Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Síða 22
66 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 I>V Ættfræði__________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára_________________________ Helga J. Daníelsdóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. 85 ára_________________________ Guömunda Halldórsdóttir, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. 80 ára_________________________ Hólmfríöur Siguröardóttir, Furulundi 3b, Akureyri. 75 ára_________________________ Halldór Grétar Guöjónsson, Melabraut 26, Seltjarnarnesi. 70 ára_________________________ Herbert Gránz, Mánavegi 4, Selfossi. Kaino A. Hjálmarsson, jf- Bogahliö 24, Reykjavík. Margrét Siguröardóttir, Hólmi, Höfn. 60 ára_________________________ Arndís Magnúsdóttir, Eyjabakka 2, Reykjavík. Ása S. Björnsdóttir, Reynimel 88, Reykjavík. Hermann Albert Jónsson, Hraunbraut 14, Kópavogi. Hrönn Árnadóttir, Leynisbrún 9, Grindavík. Kristín J. Magnúsdóttir, Rauöarárstíg 41, Reykjavík. Matthildur Jóna Ágústsdóttir, Hlaöbrekku 4, Kópavogi. Unnur Hlín Guðmundsdóttir, Skipholti 28, Reykjavik. 50 ára_________________________ Auöur Hauksdóttir, Breiövangi 66, Hafnarfirði. Borgþór Arngrímsson, Brekkugötu 18, Hafnarfirði. Margrét Hannesdóttir, Miövangi 112, Hafnarfirði. Margrét Jónsdóttir, Fitjum, Húsavík. Sigfús Guðbrandsson, Skaftahlíö 7, Reykjavík. Soffía Kristjánsdóttir, Laugavegi 7, Varmahlíð. Sveinn Sigurbjörnsson, Gyöufelli 6, Reykjavík. <- Sæmundur Sæmundsson, Skólatúni 2,, Bessastaöahreppi. Þorbjörg Einarsdóttir, Faxastíg 39, Vestmannaeyjum. 40 ára__________________________ Guöjón Valdimarsson, Sílakvisl 15, Reykjavík. Guömundur Guöbrandsson, Bergsstööum, Blönduósi. Halla Einarsdóttir, Stekkjargeröi 14, Akureyri. Leópold Sveinsson, Furulundi 8, Garöabæ. Málfríður Waage, Bjarnarvöllum 18, Keflavík. Olga Kryjhanivska, Heiömörk 23, Hverageröi. j Ragnheiöur G. Sumarliöadóttir, Stakkhömrum 13, Reykjavík. - Særún Karen Valdimarsdóttir, Njaröargötu 5, Keflavík. Viöar Pétursson, Þórufelli 20, Reykjavík. aukaafslátt af smáauglýsingum DV Smáauglýsingar Halldór Bachmann, Grænumörk 5, Selfossi, lést mánudaginn 10.4. Baldvina Magnúsdóttir, Hraunbæ 96, Reykjavík, andaöist í Landspítalanum, Fossvogi, laugardaginn 8.4. --------------------- > IJrval góður ferðafélagi - til fróðleiks og skemmtunar á ferðalagi > eða bara heima í sófa EaEsai Stefán L. Stefánsson Stefán Lárus Stefánsson sem í gær tók viö embætti forsetaritara. Eins og ýmsir aðrir starfsmenn utanríkisráðuneytisins hóf Stefán störf við fjöimiðla. Þá klæddist hann svona. Núna er hann mun virðulegri. forsetaritari Stefán Lárus Stefánsson, fyrrv. aðalræðismaður íslands í New York og varafastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, tók í gær við embætti forsetaritara. Starfsferill Stefán fæddist i Reykjavík 6.3. 1957 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1977 og emb- ættisprófi í lögfræði við Hí 1986. Stefán var blaðamaður við DV 1984 og 1985, fréttamaður við ríkis- sjónvarpið 1986, varð sendiráðsrit- ari hjá utanríkisráðuneytinu 1987 og var sendiráðsritari í Washington frá 1987 og í Moskvu frá 1990, starf- aði í utanríkisráðuneytinu í Reykja- vík frá 1993, var sendiráðunautur og síðan sendifulltrúi í New York frá 1997 og aðalræðismaður íslands í New York og varafastafulltrúi ís- lands hjá Sameinuðu þjóðunum 1997-2000 en tekur nú við starfi for- setaritara. Fjölskylda Stefán kvæntist 17.10. 1987 Guð- rúnu Bryndísi Harðardóttur, f. 23.12. 1956, förðunarmeistara og snyrtifræðingi. Hún er dóttir Harð- ar Húnfjörð Pálssonar, f. 27.3. 1933, bakarameistara á Akranesi, og k.h., Ingu Þóreyjar Sigurðardóttur, f. 12.7. 1933, húsmóður. Synir Stefáns og Guðrúnar Bryn- dísar eru Hörður Páll, f. 19.3. 1988; Stefán Lárus, f. 20.6. 