Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Blaðsíða 6
haf
3
Viöar Víkingsson og Leirfinnur.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikur í
myndinni og kjaftasagan segir aö
hún leiki Erlu Bolladóttur.
Guðmundur
# \ ff
v Vji
Geirfinnur
jr w # jr
i bio
Þær fregnir berast úr gargandi
grasrót bíóheima íslands að mynd
um Guðmundar- og Geirfinns-
málið sé að fara í tökur á næstu
dögum, svo mikil er gróskan þessa
dagana. Lítið er þó enn að frétta
úr herbúðum þeirra sem tekið
hsifa að sér að gera þörfustu kvik-
mynd samtímans. En það er hann
Viðar Víkingsson sem leikstýrir
og skrifar handritið, eða svo segir
sagan, og reynsluboltinn Agnes
Johansen er að pródúsera. Viðar
sendi okkur umdeildu heimilda-
myndina um SÍS og því má búast
við alvörumynd með góðum og
traustum samsæriskenningum.
En það er auðvitað ekki staðfest.
Það eina sem vitað er fyrir víst er
að tökur eru að fara að hefjast og
að hin unga Álfrún Helga Örn-
ólfsdóttir leikur líklega, kannski,
Erlu Bolladóttur. Það er nokkuð
vit i því vali en því miður var ekki
komin staðfesting á því hver leik-
ur Sævar sjálfan þegar Fókus fór
í prentun. Það telst samt líklegt að
strákurinn sem lék hann í þáttun-
um hans Sigursteins Mássonar
leiki hann því þeir eru svo sláandi
líkir.
Aðdáendur stórmynda frá Hollywood ættu að víta að ekki er allt sem sýnist því
brellur verða æ stærri hluti af kvikmyndagerð þar vestra. Færri gera sér kannski
grein fyrir að brellur eru í auknum mæli notaðar í íslenskum myndum en einn maður
hefur einbeitt sér að gerð þeirra undanfarin ár. Eggert Ketilsson heitir maðurinn en
gengur gjarnan undir nöfnum eins og Eddi sprengja, Eddi effekt og Eddi eldur.
Fókus tékkaði á brellumeistara íslands.
Eldhnöttlir ÍAImannagjá
„Þetta er bara eitthvað sem maður
hefur lært af reynslunni,“ segir Egg-
ert Ketilsson sem starfar sem brellu-
meistari í íslenskum kvikmyndum,
auglýsingum og myndböndum. Eggert
er 41 árs og hefur verið í bransanum
um nokkurt skeið. Hann segir að það
séu margir sem komi að brellugerð á
íslandi en hann sé í raun sá eini sem
hafi gert út á þetta. „Ég byrjaði við
brellugerð í Viking Saga en hafði
áður verið leikmunameistari hjá Sjón-
varpinu og það fól auðvitað í sér ein-
hverja brellugerð. Svo tók ég að mér
leikmuna- og brellugerð í Djöflaeyj-
unni og hef verið á fullu síðan og ætli
þetta séu ekki orðnar 10-11 myndir í
það heila auk auglýsinga og mynd-
banda," segir Eddi sem vill ekki alveg
kvitta fyrir að við séum komnir á
Hollywoodskalann hvað brellurnar
varðar.
Gat ekki munað textann
sinn
„Við höfum gert mikið af brellum
fyrir erlendar auglýsingar og t.d. gerði
ég Audi-auglýsingu fyrir nokkrum
árum með breskum aðila þar sem eld-
hnöttur var látinn lenda í Almanna-
gjá. Það var mjög flott og i Viking
Saga þurftum við svo að hjálpa aðal-
leikaranum, Ralf Muller, sem nú
leikur í Gladiator, þvi hann gat ekki
munað textann sinn. Við urðum því
að láta varðeld fyrir varirnar hans og
svo var talið bara döbbað inn á eftir
á,“ segir Eddi. Hann segir að auðvelt
sé að framkvæma brellur á hreinlegan
hátt og til dæmis hafi hann þrifið
stein með tannbursta þegar eldhnött-
urinn var látinn lenda í Almannagjá.
„Það er hægt að gera stóra hluti á
snyrtilegan hátt, jafnvel þó það sé gert
á jafn heilugum stað og Almannagjá,
sem er nokkurs konar Stonehenge
hjá okkur Islendingum."
Remote piss-system
„Við erum að nota sömu efni og not-
uð eru í Hollywood eins og fólk mun
sjá í Ikingut þar sem við erum með
módelskot og við þau nutum við að-
stoðar Martins Gants sem meðal ann-
ars hefur unnið við stórmyndir eins
og Brazil. Eins og staðan er í dag get-
um við gert bæði snjókomu og stór-
hríð sem eru eins raunveruleg og
tæknin býður upp á í dag, líkt og í
Gladiator. I 101 Reykjavík bjuggum
við til dæmis til vetur í júlí. Það var
mjög gott veður úti en við náðum að
búa til stóra senu fyrir framan Hegn-
ingarhúsið með snjó,“ segir Eddi.
Er ekkert dýrt að leigja brellumeist-
ara til aó hjálpa sér?
„Ja, ég er alveg sjálfstæður og þetta
kostar ekki svo mikinn pening. Ég
skaffa sjáifur græjurnar en svo snýst
þetta auðvitað mikið um að prófa sig
áfram. Svo er ég auðvitað með fina að-
stoðarmenn."
Hverjar eru svo eftirminnilegustu
brellurnar sem þú hefur framkvœmt í
íslenskum bíómyndum?
„Ætli það sé ekki sprengjuatriðið í
Perlum og svínum," segir Eddi og vis-
ar til þess þegar Þröstur Leó Gunn-
arsson og Ólafur Darri Ólafsson
reyndu að bjarga málunum eftir að
rafmagniö var tekið af bakaríinu.
„Svo má líka nefna atriðið í Stikkfrí
þegar litla stelpan pissaði á borðið.
Það var svona remote piss-system.“
/
l|ɧf|
. .8
ÞESSA HELGI FYLGIR
SUMARAUKI
MEÐ ÖLLUM JAKKAFÖTUM
ALLIR SEM KAUPA
JAKKAFÖT FÁ
SKYRTU, BINDI & SOKKA
FYRIR AÐEINS
7 KRÓNUR
j
NÝ SNIÐ - NÝ EFNI - NÝJAR ÁHERSLUR