Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2000, Blaðsíða 18
34
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 JCJ<\T
Velkomin(n) í
Jötunheima
- Hummer í fyrsta skipti í reynsluakstri á íslandi
Snjór, drulla og spól og Hummerinn
er eins og heima hjá sér. Hægt er aö
stjórna þrýsting dekkjanna innan úr
ökumannshúsinu sem kemur sér
vel þegar ekiö er viö breytilegar
aðstæöur.
falds olíúkælikerfis. 159 lítra olíu-
tankur og 64 lítra aukatankur fyrir
olíu tryggja gott úthald á fjöllum.
Sjálfskipting er svo af GM 4L80E gerð
með yfir 21 lítra af olíu og er með sér
kæli fyrir sjálfskiptinguna.
Heljarjeppi aö burðum
Þegar Hummer er ekið verður
maður fyrst hissa á því að hann virk-
ar ekki nærri eins breiður í akstri og
ætla mætti. Hann er stöðugur í stýri
en samt er vökvastýrið létt, einnig
imdir álagi. I öllum almennum akstri
er þægilegast að keyra hann í yfir-
gímum og líklega eyðir hann minni
olíu þannig heldur en í hinni hefð-
bimdnu „Drive“ stillingu, ólikt mörg-
um öðrum. Þegar komið var að því að
reyna hann í torfærum fór fyrst að
verða ljóst hvílíkt tæki er hér á ferð-
inni. Þótt fjöðrunin sé stutt slær hún
aldrei saman, jafnvel þótt hressilega
væri tekið á honum. Samspil fjöðrun-
ar og þyngdarpunkts gerir hann mjög
stöðugan í hliðarhalla en þar sem
bíllinn er um þrjú tonn þarf að passa
hann þar sem laust er undir. í raun
og veru nýtur hann sín best í „act-
ion“ og þegar búið var að yfírstíga
feimnina við þetta tryllitæki ætlaði
maður aldrei að geta hætt að finna
stærri og stærri brekkur og prófa að-
eins meira. Einnig vakti það athygli
hversu vel hann réð við að fara fram
af háum bökkum og ofan í skominga
sem flestum myndi óa við. Það var
því með hangandi hendi sem haldið
var heim úr Jósefsdalnum um kvöld-
ið. -NG
Hummer HardTop
Vél:
6.5 lítraV8 dísilvél með for-
þjöppu.
Hestöfl: 195.
Gírkassi:
Fjögurra þrepa sjálfsk.ipting.
Bremsur:Tvöfaldir kældir
bremsudiskar framan og aftan.
Drif: Aldrif með læsingu á milli-
kassa og tregðulæsingu að fram-
an og aftan.
Bremsur: Diskar framan og aftan
með hemlalæsivörn.
Rafall: 124 amper.
Stýri:Vökvastýri.
Yfirbygging:
Úr áli, með flugvélahnoðum.
Lengd: 4770 mm.
Breidd: 2190 mm.
Hæð: 1920 mm.
Hæð undir lægsta punkt:
410 mm fullhlaðinn.
Beygjuradíus:
8.6 metrar á innri hring.
Þyngd: 3020 kíló.
Bensíntankur: 159 lítra.
Aukatankur: 64 lítra.
Eyðsla í blönduðum akstri:
15-18 lítrar.
Dekk:37 tomma, 16,5 x 12,5
Verð: 8.440.000*
Umboð: Hummer-umboðið.
*Aukabúnaður eins og forþjappa,
loftkæling, rafmagnsrúður og
fleira seldur sem staðalbúnaður.
Einn með öllu
Ssangyoung Musso '96
ekinn 68 þús. km, 3,2 bensín, 38“ dekk, léttmálmsfelgur, auka
millikassi.loftlæsingar framan og aftan, spilfestingar, CD,
CP-talstöð, aukabensfntankur, þjófavörn og fjarstart.
Bíll í toppstandi.
Verðhugmynd 2.600 þús.
Uppl. f sfma 694 3308.
Umhverfi ökumanns minnir einna helst á herflugvél og þótt plássiö virðist mikiö eru að-
eins sæti fyrir fjóra, sitt f hvoru horni innanrýmisins. Þrátt fyrir það er útsýniö gott á alla
kanta.
