Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 8
3 haf Ekkert er e andi fyrir sála þaö að lenda; E)r nirio og / / . i i asiar- Halldór urricL ■i ornur- r?i knyr dyra rnrnála ti og eru n ájli anri- irm sern eyrisiu. i hvorc ■aó sern gera cil itibeer- fatalausir Föt íslenskara Júróvisionfara hafa stundum veriö ansi skrautleg og deila má um smekklegheitin á sendiboöunum (hver man ekki eftir ICY-hópnum). Margir eru því orðnir spenntir aö vita I hverju Telma og Einar Ágúst muni klæðast í Svíþjóð og hefur Fók- us þá ánægju að upplýsa að Einar mun klæðast fötum frá GK meðan Telma verður í sérsaumuö- um kjól frá fatahönnuöinum Rögnu Fróðadóttur. Einmanaleikinn nagar „Ég hef aðeins einu sinni lent í ástarsorg og það var eftir 11 ára samband. Það var mjög erfið reynsla en min aðferð til að komast í gegnum þá reynslu var að vakna á morgnana mæta í vinnuna og draga andann inn og út og finna að Ódýrir flugmiðar Þið sem eruð í feröahugleiðingum ættuö aö klkja á síðuna wvw.go-fly.com en þar er hægt að næla sér í flugmiða til london á einungis 59 þund eða rúmlega sjöþúsund ís- lenskar krónur. Þaðan er svo hægt að fljúga á álíka ódýrum flugmiðum áfram út í heim. Júróvisjon- fararnir ekki íslenskur há- marksárangur Geysilegur áhugi er á fyrirhugaðri námstefnu sem Vegsauki þekkingarklúbbur stendur fyrir í Borgarleikhúsinu þann 25.-26. apríl. Tæplega 500 manns hafa bókað sig nú þegar. Á nám- stefnunni mun Brian Tracy fjalla um hámarksár- angur á nýrri öld en Brian er í hópi allra frægustu fyrirlesara og fræðimanna heims á sviði stjórn- unar, sölu og árangurs. Hann er forstjóri Brian Tracy International í San Diego í Kaliforníu og hefur varið meira en 20 þúsund klukkustundum í rannsóknir á árangri og velgengni bæði í starfi og einkalífi. Sem sagt, það stefnir í stórfelldan hámarksárangur hér á islandi. Loksins hægt að pissa á Thomsen Síðan nýir eigendur tóku við Thomsen fyrir tveimur mánuðum hefur staöurinn smátt og smátt verið að breyta um útlit og um helgina verður hann opnaður fullkláraður. Staður- inn hefur verið end- urhannaður af systr- unum Hrafnhildi og Báru sem séð hafa um að velja alla liti, stóla, leirtau, snaga o.s.frv en sá sem stjórnaði framkvæmdunum og átti í raun stóran þátt f allri hönnun og ákvarðantöku varðandi skipu- lag var eilífðartöffarinn Friðrik Weishappel. Annars eru helstu breytingar þessar: Barinn á efri hæðinni hefur verið endurnýjaður og komnir eru Ijósleiöarar sem skipta litum undir öllum hillum, búið er að færa dj, búriö og kom- ið nýtt gólf og nýtt hljóðkerfi. Rúsínan í pylsu- endanum eru þó hin nýju stálslegnu klósett sem er ekkert smá gott aö pissa í. Ofan á allt þetta er staðurinn svo líka kominn með nýtt eldhús og nýjan kokk sem ætlar að bjóða upp á djúsí samlokur. Aö auki veröur internetkaffi opnað í hliðarsal á efri hæðinni með 10 PC- tölvum af nýjustu gerð. Keep it simple Angela Lansbury. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Endurholdgun er eitthvað sem á að eiga sér stað eftir að ein- hver hefur dáið. Eitthvað virðist æðri máttarvöldum hafa fipast að þessu sinni því Angela Lansbury hefur einhvem veginn endur- holdgast löngu fyrir tímann í íslensku leikkonunni Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur. Þeir sem ekki geta kyngt þessari staðhæf- ingu ættu að líta betur á augun og glettnislegt brosið til að sann- færast. Síðan eru þær báðar leikkonur par excellence. Einnig eru þær báðar gefnar fyrir að leysa þrautir, Angela á kafi í morðgát- um og Steinunn að leysa fréttagátur. Ekki spuming, ótimabær endurholdgun hefur átt sér stað. Hvað Tíminn læknar öll sár „Því hefur verið haldið fram að tíminn lækni öll sár og hvað ástar- sorgir varðar þá held ég að það sé nokkuð rétt. Ég hef einu sinni lent í virkilegri ástarsorg og þá fékk ég öll þessi klassisku einkenni eins og við lesum um í rauðu bókunum; deyfö, litla matarlyst, almennt áhugaleysi og svo framvegis. Sem betur fer varði þetta ástand ekki mjög lengi. Þegar vinir mínir lenda í ástarsorg, sem er reyndar ekki daglegt brauð, þá spyr ég þá bara hvort þeir vilji yfir höfuð heyra í mér eða kjósi frekar að fá bara að vera í friði. Ég hef takmarkaða trú á skammtímalausnum eins og þeim að eyðileggja myndir og annað sem tengist fyrrverandi eða það hella sér strax út í annað samband. Það hjálpar pottþétt i smá tíma og veit- ir oft nauðsynlega útrás en til að fullur bati (sniff!) náist þarf tíminn einfaldlega að fá næði til að vinna á sorginni og ég mæli miklu frekar með því að menn taki það rólega og hlusti á lög eins og Disintegration með Cure eða Purple rain með Prince og kreisti kannski fram eitt, tvö tár í einrúmi sem þeir bæla svo karlmannlega niður heldur en að taka sorgina út í einhverjum reiði- köstum. 