Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2000, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 17. APRÍL 2000
33
Tvídægra:
Veiði og ganga
Við bjóðum upp á fjögurra daga
veiðiferðir og er eins gott að menn
séu vel á sig komnir. Við erum að
kanna veiðilendur sem fáir hafa
veitt á og sums staðar engir,“
sagði Arinbjörn Jóhannsson á
Brekkulæk í Miðflrði, en hann
býður upp á nokkuð geggjaðar
veiðiferðir núna í sumar. En þetta
eru veiðiferðir upp á Tvídægru.
„Ferðin tekur íjóra daga og við
fórum á veiðilendur sem eru lítt
kannaðar þar sem á aö vera gnægð
fiskjar. Ætli við göngum ekki um
20 km á dag, líklega um 70 km í
allt þessa fjóra daga. Við gistum í
fjallaskálum og það er ekki akfært
að þessum skálum en ég fór fyrir
skömmu með mat og drykkjarfong
inn eftir á snjósleða."
- Hvernig er fyrirkomulagið
og hvað kosta svona ferðir?
„Verðið er 58 þúsund fyrir
þessa fjóra daga og innifalið eru
veiðileyfi, gisting, fullt fæði, leið-
sögn og akstur til og frá Brekku-
læk. Á fyrsta degi mæta
þátttakendur á Brekkulæk og síð-
an verður ekið með veiðimennina
inn Austurárdalinn og inn á Am-
arvatnsheiði. Á móts við Strípalón
fer bíllinn ekki lengra og veiði-
menn taka búnað sinn og ganga
vestur með Strípalónum að veiða.
Siðan er gist í fjallaskálanum í
Lónaborg. Á öðrum degi er gengið
og veitt vestur með Strípalónum.
Þar sem heitir meðal annars
Grandalón, Tangalón, Þórhallar-
lón og Veiðilón. Að lokum verður
rennt í Urðhæðarvatn, áður en
gengið er í náttstað í fjallakofann
við Urðhæð. Næsta dag er stefnan
tekin á Ketilvatn og Veiðitjörn og
veitt þar, síðan í Syðri-Kvísl og
að Hólmavatni. Nóg er af veiði-
stöðum en þegar menn fara að
þreytast verður gengið að Lóna-
borg og gist þar. Á fjórða degi er
gengið austur að Grandalónum
og veitt í þeim. En þangað er ekki
langt að vegarslóðanum. Þangað
kemur bíll upp úr hádegi til að
sækja mannskapinn og verður
honum ekið til byggða. Á leiðinni
verður stoppað og gengið á
Kvikanda í Ytri-Kvísl og veitt þar.
Síðan verður gist á Brekkulæk
eina nótt.“
- Fæst einhver til að fara i
þennan veiðitúr? Þetta eru
70-80 km, sem eru gengnir og
mikið á votlendi?
„Það er rétt að þetta er langur,
en skemmtilegur göngutúr og al-
veg ókannaðar veiðilendur víða.
Mikið er víst af fiski og þetta verð-
ur án efa skemmtilegar ferðir. Við
ætlum að fara fyrstu ferðina í lok
júní,“ sagði Arinbjörn í lokin.
Ævintýralegasta veiöiferöin
Þetta er einhver ævintýraleg-
asta veiðiferð sem frést hefur af í
seinni tíð. Fiskinn vantar ekki en
veiðimaðurinn þarf að hafa tölu-
vert fyrir veiðinni. Hægt er að
gera að aflanum og gist er í fjalla-
skálum. Er hægt að hafa það villi-
mannlegra?
-G.Bender
Veiðihornið með
Gunnari Bender
Stór urriðinn er skemmtun hvers veiöimanns og fátt er skemmtilegra en
að glíma við þá væna.
DV-mynd G.Bender
Fluguhnýtingar:
Stærsta keppnin
fýrr og síðar
Fluguhnýtingar hafa svo sann-
arlega aukist meðal veiðimanna
hin seinni árin og fleiri og fleiri
hefla fluguhnýtingar. Þessa dag-
ana er að byrja íslandsmót í
fluguhnýtingum og stendur
Landssamband stangaveiðifélaga
fyrir keppni. Stefnir í að þetta
verði stærsta fluguhnýtingar-
keppni á íslandi fyrr og síðar.
