Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Side 8
„Þátturinn hefur gengiö vonum framar. Lykill-
inn aö því er að það er alltaf góð stemning
þegar við förum að taka upp. Síðan er ekki
verra að hafa ísleif, einn helsta vélaspek-
úlant landsins, að sjá um efnissöfnun. Við
höfum fengið góð viðbrögð og ekki klúðrað
neinu alvarlega enn þá,“ segir Dagbjört
Reginsdóttir, sjónvarpskona og sálfræði-
nemi, um gerð þáttarins Mótors sem er á
dagskrá SkjásEins.
Þessi með bílaþáttinn
Dagbjört er búin að vinna að þætt-
inum í tæpt hálft ár en segist ekki
enn vera orðin alfræðiorðabók inn
vélar.
„Það sem ég hef einna helst lært á
þessu er „easy come - easy go“.
Þetta tækifæri, að vinna að þættin-
um, bauðst skyndilega og á eflaust
eftir að hverfa á sama hátt. í fram-
tíðinni eru mestu líkumar að ein-
hveijir segi: „Æ, já, þessi sem var
með bílaþáttinn." Hvenær það verð-
ur veit ég ekki. Ég býst við að þátt-
urinn eigi eftir að halda áfram í
lengri tíma,“ segir Dagbjört og lýsir
starfi umsjónarmanns Mótors sem
draumi í dós.
„Það er frábært að fá tækifæri til
að gera hluti sem maöur myndi ann-
ars aldrei fá að gera. Það sem stend-
ur einna hæst upp úr í vetur er þeg-
ar við fórum á torfærukeppni og ég
fékk að prófa einn bílinn. Menning-
in í kringum þessa keppni er ótrú-
leg. Gauramir voru allir mjög hress-
ir og tóku okkur vel. Að sjálfsögðu
barst talið að tímanum sem þeir
eyða í tryllitækin. Þá kom í ljós að
flestir þeirra voru fráskildir eða
makamir flognir burt. Þeir voru að
gera grín að öllu saman en líklega
sjá flestir þeirra eftir makanum,"
segir Dagbjört og bætir við að hún
myndi ekki velja sér áhugamál sem
stæli miklum tíma frá sambandi.
Af hverju velja karlmennirnir sér
alltaf áhugamál sem konurnar vilja
ekki taka þátt í?
„Það em bara fordómar. Við stelp-
umar gefum áhugamálum karlanna
ekki séns. Samfélagið stimplar mis-
mun kynjanna inn í okkur frá fæð-
ingu. Stelpur fá barbídúkkur og
strákamir bíla. Þessar einfoldu lexí-
ur bamæskunnar þróast út í það að
karlamir sjá bUa sem tól og mæla
þá út í hestöflum og ventlafjölda.
Þeir myndu aldrei fá sér flottan bU
með lélegri vél. Á meðan hugsar
konan hins vegar um hvort leðurá-
klæðin passi við pelsinn eða hvort
það sé ekki örugglega hægt að
skrúfa rúðuna aUa leiö niður fyrir
pæjuleikinn."
Hálfur Færeyingur
Dagbjört er færeysk í aðra ættina en
segist þó aldrei hafa stigið fæti á eyj-
amar, hvaö þá hlustað á Jimmy Olsen.
„Ein helsta tengingin við Færeyjar í
mínu lífi er Biblían og Jesúmyndirnar
sem ég lá yfir þegar ég var krakki.
Þetta var aUt á færeysku og þ.a.l.
missti þetta hálfpartinn marks, var
bara þrælfyndið, því eins og flestir vita
er færeyskan svolítið skrýtin. Síðan er
það færeyska matargerðin. Skerpikjöt
og hvalspik eru oft á borðum heima."
Dagbjört er í sálfræðinámi í Háskólg
íslands og segist kunna vel við sig þar.
„Þó ég hafi óbUandi áhuga á sálfræð-
inni er frábært tækifæri að fá að vinna
svona skemmtUega vinnu með skólan-
um. Síðan er ég líka að fara að kenna
sálfræði næsta vetur í gamla skólanum
mínum, Verzlunarskólanum."
Er stefnan þá tekin á þaö aö kukla í
vesalingum sem álpast í sófann til þín?
„Ég er ekki spennt fyrir því að
vinna við klíníska sálfræði. Það heUlar
mig ekki að rekja garnimar úr fólki
sem liggur í sófa við hliðina á mér.
Mér fmnst miklu skemmtUegra að tala
sjálf.“
Gervigreind eða klónun?
„Það sem heUlar mig mest við sál-
fræðina er mannvæðing tölvunnar og
þáttur sálfræðinnar í þeim geira, þ.e.
þróun gervigreindar. Þar eru pening-
amir. Ef maður lítur á heUdarmynd-
ina þá byrjaði hin almenna tölvuvæð-
ing á MS-DOS sem lagði línumar fyrir
það sem hefur komið í kjölfarið. Helsta
breytingin, fyrir utan línulega þróun,
er innkoma sálfræðinnar í tölvumar.
Hún hjálpar tölvum að skUja þarfir
fólks. Tölvan verður mannlegri með
hverjum deginum sem líður og á end-
anum eigum við eftir að greina lítinn
mun.“
Dagbjört heldur áfram með róman-
tískar hugmyndir um forritaða heima-
hjálp sem kaupir í matinn og fmnur
spennandi ferðir til útlanda fyrir
mann í sumarfríinu. Þá er erfitt að
sneiða hjá kenningum vísindarithöf-
unda um sjálfstætt hugsandi tölvur
sem snúast gegn manninum þegar þær
öðlast meðvitund.
Óttastu ekki upprisu tölvanna þegar
þú og hinir sálfrœöingarnir eruö búin
aö kukla nógu mikið í gervigreindinni
til aö hún öölist lif?
