Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2000, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
27
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýslngastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setnlng og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Skynsamleg sameining
Sameining íslandsbanka og Fj árfestingarbanka at-
vinnulífsins, FBA, er bæði eðlileg og skynsamleg. Eig-
endur, stjórnendur og starfsmenn íslandsbanka geta
einnig þakkað sínum sæla að hugmyndir um samruna
íslandsbanka og Landsbanka urðu ekki að veruleika.
Hugmyndir um hagræðingu á islenskum fjármála-
markaði hafa á síðustu misserum gengið út í öfgar og
á stundum virðist sem menn hafi ekki séð annað en til-
búin reiknilíkön um hverju hin eða þessi sameiningin
skilar. í leiðara DV 22. mars síðastliðinn sagði um
þetta meðal annars: „Enginn deilir um að hægt sé að
ná fram miklum sparnaði með sameiningu fjármála-
stofnana hér á landi eins og annars staðar. Það eru
gömul sannindi og ný. Hins vegar verður að setja
spurningu við það hvort hagstætt sé að íslandsbanki
og Landsbanki renni saman í einn gríðarlegan stóran
og öflugan banka með yfirburðastöðu á fjármálamark-
aði.“ Og nokkru síðar sagði: „Öll rök hníga að því að
miklu skynsamlegra sé fyrir viðskiptaráðherra og rík-
isstjórnina að hraða einkavæðingu bankakerfisins en
að ýta undir sameiningu eins ríkisviðskiptabankans og
íslandsbanka. Hér skiptir litlu hvort reiknilíkön fjár-
málamanna sýni griðarlegan sparnað af sameiningu og
samruna fjármálafyrirtækja, sem eigendur og við-
skiptavinir fá að njóta. Þróunin verður að gerast á
markaðslegum forsendum en ekki með stefnuyfirlýs-
ingu frá opinberum aðilum.“
Það voru einmitt markaðslegar forsendur sem réðu
ferðinni þegar forráðamenn íslandsbanka og FBA
ákváðu að ganga saman í eina sæng. Og þegar drif-
krafturinn er markaðurinn sjálfur ganga hlutirnir fjótt
og örugglega fyrir sig. Ekki skemmdi sú staðreynd fyr-
ir forráðamönnum íslandsbanka og FBA að fyrirtækin
smella saman eins og flís við rass - svo notað sé orða-
lag úr daglega lífinu - hvort heldur er litið til uppbygg-
ingar eða kúltúrs og starfsmanna.
Hjónaband íslandsbanka og FBA kallar hins vegar
ekki á einhverjar róttækar aðgerðir stjórnvalda og
allra síst á þvingaða sameiningu Búnaðarbanka og
Landsbanka. Vera kann að reiknimeistarar geti sýnt
fram á hagræðingu af sameiningunni en dregið skal
alvarlega í efa að raunveruleikinn sanni niðurstöðu
meistaranna.
Mesta skynsemin er að gefa sparisjóðunum kost á
því að taka þátt í þeirri miklu gerjun sem fram undan
er á fj ármálamarkaðinum. En til þess verður að finna
leið til að breyta sparisjóðunum í hlutafélög. Samein-
aðir sparisjóðir og Búnaðarbanki auk Kaupþings gæti
orðið öflug eining sem keppt gæti á jafnréttisgrunni
við íslandsbanka - FBA og Landsbankann. Með því
yrðu til þrjú stór fyrirtæki af svipaðri stærð á fjár-
málamarkaðinum. Telji ráðamenn það nauðsynlegt að
styrkja stöðu Landsbankans með einhverjum hætti má
renna Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins inn í bankann,
enda sjóðurinn nokkur tímaskekkja.
Samhliða þessari uppstokkun á ríkisstjórnin að
skera upp íbúðalánakerfið og færa alla daglega um-
sýslu inn í einkarekið fjármálakerfið sem hefur alla
burði til að taka yfir starfsemi íbúðalánasjóðs, sem fyr-
ir löngu er orðinn að nátttrölli í samtímanum.
