Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2000, Qupperneq 18
Þráinn Bertelsson er maöurinn. Þetta er ástsælasti kvikmyndaleikstjóri íslandssög- unnar. Á aö baki sjö alvörubíómyndir og get- ur Frikka Þór ekkert eftir. Myndir Þráins voru líka orginal ræmur á borö viö Jón Odd og Jón Bjarna, Lífsmyndirnar, Magnús og svo hin miöur góöa Einkalíf Alexanders. Þráinn er sögumaöur og sagði yfirleitt frum- samdar sögur meö myndum sínum. Þaö er synd aö ekkert skuli hafa heyrsttil hans þar til Hrafn nokkur Gunnlaugsson kom í viötal í DV í vikunni og sagöi þjóöinni að Þráinn Bertelsson væri aö skrifa meö sér handrit eftir sögu forsætisráöherra. Þráinn er ITka einn virtasti handritshöfundur þjóöarinnar og sá eini sem hefur veriö tilnefndur til verö- launa á alvöruhátíö. Fókus vonar aö ráða- menn uppi í hinum háa Kvikmyndasjóöi sjái sóma sinn ! að senda Þráni milljónir í upp- hafi næsta árs. Fariö hefur gott fé verr. & Vfcr MENNINGARBODG EVRÓPU ÁRIÐ 2000 Partí. Viö bara nennum þessu ekki. í ár er Reykjavík ein af nokkrum menningarborg- um Evrópu, Ustahátíöln hefur aldrei veriö veglegri, brúökaup Ólafs er á döfinni, landa- fundapartíin eru á fullu í Bandarikjunum, Varmárþlng hefur aldrei veriö stærra og hver einasta ríkisafæta er búin aö mjólka út úr okkur styrk til aö geta haldiö partí. Um daginn kom símaskráin út og hún vildi meira að segia aö viö fögnuðum, slægjum upp veislu og dyttum í þaö af þv! aö hún væri í lit. Þaö var eins og útgefendur skrár- innar teldu aö þaö væri meiri háttar afrek hjá þeim að hafa tekist aö koma út síma- skrá. Og þegar fólk er fariö aö nota s!ma- skrána sem afsökun til að lyfta sér upp þá er komiö nóg. Viö bara viljum þetta ekki og mætum ekki í fleiri partí nema ærin ástæöa sé til. Fókus er farinn í fýlu og ætiar bara aö mæta á gömul og gild part! eins og útihátíö um verslunarmannahelgl eöa eitthvað jafn rótgróiö. 1 prakt um siö unnudagskvöl ustu d og h< fy i íslenskra og irmanna. Eftir erlei kep| ndi m myn kusu þeir síða ist skemmtilegu leg ást eftir Ahorfendave hún fjallar um p á sunnu se var myndin onarson sem að þessu sinni á Thomsen gerir með sé www.visiris Grímur Hákonarson hefur ver- ið iðinn við stuttmyndagerð í gegn- um árin. „Ég byrjaði að gera mynd- ir strax í gagnfræðaskóla. Þær voru auðvitað ekki upp á marga fiska en maður lærir af reynslunni. Þannig er maður orðinn nokkuð skólaður í þessiun málum. Núna stefni ég til Englands í London International Film School. Ég gerði Efnislega ást í tengslum við skólaumsóknina ásamt félaga min- um, Eyjólfi B. Eyvindarsyni, sem gerði einnig myndina Stutt i hnakkann með mér í fyrra.“ Óháða kvikmyndagerðin Fyrsta myndin eftir Grím sem rataði á Stuttmyndadaga í Reykja- vík var Atvinnuleysinginn árið ‘94. „Hún var ágæt og varð í 4. sæti. Hana gerði ég eftir að hafa sjálfur verið atvinnulaus í tvo mánuði. Mig langaði til að fjalla um aðgerð- arleysið. Maðurinn í myndinni var einnig mjög utangátta og var síðan misnotaður af trúarsöfnuði. Þetta var nútimadæmisaga," segir Grím- ur. Næstu mynd, Klósettmenningu, gerði hann í samráði við félaga sinn, Rúnar Rúnarsson, undir merkjum Óháðu kvikmyndagerðar- innar. Klósettmenning vakti mikla athygli á Stuttmyndadögum ‘95 og var sýnd á hátíðum á Norðurlönd- unum, vann m.a. avant garde-ver^ð- metxxra. ét laun á NU-TV-hátíðinni i Dan- mörku. „Stuttu seinna gaf Óháða kvikmyndagerðin út myndband með samansafni