Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Page 8
8
Viðskipti_____________________________________________
Umsjón: Viðskiptabia&ið
Jákvæð afkomu-
viðvörun frá FBA
- hluthöfum og starfsmönnum boöiö að kaupa hlutabréf í deCODE samhliða skráningu á Nasdaq
Rekstur FBA gekk umtalsvert betur
á fyrsta ársfjórðungi en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Þá kemur fram í frétt
frá FBA að hluthöfum bankans verði
boðið að kaupa hlutabréf félagsins,
samtals 625 þúsund hluti, í deCODE
genetics Inc. í tengslum við skráningu
á NASDAQ. Þá hafa höfuðstöðvar
FBA við Ármúla verið seldar en sölu-
hagnaður vegna þeirra er 77 milljónir
króna.
Óendurskoðað árshlutauppgjör
FBA fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins
2000 verður birt 2. maí nk. f rekstrar-
áætlun bankans fyrir yfirstandandi
rekstrarár var gert ráð fyrir að heild-
arhagnaður ársins fyrir skatta yrði
um 1.763 milljónir króna. Rekstur
bankans á fyrsta ársíjórðungi gekk
umtalsvert betur en gert var ráð fyrir
í rekstaráætluninni og er útlit fyrir að
afkomutölur fyrsta ársfjórðungs muni
endurspegla það mjög vel. Rétt er að
benda á að tekjur félagsins eru háðar
ytra umhverfi og sveiflur í ytri skil-
yrðum geta valdið snöggum breyting-
um á afkomu bankans, bæði jákvæð-
um og neikvæðum.
Olíuframleiðsla:
Annar ekki
eftirspurn
Alþjóðlega orkustofnunin segir í
mánaðarskýrslu sinni að 7% aukning
olíuframleiðslu sem samþykkt var af
OPEC-ríkjunum í mars nægi ekki til
að vinna upp vöxt eftirspurnar eftir
olíu. Stofnunin spáir því að á seinni
hluta ársins verði eftirspum eftir olíu
meiri en framleiðsla komi ekki til
frekari framleiðsluaukningar. Ef sú
verður raunin er hætt við að olía
haldi áfram að hækka í verði á seinni
hluta ársins.
einangrunarglers
fyrir íslenskar aðstæður.
Glerborgargler er framleitt undir
gæðaeftirliti Rannsóknastofiiunar
byggjngariðnaðarins.
GLERÐORG
Dalshrauni 5 220 Haíharfiiði Sími 565 0000
Dísilvélar
Loftkældar dísilválar
frá Yanmar. Stærðir:
3,4-10 Hö m/án rafstarts.
■■■ wam mm
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
Reksturinn hefur gengiö betur en gert var ráö fyrir. Nú er búiö að selja þessa
fasteign viö Ármúla og nemur söluhagnaður 77 milljónum króna.
Sala hlutabréfa FBA í
deCODE
Síðastliðiö sumar keypti FBA
ásamt fleiri innlendum aðilum helm-
ingshlut upphaílegra áhættufjárfesta í
deCODE genetics Inc, móðurfélagi fs-
lenskrar erfðagreiningar. Var tilgang-
ur kaupanna að færa umtalsverðan
hlut bréfanna í hendur íslendinga.
Einnig átti bankinn fyrir eignarhlut í
félaginu. Á fundi stjórnar FBA 3. febr-
úar sl. var ákveðið að stefna að því að
selja eignarhlut FBA í deCODE. Mun
salan fara þannig fram að hluthöfum
FBA mun gefast kostur á að kaupa
hlutabréf bankans í félaginu. Hluthöf-
um FBA mun standa til boða að
kaupa hlutabréfin í samræmi við
eignarhlut sinn í bankanum, sam-
hliða skráningu hlutabréfa deCODE á
NASDAQ, og er þá bankinn laus við
markaðsáhættu sína af bréfunum.
Bókfært verð hlutabréfa bankans í
deCODE er nú um 15 dollarar hver
hlutur en söluverð verður það útboðs-
gengi sem boðið verður þegar skrán-
ing fer fram á NASDAQ. Liklegt er
því að umtalsverður söluhagnaður
myndist þegar bankinn selur bréf sín.
