Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
DV
Fréttir
Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, 30 ára, lamaðist og varð spastísk af fyrirburagulu:
Bíðum spennt og von-
umst eftir kraftaverki
- segir faðirinn eftir rafskautaaðgerð sérfræðings frá Oxford sem kom til íslands
„Við erum auðvitað mjög spennt
og vonumst eftir kraftaverki. Það er
búið að bíða eftir því allt lif
stúlkunnar. En þaö má vissulega
ekki gera sér óraunhæfar vonir,“
sagði Ástráður Hreiðarsson, læknir
og faðir Ásdísar Jennu, sem hefur
verið lömuð og spastísk frá fæðingu
þar sem hún kom í heiminn fyrir
tímann og fékk alvarlega fyrirbura-
gulu á sjúkrahúsinu á Akureyri fyr-
ir rétt um 30 árum.
Fjölskylda Ásdísar og reyndar
nokkurra annarra sjúklinga með
mismunandi sjúkdóma hér heima
biða nú eftir að sjá árangur af að-
gerðum heila- og taugaskurðlæknis-
ins Titu Aziz frá Oxford og Garðars
Guðmundssonar á heila- og tauga-
deild Landspítalans I Fossvogi.
Komi til verkfalls:
Áhrifanna
mun gæta
víða
„Komi til verkfalls mun áhrif-
anna gæta víða og þau koma fljótt
fram,“ segir Snær Karlsson hjá
Verkamannasambandi íslands, en
svo kann að fara að verkfall VMSÍ
á landsbyggðinni skelli á á mið-
nætti í kvöld.
Bein áhrif verkfallsins verða
ekki mikil á höfuðborgarsvæðinu
þar sem Flóabandalagið samdi
fyrir hönd verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, Hafnarfirði og á Suð-
urnesjum, en áhrifanna mun
strax fara að gæta á landsbyggð-
inni. Þannig leggst fiskvinnsla
t.d. strax niður um allt land og
starfsemi lamast í afurðastöðvum,
s.s. mjólkur- og kjötiðnaöarstöðv-
um, og ræstingar leggjast af viða.
Allir flutningar á landi leggjast
niður og verkfallið mun hafa
áhrif á flug á einhverjum stöðum.
Bensín verður ekki afgreitt eftir
aö birgðir á bensínstöðvum þrjóta
en þangað til geta menn keypt
bensín í sjálfsölum. -gk
DVJilYND ÞOK
Veðurhorfur á Alþingi
Snarpar og heitar umræöur uröu á þingi í gær um þingsályktunartillögu Kristjáns Pálssonar þar sem gert er ráö fyrir
aö gömul, íslensk veöurheiti fái aö halda sér en víki ekki fyrir nýjum alþjóölegum mælieiningum sem Veðurstofan hef-
ur tekiö upp. Kristján sést hér á miöri mynd viö hlið Péturs Blöndal en aö bakl þelm sitja framsóknarráöherrarnir Ingi-
björg Pálmadóttir, en yfír henni viröist lægö, Páll Pétursson, sem lítur allhvasst til suöausturs,
og Halldór Ásgrímsson sem er eins og logniö sjálft.
70 prósent líkur á bata
En hverjar eru batavonir Ásdísar
Jennu og hvemig á slíkt sér stað?
Ástráður faðir hennar segir að nú-
tíma læknavísindi hefðu gert kleift
- með réttum tækjum og viðeigandi
rafskautstækni og þekkingu - að
ákveðnar stöðvar í heila fólks séu
örvaðar í þeim tilgangi að láta
vöðva fólks slaka á, t.a.m. hjá fólki
sem er með Parkinsonveiki á háu
stigi. Leiðslur og vírar gera raf-
örvunina mögulega með tækni sem
afar vandasamt er aö framkvæma.
Ástráður segir að hér sé í raun um
að ræða myndgreiningu í þrívídd.
Áður en aðgerðin var fram-
kvæmd á Ásdísi Jennu, á höfði og
brjóstkassa, taldi læknirinn frá Ox-
ford að 70 prósent líkur væru á að
hún fengi bata. Batinn kemur hins
vegar ekki í ljós að fullu fyrr en
hægt er að hleypa rafstraumi á
stöðvarnar sem eiga að láta
vöðvana slaka á. Slíkt vilja lækn-
amir hins vegar ekki gera fyrir en
sárin eftir aðgerðina á höfði og
brjóstkassa eru gróin. -Ótt
Miklar vonir eru bundnar
við aðgerðimar.
