Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 16
Þorsteinn Guömundsson homma vinur ... en ég er ofboðslega hræddur við lesblur. Ég tek það skýrt fram að ég er ekki hommi sjálf- ur þó að ég hafi auðvitað prófað mig áfram á þeim vettvangi á námsárum mínum. Ég svaf nokkrum sinnum hjá eldri manni þegar ég var í íþróttaskól- anum á Laugarvatni en mér fannst það ekkert sér- stakt. Eig- inlega lá ég þara þarna á maganum og flissaði ... ... allan tímann. Fyrir mér var þetta meira svona kitlandi en kynæsandi (karlinn var hins vegar bæði æstur og sveittur). Ég skil sem sagt ekki svona þot en auðvitað er ég ekki fordómafullur út I þá sem fá eitthvaö út úr þessu. Mér finnst bara ekki að svona fólk ætti að fá að ættleiða börn, það er allt of langt gengið. Það er líka allt of flókið fýrir börn að eiga tvo pabba en enga mömmu. Og hvað ef aumingja barnið kemur nú óvart inn í svefnherbergi þegar þabþarnir eru að ... ... leika sér saman? Þá myndi það hugsa: „Hvað er stóri pabbi að gera við litla pabba?" Nei, ég held að þarna geti allt heilbrigt fólk dregið mörkin. Annars eru homm- ar ágætis fólk. Þeir eru alltaf snyrtilegir og vel- lyktandí. Þeir ganga í tískuföt- um og tala með fallegri rödd. Ef ég væri ekki gagnkynhneigð- ur væri ég mjög hrifinn af þeim. Ég myndi a.m.k. ekki henda Páli Ósk- ari upp úr... ... baðkarinu mínu. Lesbíur eru allt öðruvísi. Þær eru feitar og loðnar, með burstaklippingu, og það er svita- lykt af þeim. Þær tala mjög ógnandi og þorða a I d r e i ávexti. Ég hef t.d. aldrei séð I e s b í u b o r ð a greip. Ég tek oft á mig stór- an krók ef ég sé les- bíu niðri i bæ og ég gersam- I e g a tapa mér ef ég sé konu í sundlaugunum með hár undir höndunum. Ég fæ martröð þar sem mér finnst ég vera að synda og það er... ... lesbía á eftir mér. Samt geta þær ekki gert manni neitt af því að þær eru ekki með typþi. En þetta er líka spurn- ing um Guð. Guð fylgist með okkur og ég held að hann verði rosalega ringlaður ef við förum að rugla með hverjir eru strákar og hverjir eru stelpur. Þetta er eins og að eignast hvolp sem maður heldur að sé hundur en svo er hann bara tík og maður er kannski nýbúinn að skíra hana... ... Sám eða Brútus. „Þetta er tíkin mín, Brútus. Passaðu þig á henni, hún á það til að runka sér á fætinum á manni." Þetta er mjög afkáralegt. Og við verðum að taka tillit til Guðs og passa að rugla hann ekki í ríminu. Hann er nógu ruglaður fyrir. Þess vegna segi ég þegar ég fer að sofa: „Góður guð, passaðu alla hommana og verndaðu mig fyrir lesblunum." Ættleiðing barna frá fátækum iöndum varð algeng hérlendis fyrir um það bil tuttugu árum og ættleiddu börnin sem komu þá til landsins eru orðin fullorðin í dag. Auður Jónsdóttir ræddi við fjögur þeirra um fæðingarlandið, fordóma þjóðarsálarinnar og dulúðina sem fylgir því að vera ættleiddur. IVIaja Jil! Einarsdóttir fædd- ist i Indlandi, Fanný Ósk Grímsdóttir fæddist í Indónesíu, Ómar Þorsteinn Árnason fæddist í Suöur- K6reii|>ff Jóna Björg Eö- varösdottir fæddist í Tyrk- landi. móður Maja Jill er fyrsta bamið sem er ættleitt frá Asíu til íslands. Hún var tveggja og hálfs árs þegar hún kom til landsins frá munaðarleys- ingjahæli í Bombay á Indlandi en það var þýsk hjúkrunarkona, bú- sett á íslandi, sem tók Maju að sér. Það var hrein tilviljun hvernig þetta atvikaðist. Móðir Maju átti vinkonu sem var hjúkrunarkona á munaðarleysingjahælinu og vin- konan sendi henni myndir og bréf af Maju og spurði um íslenska fjöl- skyldu sem vildi ættleiða barn. „Þar sem mamma gat ekki átt böm og foreldrar mínir heilluðust svo af myndinni þá var ég fengin til að koma,“ útskýrir Maja bros- andi og heldur áfram: „Það voru engir pappírar til um mig því ég fannst úti á götu. Ég veit ekki hvað ég var gömul en það voru tveir menn sem fundu mig og fóru með mig á munaðarleysingjahælið. Þeir fundu mig 28. október, svo það er afmælisdagurinn minn.“ Rámar þig eitthvað í árin í Bombay? „Nei, ég man ekki neitt en ég hef séð myndir af heimilinu og mín æðsta ósk er að sjá staðinn aftur. En, mig langar aðeins að sjá hann. Það er ekkert að finna í Bombay þvi ég fannst úti á götu og auk þess eru engir pappírar til inn uppruna minn.