Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Síða 11
f Ó k U S 17. mars 2000 r # ? . *»• "yfeí E#1 A|i CM Cl (iJ () n: ■ ©9 ©r sjentilmaður* Wr wttW' „Það fer svolítið í taugarnar á mér að vera allt í einu kominn í þá stöðu að þurfa að verja mig og ég veit ekki hvað ég hef gert til að koma mér í þessa stöðu,“ segir Davíð Þór Jónsson, ritstjóri, leikstjóri, gamanleikari, skemmtikraftur og margt fleira. En engu aö slöur ertu oröinn aö eins konar Larry Flint íslands? „Ég hristi nú höfuðið fyrst þegar ég heyrði þessa líkingu og trúi því eiginlega ekki að ég sé Larry Flint Islands," segir Davíð en bætir þvi við að honum hafi fundist þetta pínusniðugt í fyrstu. „Málið er bara að ég réð mig ekkert í klámiðnað- inn. Ég réð mig til að ritstýra tímariti um kynlíf og það er ekkert öðruvísi ritstjóm en á hverju öðm tímariti, fyrir utan að umfjöllunarefnið er aðeins'þrengra." Togað í typpi Engu aö síöur, hvort sem þér líkar betur eöa verr, ertu oröinn klámkóngur íslands og því ekki úr vegi aö spyrja þig . hvenœr þú haflr séö klám í fyrsta sinn? „Ég veit það ekki alveg en ég sá ekki klám- mynd fyrr en ég var fullra sextán ára. Þetta var áður en videoið varð aUsráðandi og líka fyrir net- væðingu landans. Og myndin sem ég sá var einmitt klassíkin Debbie Does Dallas sem ég keypti mér einmitt seinna.“ En ertu ekki bara dóni? „Nei, ég er ekki dóni, ég er sjentilmað- ur. En ég hef orðið var við að fólk telur Omig dóna og hef svo sem ekkert verið að gera lítið úr því. Þegar við í Radíus vor- um að byrja með standup-in vorum við með dónabrandara rétt eins og Eddie Murphy, Andrew Dice Clay og fleiri. Þetta var bara málið þá. Rétt eins og það þýddi ekkert fyrir rokkgrúppur að spila eingöngu á blokkflautur þýddi ekkert fyr- ir okkur að tala um bamauppeldi." Annað kvöld hefjast svo sýningar á eró- tískum þáttum í leikstjóm Davíðs Þórs eftir handriti hans og Barða Jóhanns- sonar Bang Gang manns. Þessir þættir hafa vakið umtal að undanfömu og þá sér- staklega leikstjórinn sem fékk reynslu sína af því að stýra myndaþáttum fyrir Bleikt og blátt. En um daginn var einmitt sýnt frá einni slíkri myndatöku í sjón- varpsþætti um klám á íslandi. Sá þáttur vakti mest umtal vegna þess að Davíð tog- aði í typpið á karlmódeli til að sýna kven- módeli hvernig hún ætti að bera sig að þegar hún þóttist sjúga liminn. „I fyrsta lagi var ég bara að reyna að út- skýra fyrir lettneskri konu hvemig hún „Radíus átti bara að vera sumarvinnan mín af því að félagshyggjumaðurinn Össur Skarphéðinsson setti vexti á námslánin og ég sá fyrir mér, með tilliti til byrjunarlauna presta, að ég myndi greiða afborganir af lánunum alla ævi án þess að snerta við höfuðstólnum." ætti að þykjast vera að sjúga hann á þessu gæja og sýndi henni það í einhverjum galsa,“ útskýrir Davíð. „Þetta var mjög góður og skemmtilegur dagur og við vor- um bara að flflast. En þeim ágæta maðnni Eggert Skúlasyni fannst þetta fréttnæmt og gerði frétt um þetta og titlaði mig guð- fræðing en það er ég ekki. Og það hefði verið hægt að misskilja þetta á þann veg að guðfræðingurinn Davíð Þór misnotaði aðstöðu sína til að fá að koma við typpið á karlmönnum." Leikarinn oq skemmtikrárturinn En Davíð er ekki bara ritstjóri og leik- „Ég sá ekki klámmynd fyrr en ég var fullra sextán ára. Þetta var áður en videoið varð allsráðandi og líka fyrir netvæðingu landans. Og myndin sem ég sá var einmitt klassíkin Debbie Does Dallas sem ég keypti mér einmitt seinna.