Stórkostlegt að fá
lækninn
„Það er stórkostlegt að
þessi læknir og viðeigandi
tæki séu komin hingað til
lands," sagði Ástráður. Saga
Ásdísar Jennu er sú að hún
fæddist fyrir tímann árið
1970 á Akureyri og fékk fyr-
irburagulu sem skaðaði
heilastöðvar hjá henni. Hún
varð lömuð og spastísk og
hefur ekki haft stjórn á
vöðvum. Einnig er hún
heyrnarskert og fékk t.a.m.
heyrnartæki þegar hún var
aðeins þriggja mánaða. Ás-
dís Jenna hefur ekki getað
gengið og heldur ekki náð
að stjóma handleggjum sem
oftast eru á mikilli hreyfmgu. Hún
hefur náð að stjóma sér í rafmagns-
hjólastól með því að þrýsta hökunni
á takka og blæs í munnstykki svip-
að og leikarinn frægi Christofer
Reeves, fyrrum Superman. Engin
DV-MYND TEÍTUR
Var í aðgerð - árangurs beðið
Ásdís Jenna liggur nú á Borgarspítalanum.
Læknir segir 70 prósent líkur á bata.
lyf hafa virkað vel á þau vandamál
sem Ásdís Jenna hefur átt við að
stríða.
Hún nemur guðfræði við Háskóla
íslands. Sambýlismaður hennar er
Heimir Karlsson nemi.
Enn um launaóreiðu í Iðnskólanum í Reykjavík:
Deildarstjórar eiga um
11 milljónir inni
- skipulagið vitlaust og ýmsir vanhæfir, segir trúnaðarmaður
Ljóst er að Iðnskólinn í Reykjavík
þarf að greiða flestum af 25 deildar-
stjórum skólans umtalsverðar fjárupp-
hæðir vegna vangreiddra launa frá
upphafl ráðningar þeirra á miðju ári
1998. Þetta er ljóst orðið í framhaldi af
sátt sem náðst hefur um málefni deild-
arstjóra milli Kennarasambands ís-
lands annars vegar og fjármála- og
menntamálaráðuneytis hins vegar.
Samkvæmt heimildum DV er upphæð-
in áætluð ríflega 11 milljónir króna.
Áður hafði komið í ljós, að vangreidd
laun til kennara skólans vegna prófa-
vinnu fyrir vor 1999 námu a.m.k. 4
milljónum króna. Er þá enn eftir aö
endurskoða fjórar annir af sömu
ástæðu. Samkvæmt þessu má gera ráð
fyrir að allar leiðréttingar á launum
deildarstjóra og
kennara IR nemi
vel á þriðja tug
milljóna króna.
Upphaf „deild-
arstjóramálsins"
má rekja til þess
að Kennarasam-
band íslands
höfðaði mál fyrir
félagsdómi. Mál-
ið snerist um
vangreiðslu á
launum til deild-
arstjóra. Þá hafði
áheymarfulltrúi
kennara í skóla-
nefnd sent
menntamálaráð-
Enn eru að koma fram í dagsljósiö
leiöréttingar sem IR þarf aö gera
vegna vangoldinna launa til kennara
og deildarstjóra skólans. Þá hefur
komiö í Ijós að deildarskipulagiö í
skólanum er meira eöa minna vitlaust
og ýmsir deildarstjórar vanhæfir.
herra • erindi
með fyrirspurn
um deildaskipu-
lag og faglegt
hæfi deildar-
stjóra. Síðan
náðist sátt í mál-
inu og mennta-
málaráðuneytið
og fjármálaráðu-
neytið sendu
skólanum skýr-
ingar við lög,
reglugerðir og
kjarasamninga.
Þar kemur fram
að málið varðar
alla framhalds-
skóla í landinu
en engan skóla þó með jafhafgerandi
hætti og Iðnskólann í Reykjavík. Auk
leiðréttinga á vangreiddum launum er
skólanum gert að ráða bót á öllum
ráðningarmálum deildarstjóra nú í
vor.
