Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Blaðsíða 13
1 Loksins ný plata frá No Doubt eftir langa ritteppu og tilvistarkreppu Gwen Stefani og strákamir í No Doubt eru komin aftur meö plöt- una Retum of Satum. Nafngiftin á sér stjarnfræðilega skýringu því það tekur Satúrnus 29 ár að snúast einn hring í kringum sólina. Gwen er einmitt nýorðin þrítug og telur erfiðustu gerjunina í eigin lífl að baki. Platan er stæðilegur popp- hlunkur, rúmlega klukkutími að lengd og uppfull af poppaðri skemmtun, spriklandi ftnum lög- um sem eru „eitís“ að upplagi og minna á bönd sem meðlimir No Doubt hlustuðu á í gelgjunni, ný- bylgjugrúppur eins og Missing Per- sons, Go-Go’s, Bangles og The Cure. Þrettán ára saga No Doubt á sér langa sögu. Sveit- in er frá Anaheim-hverfinu í Los Angeles og var farin að spila Mad- ness-legt popp-ska 1987. Með linnu- lausu spiliríi fékk sveitin samning við Interscope 1991 og gaf ári síðar út fyrstu plötuna, No Doubt. Þetta var í miðju gruggæðinu og platan gekk illa - svo illa reyndar að Interscope vildi ekkert fyrir sveit- ina gera. Meðlimir No Doubt dóu ekki ráðalausir og gáfu sjálfir út plötuna Beacon Street Collection, mun hrárri og pönkaðri plötu en frumsmíðin. Interscope fékk aftur áhuga á sveitinni seint á árinu 1994 og upptökur hófust á Tragic Kingdom, plötu sem átti eftir að koma No Doubt á kortið með stæl. Hún kom út 1995 en það tók hana ár að verða eins vinsæl og raun bar vitni. 15 milljón eintök seldust að lokum, stærsti hlutinn í Bandaríkj- unum. Gleðirokk No Doubt var tengt persónu söngkonunnar í hugum fólks enda voru textamir mjög per- sónulegir og snerust aðallega um samband Gwen og bassaleikarans Tony Kanal, en þau voru nýhætt saman eftir 7 ára samband. Lög Stjörnukerfi Ifókus ★ ★ ★ ★ ★Gargandi snilld! ★ Notist í neyð. ★ ★★★Ekki missa af þessu. OTÍmasóun. ★ ★ ★Góð afþreying. V" Skaðlegt. ★ ★Nothæft gegn leiðindum.*“> eins og Just a Girl, Spiderwebs og Don’t Speak voru ódulbúnar að- dróttanir Gwen á hendur Tonys en hann sýndi einstök karakterein- kenni, beit á jaxlinn og spilaði með eins og ekkert væri. Nýr kærasti = nýir textar Bandið var á tónleikatúr til 1997 en þá tók við stutt frí. Meðlimimir komu sér þægilega fyrir með plötu- gróðann inni á reikningi og fóm að stimda golf en Gwen ræktaði sam- bandið við nýja kærastann, Gavin Rossdale, söngvara Bush. Það var svo ekki auðvelt að gera nýju plötuna. Ferlið tók þrjú ár. Erfiölega gekk að munstra hljóð- stjórnanda og Gwen þjáðist af ritteppu. „Ég gat ekki skrifað eitt einasta orð - mér lá ekkert á hjarta,” segir hún. „Þetta var eitt erflðasta tíma- hil lífs mins og það var mikil utan- aðkomandi pressa. Allir voru að bíða eftir að ég semdi eitthvað." Hjólin byrjuðu loks að snúast þegar hljóðkarlinn Glen Ballard kom til sögunnar. Honum tókst með yfirvegun að fá textana út úr Gwen. „Hún tönglaðist á að hún væri ekki lengur sama konan og samdi Just a Girl,“ segir Glen. Loks tókst Gwen að losna við tepp- una. Hún las bækur Sylviu Plath, hlustaði á textana hjá Joni Mitchell og sambandið við Gavin reyndist gjöfult fyrir textageröina. Smellurinn Ex-Girl- friend er t.d. um það samband og líka næsti smellur, ballaðan Simple Kind of