Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Blaðsíða 4
Stuttmyndadagar DV í Reykjavík: Hvar varstu, Ingibjörg? Gary Palen er kanadískur og hefur dvalist hérlendis um nokkurt skeið. Hann starfar hjá Flugmálastjórn við hópefli starfsmanna en hann stundaði einu sinni nám í taugasálfræði en hætti eftir að hann komst að því að niðurstöðurnar voru notaðar í stríðstilgangi. Gary er líka Ijóðskáld og íslendingar geta barið hann augum á sviði í dag. Þurfti Hrannar B. hjálp við skatta- skýrsluna? Stuttmyndadögum lauk á sunnudags- kvöld með verðlaunaafhendingu. Þar stigu upp á svið Gísli Darri Halldórs- son, sem hlaut 3. verðlaun fyrir Gogh syndrome, Technoballet í E-dúr, Ólafur Jóhannesson, sem hlaut 2. verðlaun fyr- ir mynd sína, Engill nr. 5503288, og lort- ur (Hafsteinn G. Sigurðsson, Halldór V. Sveinsson og Kristján L. Pálsson) sem sigraði i keppninni með mynd sinni, Georg: lifandi lag. Fyrir utan ánægjuna að hafa unnið til verðlauna á hátíðinni biðu allir með öndina í hálsinum eftir þvi að borgarstjóri Reykjavíkur kæmi og afhenti verðlaunin. Eins og margir vita hefur Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir í nógu að snúast. Hún þarf að sitja fyrir á ljósmyndum, tala á frumsýning- um, synda í Nauthólsvík og veiða lax í Elliðaánum. Því var það mikið ánægju- efni þegar aðstandendur Stuttmynda- daga DV í Reykjavík tilkynntu fyrir keppnina að Ibba sæi sér fært að mæta og afhenda kvikmyndagerðarmönnun- um sigurlaunin. Það er þó rökrétt þar sem þau voru í boði Reykjavíkurborg- ar. Það var klökkt loftið og meyrt þegar tilkynnt var að Ingibjörg sæi sér ekki fært að mæta og afhenda verðlaunin. Hvað gæti hafa verið merkilegra? Ætli Hrannar B. hafi þurft hjálp við skatta- skýrsluna sína? Enn verra var þegar hún sat gegnt kvikmyndagerðarmönn- unum sem unnu keppnina kvöldið eftir í Kastljósi og baðst ekki afsökunar. Reyndar er það mjög undarlegt, ætli hún hafi líka sent staðgengil þangað. Ingibjörg, hvar ertu? Vonsviknir vinningshafar GRIM „Ég hef ekki fylgt neinni starfsframabraut nema núna rek ég mitt eigiö fyrirtæki þannig aö ég get ráðiö mér sjálfur. En ég hef aldrei ráöiö mig lengi í fasta vlnnu, ég hef alltaf gefiö mér góöan tíma fyrir sjálfan mig.“ HÚN VAR ÁGÆ.T v „Ég hef verið að skrifa síðan á átt- unda áratugnum þegar ég var að vinna að doktorsgráðu minni í taugasálfræði. Ég var að prófa sýru seint á sjöunda áratugnum þegar orð fóru að vekja áhuga minn og ég byrjaði að yrkja ljóð, aðallega til að ná hlutum út úr hausnum á mér og sjá þá á blaði, kanna hugmyndir og komast að því hver ég væri í raun- inni. Þaðan kom þaö í upphafi. En svo eftir að ég hafði unnið að þess- um hlutum í höfðinu á mér fóru lag- línur að fylgja með. Ég hélt alltaf að það væri leiöinlegt að lesa ljóð en ég hafði gaman af fólki sem söng. í Kanada bjó Leonard Cohen í Montr- eal þar sem ég gekk í skóla og svo var það auövitað Dylan. Þannig að ég komst að því að það er til fólk sem semur djúpa hluti en setur þá fram á skemmtilegan hátt. Ég hóf því að fara á staði þar sem maður gat troðið upp og þannig komst ég inn á þetta og hef nú verið að í 20 ár,“ segir Gary Palen, Kanadamaður sem dvalist