Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Side 7
Þegar horft er á árangur íslenskra hljómsveita úti í heimi er alltaf einblínt á þær sem hafa eitthvaö verið í sviðsljósinu hérna heima. Það hendir hins vegar að neðanjarðarsveitirnar laumi sér yfir landsteinana og landamæri annarra landa og sái einhverjum fræjum í eyru erlendra aðila. Ein þessara sveita er hljómsveitin Sólstafir en hún er nú komin með plötusamning hjá þýsku hljómplötufyrirtæki. ■ mm ■ sianr tyrir 3 ætur „Við sendum út demó-spólu til tímarita og fleiri aðila þarna úti. Upp úr því fór að koma hellingur af bréfum frá fólki sem vildi vita meira og innan um þessi bréf leyndist eitt frá þýska útgáfufyrir- tækinu Ars Metali,“ segir Svavar Austmann Traustason, bassaleik- ari í Sólstöfum. Hljómsveitin hóf feril sinn í kringum ‘93-’94 og hefur verið starfandi síðan. Hún gaf út disk árið 1996 sem ber heitið TO Val- hallar og hefur sá diskur nú selst í 1500 eintökum. Á plötunni sem nú er í vinnslu verður gamalt en end- urunnið efni, auk tveggja nýrra laga, og er stefnt á að diskurinn komi út í sumar en engin ákveðin dagsetning er enn komin. Þjóðverjar elska íslenskt Aðspurður segir Svavar að það sé stefnan að reyna að halda þessu öllu sem islenskustu. „Við höfum ekki breytt nafninu á neinn hátt og það eru ekki nema í mesta lagi svona fimm prósent af textunum sem eru ekki á íslensku.“ Kemur ykkur þaö ekkert illa? „Nei, nei. Það vill nú svo til að Þjóðverjar virðast elska allt það sem íslenskt telst og þar af leið- andi þurfum við ekkert að vera standa í þessu þýða-allt-dæmi.“ Þessi þýska ást á menningu okkar hjálpar strákunum einnig því að Svavar segir þá drengi spila rokk sem er rammíslenskt og með skír- skotanir I okkar gömlu trú, ása- trúna. Kveikjum ekki í kirkjum Svavar segir að tónlist þeirra hafi verið að þróast svona smám saman i gegnum tíðina. „Tónlistin var einu sinni argasti metall en við erum búnir að vera að slípa þetta aðeins til og gera þetta að- eins snyrtilegra, ef svo má að orði komast." Þegar hann er spurður hvort þeir hafi haft eða hafi enn einhverja tengingu við geðsjúk- lingana frændur okkar í Noregi, sem framleiða metal-hávaða, neit- aði Svavar því alfarið: „Nei, við erum ekki að standa í því að kveikja í kirkjum." Guðhræddir íslendingar ættu því að geta andað léttar. Ekkert er ákveðið um opinbert spilirí á næstunni en fólki er bent á að hafa augun opin því alltaf gæti eitthvað dottið inn. Þeir Aðalbjörn Tryggvason gítarleik- ari, Guðmundur Óli Pálmason trommuleikari og Svavar Austmann búa sig undir innreið í þriðja ríkið að boða fagnaðarerindi Ásanna. poppað samband með Newman's Own Framleitt í USA 17. mars 2000 f Ó k U S 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.