Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 6
Nærri því helmingur af bandarískum netnotend- ur er konur en hvaða heimasíðum skyldu þær vera hrifnastar af? Nælon- sokkar og demantar Samkvæmt tölum frá dagblaöinu USA Today eru það heimasíöur þar sem hægt er aö kaupa eitthvað sem eru hvaö vinsælastar hjá ameriskum netkonum. Fyrst ber að nefna síö- una Miadora.com sem bandarískar konur virö- ast hreinlega dá og dýrka. Þessi síða er full af alls konar skartgripum og er ekki nema von að konurnar fíli hana í botn þar sem þaö hefur lengi veriö vitað að demantar eru bestu vinir konunnar. Ekki amalegt að dunda sér við aö skoða þessa glitrandi dýrð í vinnunni. Þar á eftir kemur slðan Silkies.com sem hreinlega gefur nælonsokka en einnig er hægt að panta þar sokkabuxur af ýmsum gerðum og litum. Næst ber að telja í Sparks.com þar sem ; hægt er að kaupa hin fáránlegustu kort sem passa við öll til- efni og Onehanes- place.com þar sem er að finna nærföt á alla fjölskylduna á rl irisí- ■■ hagstæðu verði. aU. • 'rárssSE Þaö má hins vegar deila um smartheitin á þessum nærfötum sem boðin eru til sölu þarna en svona er greinilega smekkur bandarískra kvenna, Neöst á þessum heimasíðuvinsældalista dag- blaðsins USA Today er svo að finna síðurnar Healthshop.com og More.com sem fjalla báöar um allt er viökemur heilsunni. Pál 1 óskar Islenski draumurinn íbíó lundir er Róbert Dougias að lokahönd á nýjustu íslensku em er jafnframt hans fyrsta. Það er Kvikmyndafélag íslands sem framleiðir myndina og nýtur til verksins styrks frá Kvik- myndasjóði íslands. „Við erum búin að taka myndina og stefnum á að frumsýna í byrjun ágúst,“ segir Róbert I. Douglas, handrits- höfundur og leikstjóri myndarinn- ar. „Þetta er gamanmynd um Tóta, ungan athafnamann sem er að reyna að koma undir sig fótum í lífinu. Hann er helgarpabbi og þarf auk þess að sinna dóttur sinni, sjá um foreldra sína, tengdaforeldra og bissnesinn. Ofan á allt saman er hann haldinn sjúklegri fótboltaþráhyggju." Lífsseig persóna íslenski draumurinn er fyrsta kvikmynd Róberts í fullri lengd. Áður hefur hann gert fjórar stutt- myndir þar af tvær sem fjalla um Tóta, aðalkarakter íslenska draums- ins. Unnu þær einmitt til verðlauna á Stuttmyndadögum 1998 og 1999. Róbert sagði að viðbrögð fólks við þeim myndum hefðu verið mjög góð. „Þessi karakter virtist snerta flestalla þá sem sáu stuttmyndimar. íslenski draumurinn fjallar þó ekki eingöngu um hann enda þarf fleira að koma til eigi að halda áhorfend- um í svo langri mynd.“ Eins og í stuttmyndunum fer Þór- hallur Sverrisson með hlutverk Tóta í íslenska draumnum. Með önnur hlutverk fara meðal annars Jón Gnarr, Hafdís Huld, Laufey Brá Jónsdóttir, Felix Bergsson og Gunn- ar Eyjólfsson. Einnig fer Matt nokk- ur Keeslar með rullu í myndinni. Hann er á mikilli uppleið í kvik- myndaheiminum en þekktastur er hann án efa fyrir leik sinn í mynd- inni Scream 3 sem verið er að sýna um þessar mundir við mikla aðsókn í kvikmyndahúsunum. „Ég sá hann fyrst í Last Days of Disco þar sem hann stal gjörsamlega senunni," seg- ir Róbert um Matt. „Hann er mjög góður leikari og ekki orðinn það stórt nafn að ómögulegt væri að fá hann i þetta.