Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 14
fókus á Vísir.is og Asíuferð Það er alltaf fullt að gerast á Fókusvefnum á Vísir.is. í vik- unni byrjaði ný umferð í Gettu enn betur og þessa vikuna er hún helguð kvikmyndinni Hurricane og fullt af miðum í boði á þá ræmu, að sjálfsögðu. Getraunin er hrikalega erfið nú eins og alltaf og varla hægt að segja að hún sé fyrir við- kvæma. Henni lýkur á mánu- daginn og þá hefst að sjálf- sögðu ný umferð og auk þess fer nýr vefur í gang á Fókusvefnum á mánudaginn. Hann heitir Ei- ríkur og Hrund í Asíu en þau voru að hefja ferðalag um Austurlönd fjær og voru rétt í þessu að lenda í Delhí á Ind- landi. Smellið ykkur á Fókus á Vísir.is og fylgist með ferðum Eiríks Sigurðssonar líffræðings og Hrundar Lárusdóttur dýra- læknis um Asíu. Annars er Fókus á vefnum eitt mesta veftímaritið fyrir ungt fólk á íslandi. Þar get- / urðu tekið próf og fengið úr- skurð um það hvort þú sért fífl, ólétt(ur), upplýsingafíkill, kominn yfir þrítugt og margt fleira. Svo er tvífarabankinn líka á vefnum og allar upplýs- ingar um það sem þú þarft að vita um menningar- og skemmtanalífið og miklu meira til er á vefnum. Log on! „Þar sem ég er textílhönnuður þá legg ég aðaláherslu á efnin og litina fremur en sniðin. Það eru frekar einfold form á fot- unum hjá mér og ég nota mikið náttúruleg efni,“ segir hin 28 ára gamla Berþóra Guðnadóttir sem ætlar að halda tískusýningu í kvöld, fostudag, í vöruskemmu á bak við Kassagerðina. Þetta er fyrsta tískusýning Bergþóru en fötin hennar hafa þó verið tU sýnis í versluninni Aurum, Laugavegi 27, frá því í desember, en verslunina rekur hún ásamt guUsmiðnum og skartgripahönnuðinum Guðbjörgu Kristínu Ingvarsdóttur. „Við höf- um aðeins verið að vinna saman. Til dæmis hefur Guðbjörg hannað nælur á fotin hjá mér sem halda flíkunum saman í staðinn fyrir „Það er svo miklu auðveldara að gera eitthvað fríkað og ónothæft heldur en smekklegt og nothæft," segir hönnuðurinn Bergþóra Guðna- dóttir sem vill að fólk geti gengið í fötunum sem hún hannar en hún hannar föt á bæði kynin. Ðergþóra Guðnadóttir er ungur fatahönnuður í Reykjavík sem leggur meiri áherslu á efni og liti en form og snið. Hún sýnir hönnun sína í kvöld á tískusýningu í vörusl^pimu í Reykjavík. i 4 16.-1 9. MARS Taktu forskot á vorsæluna! Fáðu fallegar vorvörur á frábæru verði, njóttu Ijúfra veitinga og þiggðu góða þjónustu á Kringlukasti. Fylgstu vel með sérkjörunum! Nokkrar verslanir og þjónustuaðilar veita dag hvern 15% viðbótarafslátt af sérvaldri vöru eða þjónustu ofan á Kringlukastsafsláttinn. í dag koma þessar verslanir þér á óvarf: SKÍFAN BYGGT OG BÚIÐ TEKK VÖRUHÚS nm NYJAR VORUR m e ð sérsfökum afslcetti 20%-50% föstudagur laugardagur sunnudagur Uppiýsingar i síma 588 7788 hefðbundar tölur og rennilása," segir Bergþóra sem útskrifaðist úr textíldeild Myndlista- og handíða- skólans síðastliðið vor. Fyrir utan að þæfa og þrykkja á efnin sem hún notar samnar hún einnig öll fötin sjálf og segist hafa lært saumaskapinn af bókum og einnig af ömmum sínum. „Ég sauma einnig mikið út í fötin, ekki endi- lega myndir heldur ýmis form sem undirstrika t.d. saumana," segir Begþóra sem býður fólk velkomið í skemmuna um hálfníuleytið. Undir tískusýningunni verður spiluð lif- andi tónlist. heimasíöa vikunnar Heimasíða vikunnar er: www.dullmen.com leiðinlega Loksins er komin heimasíða fyr- ir leiðinlega karlmenn. Klikkaðu þig inn á www.dullmen.com og at- hugaðu hvort þú fellur inn í þenn- an hóp með því að taka próf sem er á síðunni. Ef þú stenst prófið get- uröu rúllað i gegnum síðuna og notið góðs af öllum þeim ráðum sem þar er að finna - ráð fyrir þig sem hefur áttað þig á því að þú ert ekkert sérstaklega spennandi karl- maður. Á síöunni geta leiðinda- seggir komist í samband við aðra leiðindaseggi og deilt sínum leiðin- legu áhugamálum. Þar er einnig að finna leiðinlega brandara, ömur- Irarl m aki n imii iiiiwiiii Duil Men’s Club —' * — -— ~ !SfflMT legar mataruppskriftir og annað leiðinlegt efni. Síðan sjálf er einnig alveg ferlega óspennandi upp sett, lítið af myndum og öðru skrauti þannig að hún virkar eiginlega frá- hrindandi við fyrstu sýn. 14 f Ó k U S 17. mars 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.