af stuttmyndum sem nú fæst aðeins á betri bóka- söfnum. Þar voru m.a. Klósett- menning, Helvítis Reykjavík, sig- urmynd Stuttmyndadaga ‘95, og Helgarferð til Auswitch sem ég gerði ‘96. Ég er nokkuð hreykinn af þeirri mynd. Hún er súrrealísk út- tekt af hugmyndafræði hægrisinn- aðra manna og ádeila á tengsl Sjálf- stæðisflokksins við nasista fyrir stríð. Að vísu skildu hana fæstir en það er allt í lagi,“ segir Grímur og byrjar að lýsa gerð næstu myndar sem Óháða kvikmyndagerðin réð- ist í, Oiko logos. Gerð hennar tók rúm tvö ár og var afraksturinn sýndur í Háskólabíói fyrr i ár. Oiko logos verður einnig sýnd í Rikis- sjónvarpinu með haustinu. Gaman að ögra Um gerð Efnislegrar ástar segir Grímur: „Kvikmyndaskólinn í London vildi að ég gerði 3 mín. stuttmynd í ljósmyndaseríu fyrir umsóknina. Þar sem ég var búinn að redda öllu sem til þurfti til að gera stuttmynd, leikurum og að- stæðum, ákvað ég að skjóta hana líka. Síðan tók ég ljósmyndimar af sjónvarpsskjánum.“ Myndin fjallar um par sem hitt- ist á næturklúbbi. Augu þeirra mætast og maðurinn færir sig yfir til konunnar. Þau spjalla í stutta stund og síðan réttir hann henni poka sem hún tekur með sér inn á klósett. Þar fylgjumst við með henni rembast yfir pokanum og færa honum hann síðan stuttu seinna. Þau eru samferða út en stuttu seinna skiljast leiðir. Hvort heldur heim til sín. Þar sjáum við konuna bíða á rúmkantinum fram eftir nóttu en maðurinn fitlar smá við pokann og lognast svo út af. Daginn eftir er konan í strætó þeg- ar maðurinn rankar við sér. Hann ræðst strax á pokann og athafnar sig og í kjölfarið fær hún fullnæg- ingu í strætó. „Áhrifavaldar myndarinnar eru þrír: í fyrsta lagi er það austur-evr- ópsk klúbbamenning en ég eyddi síðasta sumri í Eystrasaltslöndun- um þar sem allir hlusta á Evrórusltónlist daginn út og inn, sama hvar þeir eru staddir. í öðru lagi eru það tíðar strætóferðir mín- ar þar sem ég kynnist gelgjumenn- Þórunn Magnús- dóttir og Jón Gunnar Þórðarson leika parið í Efnis- legri ást. i n g u n n i beint í æð, SMS og gemsar er það eina sem lifið snýst um og í þriðja lagi eru það skyndikynni þar sem ekkert hangir á prjónun- um nema hreinn losti.“ Grímur segir leikarana í mynd- inni, Jón Gunnar Þórðarson og Þórunni Magnúsdóttur, hafa staðið sig með prýði. „Persónumar þeirra voru reyndar fyrst hugsaðar frekar ógeðfelldar en þetta kom vel út. Það er einnig gaman að því að fólk áttar sig ekki á því að leg kon- unnar fór í pokann. Það er gaman að gera mynd sem ögrar svolítið.“ Oiko logos verður sýnd í Ríkissjónvarp- inu með haustinu. ! m toátfi A miðvikudagskvöldiö í síðustu viku safn- aðist fólk út á skemmtistaöina enda ærið tilefni til. Á Sóloni íslandus sást til ým- issa fyrirmenna en nýstúdentar voru engu að síður mjög áberandi. KR-ingar héldu aö sjálfsögðu upp á sigurinn um kvöldið og eftir að hafa borðað á Rauða Ijóninu eftir leikinn sást meðal annars til þeirra Bjarna Þor- steinssonar varnar- manns og Bjarka Guð- mundssonar, mark- manns úr Keflavík. Ekki sást þjálfarinn með þeim og alls óvíst hvað hann segir um svona uppátæki. Á svæöinu var einnig forsetadóttirin marg- fræga, Dalla Ólafsdóttir, sem er oröin ein af næturdrottningum borgarinnar. Með henni var svo að sjálfsögðu vinkonan Vala Pálsdóttir, kynningarstýra hjá OZ.COM og fýrrverandi íþróttafréttamað- ur hjá RÚV, en hún mætti með nýja kærastann upp á arminn sem einmitt l!ka vinnur