“ Byrjjum heima Á þessu stigi hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir um markaðssetningu myndarinnar erlendis. „Við erum núna fyrst og fremst að hugsa um íslenska markaðinn og síðan sjáum við bara hvernig móttökurnar verða,“ segir Róbert. Aðspurður um markhóp myndarinnar sagði hann hana eiga að höfða til allrar fjölskyldunnar. Þrátt fyrir nafnið væri ekki sérstaklega verið að taka fyrir einhver séríslensk ein- kenni, heldur hefði myndin al- menna skírskotun. Einstæðir feð- ur fyrirfinnast jú hvar sem er í heiminum. Dr. Love er sjálfskipaður kynlífsfræðingur götunnar. Hann leysir úr tílfinningaflækjum lesenda Fókuss og gesta Fókusvefsins á Vísi.is. Einungis er hægt að svara völdum bréfum en þeir sem eru virkilega þurfandi geta leitað á náðir Dr. Love í síma 908 1717. Blint stefnumót varð að martröð! Kæri Palli. Ég veit að þetta vandamál er kannski ekki eins og önnur vandamál sem þú ert beðinn um að leysa en ég veit ekki hvern annan ég á að tala við og ég verð bara að tala við einhvern! Málið er að ég kynntist strák á irkinu og spjallaði við hann í nokkrar vikur og fannst ég þekkja hann frekar vel og vita allt um hann. Hann sagðist vera jafn- gamall mér og loks ákváðum við að hittast. Hann kom og sótti mig með fullan bíl af vinum sínum og ég sá strax á honum að hann hlaut að vera alla vega 5-10 árum eldri en ég. En ég sagði ekki neitt og fór með þeim á rúntinn. Þeir byrjuðu fljótlega aö gera grín að útliti mínu og djókuðu með aö svona Ijótum stelpum ætti bara að nauðga og drepa þær síðan. Ég varð virkilega hrædd og baö þá um aö skutla mér heim eða aö minnsta kosti hleypa mér út. En þeir sögðust ekkert nenna því og gáfu í botn. Þeir voru allir aö drekka og „strákurinn" viður- kenndi fýrir mér aö hann væri 29 ára. Ég var orðin skíthrædd og þegar við keyrðum fram hjá löggubíl reyndi ég að ná athygli löggunnar en hún „veifaöi" mér bara á móti. Ég grátbað strákana um að hleypa mér út en þeir hlógu bara. Þeir keyrðu með mig í áttina til Hafnar- fjarðar og töluðu um að fara með mig heim til eins þeirra og „rlða mér í tætlur". Þá var ég al- veg komin að því að gráta og var farin að sparka i framsætin. Ég tók upp farsímann minn og ætlaði að fara hringja f einhvern til að hjálpa mér en þeir rifu af mér símann. Á leiöinni stoppuðu þeir á bensínstöð og ég náði að hlaupa út úr bílnum þegar þeir voru að tala við afgreiðslumanninn. Þeir hlupu ekki á eftir mér en daginn eftir lá farsíminn minn við útidyrahurðina. Ég labbaði heim frá bensínstöð- inni í sjokki og þegar ég kom heim þá grét ég stanslaust í marga tíma. Mér var ekki nauðgað og ég var þakklát fyrir það en samt leið mér eins og eitthvað hræðilegt hefði gerst og ég steig ekki út úr húsi í viku. Ég á nokkra vini en ég myndi aldrei þora að segja þeim frá þessu og mamma er ekki beint skilningsríkasta manneskja í heimi og viö tölum lítið saman. Þaö versta er að núna eru liðnar þrjár vikur og ég fæ ennþá stanslausar martraðir og þori ekki að sofna og ég þori held- ur ekki að taka strætó ein í og úr skólanum eða vera ein heima. - Hann hefur sent mértvö SMS síðan þetta gerðist, annaö til aö segja að þetta hefði allt verið djók en í hinu til að segja að hann myndi drepa mig ef ég segði einhverjum eitthvað, hann vissi hvar ég ætti heima og allt! Ég er búin aö segja upp vinnunni þar sem ég vann um helgar þvi ég er svo hrædd um að hann komi og er búin að fá mér nýtt númer i far- simann. En ég er samt svo hrædd, jafnvel þótt ég sé með fullt af fólki í kringum mig. Það hef- ur hvarflað aö mér aö hafa samband viö lög- regluna en hvað get ég í raun sagt? Ég hef eng- ar sannanir nema 2 SMS skilaboð og hver myndi trúa mér? Löggan myndi bara segja það sama og ég hef sagt við sjálfa mig seinustu vik- ur: Hvað var ég að hugsa að