Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Side 9
9
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000__________________________________________________
DV Fréttir
Fíkniefnaneytendur sprauta sig á almannafæri:
Sprautur í hrúgu
í kirkjugarðinum
- lítum þetta alvarlegum augum, segir forstjóri Kirkjugaröa Reykjavíkur
DV-MYND S
Notaðar sprautur liaeia á víöavangi í Fossvogskirkjugaröi
Tatsvert hefur fundist afsprautum í kirkjugarðinum upp á síðkastið.
Kirkjugarðsyfirvöld líta málið alvarlegum augum.
Vegfarendur hafa fundið notaðar
sprautur fíkniefnaneytenda liggj-
andi á víðavangi bæði á Selfossi og
í Reykjavík á seinustu dögum.
Á laugardaginn fann maður sem
var að vitja leiðis ástvinar í kirkju-
garðinum í Fossvogi talsvert af
sprautum í hrúgu í kirkjugarðinum.
Hann lét yfirvöld kirkjugarðarins
vita af þessu.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri
Kirkjugarða Reykjavíkur, sagði að
undanfarin ár hafa alltaf öðru
hvoru fundist sprautur í garðinum í
Fossvogi.
Sprauturnar sem fundust nýverið
voru fleiri en venjulega, eða um 10
sprautur í allt, sagði Þórsteinn.
„Það fundust hérna nokkuð marg-
ar sprautur á sama stað, á tveimur
stöðum í garðinum og lítum við það
mjög alvarlegum augum því það er
ákveðin hætta af þessu fyrir börn og
aðra sem kynnu að stinga sig á
þessu,“ sagði Þórsteinn. Hann bætti
því við að sjaldan fyndust sprautur
í öðrum kirkjugörðum bæjarins.
Sprauturnar fundust á bílastæði
við vesturhlið Foggsvogsgarðsins
sem og á göngustíg í garðinum.
Þórsteinn sagði að það liti út fyr-
ir að sprauturnar væru notaðar í
bílum á planinu á nóttunni en mest
hefur einmitt fundist af sprautum
við bílastæði í garðinum.
„Það er eins og fólk sé að koma
sér í skjól, og sprauta sig svo og síð-
an losa sig við sprautumar bara út
um bílgluggann," sagði Þórsteinn.
Þórsteinn sagðist nú samt ekki
telja að það færu fram skipulögð
fikniefnaviðskipti á planinu.
Kirkjugarðar Reykjavíkur eru að
bíða eftir reglugerð sem muni heim-
ila að loka görðunum fyrir bilaum-
ferð á nóttunni sem Þórsteinn sagð-
ist vona að yrði til þess að sprautu-
notendur hættu að nota garðinn.
En það er ekki bara í Reykjavík
sem sprautur liggja á víðavangi.
Hafsteinn Steindórsson var á
göngu á fjölfarinni göngugötu á Sel-
fossi á sunnudagskvöldið þegar
hann fann sprautu liggjandi í mal-
arkanti götunnar.
„Þetta er gata þar sem mikið fer
af krökkum í barnaskólann og ung-
lingaskólann. Það er mikið gengið
eftir þessari götu,“ sagði Hafsteinn
sem hefur búið á Selfossi í 30 ár.
„Þetta er alvarlegt fyrir börnin
sem labba fram hjá og taka kannski
nál eða sprautu frá smituðu fólki.
Þetta er mjög alvarlegt mál.“
Hafsteinn, sem er fangavörður á
Litla Hrauni, fór með sprautuna til
lögreglunnar á Selfossi.
Þegar komið er með sprautur tii
lögreglunnar þá fara þeir með þær á
Sjúkrahús Suðurlands þar sem
sprautunum er eytt á öruggan hátt.
Lögreglan á Selfossi sagði að það
væri ekki alltaf sem sprautur sem
finnast svona á víðavangi hefðu ver-
ið notaðar undir fikniefni - stund-
um nota sykursýkissjúklingar
sprautur og fara ekki eins varlega
með þær og skyldi. -SMK
25. Andrésar andar leikarnir settir á Akureyri:
Leggjum meira
í þetta en áður
— segir Gísli Kr. Lórenzson formaður
DV, AKUREYRI:_______________________
„Það er auðvitað erfitt að toppa
eitthvað sem hefur gengið í 25 ár og
gert sig vel, en við munum í tilefni
þess að þetta eru 25. leikarnir leggja
meira í þetta en venjulega og krakk-
arnir fá að njóta þess“ segir Gísli Kr.
Lórenzson formaður Andrésar andar
nefndarinnar á Akureyri, en nefndin
sér um framkvæmd Andrésar andar
leikanna sem nú verða haldnir í Hlíð-
arfialli í 25. skipti.
Þátttakendur í Andrésar leikunum
að þessu sinni verða um 770 talsins,
sem er svipaður fjöldi og verið hefur
undanfarin ár, og sá fjöldi sem hægt
er að sinna með góðu móti. Mótssetn-
ing verður í íþróttahöllinni annað
kvöld eftir skrúðgöngu frá KA-heimil-
inu. Keppnin sjálf stendur yfir frá
fimmtudegi til sunnudags og að
kvöldi keppnisdagana er efnt til verð-
launaafhendihgar i íþróttahöllinni og
þar verður ýmislegt fleira um að vera.