„Bréf menntamálaráðuneytisins
staðfestir að deildarskipulagið er
meira og minna vitlaust," sagði Baldur
J. Baldursson, trúnaðarmaður kenn-
ara. „Ýmsir deildarstjórar sem skóla-
meistari og skólanefnd hafa ráðið eru
vanhæfir samkvæmt úrskurðinum."
Fjármálaráðuneytið áætlar að hugs-
anlega þurfi að leiðrétta laun í fleiri
framhaldsskólum. Það er þó metið svo
að ekki sé um að ræða rangfærslur
sem komist í hálfkvisti við það sem
verið hefur í Iðnskólanum. -JSS
Akall til samgönguráöherra
Forsvarsmenn
sveitarfélaga á Vest-
fjörðum hafa sent
samgönguráðherra
og Álþingi ákall um
gerð Vestfjarðavegar.
í ákallinu segir að
vegurinn skipti
miklu því byggðimar
séu á jaðarsvæðum og vegna óhag-
stæðrar byggðaþróunar á svæðinu
undanfarin ár verði hann lifæð þeirra.
Stefna Kristnihátíðarnefnd
Hilmar Jónsson leikstjóri og Finnur
Arnar Amarsson leikmyndateiknari
hafa stefnt Kristnihátíðamefnd og ís-
lenska ríkinu til greiðslu á rúmlega
340 þúsund krónum vegna vinnu sem
þeir inntu af hendi við útfærslu hug-
myndar um sérstaka „sögugöngu" á
kristnihátíðinni. Dagur greindi frá.
Eiliðaey ekki seld
Elliðaey á Breiðafirði verður ekki
seld heldur fær vitavörðurinn, Ásgeir
Ámason, sem undanfarin ár hefur haft
umsjón með vitanum sem þar er,
nytjarétt í eynni. Málmey á Skagafirði
verður ekki auglýst til sölu heldur boð-
in sveitarfélaginu til kaups.
Siglingar geti aukist
Þór Jakobsson, veður- og hafisfræð-
ingur hjá Veðurstofu fslands, telur að
siglingar geti aukist mögulega norðan
Síberíu nokkra mánuði á ári í framtíð-
inni vegna bráðnunar og þynningar is-
hellunnar á Norður-íshafi undanfama
áratugi. RÚV greindi frá.
Grófarhúsið
Borgarráð samþykkti í gær tillögu
um að húsið að Tryggvagötu 15, sem
hýsa mun aðalbækistöð Borgarbóka-
safns, Borgarskjalasafnið og Ljós-
myndasafn Reykjavikur, muni heita
Grófarhúsið.
Skuld hækkuð
Starfshópur sem samgönguráðherra
skipaði seint á siðasta ári hefur komist
að þeirri niðurstöðu að vegna breyt-
inga á efnahagsreikningi Landssímans
hefur skuld hans við ríkissjóð hækkað
um fjóra milljarða króna.
Ekki í varaformann
Bryndís Hlöðvers-
■ dóttir hefur ákveðið
■ að gefa ekki kost á
■ sér í varaformanns-
& £■ kjöri Samfylkingar-
■ AH innar. Hún segir
■ mikilvægt að alþýðu-
A JHB bandalagsfólk komi
^sameinað til stofn-
fundar og mótframboð gegn Margréti
Frimannsdóttur sé ekki til þess fallið.
Áhugi á rafrænni afþreyingu
íslendingar hafa tilhneigingu til að
vinna iengur en tíu stundir á dag, flest
samskipti þeirra em í gegnum farsíma
og tölvupóst og þeir em ákaflega
áhugasamir um rafræna afþreyingu,
allt frá kvikmyndum yfir í vefráp, að
því er segir í nýlegri grein á vef banda-
ríska dagblaðsins USA Today en grein-
in heitir „Iceland warms to the Net“.
Mbl.is greindi frá.
Sýnir ekki kostina
Sverrir Hermanns-
son, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segir
skýrslu Halldórs Ás-
grimssonar utanrikis-
ráðherra ekki sýna
kosti þess að ísland
gerist aðili að Evrópu-
sambandinu.
Mynd og efhi
Tekið skal fram að mynd af
einstaklingi sem birtist með kjallara-
grein hér í DV í gær undir yfirskriftinni
Klónaðir Qölskyldufeður, tengist e&i
kjallarans ekki á neinn hátt. -hdm