Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Síða 12
28 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 JLlV Undraverkið frá Benz - ein skemmtilegasta jeppavélin Musso kom í nýjum búningi árið 1998 og er nú kynntur hér sem erlend- is undir merkjum Daewoo. Hægt er að fá hann í E 32 Limited útgáfunni með 3,2 lítra Benz-vél, þeirri sömu og er í Mercedes Benz E320. Þessi vél hefur unnið til fjölda verð- launa erlendis og komið sérlega vel út úr samanburðar- prófunum. Þegar breyttur Musso á 38 tommum með þess- ari vél var prófaöur komu kostir hennar vel í ljós. lega hálf gjöf úr kyrrstöðu og haldið þar. Á miðju snúningssviðinu í hverj- um gír jók vélin tímann á ventlunum og þar með upptak í hverjum gír. Þetta Smekklegur frágangur á dráttarkrók að aftan og flest- ir kannast nú oröið við aurhlífarnar. Musso meö þessari breytingu er verklegur en jafnframt sportlegur í útliti. DV-myndir Teitur •Frábært mynstur •Afburða gott gríp •Ótrúlega hljóölát •Rásföst •Mjúk í akstri •Frábært verð o Gúmmivinnnstofaii ehf. Réttarhálsl 2, síml 587 5588 Sklpholtl 85, síml 558 1055 ÞJónustuaðllar um land allt Á þessum belgmiklu 38 tommu dekkjum verður lítið um fyrirstööu. Breytingarpakki Daewoo Musso 38 tommu Loftdriflæsingar að aftan: ARB Loftdriflæsingar að framan: ARB Dæla til pumpa í dekk: ARB Dana drifhlutföll: 5,38 : I Millikassi: Lágt drif 2,48 : I Dekk: 38 tommu Radial Mudder Felgur:Weld Racing léttmálms- felgur 15 x 13 Spilfesting framan og aftan Driflokur: Warn Demparar að framan: Bilstein Demparar að aftan: Rancho 9000, með fjarstýringu innan úr bíl Kastarar: IPF 170 og 210 vatta með snertirofa Lenging milli hjóla: 12 sentímetrar Upphækkun á yfirbyggingu: 100 mm Brettakantar: Málaðir úr plasti Gagnbretti: Ál Aurhlífar Hraðamælabreytir Slökkvitæki Sjúkrakassi -Það nýjasta á markaðnum Skemmtileg vél í breyttan jeppa Vélin er með tvo yfirliggjandi knastása og rafstýrða Bosch-innspýt- ingu og skilar 220 hestöflum með 310 Newtonmetrum af togi sem er allgott. Það sem er óvenjulegt við hana er hátt þjöppuhlutfall, sem er 100:1, og eitt það mesta í bensínvél í dag. Á henni er einnig búnaður sem breytir tímasetn- ingu hennar, knastástíma, kveikjuflýt- ingu og fleira. Tölvustýribúnaðurinn kemur svo í veg fyrir yflrsnúning og að hún mengi eða glamri á kveikju. Tímabreytirinn fyrir knastásinn er svo vökvastýrður og virkar á sogventl- ana. Hann seinkar knastásnum í hægagangi og kemur þannig í veg fyr- ir ójafhan gang en á meðalháum snún- ingi flýtir hann honum og lengir þar með opnunartíma ventlanna. Þetta fannst vel þegar bílnum er gefin rúm- getur hver sem vill fundið með því að beita gjöfinni eins og lýst er. Það er ótvíræður kostur að geta stýrt svona afli vélarinnar með fætinum og hlýtur að vera kostur í breyttum bíl á fiöllum, sérstaklega í færi eins og snjó. Hækkun aö framan kemur sér vel Á 38 tommu dekkjum er Mussoinn orðinn ansi verklegur og hefur þar mest aö segja hækkunin á framfiöðrun bílsins. Helstu þættir breytingarinnar eru að byijað er að færa afturhásingu, gorma- og demparafestingar aftur um 12 sentímetra. Þá þarf að lengja allar stýfur og festingar svo óbreytt afstaða og fiöðrunareiginleikar haldist. Einnig er skipt um drifhlutfoll og þau lækkuð verulega (5.38:1 í stað 4.55:1) til að vél- Á þessari mynd sést vel hversu hátt er undir hann að framan. in vinni áfram á kjörsviði sínu sem er frá 2200 til 3500 snúningum á mín- útu. ARB-loftlæs- ingar ásamt öllum íylgibúnaði eru settar í báðar hásingar. Fram- fiöðrun er algjör nýjung, undir- vagni og fiöðrun- arkerfi er lyft um 3 tommur þannig að hæð undir drif- kúlu og pönnu verður hærri, eða um 40 sentímetrar, sem gerir jafnhátt undir bílinn og bíl á 44 tommu dekkjum. Breyting á fiöðr- unarbúnaði eykur fiöðrunarsvið um 22%. Ailt þetta ásamt þyngd bílsins gerir það að verkum að hann verður skemmtilegri í sifió. Yfirbygging er því næst hækkuð af grindinni um 10 sentí- metra og allar festingar færðar upp og styrktar. Við hækkun yfirbyggingar ávinnst það að ekki þarf að hækka grind eins mikið upp frá hjólabúnaði. Það þýðir að afstaða á öxlum og drif- sköftum helst réttari en annars ef horft er á aflúttök frá gírkössum. Sama gild- ir um stýrisbúnað. Góður frágangur Eldsneytistankur er stækkaður úr 80 i 1401. Stuðarar eru færðir upp til að stemma við aðrar breytingar og öflugt dráttarbeisli sérsmíðað og ásett. Þá eru sett undir bílinn 38 tomma Mudder Radial dekk á 15x13 tomma innvíðum Weld Racing léttmálmsfelgum. Með þessum breytingum er nauðsynlegt að sefia undir bílinn stigbretti og stórar aurhlífar. Verkinu lýkur með fínstill- ingu á hjólabúnaði, bremsum og stýri. Allur frágangur er til fyrirmyndar, jafht að innan sem utan. Með þessa breytingu vakti það athygli mína hversu þýður og rásfastur hann er miðað við svona mikið breyttan bíl Þar spilar líka inn í að hann er með Rancho 9000 dempara að aftan með fiarstýringu innan úr bil sem hægt er að stilla að vild, jafnvel á ferð. -NG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.