Óli Björn Kárason
I>V
Skoðuní-
Illa rökstuddur dómur
Formaöur Dómarafélags-
ins fann að því á dögunum,
að ég hafði gagnrýnt Vatn-
eyrardóminn fræga. Taldi
hann enga ástæðu til að ætla,
að dómarinn i málinu hefði
dæmt gegn betri vitund. Ég
vona svo sannarlega, að for-
maðurinn hafi rétt fyrir sér
um það. Við verðum að geta
treyst því, að dómarar dæmi
eftir lögum, ekki eftir kosti á
stundarvinsældum eða hugs-
anlegum viðtökum i vinahóp.
Mér blöskraði hins vegar,
hversu illa dómurinn var
rökstuddur, og skal ég nú bæta örfáum
orðum við það, sem ég sagði hér fyrir
skömmu.
Hvers vegna áttu mennirnir
ekki kvóta?
Málið, sem lá fyrir dómaranum, var
þetta: Menn, sem áttu skip, en ekki
kvóta, töldu jafnræðisreglu stjórnar-
skrárinnar brotna með því, að aðrir
hefðu kvóta og ekki þeir sjálfir. Hvers
vegna áttu mennirnir ekki kvóta?
Aimaðhvort vegna þess að þeir höfðu
selt kvóta sinn eða vegna þess að þeir
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
prófessor
höfðu ekki tilskilda veiði-
reynslu, þegar kvótum var
fyrst úthlutað í árslok 1983.
Ef þeir höfðu ekki tilskilda
veiðireynslu, þegar kvótum
var fyrst úthlutað, þá gátu
þeir haldið því fram, að regl-
an um upphaflega úthlutun
eftir veiðireynslu bryti gegn
jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar.
Eðlileg mismunun
í fyrri grein minni hér í
blaðinu leiddi ég rök að því,
að reglan um upphaflega út-
hlutun eftir veiðireynslu bryti ekki
gegn jafnræðisreglu stjómarskrárinn-
ar, því að löggjafínn yrði vitaskuld að
taka meira tillit til þeirra manna, sem
hætt hefðu fjármunum sínum og af-
komumöguleikum i því skyni að
stunda fiskveiðar, en til hinna, sem
ekki hefðu nýtt sér aðganginn að fiski-
miðunum, á meðan hann var óheftur.
Sú mismunun, sem ætti sér stað með
úthlutun kvóta eftir veiðireynslu, væri
efnisleg og eðlileg. Þar sem kvótarnir
væru framseljanlegir, úthlutuðu þeir
sér síðan sjálfir á frjálsum markaði,
„Málið, sem lá fyrir dómaranum, var þetta: Menn, sem
áttu skip, en ekki kvóta, töldu jafnrœðisreglu stjómar-
skrárinnar brotna með því, að aðrir hefðu kvóta og
ekki þeir sjálfir. “
svo að eftir upphaflega úthlutun ætti
sér ekki stað nein mismunun. I því
sambandi hefur sú athyglisverða stað-
reynd komið fram nýlega, að 81% kvót-
anna hafa skipt um hendur, frá því að
þeim var upphaflega úthlutað.
Sú athyglisverða staðreynd, að 81%
kvótanna hafa skipt um hendur, merk-
Sorphirðuáætlun
Umhverfisráðherra hefur sett af
stað umfangsmikið starf til þess að
vinna sorphirðuáætlun fyrir landið.
Hún hefur skipað nefnd um endur-
nýtingu úrgangs. Nefndinni er ætlað
að vinna tillögur að aukinni flokkun
og endumýtingu úrgangsefna. Við
þetta starf þarf að hafa í huga skuld-
bindingar íslands vegna samninga
um Evrópska efnahagssvæðið.
