Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Qupperneq 6
24
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000
Sport
DV
Ragnar Róbertsson var án efa á
aflminnsta bílnum en tók forystuna í
upphafi þrátt fyrir þaö. Hann varö
stigahæstur í æfingakeppninni á
laugardeginum og hér fyrir neöan
sést hann á fleygiferö í brautinni og
taka eitt gott stökk.
íslandsmeistarinn og heimsbikar-
meistarinn frá því í fyrra, Gunnar
Ásgeirsson, sem hér sést aö ofan,
náöi sér aldrei almennilega á strik
og lenti í 5. sæti í keppninni í
Swindon.
Fyrsta torfæruaksturskeppnin
sem íslenskir akstursíþróttamenn
hafa haldið í Bretlandi fór fram um
helgina á Foxhill-mótorkross-braut-
inni við Swindon í Englandi.
Það var Landssamband íslenskra
akstursíþróttaklúbba sem stóð fyrir
keppninni í samvinnu við GoodYe-
ar í Bretlandi. Þátttakendur í henni
voru fjórtán íslenskir torfæruöku-
menn sem fóru með bíla sína og
keppnislið utan ásamt tveimur
keppendum frá Svíþjóð og einum
Norðmanni. Þessi keppni tókst frá-
bærlega vel þrátt fyrir erfiðar að-
stæður fjarri heimavelli. Skipulag
hennar var mjög gott og hafi eitt-
hvað vantað upp á það sáu strákam-
ir í Akstursíþróttaklúbbi Vestur-
lands og Akstursíþróttaklúbbi Suð-
urnesja um að allt gengi upp, með
ótrúlegum dugnaði.
Ótrúlegt grip í leirnum
Keppmssvæðið var gjörólíkt öllu
sem ökumennirnir áttu að venjast.
þarna var ekið í grasi grónum
brekkum og leirbrautum sem gáfu
ótrúlegt grip. Það sýndi sig líka að
götubilamir voru ekki síðri i þess-
um brautum vegna gripsins og öku-
menn sérútbúnu bílanna gripu oft
til þess ráðs að setja skófludekkin
undir í stað ausudekkjanna. Ragnar
Róbertsson náði bestum árangri í
æfmgakeppninni fyrri daginn þrátt
fyrir að vera á aflminnsta bflnum í
götubílaflokki. Þar réði mestu öku-
leikni ökumannsins og útsjónar-
semi. Ragnar hélt áfram að sýna
hæfileika sína seinni daginn þegar
hann tók forystuna aftur í upphafi
keppninnar og var lengi vel í topp-
baráttunni við keppinauta á mun
öflugri bílum. Þegar leið á keppnina
og þrautimar fóru að henta öflugri
bílunum betur tók Gunnar Egilsson
á Cool forystuna og tókst honum að
halda henni til loka þrátt fyrir harð-
ar atlögur Gunnars Ásgeirssonar á
Eminum.
Allt öðruvísi en heima
„Þessi keppni var allt öðruvisi en
keppnirnar heima og ég skemmti
mér vel,“ sagði Gunnar Egilsson eft-
ir keppnina. Ég kom með jákvæðu
hugarfari í og ætlaði mér að hafa
gaman af þessu enda gengur mér
alltaf best þegar ég hef gaman af
hlutunum. Maður hefur stefnt að
því í mörg ár að gera torfæruna að
einhverju og vonandi verður þetta
meira.
Fólk héma er mjög ánægt með
þetta og hefur notið keppninnar.
Ekki spillti veðrið sem var frábær-
lega gott," hélt Gunnar áfram.
Það var svo Ásgeir Jamil All-
ansson sem sigraði í götubflaflokk-
inum. „Mér fannst þessi keppni
ágæt,“ sagði sigurvegarinn í götu-
bílaflokki, Ásgeir Jamil Allansson.
„Það rættist úr henni. Maður var
aðeins áhyggjufullur i upphafi og
hafði áhyggjur af því að fólk kynni
að verða fyrir vonbrigðum. Ég lagði
mig því allan fram og það tókst að
gera skemmtilega keppni. Fólk fagn-
aði óskaplega þegar mér tókst að
forða mér frá veltunni þegar bíllinn
stóð á afturstuðaranum og ekkert
hjólanna náði gripi. Ég held að það
hafi bara einhver tosað í bílinn í
rétta átt. Það sem einkenndi þessa
keppni var hversu gripið var rosa-
lega mikið. Það gerðu allir sitt besta
til að gera góða keppni og ég er
ánægður með daginn,“ sagði Ásgeir
Jamil. -JAK
brómaðurinn Hans Maki lenti í
erflðleikum í fyrstu brautinni þegar
>|týrið datt út úr bíl hans. Þegarlað
ð kom í ljós að stýrisstöpg
tiafði brotnað.
Guómundur Pálsson ók mjög/Vel i
annabri brautinni og náði þpr fullu
húsi stm
/ síóustu hrautinni lentu margir
keppendanna i/vaji(lræðum þegar
þeir festu sig/cijúpri íjöm sem var í
miðri brautumi. Nokkpum tókst þó
aö koma/bílum sinum gftur í gang
eftir að hafa drepið á þeim í
tjörnuíni og kraflað sig\upp úr
hen
Keimeth Fredriksson keppti á
séi-smíöaðri grind meö 8,8 lltra
Cádillac-vél. Honum tókst mjög vel
ap aka yfir tjörnina án þess að mispa
adillac-inn niður.
Reignar Róbertsson var nærri
búvnn að velta Kit Kat-jepparmm
þegar hann keyrði utan í moldarbarð
og kabtaðist þversum út í tjörplna.
Gunnar Asgeirsson-fCkk mikið
lófaklapp þegar hann flaug upp i
gegnum endahliðið í tímabrautinni
og velti bilnum þa
Gisli G.
tímanum í tíi
dugði honum
verðlaunasæl
naöi
ekkt
besta
ni en það
komast í
-JAK
illiv
Rauði prinsinn hjá Rafni Arnari
drap á sér í annarri braut og hvarf i
reykmekki þefjár. olía lak á
flækjumar.
Gísli G. Jonsson byrjuði illa í fyrstu
brautunum úg náði sér aldrei á strik.
Hann fesjf sig i endahliði an'harrar
brautar/
Arnd Johannesson gnllaöi
skiptinguna í bíl sinum í 5. braut £
hraustlega að það kviknaði í bilnu
Það var svo Sigurður Þór Jónssoii
sem steikti skiptinguna í Thoshib^í-
tröllinu í 6. brautinni.
Ásgeír Jamil sýndi frábæra Jákta
þegar hann bjargaði sér fpc veltu
með því að^_srneUa_-jepþanum í
bakkgírinn, eftir að hafa vegið salt á
Daníel G. Ingimundarson sprengdi blöndunginn af Grænu þrumunni í æfingakeppninni á
laugardaginn. Þegar Daníel og aðstoöarmenn rifu vélina í sundur kom í Ijós aö ventlarnir í
vélinni höfðu bognaö.