Life þar sem söngkonan tjáir sig opinskátt um það að í raun vOji hún bara traustan mann, hús og böm, ekki táfýlu og sukkað rokkglimmerlíf. Hún verður nú samt að totta rokkpinnan eitthvað enn því fram undan er túr og allt hitt sem þarf að gera þegar plata er gefin út. Hún ætti lika að vera orðin vön þessu eftir þrettán ára hark. „Frá byrjun höfum við verið rosalega samheldin, það er næstum því eins og við búum öll í einum litlum heirni," segir hún og bætir við hugsi: „Ef ég ætti að byrja upp á nýtt og fyndi þrjá gaura og segði: við eigum eftir að vera saman í þrettán ár... Ég get ekki séð það gerast. En einhvem veginn gerðist þetta samt.“ Dr. Gunni söngkonunnar; plötudómar ChuckD til varnar Napster Napster-umræðan er gífurleg í poppheimum þessa dagana. Poppararnir skipa sér í tvær ~ abskildar fýlkingar þá sem eru á móti Napster mp3-sækiforritinu og þá sem styðja það. Chuck D, söngvari Public Enemy, hefur löngum ver- ið hrifinn af möguleik- um Netsins gegn gömlum gróðasjónar- miðum venjulegrar plötuútgáfu. Hann skrifaði grein í New Vork Times um siö- ustu helgi og varði Nap- ster. Hann sagði m.a.: „Fyrirtæki eins og Napster búa til nýja hlustendur og gera miklu fleiri listamönnum kost á að koma sér á framfæri, miklu fleirum en þeim sem stóru útgáfufyrir- * tækin ákveða að eigi erindi á markaðinn." í hinu horninu í mp3-rimmunni er svo báknið í kringum Metallica. Á Napster hafa 92 lög með Metallica verið fáanleg fritt og þungarokkar- arnir eru gífurlega óhressir með það. Þeir hafa nú lagt fram lista með 335.435 notendum sem hafa vistað Metallica-lög og krefjast þess að Napster banni þessu fólki aðgang. Mörgum finnst Metallica hafa gengið allt of langt með þessu, m.a. gamla Dead Kennedys pönkaran- um, Jello Biafra: „Til lengri tfma litið á þetta eftir að skaða orðspor Metallica og plötusöl- una hjá þeim,“ sagði hann. Rugludallur hjálpar dansara Sólóferill dansarans Leeroy er kominn á fullt skrið eftir að hann yfirgaf Prodigy. Smjörþefinn af hæfni Leeroys má finna þegar fyrsta platan hans „The Twisted EP“ kemur út 12. júnf. Leeroy kallar sig nú Flightcrank. Hann fór til Sviss og hitti gamla raggfrugludallinn Lee „Scratch“ Perry sem endurblandaði titillag nýju 4-laga plötunnar. Hin lögin voru tekin upp í heimahljóðveri Leeroys i Essex. Á plötunni * nýtur Leeroy einnig aðstoðar söngkonunnar Diane Charlemaine sem söng á fyrstu plötu Goldie. En þetta er bara byrjunin hjá Leeroy og stórrar plötu má vænta frá honum seinna f sumar. Fyrrum félagar hans í Prodigy verða hins vegar ekki á ferðinni með stóra plötu fyrr en fyrsta lagi um næstu jól. hvaöf fyrir hvernf ★★★ Hljómsveitin: Kent piatan: Hagnesta Hill Útgefandi: RCA / Japis Lengd: 58,28. Sænsku popprokkararnir frá Eskilst- una með sfna fjórðu plötu. Aðeins þessi og sfðasta plata meö þeim hafa komið út utan Svfþjóðar og vöktu þeir fyrst athygli meö þeirri síbustu, „Isola". Eins og lýönum ætti aö vera Ijóst býöur Borgin upp á Kent í júní og því er upplagt aö hita sig upp meö þessari plötu. Hér að neðan er plata sem hæfir markhópnum FM/Mónó. Á sama hátt er Kent hljómsveit sem hæfir markhópnum X-ið/Radfó, enda grimmt spiluð þar. Þetta er sem sagt hvítt og poppað gftarrokk með