Ljóst er að EES mun gera mjög
strangar kröfur um gassöfnun frá
urðunarstöðum. Þær kröfur geta
haft talsverð áhrif á urðun hérlend-
Kaiiaisawrt
-
Kjallari
■
GETUR ÞAÐ VERiÐ AÐ BIÐR0ÐIN
SEM ÞÚ ERT EF TIL VILL í NÚNA
„Flokkun úrgangs er viðamikið verkefni á nœstu ámm
þannig að tryggja megi að kröfum verði fullnœgt í
hverjum flokki. Umhverfisráðherra hefur bmgðist vel
við og nú er að láta hendur standa fram úr ermum. “
Með og á móti
Á eftir öðrum
Evrópuþ j óðum
J „Jarðgangagerð
. er gríðarlega mik-
■j£, ilvæg í þá átt að
1 ~~j, viðhalda byggðum
landsins og íslendingar þurfa
að veita mun meira fjármagn
í jarðgangagerð til að bæta
samgöngur hér á landi.
Reyndar erum við langt á eft-
ir öðrum Evrópuþjóðum
hvað varðar fjármagn sem
veitt er í landsamgöngur,
is. Gasmyndun á urðunar-
stað fer mjög eftir hitastigi í
urðunarbing, sem aftur er
háð stærð hans. Litlir urð-
unarstaðir munu eiga erfitt
með að uppfylla þessar kröf-
ur auk þess sem lágt um-
hverfishitastig hér norður
hjá okkur dregur úr hraða
gasmyndunar.
Jafnframt er ljóst að svo-
nefnd brennslutilskipun
EES mun hafa áhrif á sorp-
brennslu hér þar sem mjög __________
auknar kröfur eru gerðar
til hreinsunar reyks frá
brennsluofnum. Kröfur um mæling-
ar á útblæstri mengandi efna eru og
harðar og nauðsynlegur búnaður til
þess að uppfylla þessar kröfur er
dýr.
Minnkandi urðun
Kröfur eru gerðar um minnkandi
urðun. Hertar kröfur eru um endur-
nýtingu úrgangs og endurnotkun.
Krafa um endumotkun (reuse) felur
einfaldlega í sér að úrgangur verði
notaður aftur, en endumýting
(recovery) getur falið í sér bæði end-
urvinnslu (recycling) og orkuvinnslu
og jarðgerð. Það háir okkur við end-
urnýtingu til orkuvinnslu að mest af
úrgangi fellur til á svæðum sem hafa
hitaveitur, tiltölulega lágan hitunar-
kostnað.
Til greina kemur að flytja sorp til
kaldra svæða og brenna þar, nýta
hitaorkuna til upphitunar vatns og
koma þannig upp varmaveitum.
Þannig vinnst tvennt, kröfum EES
yrði fullnægt um endurnýtingu og
orkuframleiöslan kæmi að gagni.
Guðmundur G.
Þórarinsson
verkfræöingur
Verulegur varmi fæst við
t.d. brennslu hjólbarða og
ýmiss konar plastafurða
s.s. bændaplasts. í flestum
tilvikum er brennsla mun
dýrari en urðun, en sala
varma getur minnkað óhag-
ræðiö. Sorpa vinnur veru-
legt magn af metangasi á
sínum urðunarstað og er
nú senn að flytja inn bíla
sem nota gasið sem orku-
gjafa. Það ætti að flokkast
sem endurnýting sam-
kvæmt kröfum EES.
Kröfur og magn
Á íslandi falla til um 230.000 tonn
af úrgangi á ári. Talið er að um
60.000 tonn af því séu ýmiss konar
umbúðir. Samkvæmt kröfum EES
skulu eftir 1. júlí 2001 minnst 50% af
umbúðum, eftir þyngd, vera endur-
nýtt. Af heildarumbúðaúrgangi
skulu 25-45 % vera endurunnin á
þessum tíma og minnst 15% af um-
búðaúrgangi í hverjum flokki, en
umbúðir eru flokkaðar í 7 flokka.
Þetta dæmi sýnir hve ítarlegar þess-
ar kröfur eru.
Nú er sérstaklega til skoðunar
hvemig ná megi þessum mörkum
fyrir pappafernur sem eru drykkjar-
vöruumbúðir og notaðar utan um
ýmsa matvöm. Flokkun úrgangs er
viðamikið verkefni á næstu árum
þannig að tryggja megi að kröfum
verði fullnægt í hverjum flokki. Um-
hverflsráðherra hefur brugðist vel
við og nú er að láta hendur standa
fram úr ermum.