„Mér líst feiknavel á þessa
keppni og ég vona að sem flestir
taki þátt í henni. Það styttist í
veiðitímann og við veiðimenn
erum orðnir spenntir," sagði Óli
Johnson hjá Ó. J og Kaaber en
hans fyrirtæki er eitt margra
sem standa að þessari keppni
með Landssambandi Stangaveiði-
félaga.
Keppt verður í þremur flokk-
um, flokki ungmenna, almennum
flokki og meistaraflokki. Yflr-
dómari mótsins kemur frá Nor-
egi og hægt veröur að fá keppnis-
gögn í veiðibúðunum.
-G.Bender
Sport
íslenska landsliðið í íshokkí var ð i 5. sæti á í D-riðli heimsmeistaramótsins sem lauk i gær. DV-mynd Ingó
HM í íshokkí:
Fimmta sætið
- varö hlutskipti íslenska liösins eftir sigur á Ný-Sjálendingum í gær
íslenska landsliðið í íshokkí hafn-
aði í 5. sæti í D-riðli heimsmeistara-
mótsins í íshokki sem lauk í
Skautahöllinni í Laugardal í gær.
íslendingar unnu öruggan sigur,
6-3, á Ný-Sjálendingum, í leik sem
íslensku leikmennirnir höfðu tögl
og hagldir og til marks um það átti
íslenska liðið 50 skot að marki Nýja-
Sjálands en Ný-Sjálendingar áttu að-
eins 19 skot að marki íslands.
Jón Gíslason, James Devina,
Jónas Magnússon, Heiðar Ágústs-
son, Rúnar Rúnarsson og Eggert
Hannesson skoruðu mörk íslenska
liðsins en Ágúst Ásgrímsson var
valinn besti leikmaður íslands eftir
leikinn í gær.
íslendingar töpuðu fyrir S-Afríku
á laugardginn, 9-3. íslendingar
fengu óskabyrjun, komust í 3-0 með
mörkum frá Jónasi Breka Magnús-
syni, James Devine og Jóni Gísla-
syni en eftir það hrökk allt í baklás
hjá íslenska liðinu. Svo virtist sem
allir leikmenn fslenska liðsins ætl-
uðu að skora og fyrir vikið riðlaðist
vamarleikurinn. S-Afríkumenn
gengu á lagið og skoruðu hvert
markið á fætur öðru.
„Við erum bara mjög ánægðir
með þennan árangur okkar sem er
framar vonum. Við vorum að gæla
við að lenda í 4.-6. sætinu og það
tókst. Það hefur verið mjög gaman
aö taka þátt í þessu móti. Mæting
hefur verið góð á leikina og fólk er
nú búið að uppgötva að þessi íþrótt
er stunduð hér á landi," sagði Heið-
ar Ingi Ágústsson, fyrirliði íslenska
liðsins, við DV eftir sigurinn á Ný-
Sjálendingum.
-BB/GH
Hart barist í leik íslendinga og S-Afríkumanna sem áttust við á laugardaginn.
íslendingar urðu að láta í minni pokann þrátt fyrir góða byrjun. DV-mynd Ingó
Við erum 1 árs
Glæsileg
afmælistilboð
17. apríl-29. apríl
Scramble
Stærðir 7—11
Verð 5.990
Afmælistiiboð 4.990
/V
Miire >
Markmannshanskar
í öllum stærðum.
Verð frá 790
Liverpool-heimatreyja
Verð 4.990
Afmælistilboð: Öllum treyjum
fylgir Liverpool-bolur.
Gott úrval enskra liðabúninga.
Mitre >
Boltar
Góð sumargjöf
Verð frá 1.490
Legghlifar
Max II
Verð 1.590
Komdu og líttu á
afmælistilboðin.
Prima
RMS-takkaskór
Verð 2.990
Jói útherji
Ármúla 36 , Reykjavík, sími 588 1566