Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Blaðsíða 13
Hann þótti búa til einhvers konar persónulega breska útgáfu af Detroit-teknóinu. Fyrsta platan hans kom út árið 1989 undir lista- mannsnafninu Translucent en síð- an hefur hann gefið út undir nöfn- um eins og Morganistic, Clem- entine, Planetary Assault Systems og Luke Slaters’s 7th Plane. Hann hefur víða komið við tónlistarlega í gegnum tíðina, gefið út allt frá hörðu teknói út í taktlaust ambient. Freek Funk Árið 1997 gerði Slater samning við Novamute-útgáfuna og sendi frá sér það sama ár plötuna Freek Funk. Hún fékk fádæma góðar við- tökur og var af flestum talin besta breska teknóplatan það árið, ferskt innlegg í senu sem þurfti spark. Freek Funk var einhvers konar funk- og dub-skotið teknó, mjög heilsteypt og flott plata sem jók hróður hans úti um allan heim. Á síðasta ári kom svo hans ákveðnar hugmyndir um það hvemig platan átti að vera. „Við reyndum að gera plötu sem er ekki bara danstónlist," segir hann þegar hann lýsir gerð plötunnar sem hann vann með Álan Sage. „Við vildum að hún hefði ákveðna orku og attitúd. Við vildum ákveðið töff í tónlistina." Vegur Slater hefur farið vaxandi frá útkomu Freek Funk. Lesendur bandaríska tímaritsins Urb völdu hann t.d. teknó-tónlistarmann árs- ins í fyrra. Hann hefur líka haft nóg að gera. Hann kemur enn reglulega fram sem plötusnúður og á undanfömum mánuðum hefur hann gert víðreist með tónleika- prógrammið sitt. Fljótlega eftir tón- leikana í Laugardalnum heldur hann til Barcelona þar sem hann verður eitt aðalnúmerið á hinni ár- legu Sónar-raftónlistarhátíð sem í þetta sinn er haldin dagana 15.-17. júní. Tvær af þekktustu teknóstjörnum Breta Ijúka tónlistarhátíðinni í Laugardalnum á sunnudagskvöldið. Dairers Emerson þekkja flestir en hinn er ekki síður áhugaverður. TVausti Júlíusson hitaði sig upp með LukeSlater. Það stefnir i mikla gleði í Skautahöllinni á sunnudagskvöld- ið. Þegar þýsku transpinnarnir Sash og ATB og okkar íslenska Selma hafa lokið sér af taka við tvær af þekktustu teknóstjömum Breta og trylla lýðinn eitthvað inn í nóttina. Það er enginn annar en Darren Emerson, nýhættur i Und- erworld, sem ætlar að loka festi- valinu. Hann hefur komið nokkrum sinnum áður til íslands. Hann kom m.a. sem meðlimur í Underworld þegar þeir spiluðu með Björk í Höllinni, sællar minn- ingar, og sem DJ þegar hann hitaði upp fyrir Massive Attack í Kaplakrika með þéttu teknósetti. Darren hefur nýlega sent frá sér mixplötu i Global Underground- Stjörnukerfi ifókus ★ ★ ★ ★ ★ Qargandi snilld! ★ Notist í neyð. ★ ★ ★ ★ Ekki missa af þessu. 0 Tlmasóun. ★ ★★Góð afþreying. Vskaðlegt. ★ ★Nothæft gegn leiðindum. v plötudómar seríunni og ber hún nafnið Umgu- ay. Á undan Darren kemur hins veg- ar fram annar frægur breskur teknóstrákur, Luke Slater. Hann hefur reyndar líka komið til ís- lands, spilaði sem DJ á Atom- kvöldi í fyrra, en nú mætir hann með hljómsveit. Það verður spenn- andi að sjá hvað hann er að gera. Kíkjum aðeins á kauða. Trommaði í rokkbandi Luke Slater byrjaði snemma að búa til tónlist. Pabbi hans átti for- láta segulbandstæki sem hann fiktaði mikið við í æsku. Hann var um tíma trommari í indie-rokk- bandi en undir lok níunda áratug- arins þegar acid house-bylgjan skall á í Bretlandi fékk hann raf- tónlistarbakteriuna. Hann vann í og rak teknóplötu- búðina Jelly Jam í Brighton og flutti inn mikið af bandariskri danstónlist, með aðaláherslu á Detroit-teknó. Með plötubúðarrekstrinum stofnaði