Það kannast eflaust flestir við tor-
færutröllið Hummer en vita kannski
minna um hvað býr undir klossuðu
útlitinu. í raun og veru minnir hann
meira á blöndu af skriðdreka og vöru-
bíl á fjórum hjólum heldur en þá
jeppa sem við eigum að venjast. Samt
er óbreyttur Hummer fyilúega sam-
bærilegur við mest breyttu jeppana í
dag nema kannski í verði enda segj-
ast framleiðendurnir ekki vera með
hann í samkeppni við aðra jeppa
heldur til að sinna ákveðnum mark-
aðshluta sem vill ekkert nema svona
bíla.
Upphaflega aöeins fyrir
herinn
Það er AM General í South Bend,
Indianafylki í Bandaríkjunum, sem
framleiðir Hummer og herútfærsluna
sem kölluð er Humvee. Yfir 150.000
eintök hafa verið framleidd og end-
ingartíminn fyrir kröfuharðasta við-
skiptavininnn, sem er Bandaríkjaher,
langur. Sem dæmi má nefna að
Hummer þarf að gangast undir sama
ryðmyndunarpróf og flugvélar Banda-
ríkjahers og þola 22 ár án ryðs. Allir
þeir Hummer-bílar sem seldir eru hér
á landi eru með sama líftíma á því.
Efnis- og hitameðhöndlað ál úr flug-
vélasmíðinni er notað og sérhert stál
á rétta staði gerir Hummer að öruggu
og þægilegu farartæki. Upphaflega
var Hummerinn aðeins ætlaður fyrir
herframleiðslu en þegar ákveðnir að-
ilar fóru að sýna honum áhuga varð
yfirmönnum AM General ljóst að
hugsanlega væri möguleiki fyrir þá á
því að selja hann á almennum mark-
aði. Einn þessara aðila var Amold
Schwarznegger sem lét þá ekki í friði
fyrr en hann eignaðist einn slíkan.
Hann á nú fjóra Hummer og segist
vilja hafa bíla sem hann þurfi ekki að
draga upp úr festum ef einhverjir vin-
ir hans heimsækja hann í bústaðinn,
þegar skroppið er í veiðitúra eða laut-
arferð.
Stöðugleikinn í fyrirrúmi
Þaö sem skiptir mestu máli í stöð-
ugleika ailra jeppa er að hafa þyngd-
arpunktinn eins neðarlega og hægt
er, til að auka getuna til torfæruakst-
Hér sést vel loftdælikerfiö fyrir hjól-
barðana, neöst til vinstri á mynd-
inni. Lengst til vinstri er mælirinn
sem sýnir þrýsting þeirra dekkja
sem stillt er á, framan eöa aftan, en
þvi er stýrt meö takkanum til hægri.
Dælt eöa hleypt úr meö takkanum
þar á milli.
urs. Þar ræður miklu að ná fram há-
markshæð undir lægsta punkt ásamt
léttri og lágri yfirbyggingu. Hætt er
við að þegar búið er að breyta jeppum
fyrir 38-44 tomma dekk færist þyngd-
rólegur inni í bíl meðan þrýstingur
dekkjanna er stilltur eftir þörfum.
Þetta kom sér vel fyrir blaðamanninn
þegar kom að því að skila bílnum.
Um morguninn varð ljóst að sprungið
Sterklegt byggingarlag og kraftmikil vélin þýöa að Hummerinn nýtur sín best í „látum" og skiptir þá litlu hvaö er fyr-
ir honum. Þótt fjöðrunin sé stutt sló hún aldrei alveg saman, ekki einu sinni í þessu stökki hérna. DV-myndir TÞ
Skyldi hann nú hafa þessa brekku? Hér er hann kom-
inn ofarlega í ca 50 metra langri brekkunni.
Jú, hvaða, hvaöa. Hvað skyldi nú annars vera hinum
megin?
var á einu afturdekki og allt loft farið
úr því. Á þremur mínútum var hann
búinn að dæla nægu lofti í dekkið til
að hægt væri að keyra án vandræða
og þurfti því undirritaður ekki að
hafa áhyggjur af því meir.