Guðmundur G. Þórarinsson
Stöðva ekki
landsbyggðarflóttann
Jón Kristjáns-
son, alþingis-
maöur Fram-
sóknarflokksá
Austurlandi.
jarðgöng, brýr, þjóðvegi
o.þ.h. Ef við viljum standa
jafnfætis þessum þjóðum
verðum við að taka okkur á.
Einhverjir segja að lands-
byggðarflóttinn stöðvist ekki
með jarðgöngum en ég vil
taka það fram að það þarf
fleiri þætti til að halda aftur
af honum - ekki bara jarð-
göng.“
r„Sem gamall
landsbyggðarmaður
er ég náttúrlega
ekki að setja mig
upp á móti bættum samgöng-
um. Ég er fylgjandi jarðganga-
gerð fyrir austan sem ég tel
vera lykilatriði fyrir stóriðju en
hins vegar er ég mjög á móti
nýjum jarðgöngum fyrir norð-
an, t.a.m. um Siglufjörð og
Ólafsfjörð. Á meðan suðvestur-
Gunnar I. Birg-
isson alþingis-
maöur Sjálf-
stæöisflokks á
Reykjanesi.
homið er svelt fjárhagslega og
menn setja fyrir sig tvöfóldun
Reykjanesbrautar fyrir 2 millj-
arða er verið að tala um að
setja 35 milljarða í jarðgöng.
Það hefur sýnt sig að jarðgöng
stöðva ekki landsbyggðarflótt-
ann, fólk heldur áfram að fara
og ég tel að fjármununum væri
betur varið í þróun á upplýs-
ingatækni og bætta útgerð á
þessum stöðum.“ -KG
á landsbyggðinni
Fyrirætlanir um stórfellda útgjaldaaukningu til jarðgangageröar á íslandi hafa falliö í misgrýttan jaröveg. Andstæöingar benda á kostnaöinn sem þessu fylgir um leiö og brýn samgöngu-
verkefni á suövesturhomi landsins sitji á hakanum. Aörir segja loksins, loksins, og fagna því aö íslendingar hafi ákveðiö aö standa jafnfætis öörum Evrópuþjóöum í landsamgöngumálum.
Efég verð kosinn œtla ég að sjá til þess
að ungir afbrotamenn...
ir tvennt. í fyrsta lagi hafa margir selt
kvóta sinn og hætt veiðum. Það var
einmitt það, sem stefnt var að í upp-
hafi. Þetta hefur gerst í sæmilegri sátt,
menn verið keyptir út af íslandsmið-
um, ekki hraktir út. Og í öðru lagi hafa
langflestir þeir, sem hafa nú kvóta,
greitt eitthvað fyrir hann. Hvers vegna
kaupa eigendur Vatneyrarinnar ekki
kvóta eins og þeir?
Aðaiatriðíð
Ævar R. Kvaran, lögfræðingur og
leikari, sagði eitt sinn, að hann hefði
gleymt öllu þvi, sem honum hefði ver-
ið kennt i lagadeild, en hann iðraðist
síður en svo laganámsins, því að hann
hefði þar lært að greina í milli aðal-
atriða og aukaatriða.
Frá sjónarmiði dómara í Vatneyrar-
málinu er aðalatriðið ekki, hvort
kvótakerfið sé gott eða vont eða hvort
menn græði of mikið eða lítið á þvi,
heldur hvort brotið hafi verið á eigend-
um Vatneyrarinnar með upphaflegri
úthlutun kvótanna. Ég fæ ekki séð,
hvernig það hafi verið gert.
Dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Ummæli
Rýrnandi fag-
mennska
„Undanfarin ár
hefur fjölgun mat-
reiðslu- og þjóna-
nema í Hótel- og
veitingaskólanum
staðið í stað eða
þeim jafnvel farið
fækkandi ef eitthvað
er. Er skólinn þó með frábæra aðstöðu
fyrir kennslu í þessum greinum... Á
nánast hvem einasta matsölustað og
hótel í borginni og úti á landsbyggð-
inni vantar faglærða matreiðslumenn
og þjóna. Fer ástandið sifellt versn-
andi með fjölgun staðanna sem margir
hverjir hafa brugðið á það ráð að ráða
til sín ófaglært fólk í stöðurnar."