1992. Systkini Stefáns eru Guðmundur Jóhann, f. 4.6. 1951, vélstjóri hjá Eimskipafélagi íslands; Sigríður, f. 26.3. 1955, hjúkrunarfræðingur á Hofsósi; Björn, f. 26.3. 1955, fom- leifafræðingur í Reykjavík; Stein- grímur Páll, f. 7.10. 1961, líffræðing- ur við rannsóknarstörf í Maryland í Bandaríkjunum. Foreldrar Stefáns: Stefán Páll Bjömsson, f. 8.1. 1919, d. 22.12. 1999, læknir í Reykjavík, og k.h., Ásta Lára Guðmundsdóttir, f. 23.12. 1921, hjúkrunarfræðingur. Ætt Stefán Páll var sonur Björns, bú- fræðings og kaupmanns í Reykja- vík, bróður Helga, kaupmanns í Reykjavík, og Jóhanns Péturs, sjó- liðsforingja í danska sjóhernum og fyrsta skipherrans á íslensku varð- skipi. Bjöm var sonur Jóns, b. á Reykjum í Lundarreykjadal, Guð- mundssonar, b. á Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal, Ásmundssonar. Móðir Jóns á Reykjum var Guðrún Jónsdóttir. Móðir Björns var Þórdís Björnsdóttir, b. á Möðruvöllum, bróður Sólveigar, langömmu Guð- rúnar, móður Bjarna Benediktsson- ar forsætisráðherra, föður Björns menntamálaráðherra. Bróðir Björns var Einar, langafi Salome Guðrúnar, móður Guðmundar Magnússonar, forstöðumanns Þjóð- menningarhúss. Bjöm var sonur Korts, b. á Möðruvöllum og ættföð- ur Kortsættar Þorvarðarsonar. Móðir Þórdísar var Helga Magnús- dóttir. Móðir Stefáns Páls var Sigríður, hálfsystir, samfeðra, Sólveigar, móður Einars Olgeirssonar alþm. Sigríður var dóttir Gísla, b. á Völl- um og á Grund í Svarfaðardal, bróð- ur Kristínar, móður Páls Einarsson- ar, fyrsta borgarstjórans í Reykja- vík, og Jórunnar, langömmu Þuríð- ar Pálsdóttur óperusöngkonu, Ein- ars Pálssonar, fræðimanns og skóla- stjóra, og Jórunnar Viðar tónskálds, móður Katrínar Fjeldsted, læknis og alþm. Gísli var sonur Páls, pr. og sálmaskálds á Völlum, Jónssonar, og Kristínar Þorsteinsdóttur. Móðir Sigríðar var Margrét Einarsdóttir, snikkara á Laugalandi, Ólafssonar, og Sigriðar Halldórsdóttur, b. á Krossastöðum Jónssonar. Bróðir Ástu Láru var Friðþjófur, útvegsb. á Rifi. Ásta Lára er dóttir Guðmundar, útvegsb. á Rifi á Snæ- fellsnesi, og Jófríðar Jónsdóttur. Bjarni Guðmundsson fyrrv. sérleyfishafi frá Túni Bjarni Guðmundsson, fyrrv. sér- leyfishafi, Skarphéðinsgötu 20, Reykjavík, lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 4.4. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, í dag, miðvikudaginn 12.4., kl. 15.00. Starfsferill Bjarni fæddist í Túni í Hraun- gerðishreppi og ólst þar upp. Hann hóf ungur að starfa við akstur og var atvinnubílstjóri i tæp sextíu ár. Bjami ók rútubíl frá árinu 1933 og var sérleyfishafi í Gaulverjarbæj- ar- og Hraungerðishreppi allt til árs- ins 1980. Samhliða sérleyfisferðunum fór hann í fjalla- og öræfaferðir en hann var í hópi fyrstu bílstjóra sem tóku að sér slíkar ferðir. Þá tók hann að sér vöruflutninga. Fjölskylda Systkini Bjarna urðu sex talsins: Guðrún, f. 28.12. 1911, nú látin, hús- móðir í Hraungerði í Hraungerðis- hreppi, var gift Sigmundi Ámunda- syni, f. 12.3. 1910, d. 8.10.1976, fyrrv. bónda og eignuðust þau fjögur böm; Guðfinna, f. 3.9. 1912, húsmóðir í Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi, gift Stefáni Jasonarsyni, f. 19.9.1914, bónda þar og eiga þau fimm böm; Jón, f. 7.3.1914, nú látinn, bílstjóri á Selfossi, kværrtur Rut Margret Jan- sen, f. 10.8. 1934, húsmóður frá Þýskalandi og eiga þau þrjú börn; Einar, f. 17.9. 1915, nú látinn, húsa- smiður i Reykjavík, ókvæntur og bamlaus; Stefán, f. 14.6. 1919, bóndi og fyrrv. oddviti í Túni í Hraungerð- ishreppi, kvæntur Jórunni Jó- hannsdóttur, f. 1.12. 1920, húsmóður og eiga þau sjö börn; Unnur, f. 30.7. 1921, húsmóðir í Reykjavík, gift Herði Þorgeirssyni, f. 15.7. 1917, húsasmíðameistara. Foreldrar Bjama voru Guðmund- ur Bjamason, f. 26.3. 1875, d. 8.6. 1953, bóndi í Túni, Hraungerðis- hreppi, og Ragnheiður Jónsdóttir, f. 12.5. 