Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Síða 28
Opel Zafira FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Flugvirkjadeilan: Allt getur gerst Samninganefndir flugvirkja og Flugleiða höfðu í morgun setið á rúm- lega sólarhringslöngum samninga- fundi í Karphúsi sáttasemjara og freista þess að koma í veg fyrir verkfall flugvirkja sem taka á gildi klukkan 11 í fyrramálið. Flug innanlands og til útlanda myndi stöðvast sam- stundis. Geir Gunnars- son vararíkis- sáttasemjari sagði í samtali við DV í morgun að viðræður væru í fullum gangi og í rauninni gæti allt gerst. ,„Það getur slitnað upp úr þessu, það getur verið að menn stöðvi fund og fari heim að hvíla sig og það getur verið að það verði samið á næstunni. Þetta er á mjög viðkvæmu stigi,“ sagði Geir. -gk Geir Gunnarsson „Allt getur gerst. “ Reyk j avíkurskákmótið: Hannes vann Sokolov og er > orðinn efstur Hannes Hlifar Stefánsson er orðinn einn í 1. sæti á Reykjavíkurskákmót- inu með 6 vinninga eftir 7 umferðir. Hann sigraði Sokolov í gær. Stórmeist- aramir Nigel Short og Viktor Kort- sjnoj, sem voru jafnir Hannesi Hlífari fyrir þriðju síðustu umferðina í gær (voru þá allir með 5 vinninga), tefldu innbyrðis og gerðu jafhtefli. Þeir eru nú í 2.-4. sæti með flmm og hálfan vinning ásamt 14 ára pilti frá Kína, stórmeistaranum Xiangzhi Bu. I 5.-10. sæti með 5 vinninga eru sex erlendir brother P-touch 1200 Miklu merkilegri merkivél - 5 leturstærðir 9 leturstillingar prentar i 2 línur borði 6, 9 og 12 mm Rafoort Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport LEITAR HANN ERFÐARÉTTAR SÍN6? DVtvlVND KK Innbrotstllraun Lögreglan í Reykjavík handtók mann sem var aö reyna aö brjótast inn í verslunina Vínberiö viö Laugaveg kl. 5 í morgun. Honum hafði ekki tekist aö komast inn í búöina. Maöurinn var settur í gæsluvaröhald í nótt. Ernir Snorrason stefnir deCODE Genetics fyrir dómstól í Bandaríkjunum: Ernir segir hlutabréf „hafa veriö tekin af sér“ Emir Snorra- son læknir, einn af stofnendum íslenskrar erfða- greiningar, sagði við DV í morgun að hann teldi að íslensk erfða- greining brjóti ótvirætt Helsinkisáttmál- ann. Hann segir stórar erlendar fréttastofur hafi hringt í sig á síðustu dögum vegna málsóknar hans á hendur deCODE Genetics, móðurfélagi ÍE í Banda- rikjunum, hann hafi hins vegar ekki ljáð máls á viötölum. Emir, sem átti 35 prósent hlutabréfa í upphafi, eins og Kári Stefánsson, sagði við DV að hlutabréf heföu „verið tekin af honum“ af þeirri ástæðu að hann hefði bæði varaö við og væri á móti gagnagrunnin- um. Hann kveöst nú eiga aðeins 1 prósent hlutabréfa. Emir hefur höfðað mál fyrir dómstóli í Delaware í Bandaríkjun- um þar sem hann krefst viður- kenningar á upphaflegri eignar- hlutdeild sinni í félaginu. Emir heldur því fram að fyrirtækið hafi reynt að gera að engu rétt sinn á 256 þúsund af 481 þúsund hlutum. Emir sagði við DV í morgun að hann vildi alls ekki gera íslenskri erfðagreiningu neinn óskunda. Á hinn bóginn gengur málarekstur- inn í Bandaríkjunum út á væntan- legan ágreining um hlutabréf sem deCODE keypti aftur af Emi - nokkuð sem gert var með sam- Fjögur ungmenni voru handtekin á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn sunnudag með 1,5 kg af amfetamíni. Ungmennin voru að koma frá Amsterdam og fann fíkniefnadeild toflgæslunnar amfetamínið innan klæða á þeim og í farangri þeirra. komulagi árið 1996, skömmu eftir að fyrirtækið var skráð í Fólkið var flutt til yfirheyrslu hjá fikniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík, sem hefur tekið við rannsókn málsins. Fólkið var úr- skurðað í gæsluvaröhald, þrjú þeirra í tvær vikur, en ein stúlkan í eina viku. Delaware. í stefnu fer Emir fram á skaðabætur auk þeirrar meginkröfu að upp- haflegur eignarhlutur hans verði viðurkenndur. Hann telur deCode ekki hafa keypt hlut sinn til baka með lög- mætum hætti. Ernir sagði við DV að helsta verkalýðsfélag Banda- ríkjanna væri tilbúið að greiða fyrir sig málskostnað vestra. -Ótt í tilkynningu frá Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli kemur fram að söluverðmæti efnisins á götunni gæti verið 10 til 30 milljónir króna eftir styrkleika. Efnarannsókn er ekki að fuflu lokið. -SMK Ernir Snorrason. Fjögur tekin með amfetamín VMSÍ og verkfallið á miðnætti: Hreyfing á umræöum Samningaviðræður Verka- mannasambands íslands og Sam- taka atvinnulífsins stóðu yfir hjá sáttasemjara til klukkan tvö í nótt en var þá frestað til kl. 13 í dag. Reiknimeistarar sátu hins vegar við í alla nótt og reiknuöu fram og til baka hvað tillögur sem fram komu gætu þýtt i raun. Samkvæmt heimildum DV eru viðræðumar á mjög viðkvæmu stigi svo ekki sé meira sagt og getur brugðið til beggja vona um framhaldið. Þó gerðist það í gær að viðræð- ur um sjálfan launaliðinn Aðalsteinn Baldursson: ,,Best aö segja sem allra minnst. “ um launin komust aðeins í gang. „Það var hreyfing á umræðum um launalið- inn og tillögur gengu á milli manna, en það er best að segja sem allra minnst um þetta á þessu stigi,“ sagði Aðalsteinn Baldursson, for- maður fiskvinnsludeildar VMSÍ, í morgun. Takist samningar ekki í dag tek- ur boðað verkfall gildi á miðnætti og mun áhrifa þess fara að gæta á landsbyggðinni strax á morgun. -gk Leikkvennadeilan: Lausn fundin Samkomulag hefur náðst milli Iðnó og Leikfélags Reykjavíkur í leikkvennadeilunni. Þær Jóhanna Vigdís Amardóttir, Edda Björg Eyj- ólfsdóttir og Sigrún Edda Björgvins- dóttir fara allar með hlutverk í Stjömur á morgunhimni sem sýnt er í Iðnó. Þær leika einnig í Kysstu mig Kata sem Þórhildur leikstýrir í Borg- arleikhúsinu. Lausnin felst í þvi að LR tekur aðrar leikkonur inn fyrir Sigrúnu Eddu og Eddu Björgu en Iðnó æfir nýja leikkonu í hlutverk Jó- hönnu Vigdísar. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.