskó Fyrsta ís- lenska sci fi- myndin: íslenskar geimverur íþróttafrétta- mennirnir vegnir og metnir Svona eru sumar- skórnir 10-11 Davíð Þór Jónsson: »Ég er ekki dóni“ tl i f i ö Snióbretti á Arnarhóli Glæsileq skautasvninq Jimi Tenor á Thomsen Ókeypis á Summer of Sam Kynbeyqlukvöld á Spotliqht f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíöumyndina tók Teitur af Sigur Rós. 17. mars 2000 f ÓkuS 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.