Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 11
11
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000_____________________________________________________________________________________________
ÐV Útlönd
Kóngar í veislu Margrétar
Konunglegir
gestir og forsetar
frá átta Evrópu-
löndum hafa til-
kynnt þátttöku
sína í sextugsaf-
mæli Margrétar
Danadrottningar á
sunnudaginn. At-
hygli vekur að
hvorki Elísabet Englandsdrottning
né Karl prins sonur hennar verða í
veislunni. Filippus prins, eiginmað-
ur Elísabetar, verður fulltrúi Eng-
lands.
Serbar myrtu 800 börn
Serbneskir hermenn myrtu að
minnsta kosti 800 böm undir fimm
ára aldri í stríðinu í Kosovo. Þetta
kom fram í leynilegri rannsókn inn-
an hersins.
Kraftaverkapilla gegn fitu
Norskur prófessor, Rolf Kristian
Berge, hefur fundið upp pillu sem
virkar gegn offitu og ýmsum fylgi-
kvillum hennar. Pillan lækkar kól-
esterólmagn og blóðþrýsting og
stjórnar insúlínmagni auk þess sem
hún veldur því að fólk léttist.
Hvetja til verkfalls
Stærstu verkalýðssamtök Bólívíu
hvöttu í gær til allsherjarverkfalls í
dag til að mótmæla neyðarástands-
lögum sem sett voru í kjölfar átaka
vegna fyrirhugaðrar verðhækkunar
á vatni. Neyðarástandslögin eiga að
gilda í 90 daga.
Vísa ákærufrétt á bug
Talsmaður Hvíta
hússins í Was-
hington, Joe Lock-
hart, vísaði í gær á
bug frétt um að
rannsóknarmenn
íhuguðu að ákæra
Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta fyrir
meinsæri og fyrir að hindra fram-
gang réttvísinnar til að reyna að
fela samband sitt við Monicu
Lewinsky, fyrrverandi lærling í
Hvíta húsinu.
Pakkaferöir barnaníðinga
Danskir barnaníðingar
skipuleggja pakkaferðir til Póllands,
Rúmeníu og Eystrasaltslanda. Er
flugfar, gisting og afnot af börnum
innifalið í verðinu, að því er
samtökin Bjargið börnunum í
Danmörku fullyrða.
Andvígir refsingu
Leiðtogar íhalds-
manna í Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku
eru reiðubúnir að
stöðva refsiaðgerðir
gegn Austurríki
jafnvel þó önnur
lönd vilji það ekki.
Leiðtogarnir segj-
ast frá upphafl hafa
verið andvígir því að Austurríki yrði
refsað vegna stjórnarþátttöku flokks
Jörgs Haider, Frelsisflokksins, í
Austurriki.
Kreppa í Zimbabwe
Kreppa er nú í Zimbabwe þar sem
svartir hafa yfirtekið búgarða
hvítra. Mugabe forseti er nú á
leiðtogafundi á Kúbu.
Andstæðingar hnattvæðingar komnir til Washington:
Hert eftirlit til að
afstýra stjórnleysi
Lögreglan í Washington, höfuð-
borg Bandaríkjanna, er við öllu bú-
in til að koma í veg fyrir að and-
stæðingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans hleypi öllu í bál
og brand eins og þeir gerðu í Seattle
í fyrra.
Fjöldi friðsamlegra mótmælaað-
gerða var farinn í Washington í gær
til að fordæma neikvæð áhrif sívax-
andi hnattvæðingar efnahagslífsins.
Fleiri mótmælaðgerðir eru fyrir-
hugaðar alla vikuna vegna fundar
gjaldeyrissjóðsins og bankans.
Mótmælendurnir líta á þessar
tvær stofnanir, svo og Heimsvið-
skiptastofnunina (WTO) sem hina
vanhelgu þrenningu. Þeir saka
bankana tvo um að auka á fátækt í
heiminum með því sökkva fátæk-
um ríkjum æ dýpra ofan i skulda-
fenið.
Þeir róttækustu úr hópi andstæð-
inga hnattvæðingarinnar hafa sak-
að Alþjóðabankann um að bera
Mótmæli í Washington
Andstæöingar Alþjóöagjaldeyris-
sjóösins og Alþjóöabankans standa
fyrir mótmælaaðgeröum gegn hnatt-
væöingu í Washington alla vikuna.
ábyrgð á dauða þrjátíu þúsund
manna á degi hverjum með stefnu
sinni. Margir sérfræðingar segja aft-
ur á móti að mótmælendur hafi
beinlínis rangt fyrir sér og bent er á
að fátækir séu 40 prósent færri nú
en annars hefði verið.
Áróðursmeistarar
lærlingar hjá CNN
Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN
heimilaði starfsmönnum sálfræði-
hernaðardeildar bandaríska hersins
að starfa sem lærlingar á aðalrit-
stjóm stöðvarinnar á meðan á stríð-
inu í Kosovo stóð.
Tímaritið Intelligence, sem fjallar
um njósnamál, greinir frá þessu í
nýjasta tölublaði sínu. Þar kemur
einnig fram að sálfræðihernaðarsér-
fræðingarnir voru einnig á ritstjórn
útvarpsstöðvarinnar NPR sem rek-
in er fyrir almannafé og frjáls fram-
lög einstaklinga.
„Hvort þetta sé pínlegt? Já,“ sagði
talsmaður CNN við breska blaðið
The Guardian í morgun.
,rÚ Ljosmyndastofa Reykjavíkur
Hverfisgötu 105-2. hæð
101 Reykjavík,
; Sími 562 1166 - 862 6636
E-mail: arnah@tv.is
Finnbogi Marinósson
p. U j i Ljósmyndari
I 'ÍÉk M 1 Meðlimur í Ljósmyndarafélagi íslands
Blaðamanns minnst
Konur kveikja á kertum viö minningarathöfn i Belgrad um biaöamanninn
Stavko Curuvija sem var myrtur í apríl í fyrra. Curuvija, sem gagnrýndi
serbnesk stjórnvöld, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt eftir aö
tofthernaöar Atlantshafsbandalagsins hófst i fyrravor.
Monica ætlar að
kjósa Hillary
Einu sinni ieit Monica Lewinsky,
fyrrverandi lærlingur í Hvíta hús-
inu, á Hillary Clinton sem keppi-
naut sinn. En nú virðist sem Mon-
ica ætli að greiða bandarísku for-
setafrúnni atkvæði sitt í kosningum
til öldungadeildarinnar, að því er
bandaríska blaðið NewYork Post
greinir frá. Hillary sækist eftir öld-
ungadeildarsæti fyrir New York.
Sjálf er nú Monica, sem er fyrr-
verandi ástkona Bills Clintons
Bandaríkjaforseta, flutt frá Los Ang-
eles til New York þar sem hún ætl-
ar meðal annars að hanna töskur og
selja. Fjöldi manns kom á sýningu
Monicu á dögunum er hún sýndi
hönnun sýna. Monica ætlar einnig
að sjá fyrir sér með því að auglýsa
vörur fyrir megrunarfyrirtækið
Jenny Craig.
Fyrrverandi ástkona forsetans
Monica Lewinsky styöur
nú Hillary Clinton.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur veróur haldinn miðvikudaginn
12. apríl kl. 20:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
StiirfiilHBil
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Gustavsberg
sturtukleii
með sturtusetti
og sápuskál
Kr. 46.690.-