Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Blaðsíða 12
vikuna 4.5-11.5 2000 18. vika Finnsku töffararnir í Bomfunk MC’s gefa sig út fyrir að vera • rosalega hardkor en eru ekkert nema popparar. Lagið Freestyier hefur notið mikilla vinsælda út um alla Evrópu og virðist ætla sér 1. sæti hér hjá okkur. Topp 20 (Of) Run The Water Live (02) Freestyler Bomfunk MC’s (03) Fool Again Westlife (04) You Can Do It lce Cube (05) Tell Me Einar Ágúst & Telma (06) He Wasn’t Man Enough Toni Braxton (07) 1 Wanna Mmmm The Lawyer (08) Orginal (órafmagnað) Sálin Hans Jóns Míns 09 Say My Name Destiny’s Child (70) Never Be The Same... Mel C & Lisa Left Eye (Jlj The Ballad of Chasey... Bloodhound Gang (72) Mama Told Me Tom Jones & Sterephonics (73) Freistingar Land og Synir (74) Don’t Wanna Let You Go Five (75) Mambo Italiano Shaft (76) American Pie Madonna (77) There You Go Pink (78) Freakin’lt Will Smith (79) Oops 1 Did it Again Britney Spears (20) Thong Song Sisqo Vikur $ álista: Sætin 21 til 40 0 lopp/ag vikunnar J hástökkvari <* w'kunnar nytt a lístanum íoí stendur i stað yf, hækkarsigfrá i s/ðjstu viku i. lækkar sig frá '' siðrstu viku ? fall vikunnar © 9 ^ 5 ’ 4, 5 61 * 4| /4 7 vir 5 /4.13 4,10 8 21. Ex-Girlfriend No Ooubt 22. In Your Arms Nu Generation 23. My Heart Goes Boom French Affair 24. Vertu hjá mér Á móti sól 25. Music Non Stop Kent 26. Búinn að fá nóg Buttercup 27. Waste Smash Mouth 28. Are You Still... Eagle Eye Cherry 29. Bingo Bango Basement Jaxx 30. Billie Jean Bates 31. You Sang to Me Marc Anthony 32. Toca’s Miracle Fragma 33. Never Let You Go Third Eye Blind 34. Lucky Star Superfunk 35. Fill Me In Craig David 36. Sunshine Reggae Laid Back 37. Still Macy Gray 38. Who Feels Love? Oasis 39. Just Around The Hill Sash 40. Feel The Same Triple X 5 6 1 6 5 7 3 3 1 9 3 2 9 5 1 1 Ifókus f Ó k U S 5. maí 2000 Gömlu hasshausarnir í Cypress Hill voru að senda frá sér sína fimmtu plötu. Trausti Júlíusson skoðaði ástandið á þessum margreyndu súperstjörnum vestur í L.A. sem DJ Muggs, -Real, SenDog og Bobo Lagið Rock Superstar með Cypress Hill er búið að vera vinsælasta lagið á X-inu undanfarnar vikur. Lagið er af nýju Cypress Hill plötunni „Skull & Bones" sem er tvöfóld; - fyrri disk- urinn „Skull“ er rapp í anda þeirra félaga en sá seinni „Bones“ er rokkrappdiskur. Það finnst sumum að með því að skella sér út í rokkrappið sé hljóm- sveitin að reyna að nýta sér vel- gengni hljómsveita eins og Korn og Limp Bizkit. Það má vel vera en stað- reyndin er samt að þeir félagar hafa lengi verið að grauta í rokkinu. Þeir tóku t.d. upp tvö rokkrapp-lög fyrir Judgement Night sándtrakkið árið 1992, annað í samvinnu við Sonic Youth og hitt með Peral Jam. Þeir hafa líka mikið spilað með rokkbönd- um. Rage Against the Machine hitaði upp fyrir þá á tónleikaferðalagi 1992 og svo voru þeir aðalnúmerið á Lollapalooza 1995, spiluðu þá með Hole, Sonic Youth og Jesus Lizrad, svo einhverjir séu nefndir. Svo er Sen Dog búinn að vera meðlimur í metalíonk bandinu SX-10 síðan 1995. Kitlaði í rokkfingurna Síðasta plata Cypress Hill, IV, sem kom út árið 1998 og þótti í daufara lagi, var svolítið rokk-skotin. Þeir ákváðu þess vegna að þróa næstu plötu enn meira út í rokkið. Plötuút- gáfan þeirra tók það ekki i mál í fyrstu og þess vegna gerðu þeir heila plötu af ekta Cypress rapp-efni. Það er fyrri diskurinn af „Skull & Bones“. Þeir voru samt enn hungraðir í að rokka og þegar þeir spiluðu fyrir 40 þúsund manns á tónleikum í San Bernandino seint i fyrra þá tóku þeir stóran hluta af settinu með rokk hljóðfæraskipan. Eftir það gat ekkert stoppað þá og þeir fóru í stúdíó með Dino Cazarres og Christian Olde Wobles úr Fear Factory, Brad Wilde, trommara Rage Against the Machine, Andy Sembrano og Jeremy Hiner úr SX-10 og Roy Lazano úr Downset og tóku upp lögin 6 sem mynda seinni diskinn af „Skull & Bones“. Fyrst var