Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Síða 11
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000
29
I>V
Sport
Logi Ólafsáon velur hópinn gegn ítölum:
Flestar úr
avoginum
íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu
lagði af stað í morgun til Italíu þar sem liðið
leikur gegn Itölum í undankeppni
Evrópukeppni landsliða á miðvikudag.
Logi Ólafsson valdi 16 manna hóp fyrir
helgi og eru þrjár atvinnumanneskjur í
honum, þær Erla Hendriksdóttir og Edda
Garðarsdóttir hjá Frederiksberg og svo
Katrín Jónsdóttir sem hefur spiiað feikivel
með Kolbotn í Noregi í vor.
Logi velur flestar frá Breiðabliki að þessu
sinni, þar á meðal Ernu B. Sigurðardóttur,
sem er eini nýliðinn í hópnum en auk Ernu
á markvörðurinn úr Stjömunni, María
Ágústsdóttir, ekki landsleik að baki.
Marla er eini markvörðurinn í
deildinni sem hefur ekki fengið á sig
mark og hefur nú haldið hreinu í 308
mínútur í Landssímadeild kvenna.
ítalska liðið er með sitt sterkasta lið í
leiknum en liðin gerðu markalaust
jafntefli á Laugardalsvelli síðasta haust
í leik sem islenska liðið átti nokkur góö
tækifæri til að tryggja sér sigurinn.
Margrét Ólafsdóttir bætir við
landsleikjamet sitt spili hún leikinn.
Erna B. Siguröardóttir, Breiöabliki (til vinstri) og María Björg Ágústsdóttir,
markvöröur úr Stjörnunni, eru nýliöar í íslenska landsliöshópnum enda enn
ungar að árum, veröa báöar 18 ára á þessu ári. DV-myndir Hilmar Þór
Hópinn skipa eftirtaldar stelpur:
Markverðir: Þóra Björg Helgadóttir,
Breiöabliki (9 landsleikir), María Björg
Ágústsdóttir, Stjörnunni (0).
Útileikmenn: Margrét Ólafsdóttir,
Breiðabliki (38), Ásthildur Helgadóttir, KR
(37), Katrín Jónsdóttir, Kolbotn (34),
Guðlaug Jónsdóttir, KR (29), Erla
Hendriksdóttir, Fredriksberg (22), Olga
Færseth, KR (22), Ásgerður Ingibergsdóttir,
Val (21), Edda Garðarsdóttir, Fredriksberg
10), Rakel Ögmundsdóttir, Breiöabliki (5),
is Sæmundsdóttir, ÍBV (3), Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir, KR (3), Rakel Logadóttir,
Val (1), Hrefna Jóhannesdóttir, Breiðabliki
(1), Erna B. Sigurðardóttir, Breiðabliki (0).
-ÓÓJ
í1'
Iri
Sund um helgina:
Örn með ís-
landsmet
Öm Amarson, sundmaður úr
SH, bætti um helgina eigið ís-
landsmet í 400 metra skriðsundi
og það um rúma sekúndu.
Örn synti metrana 400 á 3.52,47
mínútum en gamla metið hans
var síðan í nóvember 1998. Metið
setti Örn í sundlaug Akraness á
ÍA-ESSO-sundmótinu.
-ÓÓJ
HM í þolfimi:
Halldór fimmti
Halldór Birgir Jóhannsson varð
í 5. sæti á heimsmeistaramótinu í
þolfimi sem fram fór í Riesa í
Þýskalandi um helgina.
Halldór hlaut 18.250 stig sem er
hans hæsta einkunn til þessa.
Sigurvegarinn, Jonathan Canada
frá Spáni, hlaut 19.000 stig.
Halldór bætti sig frá því í
undankeppninni þar sem hann
varð í sjötta sæti með 16.850 stig.
Jóhanna Rósa varð í 17. sæti í
undankeppninni með 16.150 stig
en komst ekki í úrslit. -ÓÓJ
Rúnar Geir Gunnarsson:
- held mér í 3-4 1
„Þetta var svo sem engin nýlunda fyrir mig að
sigra á opnu móti enda hef ég gaman af að spila í
þeim. Mér finnst fullmikið að spila 36 holur á dag í
mótunum í Toyota-mótaröðinni þannig að opnu mót-
in henta mér ágætlega. En ég ætla auðvitað að taka
þátt í mótaröðinni í sumar og ætla mér að standa
mig vel.
