Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Blaðsíða 17
]O iy^ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 33 Suzuki Grand Vitara á 33 tomma dekkjum: Breyting sem á vél við hann Einn minnsti jeppinn sem í boði er um þessar mundir, Suzuki Grand Vitara, verður býsna verk- legur þegar hann hefur verið hækkaður upp um 7 sm og settur á 33 tomma dekk. DV-bílar reynslu- óku þannig breyttum Grand Vitara í vetur sem leið og árangurinn var býsna ásættanlegur. Við þessa upphækkun þarf m.a. að færa afturhásinguna aftur um 50 mm, lengja stýrisstöngina, skera úr brettum og setja á brettakanta. Jafnframt er sett gúmmí innan í innri bretti og grjótmottur í kant- ana. Þá voru sett gangbretti á bO- inn sem heita má nauðsynlegt þeg- ar honum hefur verið breytt með þessum hætti. Brettakantar höföu verið sprautaðir í sama lit og bíll- inn og settar á hann aurhlífar - betur þekktar undir nafninu drullusokkar. Allt leggst þetta á eitt með að gefa bOnum snotran heOdarsvip. Billinn, sem DV-bOar höföu tO reynslu, var á 33 tommu Mickey Thompson dekkjum sem vöktu sér- staka athygli prófara vegna þess hve hljóðlát þau voru. Hins vegar virkuðu þau nokkuð hörð og kannski ekki að undra því Grand Vitara bOlinn er léttari en flestir þeir bOar sem dekk af þessari stærð eru látin undir. Þegar hleypt hafði verið verulega úr dekkjunum mýktust þau tO muna án þess að það kæmi að merkjanlegri sök. Þó SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 5S5 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Isafjörður: Bilagarður ehf., Grxnagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00. Suzuki Grand Vitara 33 tommu - samsvarar sér vel á þetta stórum dekkjum. var ekki fyrir almennan akstur farið niður fyrir 19 pund í fram- hjólum, enda var bOlinn þá farinn að þyngjast í stýri og spuming hve mikla þyngingu má yfirhöfuð leggja á stýrisbúnað tfl að valda honum ekki óhæfllegri áníðslu. Breytingin var unnin hjá Fjalla- sporti og kostaði „breytingarpakk- inn“ í heOd 558 þúsund krónur. Þar að auki var svo sett stuðara- grind á bOinn sem kostaði 49 þús- und og ljóskastarar sem kosta 24 þúsund krónur. 12% driflækkun kostaði auk þess 114 þúsund krón- ur. HeOdarkostnaður á þessum sex strokka jeppa eins og hann var prófaður er þá orðinn 3.244.000 krónur, en ef breytingin væri gerð á fjögurra strokka bOnum fengist hann fyrir 2.730.000 krónur. Þá er driflækkun ekki tekin með í reikn- inginn. Á þeim tima sem bOlinn var tO prófunar var ekki snjór svo heitið gæti en slydduhraglandi þannig aö aflt var grátt í rót og mjög blautt. Suzuki Grand Vitara, 33 tommu, fór óhikað og örugglega yfir þær torfærur sem hann var settur á og naut þess sérstaklega hve litla skögun hann hefur, sérstaklega að aftan, þannig að hann getur tekið mjög krappt fráhom án þess að reka stuðarann niöur. Jafnvægið virðist vera sérlega gott. Sögur hafa verið sagðar af því hve vel þessi breyting henti bOnum tfl aksturs í snjó og þar nýtur hann þess örugglega hve léttur hann er miðað við stærri jeppa. Það má telja breytingunni tO ávinnings að þrátt fyrir upphækk- unina verður Grand Vitara ekki Meö þeirri breikkun sem fæst út úr upphækkun í 33 tommur verður Grand Vitara afar stööugur, hvort heldur er í færu eöa ófæru. Stuðaragrind og auka- Ijós gefa honum vígalegan svip. Myndir DV-bílar SHH óhæfOega hár tO daglegra heimOis- nota, og enn fremur að breytingin gerir hann síst lakari akstursbO á góðum vegum. Með V6 vélinni og 12% lægri drifum hefur hann fína vinnslu og prýðisgóða hröðun. Breyttur Grand Vitara virðist því samsama prýðOega eiginleika dug- legs fjaOajeppa og liðlegs hvers- dagssnattara heima fyrir. -SHH Ekur þú ULL II IAME .... Þorbergur Gudmundsson Sölustjóri Hefur&u prófað SUZUKI Grand Vitara dísil? Dísilvélin í Grand Vitara er 2 lítra meö afar gott tog, 216 á 2000 snúningum, sem gefur mjög skemmtilega vinnslu í öllum hefðbundnum akstri. Ef þú keyrir mikið að jafnaði (meira en 20 þús. km á ári) er dísilvél mun hag- kvæmari en bensínvél. Grand Vitara dísil er afar vel búinn staðalbúnaði og aksturseiginleikarnir frábærir, hvort sem þú ekur innanbæjar eða um hálendið. Þér líður vel um leið og þú sest inn, hann er mjúkur í fjöðrun, sæti eru þægileg og þú hefur gott útsýni til allra átta. $ SUZUKI Grand V’rtara - Þægilegi jeppinn TEGUND: VERÐ: GR.VITARA 2,0 Ldísil 2.395.000 KR. Sjálfskipting 150.000 KR. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.