Jakob H. Magnússon matreiðslu-
meistari, í Mbl. 4. april
Þrælabúðir nektar-
dansmeyja
„Svona samningur
er engum bjóðandi og
greinilegt á honum
að þessir erlendu
nektardansarar eru
að koma hingað til
lands í algerar þræla-
búðir... Mér finnst
lika athyglivert að sérstaklega sé getið
um að vændi sé bannað og virðist
nektarstaðurinn þama vera að tryggja
sina stöðu. Aftur á móti virðist mér
erfitt að sjá hvar mörkin liggja milli
vændis og þeirrar þjónustu sem á sér
stað í þessum sérstöku VIP-klefum.“
Ásta Ragnheiöur Jóhannesdóttir alþm.,
í Degi 4. apríl.
Alvarlegt umhugs-
unarefni
„Kjarasamningur Flóabandalagsins
og Samtaka atvinnulífsins var sam-
þykktur með 26 atkvæða meirihluta í
atkvæðagreiðslu... Það er athygli vert,
hve naumur meirihlutinn fyrir samn-
ingunum er, og ef til viil bendir hann
til þess, að fólk hafi gert sér meiri
vonir um kjarabætur í þvi góðæri,
sem ríkt hefur. En áhugaleysið er
alvarlegt umhugsunarefni."
Ónafngreindur leiöarhöfundur, í Mbl. 4.
apríl.
Slakir samningar?
„Ég tel samning
okkar í Flóabandalag-
inu góðan, hann veit-
ir okkar fólki launa-
bætur og einnig er
hægt að opna hann
að ári ef verðbólga
minnkar ekki eða ef aðrir hópar fá
meiri launahækkanir en okkar fólk.“
Siguröur T. Sigurösson, form. Verka-
mannafél. Hlífar, í Degi 4. apríl.
fái sömu meðferð
og áóma og fullorðnir.
)
Afhverju? Glœpum unglmga
er þegar farið að fækka.
Þá megum við engan
tíma missaU
‘T
Koltvísýringur -
auðlind á villigötum
Loftslag jarðar gæti verið
að breytast af mannavöld-
um. Það stafar af uppsöfnun
svokallaðra gróðurhúsaloft-
tegunda í andrúmsloftinu.
Koltvísýringur (C02) er
langveigamestur gróður-
húsalofttegimdanna eða um
tveir þriðju hlutar þeirra.
Styrkur þess í andrúmsloft-
inu hefur aukist um 30% á
síðustu 200 árum, fyrst og
fremst vegna bruna elds-
neytis úr jörðu og land-
hnignunar, einkum skó-
geyðingar og jarðvegsrofs. Með sama
áframhaldi myndi magn C02 tvöfald-
ast til ársins 2100, auk þess sem
magn annarra gróðurhúsaloft-
tegunda mun einnig aukast.
Afleiðingar gætu orðið uggvænleg-
ar. Öfgar í veðurfari myndu aukast,
lægðir dýpka, loftslagsbelti færast
til, eyðimerkurnar stækka, og líf-
fræðilegum fjölbreytileika yrði ógn-
að. Spár gera jafnvel ráð fyrir hrað-
ari loftslagsbreytingum en nokkru
sinni fyrr á síðustu 10.000 árum.
Áhrif á samfélag þjóðanna yrðu mik-
U.
Greiðum koiefnisskuldina við
landið
Aukinn styrkur koltvísýrings í
andrúmslofti er ógn við framtíð jarð-
arbúa. En það má einnig líta á
koltvísýringinn sem auðlind á villi-
götum. Við ljóstillífun tekur gróður-
inn til sín kolefnishlutann og breytir
því í lífræn efni, en skilar súrefninu
út í andrúmsloftið. Lífræna efnið er
ekki aðeins i gróðri ofanjarðar. Stór
hluti af því geymist í jarðveginum og
er grundvöllur að frjósemi lands og
þar með undirstaða landkosta um
heim allan.