gripandi melódíum og vælukenndri söngrödd, eins konar sænskum Thom Yorke. ★★ Hljómsveitin: PINK piatan: Can't Take Me Home Útgefandi: Arista / Japis Lengd: 54,18 mfn. Söngkonan Pink (eöa Pink eins og það er skrifaö) er nýjasta stjarnan á LaFace merkinu. Hún er 19 ára og ólst eiginlega upp á klúbbasenunni í Philadelphiu. Hún byrjaði aö syngja bakraddir f rapphljómsveit 14 ára. Lagið hennar „There You Go“ hefur verið tðluvert spilað að undanförnu. Þetta er svona poppað r&b ætlað þeim sem kunna að meta svoleiðis tónlist. Þetta er plata fyrir aðdáend- ur TLC, Destiny’s Child og Whitney Houston. Ætti að passa vel fyrir þá sem hlusta á Mono og FM. ★★★★ Hljómsveltin: Femi Kllti piatan: Sjoki Remixed Útgefandl: Barclay / Skífan Lengd: 138,11 mín. (2 diskar) Þetta er safn af remixum á lögum af Shoki Shoki, plötu Femi frá þvf I fyrra. Á meðal þeirra sem endur- vinna lögin eru: Masters At Work, Joe Claussel, Kerry Chandler, Francois K, Da Lata, Seven Dub, Sofa Surfers, Mateo & Matos og Gilb’r & l:Cube. Femi þykir ná að magna upp svip- aða stemningu og faðir hans geröi en „hann er samt ekki Fela". Þessi plata er fyrir Fela-aðdáendur og aöra afró-fönkara en eins og sjá má á remix-listanum er þetta líka plata fyrir alla þá sem hafa gaman af flottri danstónlist. skemmtilegar staöreyndir niöurstaöa í Eskilstuna var lítið hægt að gera annaö en að sniffa lím eða stofna hljómsveit. Þessir peyjar stofnuðu band 1990 og kölluðu það Jones & Giftet. 1992 voru þeir búnir að vinna hæfileikakeppni og breyta nafninu í Havsángiar. Ári síðar fluttu þeir til Stokkhólms, byrjuðu að ganga í jakka- fötum og breyttu nafninu í Kent. Plnk er hvft og helsta útlitseinkenni hennar er skærbleikt hárið. Þegar maður sér hana þá dettur manni í hug að eftir að Eminem (hvftur rapp- ari) gekk svona vel þá sé nú verið aö reyna aö búa til hvfta r&b stjörnu. Plötuútgáfu gimmikk eða hvað? Femi Kuti er sonur afró-beat snill- ingsins Fela Kuti. Hann stjórnaði hljómsveit fööur síns þegar hann var fangelsaður af nfgerískum stjórnvöldum árin 1984-86. Hann stofnaði síðan sfna eigin hljómsveit og hefur sent frá sér nokkrar plötur en Shoki Shoki var sú fyrsta sem dreift var út um allan heim. Kent er enn ein sönnunin um að Svíar eru slungnir í poppgerð. Lfkt og Abba, Cardigans og jafnvel Wannadies er tónlist Kent ekki gerð af hungri og ástríðu heldur einhvers konar yfirvegun og samkvæmt út- reikningi. Það þarf vitanlega ekkert að vera verra, sjáið bara velgengni Ikea! dr. gunni Þetta er frekar óspennandi plata. Tónlistin er of fyrirsjáanleg. Textarnir eru flestir einhvers konar sjálfstæð- isyfirlýsingar ungrar konu (“Hell With Ya“,“You Make Me Slck", „Can't Take Me Home“). Það er kannski hollari boðskapur en stundum áður hjá r&b söngkonum en verður fljótt þreytandi eins og þessi plata al- mennt. Trausti Júliusson Með efnivið eins og þennan og rem- ix-ara I þessum gæöaflokki er lítil hætta á því að eitthvað fari úrskeiö- is. Þó að Shoki Shoki hafi verið ágæt plata þá finnst mér þessi plata ennþá flottari. Það er búið að spæsa frumútgáfurnar upp og bftin eru orðin ennþá magnaöri. Trausti Júlíusson * 5. maí 2000 f ó k u s 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.