„Tölvur munu aldrei öðlast líf þó
svo að þær verði t.d. nógu fullkomnar
til að læra af mistökum. Þær munu
heldur aldrei fá að taka stórar ákvarð-
anir vegna þess að þær skortir heil-
brigða skynsemi. Ég hef ekki áhyggjur
af því að tölvur komist i ráðuneyti og
ákveði að stjórnleysi sé skynsamleg-
asti kosturinn. Það sem ég óttast frek-
ar er þróun erfðavísindanna. Klónun
er t.d. mjög eldfimt mál. Þar eru menn
komnir út á hálan ís sem gæti brostið
þá og þegar."
Geisladiskurinn
„Þennan disk meö Digable Planets er ég búin aö
hlusta nær stanslaust ð I 8 ár. Digable Planets eru
svo rosalega svöl og hafa þar aö auki margt merki-
legt aö segja. Lagiö Rebirth of Slick er í algjöru upp-
áhaldi hjá mér. Þaö skiptir engu máli í hvernig skapi
ég er, það slær alltaf í gegn. Ég hafði gaman af
rappi á sínum tíma en varö fljótt leiö á þvi. Þaö
skiptir ekki máli hversu gömul ég verð. Ég mun
alltaf halda upp á þau.“
Bíliinn
„Fyrir ári ákvað ég að vera ótrúlega
sniðug og kaupa mér eins ódýra
druslu og ég gat fundið til aö eiga út
sumariö. Ég keypti þennan Volvo af
kunningja mínum (sem ég ráölegg
engum að gera) og hefur hann væg-
ast sagt verið hausverkjavaldur upp á
dag síðan. Þaö er allt búiö aö bila I
honum sem bilað getur: handföngin
brotnuöu af, innsogiö er ónýtt, miö-
stöðin virkar ekki, Ijósin og rúöuþurrk-
urnar dóu og nýlega er hann útataöur
í hvítum slettum sem ég hef ekki hug-
mynd um hvaöan komu og í dag er
hann hljóðkútslaus með öllu tilheyr-
andi. Hann má nú eiga þaö að hann
hefur sál, blessaður, en ég ætla samt
aö láta hann í bílapressu á næst-
unni.“
Stelpur fá barbídúkkur
og strákar bíla
llmvatnið
„Ástæðan fyrir þvl aö ég keypti mér þetta ilmvatn, Romance frá
Ralph Lauren, er sú aö auglýsingaherferðin er einfaldlega ein sú
besta sem ég hef nokkurn tímann séö. Auglýsingarnar eru ótrúlega
rómantískar og vöktu strax áhuga minn. Auðvitað er lyktin líka góð,
ég myndi aldrei kaupa ilmvatn án þess aö líka viö lyktina."
s mm
■v: .
Dagbjört Reginsdóttir er umsjónarmaður þáttarins Mótor á SkjáEinum. Þó að hún sjái um vélaþátt fyrir
glussafíkla veit hún ekki mikið um þessi mál, enda skiptir það svo sem engu. Framtíð Dagbjartar liggur
ekki á vélasviðinu heldur í sálfræði sem hún lærir við Háskóla íslands. Hún segir gervigreind vera verðug-
asta verkefni sálfræðinnar á komandi árum en auk þess að ræða um hana og rafræna heimilishjálp sagði
hún Halldóri V. Sveinssyni frá ástæðum þess að konur taka ekki þátt í mótorsporti, Jimmy Olsen og
valdi svo átta hluti sem henni þykir vænt um.
Safinn
„Þar sem ég er bindindismanneskja lendi ég alltaf
I þvl aö vera svolftið út undan þegar ég fer út að
skemmta mér meö vinum mínum. Allir fá rosa flotta
kokkteila og drykki en óáfenga djúsinu er bara hent
í lítið, Ijótt glas. Þannig er þaö ekki meö trönuberja-
safann, að minnsta kosti ekki erlendis, barþjónarn-
ir nostra viö drykkinn. Þar aö auki er hann ótrúlega
ferskur og góöur á bragöiö."
Bókin og málarinn
„Þetta er bók frá Saatchi-listasafninu I
Bretlandi. Þarna eru myndir af öllum
verkum safnsins. Ég var búin aö leita
lengi að bók sem haföi aö geyma mynd-
ir eftir uppáhaldsmálarann minn, Jenny
Saville, sem er frábær. Hún er sá lista-
maður sem hefur fengiö hæst verö fyrir
eigiö málverk I lifanda lifi. Viöfangsefni
mynda hennar er akfeit systir hennar og
eru þær oftast flennistórar. Ágætisá-
deila á hina svokölluöu nútimakonu."
Gallajakkinn
„Mér þykir mjög vænt um Helmut Lang-
gallajakkann af því ég fékk hann í gjöf
frá kærastanum mínum, Oddi Þóris-
syni. Þegar maöur er ástfanginn og fær
gjöf frá kærastanum öölast hún mun
dýpra gildi fyrir vikiö."
Hringurinn
„Við erum 5 systurnar og einn lítill bróöir. Mamma
og pabbi ákváöu aö gefa okkur systrunum hringa aö
eigin vali á tvitugsafmæli hverrar fyrir sig. Ég valdi
mér þennan sem er einnig fyrsti demantshringurinn
minn. Ég er ekki mikið fýrir glingur en það er satt
sem er sagt: „Diamonds are a girl's best friend."
Sælgætið
„Niöur meö Smarties, niður með
M&M. Minstrels eru miklu betri. Þó
ég sé enginn nammigrís get ég ekki
lagt frá mér pokann þegar hann er
opnaður. Svo tekur Minstrels sig
vel út I skál á boröinu."
8
9