Hvað okkur íslendinga varðar eig-
um við stóra kolefnisskuld að gjalda
við landið vegna gróður- og jarð-
vegseyðingar. Talið er að ígildi allt
að 1,6 milljarða tonna af CÖ2 hafi
glatast úr vistkerfum landsins á síð-
ustu 1100 árum. Til samanburðar
nemur „losun“ gróöurhúsaloft-
tegunda af manna völdum hér á
landi „aðeins" rúmum 3 milljónum
tonna á ári.
Með landgræðslu og skógrækt er
unnt að binda mikið kolefni, þ.e.
skila því aftur til jarðar og endur-
heimta um leið frjósemi landsins,
þjóðinni allri til hagsbóta. Slík
kolefnisbinding er jafnframt afar
hagkvæmur valkostur við að mæta
þeim markmiðum loftslagssáttmál-
Andrés Arnalds
fagmálastjóri Land-
græöslu ríkisins
ans að halda styrk gróður-
húsalofttegunda í lofthjúpn-
um innan hættumarka svo
áhrif manna á loftslag jarð-
ar verði sem minnst.
Kolefnisbinding er
hagkvæm leið
Ríkisstjórnin hefur á
undanfórnum árum variö
450 milljónum kr. til sér-
staks átaks í landgræðslu
og skógrækt. Markmið þess
er að á þessu ári hafi tekist
að auka bindingu koltvísýr-
ings um 100 þúsund tonn miðað við
1990. Verkefnið hefur gengið ákaf-
lega vel og er nú þegar ljóst að ár-
angurinn er langt umfram vænting-
ar. Það stafar annars vegar af meiri
afköstum við landgræðslu og skóg-
rækt en reiknað var með, hins vegar
af því að kolefnisbinding í jarðvegi
er óvenjumikil hér á landi miðað við
önnur lönd.
í „Átakinu" hefur allur stofn-
kostnaður verið að fullu greiddur
samhliða framkvæmdum. Það veld-
ur því hins vegar að ýmsum hefur
virst að kolefnisbinding sé mjög dýr
leið til að koma í veg fyrir aukningu
koltvísýrings í andrúmsloftinu. Svo
er ekki. Þessi stofnkostnaður skilar
mikilli kolefnisbindingu um áratuga
skeið og árlegur kostnaður er því lít-
iil.
Nefna má sem dæmi til að skýra
þetta betur að kolefnisbinding vegna
„Átaksins" nægi að mæta aukinni
mengun vegna fjölgunar bíla 1990 til
2000, og reyndar gott betur, næstu
áratugina. Kostnaðurinn er jafn-
framt aö fullu greiddur.
Ef uppgræðslukostnaði er deilt
niður á 50 ár og reiknað með 5%
vöxtum á upphaflega fjárfestingu
verða kostnaðartölurnar lágar, eða á
bilinu 400 til 700 kr. á hvert tonn
CÖ2 eftir bindingarhraða. Þetta eru
sambærilegar tölur við það sem er
algengt við góðar aðstæður erlendis.
Þjóðhagslegt gildi kolefnisbinding-
ar með landgræðslu og skógrækt er
mikið, t.d. vegna hagkvæmari land-
búnaðar, skóga, skjóls gegn vindum
og skafrenningi og bættrar vatns-
miðlunar. Það væri þvi æskilegt aö y
„mengunarvaldar", stjómvöld og all-
ir aðrir sem hagsmuna eiga að gæta
standi saman að verkefnum við
kolefnisbindingu, stórum sem smá-
um, samhliða því að leitað verði
leiða til að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda.
Andrés Amalds
„Þjóðhagslegt gildi kolefnisbindingar með landgrceðslu
og skógrœkt er mikið, t.d. vegna hagkvœmari landbún-
aðar, skóga, skjóls gegn vindum og skafrenningi og
bœttrar vatnsmiðlunar. “