fara upp i bílinn með þeim? Er eitthvað sem þú getur ráðlagt mér að gera til þess að gleyma þessu öllum saman og halda áfram meö líf mitt? Guðrún Elsku Guðrún Þú hefur nægar sannanir í höndunum fyrir lög- regluna. Hver myndi senda SMS morðhótanir án þess að vera skíthræddur hálfviti meö e-ð mjög óhreint í pokahorninu? Hann veit alveg upp á sig sökina. Það er auðséð! Frásögnin þín i þessu bréfi er líka svo skýr, raunsæ og full af smáatriðum að maður trúir ÞÉR fullkomlega. Þú getur lagt þetta bréf fram sem vitnisburð og kært þetta fífl. Hvað sem gerist, þá alla vega veit löggan af honum í framtíðinni, þegar hon- um (og vinum hans) dettur í hug að sanna karl- mennsku sina á þennan líka ógeðslega hátt - og virkilega halda því fram að það sé bara „djók"! Þú þarft líka á áfallahjálp aö halda. Þú ert í al- gjöru sjokki, góða min - og ég mæli með því að þú spjallirviö stelp- urnar hjá Stígamótum. Þær eru frábærar og vita nákvæmlega hvaö þær eru að gera. Þetta sem þú lentir i var ekkert annað en kynferðislegt áreiti og ofbeldi, eða réttara sagt - kynferöislegt einelti! Mundu að það hefur ekkert með kyn- líf að geral Segðu bestu vinum þínum frá þessu. Stuðningur þeirra mun svo sann- arlega koma þér á óvart og létta þér lifið. Þegar maður er að „krúsa" á irkinu þá getur maður þóst vera hvað sem er og hver sem er. Mér tókst einu sinni að telja öll- um trú um að ég væri 12 ára stelpa á spjall- rásinni #losti (og ég fékk heilu biðraðirnar af fertugum karlmönnum sem vildu „tala" við mig.j. Þannig aö - þaö er eins gott að gera sér grein fyriröllum „skemmdu eplunum" sem leyn- ast þarna á milli. En það er líka svo auðvelt að vera á varðbergi gagnvart þeim. Til dæmis þegar maöur fer á blint stefnumót (sem getur líka verið mjög gaman og spenn- andi), þá lætur maður ALLTAF einhvern sem maöur þekkir og treystir vita af því hvert maður sé að fara! EN - um leið og þú finnur á þér að viðkomandi „deit" er aö gera eitthvað sem EKKI VAR TALAÐ UM (eins og t.d. aö mæta með fullan bíl af vinum sínum þegar hann lofaði aö mæta einn) þá er stefnumótið búið! Með það sama! Og maður fer HEIM - EKKI UPP i BÍL- INN!!! Manstu ekki eftir sögunni um Rauðhettu og úlfinn? Mundu bara aö það eru ekki allir karlmenn sem haga sér svona eða gætu hugsað sér að koma svona fram viö konur. Það er fáránlegt að halda því fram að ALLIR karlmenn séu með höfuðið fullt af ógeðslegum hugsunum. Þessi reynsla er ekkert ósvipuð því og að lenda í umferðarslysi. Það er mjóg fríkaö að keyra aftur bíl eftir um- ferðarslys en maður byrjar aftur á því með tím- anum. Þú lærir af jtessu en ekki láta þessa reynslu koma í veg fyrir það að þú eignist kærasta í framtíðinni - kærasta, sem vill ekki gera þér neitt illt heldur er bara góður við þig. Þú ert mikil hetja fyrir það eitt aö hafa skrifað þetta bréf því mig grunar að svona lagað gerist mun oftar en við gerum okkur grein fyrir. Svona fantar komast upp með að gera svona aftur og aftur þegar enginn segir til þeirra. Ég vona að þetta hvetji allar stelpur sem lent hafa í svipuöu til aö gera eitthvað í málunum. Mig grunar líka að margir strákar (og strákaklikur) kannist við sjálfa sig- og kveljist í helvíti fyrir vikið ... hægt og rólega! P.S. Byrjaðu aftur í helgarvinnunni þinni. Ekki gefa það í skyn að þú sért hrædd við jtessa gaura þvi það er bara vatn á myllu þeirra. Síminn hjá Stigamótum er 562 6868 / 562 6878. ÞINN DR LOVE! 6 f Ó k U S 14. apríl 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.