Ég sé um völlinn á Seltjarnarnesi þannig að ég fæ
ekki jafnoft tækifæri til að spila á öðrum völlum eins
og mætti halda. Ég reyni þó að vera virkur í opnu
mótunum sem haldin eru um víðan völl og mér tekst
nú yfirleitt að spila einhvers staðar annars staðar en
á Nesinu um hverja helgi.
Mér gekk vel í gær, ég var aiveg laus við að slá
utan vallar sem gerist kannski einu sinni eða tvisvar
venjulega þegar ég spOa á þessum velli.
-esá
Urslit
Án forgjafar:
1. Rúnar Geir Gunnarsson, NK ... 73
2. Halldór Á. Ingólfsson, GK.....76
3. Emil Þór Jónsson, GOB ........77
4. Styrmir Guðmundsson, NK.......78
5. Hjalti Nielsen, NK ...........79
6. Jóhann F. Valgarðsson, NK .... 81
7. Bjöm Halldórsson, GKG.........76
8. Vilhjálmur Á. Ingibergss., NK . . 81
6. Haraldur Kristjánsson, NK.....70
7. Guðjón Sævarsson, NK..........71
8. Einar Ingvar Jóhannsson, NK .. . 71
9. Þorgeir Björnsson, GO ........71
10. Viðar Jónsson, GR ...........71
Með forgjöf:
1. Emil Þór Jónsson, GOB ........67
2. Halldór Á. Ingólfsson, GK.....68
3. Baldur Þór Gunnarsson, NK .... 68
4. Ingvar Þór Ólason, NK.........69
5. Rúnar Geir Gunnarsson, NK ... 70
6. Haraldur Kristjánsson, NK.....70
7. Guðjón Sævarsson, NK..........71
8. Einar Ingvar Jóhannsson, NK ... 71
9. Þorgeir Björnsson, GO ........71
10. Viðar Jónsson, GR ...........71
Frá vinstri: Thomas Möller, markaösstjóri OLÍS, Emil Þór Jónsson, GOB, Baldur Þór Gunnarsson, NK, Árni Halldórsson, framkvæmd-
astjóri Nesklúbbsins, Kristján Georgsson, formaöur mótanefndar. DV-mynd Hilmar Þór
Opna OLÍS-mótið í golfi fór fram á Nesvellinum:
Aftur vann Emil
- Rúnar Geir Gunnarsson vann án forgjafar en Emil Þór Jónsson með
Á Nesvellinum á laugardag
fór fram opna OLÍS-mótið í
golfl og tóku þar þátt fjölmarg-
ir kyifmgar og voru heima-
menn duglegir að mæta og
taka þátt. Keppt var í 18 holu
höggleik með og án forgjafar.
Rúnar Geir Gunnarsson, NK,
sigraði án forgjafar og fór
hringinn á 73 höggum, þremur
höggum færri en Haildór Ás-
geir Ingólfsson, GK, sá er lenti
í öðru sæti. Emil Þór Jónsson,
GOB, sá er sigraði Opna Flug-
leiðamótið á fimmtudag endur-
tók leikinn í dag og sigraði
með forgjöf. Hann lék hringinn
á 67 höggum (með forgjöf) og
þrátt fyrir að hafa skotið utan
vallar á fyrstu braut náði hann
að lækka sig í forgjöf þegar
hann skilaði skorkortinu í hús.
Úr 10,4 í 8,5 á aðeins þremur
dögum en takmarkið hjá Emil
er að ljúka árinu undir 5.
Æfingaferð til Spánar
„Þetta hefur gengið eins og í
sögu að undanfömu. I dag byrj-
aði ég að vísu í ófórum því ég
sló utan vallar strax á fyrstu
braut. En ég lét það ekki slá
mig út af laginu og í lokin tókst
mér að lækka um heilan í for-
gjöf.
Löngu höggin gengu vel hjá
mér, ég hef verið að slá upp-
hafshögg upp á 330 metra eöa
svo. Stutta spilið hef ég svo
verið að æfa mikið aö undan-
förnu svo ég geti nú slegið al-
veg upp að holu í öðru höggi.
Púttið gekk ágætlega, ég not-
aði pútter sem ég keypti á
Spáni í vetur en þangað fór ég
í tveggja vikna æfmgaferð hjá
ívari Haukssyni. Sú ferð gekk
mjög vel og hjálpaði mér mik-
ið,“ sagði Emil, glaðbeittur eft-
ir mót. -esá