1-2 eða fleiri lítrar af ís skaða ekki heldur.“ Finnur Vilhjálmsson, fréttamaður á Skjá einum Lög kveikja minningar „Eg hef nú verið svo heppinn með það að ég hef aldrei lent sjálf- ur í alvarlegri ástarsorg en aftur á móti hefur maður séð vini sína ganga í gegnum þetta. Ég held að besta ráðið sé bara að einbeita sér að því að komast yfir þetta og ekki leggjast í einhverja lognmollu. En auðvitað er það hægara sagt en gert að segja þetta, sérstaklega fyr- ir mig sem hef ekki upplifað al- mennilega ástarsorg af eigin raun. Aftur á móti held ég að ég myndi reyna að hugsa um öll slæmu atrið- Ekki það versta sem maður lendir í „Þegar fólk lendir í ástarsorg þá byrjar það oft að ásaka sjálft sig fyrir það af hverju sambandið fór í vaskinn og byrjar að velta sér upp úr því hvað það gerði vitlaust. Ég hef lent í ástarsorg nokkrum sinnum um ævina en það var ekki fyrr en fyrir rúmu ári síðan þegar ég lenti í minni síðustu ástarsorg að ég lagðist í fyrsta sinn ekki í sjálfsásökun. Ég gat í fyrsta skipti hugsað: „Þetta er ekki mitt vandamál, hann er bara óhepp- inn.“ Það er mikilvægast þegar mað- ur lendir í svona ástandi að leyfa sér að kveljast i dálítinn tíma í staðinn fyrir að vera ailtaf að dreifa huganum eða hoppa beint upp í rúm með nýrri manneskju. Ástarsorg er hins vegar alls ekki það versta sem maður getur lent i þó að manni líði viðbjóðslega meðan á henni stendur. Ég held að það sé að vissu leyti hollt að lenda í ástarsorg að því leyti að það getur gefið manni ákveðinn þroska og styrk sem nýtist seinna meir. Það er um að gera að vera sem mest í kring- um góða vini á meðan þetta ástand varir. Vinum sem maður getur kvart- að og kveinað í og grenjað utan í.“ Ragnheióur Eiríksdóttir hjúkrunarfrœðingur Verður að vinna sjálfur úr þessu „Ég hef einu sinni lent í alvarlegri ástarsorg og það var alveg ömurleg reynsla. Það var eins og heimurinn hreinlega hryndi yfir mig. Það var ekkert sem mig langaði til að gera og á þessu tímabili leyfði maður sér líka að láta sér líða illa. Það eina sem virkar á fólk i ástarsorg, að þvi að ég held, er bara að leyfa fólki að vinna sjálft úr málunum í friði og ró. Það er alveg sama hversu góð ráð vinir og vandamenn gefa, maður fer bara alltaf eftir sínu eigin hjarta. Maður verður hreinlega að fá að vinna úr þessu sjálfur og vinir manns mega ekki vera of ýtnir. Maður kemur þeg- ar maður er tilbúinn. Svo er nú alveg dæmigert þegar maður er loksins bú- inn að ná áttum aftur og jafna sig þá er maður allt í einu orðinn æðislega eftirsóttur aftur hjá hinum aðilanum. Þannig var það allavega í minu til- viki og við erum saman enn þann dag í dag.“ Olga Einarsdóttir, nemi í leirkerasmíði ég var á lífi. Það besta sem ég held að fólk geti gert sem þekkir ein- hvern sem er í ástarsorg er það að vorkenna viðkomandi ekki heldur veita félagslegan stuðning. Að hætta í löngu sambandi er mikil fé- lagsleg einangrun og maður er al- gjörlega að læra að lifa upp á nýtt. Það besta sem vinir manns geta gert er að draga mann með út á líf- iö, í bíó, á kaffihús og ekki láta mann vera einan. Ekkert er ömur- legra en að láta einmanaleikann naga sig og því á maður að reyna að vera með vinum sínum og tala út um málin við þá.“ Sveinn Snorri Sighvatsson, dagskrárgeróarmaöur á Stjörnunni. in í sambandinu frekar en þau góðu til þess að hjálpa mér að kom- ast yfir sorgina. Einnig myndi ég ekki vera að hlusta á lög sem tengdust ákveðnum minningum úr sambandinu.“ Herbert Viöarsson, bassaleikari Skítamórals f Ó k U S 14. apríl 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.