Auöveldur í stærri breytingar
Það þarfnast ekki mikilla breyt-
inga að setja Hummer á 44 tomma
dekk. Lítið þarf að hækka hann upp
eða eiga við drif- eða stýrisbúnað, en
hækkunin sem gerð er er minni en
breikkun á felgu svo að hann verður
stöðugri á 44 tommum en óbreyttur,
þessu er öfugt farið með öll önnur far-
artæki. Umboðið
hefur hannað nýja
vélarhlíf með
stærri hjólaskálum
sem rúma 44
tomma dekk án
þess að fjöðrunar-
geta eða beygjurad-
íus skerðist. Engra
breytinga er þörf á
hjólaskálum að aft-
an sem taka auð-
veldlega við 44
tomma hjólbörðum
og CTIS-kerfið
ásamt affelgunar-
vöminni nýtist
áfram. Þar sem
mikið er fyrir
hendi í bílnum sem
allajafha fer í mikið
breytta jeppa verð-
ur aukakostnaður
aldrei mikill.
6,5 litra V8 dísil-
vélin með forþjöpp-
unni er 195 hestöfl
og er með hrikalegt
tog, 583 Newton-
metra við 1800 snúninga. Að gefnu til-
efni skal tekið fram að nýverið keypti
AM General vélaframleiðslu þessarar
vélar frá GM og mun AM General
halda áfram að framleiða Hummer-
inn. Tvöfaldir kældir bremsudiskar
eru að framan og aftan og em þeir
uppi við miðjan bíl en ekki úti i hjóla-
skálum og eru því vel varðir fyrir
hnjaski. Niðurgírun er úti við hjól og
tregðulæsingar að framan og aftan og
þær verða virkar með því að ýta
snöggt á bremsu í háa læsta eða lága
læsta drifinu. Einnig er læsing á
millikassa. 124 ampera rafall er í hon-
um með sérstyrktri reim, auk þre-
arpunktur bifreiðarinnar upp, með
þeim afleiðingum að stöðugleiki
minnkar. Þetta vandamál er ekki fyr-
ir hendi í Hummer þar sem bíllinn er
hannaður fyrir 37“ dekk frá gmnni.
Yfirbygging jeppans er bókstaflega
sniðin utan um hjólbarðana, þannig
að bíllinn rís ekki hátt og fjöðrunin
skerðist ekki. Hæð undir lægsta
punkt er 41 sentímetri sem miðast við
að bíllinn sé fullhlaðinn. Sökum bygg-
ingarlags Hummersins virkar bíllinn
breiður miðað við hæð á yfirbygging-
unni. Það er því algengt að fólk haldi
að Hummerinn sé breiðari en hann er
í raun og vera. Breiddin á Hummer
er 219,7 sm sem er á milli ytri byrða
hurða, mesta breidd á milli hjóla er
213,7 sm. Margir jeppar sem breytt er
fyrir 38-44 tomma dekk fara vel yfir 2
metra á breidd.
Miöstýrt loftdælikerfi úr öku-
mannssæti
í Hummer er einstakt kerfi, svo-
nefnt CTIS-kerfi (Central Tire In-
flation System) sem gerir ökumanni
kleift að breyta loftþrýsingi í hjól-
börðum með því einu að hreyfa rofa í
mælaborði. Gildir einu hvort bíllinn
er á ferð eða kyrrstæður og á við
hvort heldur sem er eitt dekk eða öll
fjögur. Einnig nýtist affelgunarvörnin
áfram þrátt fyrir að skipt sé um hjól-
barða. Þetta tryggir að ekki er hægt
að missa dekk af felgu þótt ekið sé við
erfiðustu skilyrði í miklum hliðar-
halla. Þægindin af þessu kerfi era
líka frábær og þótt springi á einu eða
fleiri dekkjum á fjöllum er alltaf hægt
að bæta lofti i og komast aftur til
byggða. Kerfið býður líka upp á að
dæla loft á milli hjólbarða þannig að
varaloft er fyrir hendi einnig. Varla
þarf að nefna hversu mikil þægindi
era af því að geta setið