“ stjóri, hann er líka leikari og skemmti- kraftur. Leikur meðal annars eitt af aðal- hlutverkunum í Óskabömum þjóðarinnar eftir Jóhann Sigmarsson en hún verður væntanlega frumsýnd í sumar. Svo er hann þekktur sem annar Radíusbræðra og er án efa sá leikari sem næst hefur komist því að ganga í Leiklistarskóla ís- lands án þess að hefja þar nám. Davíð fór þrisvar í sextán manna úrtakið í inntöku- prófunum. Hvernig tilfmning var aö fara þrisvar í sextán manna úrtakiö í inntökuprófum viö Leiklistarskólann? „Vá, hvað það var svekkjandi i þriðja skiptið. Þess vegna greip maður líka tæki- færið þegar manni bauðst að gerast skemmtikraftur og gamanleikari og hætti í guðfræðinni. Það hefði orðið einum of að vera prestur úti á landi einhvers staðar vitandi það að maður hefði gloprað tæki- færinu," segir Davíð en hann var einmitt í námi vorið ‘92 þegar Radíusboltinn byrj- aði að rúlla. „Radíus átti bara að vera sumarvinnan min af því að félagshyggjumaðurinn Öss- ur Skarphéðinsson setti vexti á náms- lánin og ég sá fyrir mér, með tilliti til byrjunarlauna presta, að ég myndi greiða afborganir af lánunum alla ævi án þess að snerta við höfuðstólnum. Ég ákvað síðan að fresta guðfræðináminu og njota þess að hafa peninga á milli handanna þegar Rad- íusbræðrum gekk eins vel og raun bar vitni. En þeir urðu fljótlega að þessari blöðru eða bólu sem er kannski ekki sprungin enn heldur orðinn að eins konar vörtu sem við losnum ekki við,“ útskýrir Davið en Radíus er á Radíó alla laugar- daga. Trúir á Guð í dag er Davíð fráskilinn þriggja barna faðir en býr einn og á kærustu. Tvö börn á hann með fyrrum konu sinni og svo á hann eina sextán ára dóttur sem hann eignaðist áður en hann kynntist henni. „Ég tek virkan þátt í uppeldi barnanna minna og geri það í fullu samráði við fyrr- verandi konu mína. Við vinnum stundum saman og erum mjög góðir vinir,“ útskýr- ir Davíð en fyrrum kona hans er förðun- arfræðingur og stUisti svo leiðir þeirra liggja saman við vinnslu á Bleiku og bláu. Þau eru með sameiginlegt forræði yfir börnunum. Trúiröu á Guð? „Já. Ég hefði ekki farið í guðfræðina ef ég tryði ekki á Guð. Ég leyfi mér samt að stórefa að einhver starfandi kirkjudeUd hafi einkaleyfi á Guði. Ég fer þvi ekki í kirkju en bið bænir með börnunum min- um og fer þá eftir því sem Jesú segir þeg- ar hann kennir okkur Faðirvorið. Hann sagði að við skyldum ekki reyna að sigra Guð með mælsku okkar því Guð þekkir bænarefni okkar betur en við sjálf og hann vUl heldur ekki að við gerum eins og faríseamir og biðjum bænir á götum úti tU að aUir sjái hversu trúuð við erum.“ En hvernig leggst klámumrœöan í þig sem ábyrgan fööur? „Auðvitað eiga böm ekkert að horfa á klám og þegar ég er með klámefni heima hjá mér held ég því frá þeim rétt eins og brennivini og hreinsUegi. Bömin mín vita annars alveg að ég ritstýri tímariti um kynlíf en þetta er bara eitthvað sem þau hafa engan áhuga á. Börn hafa ekki áhuga á kynlífi. En þessi rök um klám og böm em hvort eð er bara þau að hér eiga börn helmingi auðveldara með að nálgast klám- efni vegna þess að það er selt á svörtmn markaði og án eftirlits. Erlendis á sá sem selur efnið hættu á að missa leyfið tU þess selji hann börnum klám.“ Og hvernig skilgreinir Davíð Þór klám? „Fyrst er það hardcore-klám þar sem fólk er sýnt hafa samfarir með þeim hætti að ekki fari á miUi mála að um ekta sam- farir sé að ræða. Svo er það mUda klámið sem við stundum hér heima. En þar eru myndir af fólki sem þykist vera að hafa kynmök eða er myndað í erótískum steUingum. Bæði efnin fást aUs staðar og eiga auðvitað að vera leyfð undir efitrliti. Við verðum að horfast í augu við raunveruleikan og hann er að það er ekki hægt bæði að eiga kökuna og éta hana. Þetta er líka spuming um ritfrelsi. Frumvarp gegn Davíð Þór Tveir þingmenn Vinstri- grænna, þær Kolbrún Halldórsdóttir og Þuríð- ur Backman, hafa lagt fram frumvarp sem hljómar eitthvað á þá leið að aUt sem tengist klámi verði bannað. Svo vitnað sé beint í frumvarpið: „Ef klám birtist á prenti skal sá sem ábyrgð ber á birt- ingu þess eftir prentlög- um sæta sektum eða fangelsi aUt að einu ári. Sömu refsingu varðar það þann sem er ábyrgur fyrir að auglýsa í fjölmiðl- um eða á opinberum vett- vangi aðgang að klámi í hvaða mynd sem það er fram borið. Sömu refsingu varðar einnig að búa tU eða ftytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klám- ritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum eða hafa þá opin- berlega tU sýnis, svo og að efna tU opinbers fýrirlestrar eða leiks sem er ósiðlegur á sama hátt.