hjá OZ. Þá má auövitað ekki gleyma Ragnari Bragasyni sem stendur sig hetjulega hjá Flybus þegar hann þræöir ekki skemmtistaðina. Á laugardagskvöldið var troöiö á Sirkus. Þar var listapariö Gabríella Friðriksdóttir og Daníel Ágúst Haraldsson. Þau drukku kampavín í góöra vina hópi og voru t stuöi. Sagan segir að glösin hafi jafnvel fengið að fljúga þegar tvíburabræður Móu mættu á svæöiö. En þeir björguðu Daníel frá því að vera hent út. Annars kíkti P6 í húsið og Magse, Matti og Huw Bowles þeyttu skífur sam- an. Listamenn úr hópi spír- anna í Listverksmiðjunni voru auk þess á staðnum og fóru yfir reynslu sína af Fleyg fáránleikans. Svo var prinsessan og eigandi Sirkuss auövitað á barnum. Hún Stéphanie er alltaf kammó og skemmtileg en núna ganga að vísu þær sögur aö hún gæti selt staö- inn á þrusuverði ef hún kæröi sig um. Enda góður staður. Á föstudagskvöldið var hald- ið upp á nýja leikhúsiö, Leikfélag íslands. Fyrst var hátíðarsýning á Sjeikspír eins og hann leggur sig. Eftir sýningu var haldið teiti í Iðnó til að fagna þessum merku tíma- mótum. Þar var gríðar- leg stemning og allir f sjöunda himni. Hljóm- sveitin Geirfuglarnir lék fyrir dansi fram á rauðanótt en einnig tróðu gömlu brýnin úr Nýdanskri upp. Á svæöinu voru auövitað allir hluthafarnir í nýja félaginu, þar á meðal leikhúsmennirnir_ Baltasar Kor- mákur Siggi Sigurjóns, Örn Árnason, Jó- hann Sigurðarson, leikhússtjórinn Magn- ús Geir, stjórnarformaöurinn Hallur Helgason og fram- kvæmdastjórinn, Stefán Hjörleifsson. Victoria Apríl, stórstjarna úr 101 Reykja- vík, var í rokna stuði og dansaði viö alla karlmenn á svæðinu, þar á meðal Hall- grim Helgason stórskáld, og Ingvar Þórðarson var meö þeldökka fegurðardís upp á arminn. Þarna voru aðrirvin- sælustu leikarar landsins, eins og Hilmir Snær, Ingvar Sigurðsson, Björn Ingi, Jak- ob Þór. Leikkonurnar úr Stjörnum á morgunhimni, þær Jóhanna Vigdís, Edda Björg, Bryn- dís Petra og Sigrún Edda voru í rokna stuöi og Rúnar Freyr og Selma létu vel af leik Geirfuglanna. Ólafur Haukur, vin- sælasta leikskáld landsins, var í hróka- samræöum við Lárus Ými kvikmyndaleik- stjóra og Þórhall Sig- urðarson leikara og leikararnir úr Sjeik- spír voru auðvitað á svæðinu, Halldóra Geirharðsdóttir, Frið- rik Friðriksson og Halldór Gylfason, sem var reyndar upp- tekinn viö að syng|a með Geirfuglunum. Ragnar Kjartansson snyrtipinni hafði margt að skeggræöa viö Kormák félaga sinn en Skjöldur var hins vegar fjarri góöu gamni. Stuttmyndadagar DV voru haldnir í Tjarn- arbíói. ingibjörg Sólrún Gísladóttir kom ekki, Hrannar B. ekki heldur og enginn sá til stjórnmálauglunnar Helga Hjörvars. En sigurvegararnir úr Lorti voru auðvitað á svæðinu. Þeir Tinni, Haddi Gunni og Krissi tóku við kossi frá Ingibjörgu Stef- áns og tékka meö undirskriftinni J. Kemp. Jonni Sigmars skemmti sérvel yfir ræmunum og Silli klippari hélt fyrirlestur ásamt Óskarl Jónassyni. Ragna Sara Jónsdóttir og vinkonur voru með mynd í keppninni en gekk ekki sem skyldi. Ólaf- ur „engill" Jóhannesson var kurteis og prúður að vanda þegar hann tók við öör- um verðlaunum og Gísli Darri glotti nördaralega þegar hann nældi í þriðju verðlaun fýrir teiknimyndina sína. Svo fékk Grímur Hákonarson áhorfendaverð- laun DV og var auðvitað kampakátur með þau. Tíska* Gæði*Betra verð m KCWELLS 18 f Ó k U S 9. júní 2000 ititmiimummmmum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.