„Við gerum meira fyrir krakkana
en venjulega í tilefni af þessum tíma-
mótum, verðum með flugeldasýningu
við mótssetninguna, allir þátttakend-
Andrésar-andar leikarnir
— eru með allra fjölmennustu
íþróttahátíðum sem haldnar
eru hér á landi.
ur fá bakpoka með ýmsum gjöfum í,
og verðlaun verða veglegri en venju-
lega. Við reynum að hafa þetta eins
flott og huggulegt og við geturn," seg-
ir Gísli Kr. -gk
Enn um bréfaástir Ólafar og Þorsteins
Málin skýrast
Bréfaástir. Kápumynd Margrét
Magnúsdóttir
Fyrir mistök birtist ekki mynd af bók
Þórönnu með fréttinni á mánudag.
DV sagði frá því í fyrradag að tvær
bækur hefðu verið gefnar út með
bréfaskiptum skáldanna Ólafar á
Hlöðum og Þorsteins Erlingssonar.
Nokkur hula hvildi yfir því þá hvern-
ig annar útgefandinn, Þóranna Tóm-
asdóttir Gröndal, hefði komist yfir
bréfin, en nú hefur málið skýrst. Á
umbúðum bréfanna reyndist vera rit-
hönd þáverandi ritara þjóðminja-
varðar og er helst talið að eigandi
bréfanna, ÁsthOdur Erlingsdóttir,
hafi látið ljósrita þau fyrir sig þar á
stofnuninni, handa Þórönnu, en bréf-
in sjálf voru aldrei afhent safninu,
hvorki frumeintök né ljósrit.
Varðandi BA-ritgerö Þórönnu, sem
varðveitt hefur verið á Háskólasafni
síðan 1991, þá var hún fyrir hand-
vömm á safninu skráð þannig að hún
var ekki leitarbær eftir efnisorðum.
Þessu var ekki kippt í liðinn fyrr en
í febrúar í ár en fram að þeim tíma
þurfti sá sem leitaði að vita nafn höf-
undar eða ritgerðarinnar til að finna
hana en gat til dæmis ekki fundið
hana undir nöfnum skáldanna sem
hún fjallaði um.
Eftir sem áður er óleyst úr spurn-
ingunni um hvort Þórönnu leyfðist
að gefa bréfm út án leyfis núverandi
eiganda þeirra, Helgu Guðrúnar Jón-
asdóttur varaþingmanns og starfs-
manns Jafnréttisráðs.
il| BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
I H BORGARTÚN 3-105 REVKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
^Auglýsing um breytingar á
Aðalskipulagi Reykjavíkur og
deiliskipulag í Reykjavík
Gufuneskirkjugarður/Hallsvegur
( samræmi við 21. gr., sbr. 18. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996-2016. Breytingin felur í sér að
útivistarsvæði til sérstakra nota (Gufuneskirkju-
garður) er stækkað til suð-vesturs um u.þ.b. 2,5 ha.
Undirgöng stofnstígs við Hallsveg færist um 300 m.
til austurs.
Þá er í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga auglýst til kynningar tillaga að deiliskipulagi
þessa sama svæðis. Einnig eru gerðar þær
breytingar aó felld er niður bráðabirgðatenging Halls-
vegar og Gagnvegar um Þverveg, felld niður undir-
göng undir Hallsveg á þessum stað og sýnd fyrir-
huguð aðkoma að Gufuneskirkjugarði frá Hallsvegi.
Hjarðarhagi 45-47-49
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Hjarðarhagi 45-
47-49. Með breytingunni er verið að stækka
verslunar- og þjónustuhús á lóðinni og lóðin stækkar
um 40 m2 til norð-vesturs.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags- og
Byggingarfulltrúa, Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10:00 - 16:00 frá 12. apríl til 10. maí 2000.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags eigi síðar en 24. maí 2000.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan
tilskilins frests, teljast samþykkir.
www.brimborg.is
notaðirbílar
«N>brimborgar
Volvo S70 2,5, 03/97
4 d., grár, ek. 44 þús. km, framdrif.
Verð 2.190.000
Ford Explorer, 4,0,10/96
5 d., grænn, ek. 47 þús. km, 4x4. ssk.
Verð 2.730.000
Ford Puma 1,4,04/99
5 g., 3 d., silfurl., ek. 15 þús. km, framdr.
Verð 1.590.000
Opel Astra 1,6, 10/98
ssk., 5 d., vínr., ek. 14 þús. km, framdr.
Verð 1.490.000
VW Passat 1,8, 04/98
5 g., 4 d., svartur, ek. 30 þús. km, framdr.
Verð 1.680.000
Ford Focus Ghia 1,6, 06/99
5 g., 4 d., beige, ek. 4 þús. km, framdr.
Verð 1.580.000
Ford Mondeo 2,0,11/97 Volvo S40, 07/98
ssk., 5 d„ grænn, ek. 27 þús. km, framdr. ssk„ 4 d„ rauður, ek. 22 þús. km, framdr.
Verð 1.590.000 Verð 1.860.000
<Sr
brimborg
Reykjavlk • Akureyrl
Opið laugardaga 11-16
Brimborg Reykjavík, Bíldshöfða 6, sími : 51 5 7000
Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, sími. 462 2700