Um er að ræða 625.000 hluti í
deCODE genetics Inc. Fyrir hverjar
10.240 krónur sem hluthafí á að nafn-
verði í FBA býðst honum að kaupa 1
hlut af hlutabréfum í deCODE. Þeim
sem eiga minna en 10.240 krónur að
nafnverði í FBA mun bjóðast að
kaupa 1 hlut. Við söluna verður mið-
að við hluthafaskrá bankans í lok
mánudags, 10. apríl. Verði þátttaka
hluthafa FBA almenn gæti hluthöfum
í deCODE íjölgað um rúmlega fjögur
þúsund. Samhliða sölu til hluthafa
verður starfsmönnum FBA einnig
boðið að kaupa eignarhlut í deCODE.
Tilboðið um sölu hlutabréfanna er
með fyrirvara um að bankaráð FBA
telji útboðsverð hlutabréfa deCODE
samhliða skráningu á NASDAQ vera
viðunandi.
FBA hefur selt helming eignarhluta
síns í fasteigninni að Ármúla 13a sem
verið hafa höfuðstöðvar bankans.
Hagnaður af sölu fasteignarinnar er
um 77 milljónir króna og tekjufærist á
öðrum ársfjórðungi þessa árs.
BskyB kaupir hlut í LetsBuylt.com
- íslenskir fjárfestar meðal hluthafa
Breska fjölmiðlafyrirtækið
BskyB, sem að stærstum hluta er í
eigu fjölmiðlakóngsins Ruperts
Murdoch, hefur keypt hlut í sænska
Internetfyrirtækinu LetsBuyIt.com
fyrir 10 milljónir sterlingspunda,
eða um 1,2 milljarða króna. Meðal
hluthafa LetsBuyIt.com eru íslensk-
ir fjárfestar og íslenski fjárfesting-
arsjóðurinn Arctic Ventures. Við-
skiptavefurinn á Vísi.is greindi frá i
gær.
LetsBu-
ylt.com er
internetfyrir-
tæki sem tengir
saman kaup-
endur að vörum
með það að
markmiði að ná
sem hag-
stæðustum inn-
kaupum. Fyrir-
hugað er að Rupert Murdoch.
taka upp samstarf við BskyB mn
þróun nýrrar vefsíðu innan Inter-
netverslunarsíðu BskyB.
í frétt Bloombergs um kaupin seg-
ir að LetsBuyIt.com hafl að undan-
fornu unnið að því að afla fjár-
magns til að fjármagna vöxt inn á 14
nýja markaði í Evrópu. BskyB til-
kynnti í febrúar síðastliðnum að
fyrirtækið ætlaði að verja um 250
milljónum sterlingspunda til fjár-
festinga í internetfyrirtækjum.
Siðareglur vegna
hlutabréfaviðskipta
Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunn-
ar hefur sett sér siðareglur sem lúta
að hlutabréfaeign og hlutabréfavið-
skiptum fréttamanna. í fréttatil-
kynningu frá Stöð 2 og Bylgjunni
eru nýju starfsreglurnar kynntar en
þær eru þessar: Starfsmenn frétta-
stofu mega ekki fénýta sér, svo sem
með kaupum eða sölu á verðbréfum,
fjármálalegar upplýsingar sem þeir
starfa sinna vegna öðlast fyrir opin-
bera birtingu þeirra. Sömuleiðis er
þeim óheimilt að miðla til annarra
slíkum upplýsingum áður en þær
birtast almenningi.
Fréttamenn mega hvorki kaupa
né selja, hvorki beint né óbeint, fyr-
ir milligöngu þriðja aðila, hlutabréf
eða önnur verðbréf sem þeir hafa í
starfi sinu fjallað um nýlega eða
vita til að þeir munu fjalla um bráð-
lega.
Eigi fréttamaður, maki, sambýl-
ingur eða börn hans hlutabréf að
markaðsvirði 200 þúsund krónur
eða meira i einstöku Islensku fyrir-
tæki ber honum að upplýsa frétta-
stjóra um slíka eign.
Hlutabréfakaup eru að verða æ
algengara sparnaðarform hjá al-
menningi hér á landi, og þá væntan-
Fréttamenn Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
lega ekki siður meðal fréttamanna
en annarra. Það er hins vegar
höfuðnauðsyn fyrir fréttamiðla og
fréttamenn að þeir njóti trausts og
séu t.d. hafnir yfir grun um að
fréttaflutningur þeirra stjórnist með
einhverjum hætti af persónulegum
hagsmunum. Því hefur fréttastofan
sett sér þessar reglur og eru þær í
samræmi við hliðstæðar reglur sem
tiðkast víðs vegar í heiminum -
ekki síst Evrópu og Bandaríkjun-
um.
MIDVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
DV
HEILDARVIÐSKIPTI
445 m.kr.
- Hlutabréf 266 %
- Húsbréf 115 %
MEST VIÐSKIPTI
I Q FBA 57,4 %
íslandsbanki 47,0 %
Össur 44,7 %
MESTA HÆKKUN
i O Fiskiðjusamlag Húsavíkur 9,49 %
O Skýrr 6,25 %
O Auðlind 3,22 %
MESTA LÆKKUN
O ísienski hugbúnaðarsjóð. 3,68 %
O SÍF 3,23 %
o Hraðfrystistöð Þórshafnar 2,91 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1806 stig
; - Breyting Q 0,38 %
FBA lækkaði
Það vekur
óneitanlega at-
hygli að hluta-
bréf FBA lækk-
uðu á VÞÍ í gær.
í gær sendi
bankinn frá sér
jákvæða afkomuviðvörun þar sem
skýrt er frá þvi að hagnaður fyrstu
mánuði þessa árs verði meiri en
gert var ráð fyrir. Lækkunin nam
1,67% og mikil viðskipti voru að
baki þessum viðskiptum. Ekki er í
fljótu bragði hægt að skýra þessa
lækkun því hækkun hefði verið
eðlilegri hreyfmg á VÞÍ í gær m.v.
að jákvæð viðvörun var send út.
pssuismaL síöastliöna 30 daga
. islandsbanki 1.268.760
FBA 1.047.737
Landsbanki 1.043.818
Össur 905.423
:j Opin kerfi 507.215
fl’.UAfHHHIffllP siöastliöna 30 daga
o ísl. hugb.sjóðurinn 48%
O Delta hf. 40%
o Ehfélag Alþ.bankans 35%
O íslenskir aðalverktakar 21%
O Pharmaco 20%
É1 ii /.4feO síbastliöna 30 daga
O ísl. hugb.sjóðurinn 48%
O Delta hf. 40 %
o Ehfélag Alþ.bankans 35%
O íslenskir aðalverktakar 21%
O Pharmaco 20 %
Nasdaq á niðurleið
Hlutabréf hafa verið á niðurleið víða
síðustu daga. Mest hefur lækkunin
verið á Nasdaq-vísitölunni en á mánu-
daginn lækkaði hún um 5,8%. Þegar
markaðir voru opnaðir í gær vestra
hélt vísitalan áfram að lækka en tók
við sér er líða tók á daginn og var lítt
breytt við lokun. Talið er að yfirvof-
andi vaxtahækkun í Bandaríkjunum
sé helsta ástæða lækkunarinnar.
PT^rrrrof
J-L. Ai.La.i4
S^DOW JONES 11287,08 W 0,90%
:l • Inikkei 20833,21 O 1,51%
Is&p 1500,59 O 0,26%
fREÍNASDAQ 4055,90 O 3,16%
ÉÉIftse 6425,10 O 0,72%
P^DAX 7488,39 O 0,61%
I JCAC 40 6300,59 0,63%
______________12.4.20001«. 9.15
KAUP SALA
| Dollar 73,380 73,760
i Pund 116,440 117,030
1*1 Kan. dollar 50,020 50,330
| EBI Dönsk kr. 9,4350 9,4870 ;
SS Norsk kr 8,5980 8,6450
1EJS Sænsk kr. 8,4900 8,5360
H—1R. mark 11,8191 11,8901
B B Fra. franki 10,7130 10,7774
1 B Belg. franki 1,7420 1,7525 i
Sviss. franki 44,6000 44,8500 :
^3 Holl. gyllini 31,8885 32,0801 ;
Þýskt mark 35,9300 36,1459 i
t lít- líra 0,03629 0,03651 :
1 [313 Aust. sch. 5,1069 5,1376
Ei B Port. escudo 0,3505 0,3526
”]spá. peseti 0,4223 0,4249 !
| > |jap. yen 0,69560 0,69980 :
i írskt pund 89,228 89,764
SDR 98,57000 99,16000
| gECU 70,2729 70,6952 ■æessíæsM'KaawsMKSij