Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
J>V
7
Fréttir
Víkingaskipiö Islendingur er nú í slipp þar sem þaö veröur
olíuboriö og maökvariö.
Áætlaö er aö siglingin til New York taki um fjóra mánuði.
Víkingaskipið íslendingur í slipp í Njarðvík:
Verður varinn fyr-
ir vatni og maðki
- áhöfnin að mestu skipuð sjómönnum úr Eyjum
Víkingaskipið íslendingur er nú í
slipp í Njarðvík þar sem verið er að
undirbúa það undir siglinguna
miklu til New York. Verið er að ol-
íubera skipið og dytta að því, að
sögn Gunnars Marels Eggertssonar
skipstjóra. „Það er verið að gera
hann flottan og flnan fyrir sigling-
una,“ sagði Gunnar. „ Auk þess er
verið að setja á hann botnfarva sem
hrindir frá alls konar kvikindum,
eins og maðki sem vill leggjast á
tirnbur."
Gunnar Marel sagði að nú væri
búið að ákveða hverjir yrðu í áhöfn-
inni í siglingunni til New York. Sam-
tals yrðu það níu manns. Kjarninn í
henni yrði sjómenn frá Vestmanna-
eyjum sem væru búnir að vera
meira og minna saman til sjós í 25
ár. Þeir eru: Gunnar Marel skip-
stjóri, Jóel Gunnarsson stýrimaður,
Elías V. Jensson, Herjólfur Bárðar-
son, Hörður Guðjónsson, Hörður Ad-
olfsson, Pálmi Ásgeir Magnússon og
Stefán Geir Gunnarsson. Þá yrði ein
kona í áhöfninni, Ellen Ingvadóttir.
„Áhöfnin var valin með tilliti til þess
að menn þekktust vel og hefðu unn-
ið saman,“ sagði Gunnar Marel.
íslendingur mun leggja upp frá
Reykjavík 17. júní næstkomandi.
Siglt verður til Bröttuhlíðar í Græn-
landi og þaðan til Nýfundnalands.
Þar verður komið við á einum tíu
stöðum. Síðan verður haldið frá
Saint
JohnYs á Nýfundnalandi, yfir til
Halifax, Boston, New Port og New
York. -JSS
ittahllð.
Reykjavík
Hudsonflói
L'Amse-Aux-Meadows
Halifax
Mikiö landbrot við Vík frá áramótum:
Tugir metra
hafa tapast
DV, VIK I MYRDAL:
„Upp úr áramótum virð-
ist landbrot hafa verið
mikið hér. Ég hef engar
tölulegar upplýsingar um
hversu mikið það er, við
höfum ekki enn haft tök á
að mæla það,“ sagði
Sveinn Pálsson, verkfræð-
ingur Víkurhrepps, í sam-
tali við DV í gær. Sam-
kvæmt heimildum DV
hafa nokkrir tugir metra
af melkollum orðið sjón-
um að bráð á þessum
harkalega vetri.
Sveinn segir að menn
hafi vissulega áhyggjur af
hvar landrofið endar.
„Þegar menn horfa til
baka og sjá hvar strand-
lengjan lá um aldamótin
fyrir síðasta Kötlugos þá
er hún komin skuggalega
nálægt núverandi byggð,“
sagði Sveinn. Upp úr 1990
fóru menn að velta fyrir
sér vörnum en þær eru
enn ekki komnar á áætlunarstig.
Þær munu kosta mikla fjármuni.
„Það hefur verið landrof hér
meira og minna frá 1970. Sjórinn
hefur tekið úr fjörunni og heldur fór
þá að hallast á ógæfuhliðina. Upp úr
1990 varð aftur mikið landrof hér
DV-MYND SIGURÐUR HJALMARSSON
Landið hverfur burt
Þorbergur Einarsson, gamall bæjarstarfsmaöur í Vík, skoöar ummerkin eftir landbrotiö
frá áramótum. Attmargir metrar lands hafa tapast. Myndin er tekin viö Bás, suövestur af
þorpinu sem sést í baksýn. Bratthóll sést beint upp af kirkjunni.
fyrir framan. Líklega hafa hefð-
bundnar vindáttir ekki rikt á þeim
árum, meira suðvestlægar áttir sem
hafa gert landbrotið meira,“ sagði
Sveinn Pálsson.