hefur hér á landi viö og við undanfarin ár. Á íslandi hefur Gary starfað fyrir Flugmálastjóm sem sérfræðingur á sviði náms og samskipta. Hann segist hafa þróað æfingaferli fyrir flugumferðarskól- ann sem auka eigi áhrif og afköst. Þá vinnur hann einnig að hópefli á vinnustöðum. Gary Palen flytur frumsamda texta sína með hjálp ásláttarhljóöfæra í versluninni 12 tónum í dag kl. 17. Gary stundaði nám í taugasál- fræði en hætti eftir að hann komst að þvi i hvað niðurstöður rannsókn- ar hans voru notaðar. „Ég hætti áður en ég kláraði doktorsprófið mitt og það voru nokkrar ástæður fyrir þvi. Rannsóknin sem ég var að vinna að var um áhrif hræðslu á persónuleika manna. Ég komst að því aö rannsóknin var kostuð af hópi tengdum CIA, The Advanced Research Projects Agency. Þetta var auðvitað á tímum Víetnamstríðsins og það fældi mig frá að vita að bandaríski herinn borgaði mér fyrir vinna rannsóknina og notaði niður- stöðurnar til hernaðar. Annað sem ég komst að var að það var læknir í Flórída sem notaði niðurstöðurnar til að gera skurðaðgerðir á vand- ræðaunglingum til að draga úr árás- arhneigð þeirra. Þetta fældi mig frá því mig hafði bara langað til að læra um hræðslu. Mig langaöi ekkert í gráðuna, ég vildi bara hafa eitthvað til að gefa af mér þvi ég var sá eini úr fjölskyldu minni og hverfmu sem fór í háskóla. Þetta fór alveg með mig og ég sneri mér í staðinn að því að vinna við steypuvinnu og það kom mér aftur á rétta braut.“ Vann í Trinidad „Ég hef ekki fylgt neinni starfs- framabraut nema núna rek ég mitt eigið fyrirtæki þannig að ég get ráð- ið mér sjálfur. En ég hef aldrei ráð- ið mig lengi í fasta vinnu, ég hef alltaf gefið mér góðan tíma fyrir sjálfan mig.“ Hefurðu þá ekki ferðast um allan heim? „Ég hef aldrei ferðast of mikiö, Kanada er svo stórt land að það er nógu erfitt að komast yfir það. Snemma á sjöunda áratugnum fór ég til Suðurríkjanna og tók þátt í Martin Luther King göngunni í Ala- bama. Ég var mikið í þess konar hlutum, að mótmæla og fara í kröfu- göngur. Ég var í háskóla þá og hafði heyrt af ræðum Martins Luthers Kings og hugsaði með mér „andskot- inn, ég verð að fara“, enda var ég mjög róttækur stúdent og hef alltaf verið. Ég eyddi reyndar einu sumri í Eþiópíu fyrir löngu og svo eftir að ég byrjaði með mitt eigið fyrirtæki hef ég farið að ferðast meira. Ég vann aðeins í Trinidad og eftir að ég kom til íslands hef ég byrjað að ferð- ast um Evrópu, farið til Amsterdam, Danmerkur, Lúxemborg og Portú- gal.“ Hvemig leist þér á Kaupmanna- höfn, íslendingar tengjast borginni nú sérstökum böndum? „Já, það er nú ein ástæðan fyrir því að ég fór þangað. Mér fannst merkilegt að ein þjóö skyldi ráða yfir annarri í svo langan tíma og eft- ir að hafa fengið sjálfstæði 1944 held ég að það hljóti að skýra þessa gífur- lega ríku sköpunargáfu sem ég verð var við hér. Hvort sem það er í myndlist, dansi, í Sinfóníunni, djasssveitunum eða rappsveitunum, þá er þetta blómstrandi menning í tónlist og leikhúsi og allir þekkja alla. Reykjavik minnir mig svolítið á St. Johns því hún er svipað stór og þar er svipuð menning." f Ó k U S 9. júní 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.