Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Blaðsíða 8
Margt er nú breytt í henni Reykjavík frá því sem áður var þegar menn skíptust í ólíka hópa eftir efnahag og lífsviðhorfum sínum. Fyrr á öldinni gátu menn séð fátæka listame vafra um göturnar eða sitja á kaffihúsum. Þessir menn voru bóhemarnir en á hinum vængnum voru það borgararnir sem óku um í bílum sínum eða spásseruðu um göturn í fínum fötum. í dag virðist hins vegar sprottin upp ný kynslóð fólks sem er nokkurs konar blanda þessara tveggja. Þetta eru borgaralegu bóhemarnir, bóbóarnir. Boboarrr komnir til að vera höndina," útskýrir Dóra og bætir því viö að henni finnist gott að geta auðveldlega stokkið inn á veitinga- hús, farið í leikhús og bíó. Hún er því sannkallaður lífskúnstner, stúlkan. GSM-maður Bjöm Steinbeck er framkvæmda- stjóri Reykjavik Music Festival: „Maður lendir þvi oftast í því að borða á kaffihúsunum,“ segir Bjöm og bætir því við að fundimir sem hann heldur fari einmitt yfirleitt fram á kaffihúsum. „En flestir fundimir fara þó fram í gegnum síma.“ Þú tilheyrir auðvitað GSM-kyn- slóðinni? „Já, það má eiginlega segja að gemsinn sé fastur við eyrað.“ En er einhver tími fyrir fjöl- skyldulíf? „Ég er allavega einhleypur í dag,“ svarar Bjöm sem er starfsmaður Skífunnar. Hann hefur þó ekki alltaf verið það og áður en hann byrjaði þar, fyrir um fjórum mánuðum, var hann sjálfstæður. „Ég hef meðal annars unnið að tónleikum Fugees og framleitt þrjár heimildarmyndir og svo bara hitt og þetta. Ég myndi eiginlega segja að ég ynni að uppá- komum, event management," út- skýrir Björn. Borgaralegi bóheminn er eins- konar blanda af iðjuleysingja og vinnuþjarki. Hann sér fyrir sér, ólíkt bóhemum fyrri alda, en er líkt og forverar hans til í að skjótast út á kaffihús og ræða háfleyga en gagnslausa hluti. Hér á íslandi höf- um við séð bóbóinn verða til fyrst á auglýsingastofunum. Þær skanna listanemana og ráða þá flesta í vinnu þegar Hjálmar H. Ragnars- son sendir þá út á eyrina. Svo komu verðbréfaguttarn- ir nýríku og þeir sýndu að ný teg- undu blýantsnag- ara hafði fæðst. Sama hvað Bubbi Morthens segir þá e r u þessir gutt- a ekki bara haldnir innihaldslausri græðgi. Þeir vilja líka vera bóhem og verða því bóbó. Og þeir koma ekki saman á kaffihúsum fyrir pen- inga líkt og Utangarðsmenn. Nei, þeir eru bara þama til að hanga og gera ekki neitt. Þeim svipar líka til reddaranna. Þessarar nýju tegund ar plöggara sem titla sig fram- kvæmdastjóra. Þeir guttar eiga bæði sjónvarpsstöð og leikhús og eru með sanni bóbóar. Lífskúnstner á Skjá einum Dóra Takefusa er dagskrárgerð- arkona á Skjáeinum: „Ég bjó í London áður en ég byrjaði hérna og var eiginlega ekki að gera neitt, en var auðvitað alltaf að flakka á milli. Áður hafði ég verið á Rík- issjónvarpinu með Óið og ein- hverja tónlistarþætti en byrj- aði reyndar í sjónvarpi 15 ára gömul en þá var ég kynnir og ekki beint dagskrárgerð. Það má segja að ég hafi inn í þetta og þetta verið afskaplega gaman,“ segir Dóra sem er Igjör borgarstelpa þótt hún fædd og uppalinn á Seyðis- „Ég kann betur við mig í hér hef ég allt við tvífarar Guðmundur alþingismaður. Stefánsson Guömundur Rafn Geirdal skólastjórl. Það er alveg óborganlegt að bera saman þessa tvo menn sem eru tvífarar vikunnar. Það er ekki nóg með að þeir séu sláandi líkir og beri sama nafn heldur eiga þeir ýmislegt annað sameig- inlegt. Guðmundur Ámi hrökklaðist frá framboði gegn Össuri í Samfylkingunni í vor og ekki löngu seinna ákvað Guðmundur Rafn að sér væri ekki stætt á framboði gegn Ólafi Ragnari í for- setann þrátt fyrir harða