“ Og þess ber að geta að skUgreining kvinn anna á klámi er i þrengra lagi. „Við erum að tala um lög sem finn- ast hvergi annars staðar í heiminum nema löndum eins og íran og Afganist- an. Og hvernig er staða kvenna í þeim löndum?“ spyr Davíð og nokkuð ljóst að honum er ekki skemmt þó hann líti svo á að frumvarpið sé ekki beinlínis gegn hon- um og að hann sé þess fuUviss að það verði ekki samþykkt. Og út frá þessu frumvarpi hefur umrœð- an þróast út í aö þú sért að hvetja til kyn- feröisbrota gegn börnum meö því aö birta myndir af stelpum sem raka sig aö neðan? „Þessi hugmynd kemur frá einhverri útlenskri konu, sem vitnað var í í Mogg- anum, og þar sagði hún að samkvæmt ein- hverri könnun verði 40% kynferðisaf- brotamanna fyrir kynferðislegum æsingi skoði þeir klámfengið efni og út frá þvi áætlar hún að klám hvetji tU kynferðisof- beldis. Þetta er náttúrlega fáránlegt og það eina sem hægt er að lesa út úr þessu er að meirihluti kynferðisafbrotamanna neyti ekki kláms. Og svo þegar þessi kona er spurð að því hvað sé klám og hvað eró- tík, henni finnst erótík í lagi, segir hún að klám sé þegar ljóshærð kona með þrýstin brjóst sýni á sér líkamann en erótik þeg- ar „venjuleg" kona geri hið sama. Það er auðvitað ekki hægt að taka mark á svona vitleysu." Rakaðar konur hvetja barnaníðinga Og hér í Fókus hefur einmitt birst grein um rakaöar konur og þar var aðallega rœtt við svokallaöar „venjulegar" konur sem raka sig aö neöan? „Já, og síðan þetta kom fram hjá Kol- brúnu, þama í þættinum hjá Agli Helga- syni, hafa fjölmargar konur komið tU mín og sagst vera stórmóðgaðar. Því það eru „Konur mega hafa það vald yfir líkama sínum að þær geti eytt fóstri en þær mega ekki raka sig að neðan því það hvetur til kynferðisafbrota." mjög margar konur sem snyrta sig að neð- an og raka sig undir höndunum og á fót- leggjum. En þær eru nú aUt í einu famar að hvetja bamaníðinga tU að níðast á stúlkubörnum. Það er alveg fáránlegt að kvenréttindakonur á íslandi skuli láta svona vitleysu frá sér. Konur mega hafa það vald yfir líkama sinum að þær geti ** eytt fóstri en þær mega ekki raka sig að neðan þvi það hvetur til kynferðisaf- brota,“ segir Davíð og bætir þvi við að í Bandaríkjunum séu margar kvenréttinda- konur famar að líta á klám aUt öðmm augum en stöUur þeirra hér heima. „Þar er umræðan komin yfir í það að tala um klámmyndastjömur sem kvenhetjur sem brjóti af sér hlekki hefðbundins kynhlutverk kvenna." En svona aö lokum. Segjum aö frum- varpið verði samþykkt, hvaö œtlarðu aö gera? „Ætli ég fari bara ekki og klári guö- fræðina," svarar Davíð og kímir. I V 17. mars 2000 Davíð Þór Jónsson þarfnast varla nánari kynningar. En þar til fyrir þrem árum var hann aðallega þekktur sem skemmtikraftur og guðfræðinemi. Nú er hann hins vegar orðinn að Larry Flint íslands. Holdgervingur klámsins í landinu og jafnvel hættulegur samfélaginu. Mikael Torfason hitti kauða á Hótel Hoiti og komst að því að hann gengur ekki með Bleikt og blátt upp á vasann heldur Nýja testamentið í blárri kápu. » Þeir slepptu því þó að ræða það í þaula enda umræðuefni ekki af skornum skammti þegar Davíð Þór Jónsson er annars vegar. 10 11 <4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.