hann plötufyrirtæki og byrjaði að gefa út eigin tónlist. næsta plata og sú nýjasta til þessa. Hún heitir Wireless og er mikil breyting frá Freek Funk. Á Wirel- ess ægir saman teknó, elekrtó og breakbet og þar má jafnvel heyra áhrif frá sýrurokki. Á plötunni notast Slater við hefðbundin hljóð- færi auk tölva og synta. Mest af ryþmunum á plötunni eru t.d. trommuleikur Slaters sjálfs og samstarfsmanns hans, Alan Sage. Þeir hljóðrituðu fullt af eigin trommuleik og sömpluðu svo og lúpuðu eftir þörfum. Þeir notuðu líka eina tölvu á meðan á upptök- um stóð til þess að leita á Internet- inu að hljóðum sem hægt væri að nota í tónlistina. Vill ákveðið töff í tónlistina Wireless hefur fengið misjafnar viðtökm- en Slater sjálfur er hæstá- nægður með hana. „Mín aðferð er að reyna að gera tónlist sem ég er sjálfur ánægður með. Ég get ekki gert þetta öðruvísi. Þú reynir að gera eitthvað sem þú filar og svo kemur í ljós hvernig aðrir taka því,“ segir hann. Hann hafði líka Luke Slater mætir með hljómsveit í Skautahöllina. Olsenbræður í góðum málum Hinir öldruðu Olsenbræður eru brattir eftir sigurinn í Eurovision og stefna nú að heims- yfirráðum. Þeir hafa fengið hálf- íslending- inn Lars Von Trier til að leik- stýra myndbandinu við næsta lag sem þeir ætla að gefa út. Kannski getur Lars fengið Björk til að syngja bakraddir hjá bræðrunum? Rolan leitar að aurum Bolan Sonur glimmerstjörnunnar Mark Bolan heitir Rolan Bolan og er búinn að vera súr síðan pabbinn dó í bílslysi 1977. Pabbi hafði nefnilega geymt alla pening- ina sína á erlendum bankareikn- ingum til að þurfa ekki að borga skatta af þeim í Bretlandi og Rol- an og fjölskyldan hafa aldrei feng- ið krónu. Rannsóknarlöggur eru nú komnar í málið en Rolan, sem vinnur í búð í Los Angeles, segir: „Þetta snýst ekki mn peninginn heldur hvað er rétt. Við erum fjöl- skyldan hans en samt erum við allslaus." Moby snertir stjörnurnar Richard Hall - eða Moby - hefur aldrei verið vinsælli. Platan hans, Play, hefur verið á toppnum, kannski vegna þess að öll lögin á henni hafa verið notuð í auglýsing- ar. Moby er sköllótt og kristin grænmetisæta og með sérstakan húmor. Hann olli nokkurri hneykslan s dögunum þeg- ar hann sagði frá leik sem hann og vinir hans stunda. Leikinn kallar hann „tippa-leikinn“ og hann gengur út á það að Moby og vinir hans taka tippin út í fjölmennum veislum og nudda þeim utan í frægt fólk. I viðtalinu sagðist Moby hafa snert leikkonuna Winona Ryder og hafnaboltahetjuna Dennis Rod- man á þennan hátt. „Það er svo mikið af fólki að það tekur enginn eftir þessu,“ sagði Moby. „Sá vinn- ur sem snertir flesta." í öðru viðtali sagði þó Moby að sagan um tippa- leikinn væri plat. „Stundum segi ég eitthvað alveg út í hött til þess eins að gá hvort það verði birt,“ sagði hann og glotti. hvaöf fyrir hvernf skemmtileqar staöreyncfir ★★★ Hljómsveitin: BellatrÍX Platan; ItS all tTUe Útgefandi: Fierce Panda/Japis Lengd: 42:01 mín. Sjötta stóra plata Kolrössu krókrfö- andi / Bellatrix. Sveitin hefur sýnt mikið úthald við að koma sér inn á poppkortið góða, spilað 600-700 sinnum á ferlinum og eftir að krakk- arnir fluttu til London sl. sumar hafa þeir m.a. farið á túr með Gene og Coldplay. I sumar er svo hellingur af festivölum fram undan. Popp Bellatrix hefur froðu og grodda i jöfnum hlutföllum. Er fulldónó fyrir litlu stelpurnar með Britney-plakötin og einum of lummó fyrir hökutoppa með Radiohead-komplexa. Bellatrix gæti því vafist fyrir markaðs- og fmyndarfræðingum