Landbrot hefur staðið þarna allt
frá síðasta Kötlugosi árið 1918.
Stöðugt hverfur úr melkantinum og
landið minnkar, mismikið eftir
vindáttum. Eftir Kötlugos færist
flaran á Mýrdalssandi mikið út og í
hefðbundinni suðaustlægri átt fær-
ist sandurinn til vesturs af Reynis-
fjalli og bætir við landið. -SKH
Landssöfnun til styrktar Svavari Guðnasyni:
Er sjálfur að safna
- og genginn í Frjálslynda flokkinn
Svavar Guðnason, útgerðarmað-
ur á Patreksfirði, neitar að gefa upp
hversu mikið fé hefur safnast á
bankareikning sem hann sjálfur
stofnaði á eigin kenntölu í Búnaðar-
bankanum í Garðabæ sjálfum sér til
styrktar í baráttunni fyrir breyttu
kvótakerfi. Aðilar sem Svavar hefur
nefnt sem aðstandendur landssöfn-
unarinnar þvertaka fyrir að eiga
þar hlut að máli.
„Ég kem ekki nálægt þessu og hef
aldrei gert,“ sagði Jóhannes Egg-
ertsson skipamiðlari sem Svavar
hafði nefnt sem forsvarsmann
landssöfnunar sinnar.
„Svavar er kunningi minn
og það var ég sem seldi
honum Vatneyrina á sinum
tíma. En ég er ekki að
safna peningum fyrir
hann,“ sagði Jóhannes.
„Fólk þarf ekki að halda
að ég ætli að nota þessa
peninga fyrir salti í graut-
inn. Ég hleypti þessari
landssöfnun af stað fyrir
áeggjan fjölmargra stuðn-
ingsmanna og mun gera
grein fyrir öllum útgjöldum
Svavar
Guðnason
Peningarnir fara
ekki í salt
í grautinn.
þegar þar að kemur,“ sagði
Svavar Guðnason sem er
staddur í Reykjavík í erind-
rekstri tengdum Vatneyrar-
dómnum svo og til að
sækja fund hjá Frjálslynda
flokknum um kvótamál en
Svavar er nýgenginn í
flokkinn: „Frjálslyndi
flokkurinn er flokkur fyrir
mig og ég styð hann heils-
hugar í baráttunni fyrir
breyttu fiskveiðistjórnun-
arkerfi," sagði Svavar
Guðnason. -EIR
'eica
KUCHEH TECHMIK
Tilbo&sverö kr. 38.700,
Litaval:
Hvítt eða dökkt
Heimilistæki - 3 í setti
Vönduð vnrn á frábæru verÖi
stgr.
Gufugleypir Tub 60
• 3ja hraða með Ijósi
• sog 325 m2 á klst.
Helluborð E60,1
• 4 steyptar hellur
með áföstu takkaborði
Innbyggður ofn HT410
• undir- og yfirhiti
• 4 eldunaraðgerðir
grill
litur stál, hvítt eða dökkf mótordrifinn grillteinn
Tilbo&sverö kr. 72.400,-
stgr.
Litaval:
Hvítt eða dökkt
'*-v - : -■
Gufugleypir Tub 60
• 3ja hraða með Ijósi
• sog 375 m2 á klst.
Keramikhelluborð
VTC-M
• 4 High Light hraðhellur
með áföstu takkaborði
Innbyggður ofn HT610
• fjölvirkur blástursofn
• 3 hitaelement
• 8 eldunaraðgerðir
• sjálfhreinsibúnaður
• mótordrifinn grillteinn
• forritanleg klukka
Tilbo&sverð
kr. 83.900,- stgr.
Litaval: Burstað stál
Gufugleypir Tub 60
• 3ja hraða með Ijósi
• sog 325 m2 á klst.
• króm
f.______— ,
Keramikhelluborð
VTC-M
• 4 High Light hraðhellur
með áföstu takkaborði
Innbyggður ofn HT635
• fjölvirkur blástursofn
• 3 hitaelement
• 8 eldunaraðgerðir
• sjálfhreinsibúnaður
• mótordrifinn grillteinn
• forritanleg klukka
• innbyggð kælivifta
INNRETTINGAR
JfcTÆKL
HEILK&UpttfUNIN
Vi& Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14