1878, d. 4.3. 1931, húsmóðir. Ætt Guðmundur var sonur Bjama, b. í Túni, Eiríkssonar, b. í Túni Bjarna- sonar, b. í Hjálmholti, Stefánssonar. Móðir Bjama i Túni var Hólmfríður, systir Guðmundar í Vorsabæjarhjá- leigu, langafa Stefáns Jasonarsonar í Vorsabæ. Hólmfríður var dóttir Gests, b. í Vorsabæ, Guðnasonar, langafa Oddnýjar, langömmu Vals Amþórssonar bankastjóra. Móðir Hólmfríðar var Sigríður Sigurðar- dóttir, systir Bjarna Sívertsens ridd- ara. Móðir Guðmundar var Guð- finna Guðmundsdóttir, b. í Hróars- holti, Tómassonar, pr. í Villinga- holti, Guðmundssonar. Móðir Guðfinnu var Elín, dóttir Einars, b. í Hróarsholti, Brandssonar og Vil- borgar Jónsdóttur. Ragnheiður var dóttir Jóns, b. á Skeggjastöðum í Flóa, Guðmunds- sonar, b. á Skeggjastöðum, bróður Björns, langafa Ágústs Þorvaldsson- ar, alþm. á Brúnastöðum. Guð- mundur var sonur Þorvalds, b. í Auðsholti, Björnssonar, bróður Knúts, langafa Hannesar þjóðskjala- varðar, Þorsteins hagstofustjóra og Jóhönnu, ömmu Ævars Kvarans. Móðir Ragnheiðar var Guðrún Bjarnhéðinsdóttir, b. i Þjóðólfshaga i Holtum, Einarssonar, og Guðrúnar Helgadóttur, b. á Markaskarði, Þórðarsonar, bróður Tómasar, langafa Tómasar, föður Þórðar, safnvarðar í Skógum. Móðir Guð- rúnar var Ragnheiður Árnadóttir, b. í Garðsauka, Egilssonar, pr. í Út- skálum, Eldjámssonar, bróður Hall- gríms, langafa Jónasar Hallgríms- sonar skálds og Þórarins, langafa Kristjáns Eldjáms forseta. Afmælisgreinar í páskablað Upplýsingar vegna afmælisgreina sem eiga að birtast í páskablaði DV þurfa að hafa borist ættfræðideild DV eigi síðar en föstudaginn 14. apríl. Merkir íslendingar Asa Guðmundsdóttir Wright fæddist 12. apríl 1892. Hún stofnaði verðlaunasjóð 1968 sem við hana er kenndur og er í vörslu Vísindafélags íslendinga. Úr sjóðnum eru veitt verðlaun árlega til ís- lendings sem unnið hefur veigamikið afrek i þágu lands og þjóðar. Þá stofn- aði hún sjóð, í vörslu Þjóðminjasafns- ins, sem greiðir kostnað vegna er- lendra fyrirlesara um þjóðminjar. Ása var dóttir Guðmundar Guð- mundssonar, læknis í Laugardælum og Stykkishólmi, og Arndísar Jónsdóttur. Hún fór ung til Reykjavíkur og var hjá móðursystur sinni, Þóru, og manni henn- ar, Jóni Magnússyni forsætisráðherra. Það- an fór hún til Englands og lærði hjúkrun. Á Ása Guðmundsdóttir Wright leiðinni til íslands kynntist hún ungum lög- fræðinema, Newcom Wright, sem þá var að ljúka doktorsnámi. Þau giftu sig og sett- ust að í Cornwall í Suður-Englandi þar sem þau höfðu umsjá með miklum land- og fasteignum. í lok stríðsins fluttu þau til Trinidad í Karíbahafinu, keyptu þar landsvæði og starfræktu plantekru. Er maður Ásu lést stofnaði hún Ásu Wright Nature Center, friðaði land sitt fyrir fugla og önnur dýr og lét starf- rækja þar gistiheimili fyrir fuglaskoð- ara og aðra náttúruunnendur. Tekjur þessarar stofnunar urðu síðan stofnfé sjóðanna tveggja. Ása þótti mikill héraðshöfðingi og kven- skörungur í Trinidad. Hún lést 6. febrúar 1971. Þorsteinn Helgason PhD, prófessor í verkfræði, Hvassaleiti 87, Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13.4. kl. 13.30. Kristinn Jón Árnason frá Skeiði, Svarf- aðardal, Neöstaleiti 5, Reykjavík, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 12.4. kl. 13.30. Bjarni Guömundsson bifreiðarstjóri, frá Túni, Skarphéðinsgötu 20, Reykjavík, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12.4. kl. 15.00. Ernst P. Sigurðsson, Grænumörk 3, Sel- fossi, sem andaðist miðvikudaginn 5.4., verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 15.4. kl. 13.30. Hjörleifur Jónsson, Miötúni 84, Reykja- vík, sem andaðist á Landspítalanum mánudaginn 3.4. veröur jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtud. 13.4. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.