en víðsýnar smá- stelpur og hökutoppar geta tekið höndum saman í aðdáun. Þetta er fyrsta platan f 5 platna samningi Bellatrix viö Rerce Panda, sem er lítið merki en meö gott orð á sér enda hefur það gefið út fýrstu smáskffur banda á borð viö Placebo, Bluetones og 3 Colours Red, auk smáskífu með upptöku af rifrildi Gallagher-bræðra sem fór hátt á vin- sældarlista f miðju Oasis-fárinu. ★★★★★ Hljómsveitin: YmSÍr piatan: Ego Trips The Big Piayback ÚtgefandkRawkus/Þruman Lengd: 67:13 mín. Þetta er fyrsta hip-hop-safnplatan með Iftt þekktum eða vanmetnum lögum frá nfunda áratugnum. Plötur með sjaldgæfum fönk, soul eða jazz- groove lögum eru algengar en þetta er fyrsta hip-hop-platan af þessu tagi. Inniheldur t.d. lög af uppáhalds- lagalista DJ Premier sem þú hélst þú mundir aldrei heyra! Fyrir alla hip-hop-hausa auðvitað. Þetta er gamli skólinn, oft einfalt og áhrifarikt. Það er til fullt af mjög góð- um sögulegum hip-hop-safnplötum (t.d. „Hip Hop Don’t Stop“-serfan) en þessi er fyrir þá sem eiga það allt saman og eru orðnir leiðir á sömu smellunum endalaust. Rakið fyrir rottweiler-hunda framtíðarinnar. Ego Trip’s The Big Playback er sándtrakkið við bókina „Ego Trip's Book Of Rap Lists" sem kom út f fýrra. Hún er pakkfull af sögulegum (og misnytsamlegum) hip-hop-fróð- leik f listaformi. í henni er m.a. listi yfir dýrustu hip-hop-smáskffurnar. Sú dýrasta, .Beat Bop" með Rammelzee vs. K-Rob, er meðal efn- is á plötunni. ★★★★ Hljómsveitin: EaSt FlatÓUSh Project piatan: Tried By 12 Útgefandi: Chocolate lnd./12 Tónar Lengd: 37:35 mín.. Þetta er plata sem inniheldur 8 remix af laginu Tried by 12 með East Flatbush Project. Á meðal þeirra sem remixa eru Squarepusher, Autechre, þýsku snillingarnir í Funk- störung, tilvonandi íslandsvinirnir f Herbalizer og Ko-Wreck Technique sem er samstarf DJ Craze og Push Button Objects. Við erum stödd á landamærum til- raunakennds hip-hops og framsæk- innar raftónlistar þannig að þetta er fyrir þá sem eru til f svolítið ögrandi skemmtun. Þetta ætti að falla ! kramið hjá þeim sem hafa verið að digga efni frá útgáfum eins og Ninja Tune og Skam. Súkkulaðiverksmiöjan er amerísk út- gáfa, til heimilis f Miami. Hún er eins og litla systir útgáfa á borö við Ninja Tune og Warp. Meðal efnis frá útgáf- unni er „Post Art“ plata Funkstör- ung, „Ko Wrektion"-ep-ið með Ko- Wreck Technique og „Dirty Dozen“ með Push Button Ejects. niöurstaöa Þetta er jafnasta plata Bellatrix til þessa, mjög fagmannlega gerð og lagasmíðarnar geisla oft af næmi fyrir melódíugaldragripi. Spilamennskan er hressileg og sándpælingar stundum skemmtilegar. Platan er þð fullflöt og lög og fílingur nokkuð eintðna. Ágætt nammipopp í hófi en innihaldsrýrt og þunnt við mikla hlustun. dr. gunni Þetta er algjör snilld. Hvert lagið er öðru betra og þetta er allt saman f þessum frábæra einfalda 80's stíl. Þetta er svona grunnútgáfan af hip- hoppi; beat, sömpl, rapp og smá skrats. Góður fílingur í þessu gamla hiphoppi, enda fyrir daga gangsterrappsins. Fróðlegur bæk- lingur fylgir með fýrir nördana. Trausti Júlíusson Þetta er verulega flott plata. Þó aö þetta séu allt remix af sama stykk- inu þá kemur það ekki að sök þvf að útgáfurnar eru svo ólíkar. Skrats til- þrifin í Ko-Wreck-mixinu og spastfsk- ar ryþmatilraunir Squarepushersins blandast þægilega letilegu kannabis- grúvinu hjá Herbalizer og úr veröur ffn heild. Trausti Júlíusson ballatnx 9. júní 2000 f ókUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.