hugmyndin að gefa út tvær plötur, rappplötu og rokkplötu, en niðurstað- an varð að gefa frekar út eina tvö- falda. Þeir félagar í Cypress HUl höfðu annars í nógu að snúast á síðasta ári því að á milli þess sem þeir tóku upp fyrri og seinni „Skull & Bones“ diskinn gengu þeir frá safnplötu með sinum vinsælusti lögum á spænsku. Textarnir voru endurskrifaðir og sungnir upp á nýtt. Sú plata, „Los Grandes Exitos En Espanol" (Sóru smellirnir á spænsku), kom út í des- ember. Það hafði lengi staðið til að gefa út á spænsku, enda bæði B-Real og Sen Dog ættaðir frá Kúbu. Latino tónlistarsprengjan á síðasta ári var kjörið tækifæri til þess að láta gaml- an draum verða að veruleika. Rapp/rokk súperstar Lagið „Superstar" er í tveimur út- gáfum á „Skull & Bones“. Það er í rappútgáfu á fyrri disknum undir nafninu „Rap Superstar" með inn- skotum frá Eminem og Noriega og í rokkútgáfu á seinni disknum undir nafninu „Rock Superstar" með inn- skotum frá Everlast og Chino úr hljómsveitinni Deftones. Lagið hefur fengið gríðarlega spilun bæði austan- hafs og vestan og er t.d. mest spilaða Cypress lagið í Bandaríkjunum síðan það almagnaða „Insane In The Brain“ kom út áriðl993. Lagið er ádeila á hvemig plötufyrirtæki fram- leiða stjörnur eingöngu með peninga- von í huga. „Hér áður fyrr þegar menn voru að byrja í bransanum þá voru þeir að þessu af því að þeir fíl- uðu tónlistina, segir B-Real, ef þeir hittu á það rétta kom svo frægðin, sviðsljósið og peningarnir. Krakkam- ir i dag hafa engan áhuga á tónlist- inni sem þeir era að búa til, þeir hafa bara áhuga á þvi að græða peninga og verða stjömur." Vantaði ögrun Cypress Hill em um það bil að leggja af stað í tónleikaferð með Limp Bizkit, Limpdependence-túrinn, sem verður ókeypis í boði Napster-netsíð- unnar. Þeir Cypress Hill félagar hafa lofað því að prógrammið hjá þeim verði enn rokkaðra á tónleikunum heldur en á plötunni. „Okkur fannst við þurfa eitthvað nýtt til að takast á við,“ segir B-Real. „Einhverja ögmn. Hip hop er það sem við eigum auð- veldast með að gera en við höfum líka lengi haft áhuga á að rokka þetta upp.“ Og við þá sem era ósáttir við þessa rokkþróun hljómsveitarinnar segir DJ Muggs: „Við erum bara að fara aðra leið að sama takmarki. Okkur er alvega sama hvað öðrum fmnst. Ég geri bara tónlist fyrir mig. Ef ég fila hana þá er hún í góðu lagi.“ Popparar geta enda- laust fundið sér ástæður til að drita fúlyrðum hvor á annan og er orðahríð Liams og Robbie bara toppurinn á ísjakanum. Aðallega gengur skothrið- in út á að segja að einn sé „lákúruleg markaðsvara" og um leið gefur sá í skyn sem þetta segir að hann sé „þvottekta listamaður". Litum á dæmi. Rapparinn Eminem er nýbúinn að gefa út fyrsta lagið af næstu plötu sinni. Það heitir „The Real Slim Shady" og skýt- ur föstum skotum á r&b-ungann Christina Aguilera og lina kexið minem Fred Durst. Fred tekur þessu létt en Christina er reið og móðguð. Sjálfur sagði Eminem nýlega á tónleikum í London, „Þið gætuð hafa heyrt eitthvað í fjölmiðlum um mig og eina smáp**u. Ég vil bara segja ykk- ur að það er allt í góðu á milli mín og litlu kun****ar.“ Beck fannst ástæða nýlega til að nefna hið augljósa, aö tónlist Britney Spears og N’sync sé ekkert annað en markaðsvara og tóku margir það nærri sér. Nýlega fannst svo eldgamla stuttbuxnadrengnum Angus Young í AC/DC upplagt að nefna það að hon- um fyndist það einstök kurteisi að kaUa Oasis hljómsveit. „Ef við ættum að spila með Oasis þyrftu að vera ansi mörg núll á tékkanum," sagði hann í óspurðum fréttum því ekki voru Gallagher-bræðurnir að falast eftir honum. Það er því alltaf nóg að gerast í popparalandi og spuming hvað gerist næst. Það læðist stundum að manni sá grunur að yfirlýsingamar séu undir- búnar á auglýsingastofu og auðvitað með það í huga að selja meira. Þetta gengur jú út á það, ekki satt?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.