keppni þeirra á milli í síðustu kosning- um. Það væri því ekki óvitlaust að Guðmxmdur Árni kíkti í nudd til Guðmundur Rafns á næstunni og piltamir skeggræddu málin, enda af nógu að taka hjá þessum verðandi fóstbræðmm. Verðbréfaguttinn Helga Helga Hlín Hákonardóttir er lög- fræðingur og starfsmaður mark- aðsviðskiptadeildar íslandsbanka- FBA: „Það er eiginlega bara tóm gleði að vinna í þessum verðbréfa- heimi,“ segir Helga sem er í sam- búð og á eina dóttur auk þess sem sambýlismaðurínn á aðra dóttur. Hún segir að þær séu báðar komn- ar á skólaaldur og það taki auðvit- að sinn tíma að sinna því en engu að síður gefi hún sér tíma til að vera með vinunum. „Ég hef auðvit- að gaman af að vera í góðra vina hópi og þá er oft farið á skemmti- staðina, ég fell alveg undir þann flokk. En svo á maður sér auðvitað mörg önnur áhugamál.“ Úlfur bóbó Úlfur Eldjám er tónlistarmaður og auglýsingahönnuður hjá auglýs- ingastofunni Gott fólk: „Tækifærin sem fólk hefur til að njóta sín eru í dag allt önnur en þau voru áður fyrr. Fólk sem hefur fyrir því að vera fátækir listamenn í dag fjar- lægist svolítið markmiöið með list sinni enda er gósentími fyrir lista- menn nú á dögum. Þessi und- erground menning i dag er t.d. orð- in mainstream. Svo við tökum dæmi af mér og öllum sem ég þekki þá tel ég að það sé varla þess virði að reyna að lifa á því að vera í tónlist og flestir byrja á því að vera í fastri vinnu með fram eða eru í því alla tíð.“ Það er því nokkuð ljóst að Úlf- ur er bóbó og stoltur af því. Var einu sinni bóhem Svo við vindum okkur aftur að Dóru þá á hún feril að baki sem klass- ískur bóhem. Maður byrjaði náttúrlega eins og allir íslendingar með þvi að vinna mikið og ég var jafnvel í þremur vinnum í einu til að safna pening. Svo fór maður út í lönd og ferð- aðist þangað til pening- urinn var búinn. Þá kom sér vel að ég var snillingur að ljúga mig eldri en ég var til að fá vinnu á börum og kaffi- húsum og þess háttar til að eiga fyrir lestar- miðum. Svo var líka alltaf jafn fint að skipta á verðmiðum á rauðvíni í verslunum til að geta fengið sér eð- alvin fyrir lítinn pen- ing. Þetta var mjög skemmtileg upplifun og mjög rómantískur tími fyrir mig í lífinu. í dag er þetta samt ööruvísi og ég er ekki viss um að maður myndi nenna þessu. Þetta var alveg nauðsynlegt en nú kýs ég frekar að vera á góðu hóteli með herbergisþjónustu þegar ég er úti í löndum,“ segir Dóra sem hef- ur skipt um stefnu í dag, er hætt flakkinu og er farin að vinna á stofnun sem býður upp á mikla möguleika í framtiðinni. Eru peningar orðnir stærra at- riði í dag? „Það er auðvitað alltaf notalegt að hafa peninga á milli handanna því það gefur manni frelsi til að gera það sem maður viil. Ég er hins vegar þannig að ég kann ekki að safna peningum og eyði alltaf því sem ég á. Þá skiptir ekki máli hvort ég á 5 þúsundkall eða 100 þúsund, það fer alltaf fyrir rest. Málið er bara að ég nýt alltaf lífsins sama hversu mikinn pening ég á.“ Bóbó er ekki lífsspeki „Það er búið að blóðmjólka allar týpur og trend í einhverjum nostalg- íuköstum og tímamir eru þannig að maður getur verið hver sem er núna,“ segir Úlfur en hann er i hljómsveit og telur einmitt að bönd- in byggi upp á svona geðklofningi. „Eru Fræbblamir ekki allir mennt- aðir í kerfisfræði?" spyr Úlfur og klykkir út með því að segja að það sé i raun engin lífsspeki á bak við borg- aralega bóheminn. „Enginn velur sér hann sem lífstefnu." Þó er nokk- uð ljóst að bóbóinn er kominn til að vera. Bif rn Sfeinbeck 4 f Ó k U S 9. júní 2000 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.