“ íslendingur í húð og hár Ómar kom frá Suður-Kóreu þegar hann var eins og hálfs árs. Að hans sögn er það nokkuð hár aldur fyrir ættleiðingu en systir hans var aðeins tveggja mánaða þegar hún kom til foreldra þeirra. „Það var kóreskt nafn á fæðingar- vottorðinu mínu og ég veit að móö- ir mín var það ung að hún gat ekki séð fyrir mér,“ segir Ómar og kveðst ekkert muna eftir Kóreu. Langar þig aöfara aftur til Suð- ur-Kóreu og grennslast fyrir? „Ég hef oft verið spurður hvort mig langi ekki að fara þangað og grennslast fyrir um uppruna minn en ég var á barnaheimili og veit ekki nafn móður minnar. Reyndar er til fæðingarvottorð en það er engin leið að finna hana. Þannig að ég hef ekkert verið að velta mér upp úr því. í sjálfu sér langar mig ekkert meira að fara til Kóreu en einhvers annars lands. Mér fmnst ég vera íslendingur í húð og hár,“ svarar Ómar ákveðinn og bætir við að reyndar hafi hann miklu meiri áhuga á Japan en Kóreu: „Mér finnst Japan mjög áhugavert land og sérstaklega stóru borgirnar. Menningin, tiskan og tæknin, þeir eru alveg rosalegir hvað tæknina varðar og alltaf einu skrefi á und- an.“ Heimili fyrir götubörn Jóna Björg kom frá barnaheim- ili í Tyrklandi þegar hún var eins og hálfs árs. Henni fylgdi nafn og einnig nöfn foreldra hennar. „Ég komst ekki að þvi fyrr en ég var tíu ára þegar ég fór að gramsa í möpp- um um ættleiðinguna mína. Þá fann ég pappírana sem nöfnin komu fram á. Persónulega hef ég alltaf haft mikinn áhuga á að finna móður mína. En af trúarástæðum er erfitt að grennslast fyrir um ætt- leidd böm sem eru jafnvel fædd utan hjónabands. Þungun við slík- ar aðstæður er algjör ærumissir. Fjölskyldurnar láta líka stelpur frekar frá sér en stráka því þeir framfleyta heimilinu og í ná- grannalöndunum, til dæmis Palest- ínu, er faðirinn í rétti til að drepa dóttur sína ef hún verður ólétt fyr- ir hjónaband. Við fréttum líka af konum í Bosníu sem hefur verið nauðgað af hermönnum en missa samt æruna. Og kannski var móð- ur minni nauðgað, maður veit aldrei!" veltir Jóna fyrir sér og ypptir öxlunum hugsandi og spyij- andi í senn: „í svona aðstæðum þurrka mæðurnar öll ummerki í burtu svo það verði aldrei hægt að hafa uppi á þeim aftur. Enda eru þetta skýringamar sem ég fékk þegar ég spurðist fyrir.“ Jóna er sú eina sem hefur farið á fæðingarslóðirnar en hún heim- sótti tyrkneska bamaheimilið. Að hennar sögn var það beinlínis ætl- að bömum sem fundust úti á götu eins og hún. Bömin geta svo dval- ið á heimilinu til fjórtán ára ald- urs. Þess má geta að Jóna á bróður sem kom einnig frá Tyrklandi en ekki sömu fjölskyldu. Ekki vanir dökkum börnum „Ég kom hingað frá Indónesíu 1982 og var aðeins nokkurra mán- aða gömul svo ég man ekki neitt. En ég kom til landsins ásamt tveimur öðrum stelpum sem vom á sama heimili og ég og við höldum sambandi enn þann dag í dag,“ út- skýrir Fanný Ösk og er ekkert að hugsa um að leita uppruna síns. Þó þætti henni gaman að sjá staðinn aftur og kynnast indónesískri menningu. Aðspurð segist Fanný Ósk aldrei hafa orðið fyrir aðkasti í skóla. Þvert á móti sóttust krakk- amir í að vera með henni því þeim fannst útlit hennar spennandi. Maja kannast jafnframt við já- kvæða athygli: „Ég kom hingað 1969 og það var mjög nýtt fyrir Is- lendinga að sjá svona dökkt bam. Þeir vildu sífellt snerta húðina á mér og skoða hárið og voru alltaf að spyrja hvort ég talaði íslensku. Foreldrar mínir voru alveg að springa úr monti en fólki fannst þetta voðalega skrýtið og horfði náttúrlega mikið á mig,“ segir Maja sem er sjálf þriggja bama móðir í dag. Hún tekur einnig fram að aðkast í barnaskóla hafi ekki verið mikið: „Ég varð ekki fyrir mikilli strfðni. Þó voru nokkur böm sem kölluðu mig svertingja en ég svaraði yfirleitt fyrir mig.“ Jóna Björg: „Ég var líka kölluð svertingi - og indiáni, eskimói, Ind- verji, Tailendingur..." Fanný imprar á því að íslending- ar séu fljótir að álykta að dökkt fólk sé útlent: „Inn á milli er stund- um fólk sem heldur að ég tali ekki íslensku og byrjar að tala við mig á öðrum tungum." Ómar kannast hvorki við nei- kvætt aðkast og né tungumálarugl- ing og segir: „Ég hef bara lent í bömum sem kölluðu bullkinversku á eftir mér og oftast þegar ég fer inn í verslanir talar fólk strax ís- lensku við mig. Ég held nefnilega að útlitið skipti ekki öllu máli í þessum efnum heldur líka hvemig maður ber sig. Mér finnst ég frekar hafa grætt á því að fá meira af góðri athygli.“ Þannig að þið mynduö ekki segja ' að íslendingar vœru fordómafullir! Öll í kór: „Jú!“ 16 f Ó k U S 17. mars 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.