Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Qupperneq 17
Verkamannaíbúð breytt
í ævintýraland
,Mér leist ekkert á þessa íbúð þegar ég kom hing-
að fyrst inn," segir Ingibjörg Grétarsdóttir, deildar-
stjóri í barnafataverslun, sem flutti inn I íbúð í
Breiðholtinu fyrir þremur árum, algjðrlega miður
sín, því henni fannst íbúðin vera svo Ijót. íbúðinni
var henni úthlutað á sérstökum kjörum þar sem
hún var einstæð móðir. „Ég vildi vera niður í bæ en
biðlistinn þar var svo langur svo ég tók þessa íbúð þar
sem hún var laus,“ segir Inga sem hefur breytt íbúðinni f
algjört ævintýraland með hjálp föður síns. „Ég hef alltaf verið
leiðinni aö flytja niður í bæ því það er ekkert um að vera hér upp
frá og flestir mínir vinir búa í miðbænum. Ég veit bara ekki hvenær
af því verður því afborganirnar af þessari íbúð eru mjög hagstæö-
ar og ég fæ varla jafnstóra íbúð á verði sem ég ræð við í miðbæn-
um eins og fasteignamarkaðurinn er f dag,“ segir Inga og bendir á
að flestar vinkonur hennar hafi ekki farið að hugsa um íbúðarkaup
fyrr en þær voru komnar með mann og barn. „Ég hefði sjálf aldrei
meikað það að henda peningunum út um gluggann f leigu.“ Ingu
finnst Ifka ágætt að búa í fjölbýlishúsi þar sem hún borgar
mánaðarlega skerf í hússjóðinn og svo sé einfaldlega séð um allt
viðhald án þess að hún þurfi að hugsa eitthvað meira um það. Hún
hefur líka verið heppin með sína fbúð. Síðan hún flutti inn hafa
engin vandamál dúkkaö upp og henni og syni hennar Breka llður f
rauninni vel í 75 fermetrunum þó Inga óski þess oft að fbúðin væri
nær miðbænum.
„En sem betur fer á ég bíl enda veit ég ekki hvernig ég kæmist af
annars,” segir Inga sem stefnir á að lýsa íbúðina sína upp með
hvftri málningu f sumar.
Verka-
mannaíbúð
Ingu í
Breiðholtinu
sannar það
að það finn-
ast ekki
bara sætar
íbúðir í
gömlum
timburhús-
um í vestur-
bænum.
Baðherbergið hjá Ingu er sannkail-
að ævintýraland og heldur hún
mikið upp á bleiku klósettsetuna
sem hún keypti í Byko.
Þegar Inga flutti inn var 75 fermetra íbúðin snjóhvít
sem hún fílaði engan veginn. Nú segir hún hins vegar
smekk sinn vera að breytast og hún er byrjuð að mála
hvítt yfir hina annars skrautlegu veggi íbúðar sinnar.
gerður keypti hana en hún
segir ákvörðunina hafa
verið aldurstengda.
íiki sofinn sem Þorgerð-
fékk frá ömmu sinni hef-
fylgt henni í gegnum ým-
leiguhúsnæði.
Útskornu karmarnir
gerðu útslagið
Leikmyndahönnuðurinn og bókmennta-
fræðineminn Þorgerður E. Sig-
urðardóttir keypti sér
fbúð fyrir einu og
hálfu ári á Rán-
argötunni og
getur víst prfs-
að sig sæla
með þau
kaup í dag þvf
þetta var rétt
áður en fast-
eignamarkaðurinn
steig f verði. „Ég hefði
aldrei keypt mér nýja fbúð í
Smáranum þvf mér finnst það einfald-
lega góð tilfinning að vita að einhver
hafi átt líf í fbúðinni áður,“ segir Þor-
gerður sem gerði þær kröfur I fbúðar-
leitinni að íbúðin væri á svæði 101 og
það þyrfti ekki að gera mikið fýrir hana.
Seinni kröfuna þverbraut hún reyndar
þar sem það var hvorki bað né sturta f
Ibúðinni og það þurfti umtalsverðar
framkvæmdir til þess að kippa því f
lag. „Ég bara féll algjörlega fyrir henni,
hún var bara svo falleg með útskorn-
um listum og körmum,” segir Þorgerð-
ur með stjörnur í augum en hún hefur
tekið fbúðina mikið í gegn og enn er
ekki séö fyrir endann á þeim fram-
kvæmdum. „Gólfið er næsta framtíðar-
verkefni," segir Þorgerður sem segir
að það sé mikill munur að vera loks f
sfnu eigin húsnæði. Nú hafi hún loks-
ins gott pláss fýrir allt sitt dót og getur
gert allar þær breytingar sem henni
dettur í hug. „Ég ætlaði að fara að
mála leiguíbúðina sem ég var f en þá
datt mér í hug að það væri auðvitað
bara sniðugra að mála sfna eigin fbúð.
Það var heldur ekki svo óhentugt að
kaupa á þessum tfma og svo held ég
einfaldlega að þessi löngun um að
eiga sitt eigið heimili hellist yfir mann
með aldrinum. Það er auðvitað miklu
öruggara aö búa í sinni eigin fbúð. Það
er enginn sem segir manni upp og
maður getur haft hlutina nákvæmlega
eins og maður vill,“ segir Þorgerður
sem sér ekki fyrir sér að hún eigi eftir
að selja á næstunni.
Ibúöin er 65 fermetrar og skipt-
ist í tvær stofur, svefnherbergi,
eldhús og baö.
old-school
adidas
Superstar
Ný sending komin
Margar gerðir
kr. 7900.
ulján
Kjallari
Laugavegi 91 S: 511 1718
5. maí 2000 f Óku